Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1985 13 GLÆSILEGIR TÓNLEIKAR Tónlist Jón Ásgeirsson Jean-Pierre Wallez Síðustu áskriftartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands voru sannkallaðir glæsitónleikar. Efn- isskráin var mjög góð, einleikar- inn frábær og hljómsveitin betur mönnuð en oft áður, með 14 fyrstu fiðlum, tólf í annarri fiðlu, 8 lágfiðlum, jafnmörgum cellóum og fimm bössum, alls 57 strengj- um, sem fer að nálgast rétta stærð strengjasveitar fyrir sin- fóníuhljómsveit. Tónleikarnir hófust á Choralis, eftir Jón Nordal og var þetta fal- lega verk mjög vel leikið. Annað verkið á efnisskránni var svo fiðlu- konsertinn í D-dúr eftir Beethoven. Fiðlukonsert þessi er ein- hver falleg- asta tónsmíð meistarans, ægifagurt verk og lék franski fiðlu- snillingurin Jean-Pierre Wallez einleikshlutverkið. Leikur Wallez var í heild bjartur, leikandi létt- ur og þrátt fyrir að einhverjir hefðu kosið sér þyngri og alvar- legri túlkun, verður því ekki neit- að að leikur Wallez var frábær, blátt áfram glæsilegur. Síðasta verkið á efnisskránni var svo eina sinfónían sem Cesar Franck samdi. Enn í dag eru skiptar skoðanir um þetta verk, sem er býsna vinsælt af hlustendum. Einn fegursti þáttur verksins er miðþátturinn, sem hefst á sam- leik strengjasveitar og hörpu, er síðar fléttast saman við ein- leiksrödd fyrir enskt horn. Daði Koleinsson lék þessa fal- legu sóló mjög vel. Þá var eftir- tektarverður samleikur Einars Jóhannessonar og Josephs Ognibene í sama kafla, bæði fal- legur leikur Ognibene og einkar þýður samleikur Einars, sem blásarar sveitarinnar mættu taka sér til fyrirmyndar. í fiðlu- konsert Beethovens voru t.d. ekki nægilega skörp skil á milli ytri marka í styrk hjá tréblásurunum og í Franck-sinfóníunni voru básúnurnar allt of sterkar, t.d. í upphafi Allegro non troppo í fyrsta kafla. Fyrir bragðið var þungamiðja hljómsins í undirröddunum mun meira en eðlilegt er og á köflum heyrðist illa til efri raddanna. Þetta varð mjög áberandi í Franck-sinfóníunni, vegna þess hve lúðrarnir eru mikið notaðir í þykkri raddskipan. Þessir erfiðleikar voru mest áberandi í síðasta kaflanum og á einum stað var þessi styrkleika- þraut mjög erfið. Það er í niður- lagi verksins, þar sem „piston"- trompettinn er með langar nótur á móti hörpu, strengjum, klarin- etti, túpu og pákum. Þessi tónn má ekki skera sig úr og það er virkilega erfið tónmyndunar- þraut, svo sakleysislega sem nót- urnar líta út á pappír, að ná þessum tóni mjúkum og veikum, þ.e. a.s. eins og stendur, pían- issimo. Stjórnandi tónleikanna var Jean-Pi- erre Jacquill- at og var margt fallega gert í stjórn hans, sérstaklega í Chor- alis eftir Jón Nordal, fiðlukon- sertinum eftir Beethoven og í öðrum þætti sinfóníunnar eftir Franck. Fyrir utan glæsilegan leik á köflum hjá Sinfóníu- hljómsveit íslands, var leikur Jean-Pierre Wallez einstaklega glæsilegur. Þegar svo vel er leik- ið, eins og hér um ræðir, er í raun óþarfi að fást um viðhorf til stíls og túlkunar, sem auk þess að vera bundin við ákveðin menn- ingarsvæði, geta heft menn í endurnýjun tónlistar. Hver nýr flutningur er í raun endursköpun verksins og endursköpun Jean- Pierre Wallez var falleg, þrungin af leikgleði og tæknilega stór- glæsileg. Þessi efnisskrá, auk verks eftir Þorkel Sigurbjörnsson og verka þar sem Einar Jóhannesson og Pasquier leika einleik, mun verða uppistaðan í viðfangsefnum hijómsveitarinnar í ferð þeirri sem fyrirhuguð er til Frakklands í boði franska menntamálaráðu- neytisins í júní næstkomandi. Stjórnandi verður Jean-Pierre Jacquillat og óska íslenskir tón- listaráhugamenn hljómsveitinni góðrar ferðar og góðs gengis. Jean-Pierre Jacquillat BLÍÐARI LITIR Myndlist Bragi Ásgeirsson Það verður að teljast rétt sem Einar Hákonarson listmál- ari sagði um málverk sín í blaðaviðtali á dögunum, að litameðferðin væri orðin blíð- ari. Það verður og einnig að segjast um myndmálið því að yfir því er meiri ró og festa en áður. Listamaðurinn spennir ekki upp flötinn í jafn ríkum mæli og áður og ekki er sami hraði í formaleiknum. Sýning Einars Hákonarsonar í Gallerí Borg bendir í einu og öllu til þess að hann gerir sér far um að aga sig enn frekar í meðferð lita og forma. Fyrir vikið eru myndirnar máski ekki jafn spennandi við fyrstu sýn en aftur á móti tapa þær ekki á nánari skoðun og það er mikill kostur og raunar aðal hvers góðs málverks. Af sýningunni að marka má ætla að Einar sé að víkka út myndsvið sitt og standi mitt í ákveðinni þróun sem ekki er gott að segja hvaða stefnu taki. Það er ekki mikið að gerast á myndfletinum en litirnir eru mettaðri og hnitmiðaðri en áð- ur. Einar styðst þó við sama myndmál og áður, og formin þekkjum við vel úr fyrri mynd- um hans, en táknmálið er þó orðið ívið huglægara. Listmað- urinn leitast við að leysa upp formið stokka það upp og hér eru auðsæ bein áhrif frá nátt- úrunni og umhverfinu líkt og í fyrri myndum hans. Það eru 25 málverk á sýning- unni og langflest eru máluð á þessu ári en nokkur á því síð- asta og sýnir þetta afköst lista- mannsins og virkni hans í starfi. Þótt sýningin sé um margt jafngóð, slétt og felld, þá voru það nokkur verk er leituðu meira á en önnur og í þeim þykir mér sem ýmsir bestu eig- inleikar listamannsins sem málara komi fram. Voru það myndirnar „Stælt á virkum degi“ (3), „Á Suðurlandi" (7) „íhugun" (14) og „Kvenþankar" (19). Trúlega markar þessi sýning nokkur þáttaskil í list Einars Hákonarsonar. REGAL Höfum fyrirliggjandi BUICK REGAL, tveggja og fjögurra dyra, árgerÖ1984 á sérstöku afsláttarverði. BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.