Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1985 43 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Uhr/'U If Skyggnigáfa er mikil lífsfylling Helgi Vigfússon skrifar: Þökk sé Norræna heilunarskól- anum fyrir hina tvo opinberu fyrirlestra í Fríkirkjunni á dögun- um. Þar var talað um hið stórkost- lega mikla undur, skyggnina, á mismunandi þroskastigum, sam- bandið við framliðna, dularlækn- ingar og síðast en ekki sizt mátt bænarinnar. Það fór vel á því að Fríkirkjan varð fyrir valinu sem fyrirlestrarstaður. Fríkirkjan var um langan tíma musteri mikilla andans manna, séra ólafs frí- kirkjuprests fyrr í Guttormshaga í Holtum, séra Árna Sigurðssonar, sem voru frjálslyndir gáfumenn. Séra Haraldur Níelsson, prófess- or, hélt guðsþjónustur í kirkjunni 1914—1928, ávallt fyrir troðfullri kirkju. Séra Haraldur barðist fyrir að finna sannleikann, boðaði líf og ódauðleika mannssálarinn- ar, heilstreyptur spíritisti. Séra Haraldur Níelsson er örugglega einn stærsti andinn sem jarð- nesku hoidi hefir klæðst á íslandi. En þökk sé fyrirlesaranum fyrir gott erindi, málefni sem á erindi um allan hinn siðmenntaða heim. Enginn veit hvað það er stór- kostleg lífsfyliing að umgangast hina dýrlegu framliðnu vini okkar nema sá sem þessa miklu Guðs gjöf hefir. Fyrirlesarinn í Fri- kirkjunni er meðal þeirra lánsömu er Guð hefir lánað hæfileikann. Ég, sem þessar línur skrifa, var langt innan við tvítugt þegar ég kynntist miðlinum Hafsteini Björnssyni og byrjaði að vinna með honum. Hafsteinn miðill var gæddur miklum sjálfsaga, en hann í þjón- ustu kærleikans gaf þeim sem voru yfirkomnir af sorgum nýja von. Með starfsemi sinni og til al- mennra heilla fóru syrgjendur glaðari af fundum Hafsteins og sinna, er þeir voru fullvissaðir um heimsókn ástvinanna á sín gömlu heimili. Syrgjendur fóru af fundunum fullvissir um að samband var ekki tapað, þó þeir væru komnir úr augsýn jarðneskra ástvina. Ég er sannfærður um að þetta var vilji Guðs, árangur funda miðilsins Hafsteins Björnssonar. En til þess að þessi kærleiksgáfa geti fallið fólki í skaut þarf sjálfsfórn helg- aðra miðilshæfileika. Fræðslan um skyggnigáfuna í Fríkirkjunni var mjög þarft verk. Verðum að halda landinu okkar frjálsu Einar Ingvi Magnússon, Heidar- gerði 35, skrifar: Kæri Velvakandi. Lenin sagði eitt sinn: „Sérhver kommúnisti verður að vera virkur í að útbreiða heiðnar bókmenntir og boða griðleysi." Markmið hans sem formaður og jafnvel hans persónulega mark- mið, grundvallað á sjúklegu hatri móti kirkjunni, var að ganga af henni dauðri og útrýma henni gjörsamlega. Hann tók sannarlega alvarleg orð Marx um að trúin væri ópíum fyrir fólkið. Þess vegna er trúin lögð að jöfnu við hin hættulegustu eiturlyf í Sovét- ríkjunum. Þar er fólki kennt að manneskjan sé framleiðsla fram- þróunar og trúin sé eitur sem dreift sé af kapítalistum. Þó segir svo í 51. grein stjórnarskrár Sov- étríkjanna: „Sovéskum ríkisborg- urum er tryggt frelsi til þess að játa eða ekki játa hverskyns trú- Slavíska trúboðið hefur tekið þátt ( dreifingu á 64.000 biblíuhlutum og söngbókum á sovéskum tungumál- um. Málin tala um 25 milljónir manna í Sovétríkjunum. Bókmennt- ir trúboðsins eru fáanlegar fyrir alla þá sem ferðast til Austur-Evrópu eða vilja breiða þær út meðal sovét- manna á Vesturlöndum. Árið 1984 dreifði slavíska trúboðið 45.000 bibl- íum og Nýja-testamentum til komm- únistalanda. Ef einhver vill taka þátt í þessu mikla og þarfa starfi getur hann haft samband við trúboðið. Heimilisfang þess er: Slaviska Miss- ioner., S-16115, Bromma, Sverige. Valdimir Sintjenko var handtekinn af KGB-mönnum f miðbs Moskvu 20. febrúar sl. Sintjenko, sem er babtisti, er vaktaður sem stórhættulegur glæpa- maður. arbrögð, og að framkvæma trúar- lega tilbeiðslu eða guðlausan áróð- ur.“ Þetta er einræðið, þetta er skrefið í áttina til þess — sósial- ismans. Þetta er kommúnisminn. Þetta, Islendingar, verðum við að varast ef við ætlum að lifa í frjálsu landi. Einræðið og frelsisskerðingin í ríki kommúnismans er svo ógnvænleg að sérhvert skref í átt- ina til hans er skrefi of langt (jafnvel þó útsendarar Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík neiti öllu sambandi við hann og tali um evrópskan sósíalisma). Fréttirnar sem slavíska trúboðið fær af frels- isskerðingu kristinna manna i löndum kommúnismans og lesend- ur Velvakanda hafa séð undanfar- ið, er okkur sannarlega hvatning til að standa vörð um sjálfstæði okkar gagnvart sérhverju skipu- lagi myrkvahöfðingjans og þjóna hans hér á jörðu, sem ganga um og drepa kristna meðbræður okkar og systur undir merki kommún- ismans. Vísa vikunnar Að pólitískum banabeði berst nú Svavar jafnt og þétt. Þetta er engin þjóðargleði, þetta er bara satt og rétt. Hákur Vinnuvélar Til sölu: Hino K Y 420 6x2 árg. 1981. Volvo F 10 6x4 árg. 1982. Scania R 142 6x2 árg. 1982. Vélavagn: (Sindra) þriggja öxla buröargeta 59 tonn árg. 1984. Hino KM 80 meö palli og sturtum, nýyfirfarinn og sprautaöur. OK diesellyftari tveggja tonna árg. 1980. BÍLABORG HF. Smiöshöföa 23. Sími 81299. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ Lyngási 7 9 — 210 Garöabæ — S 52193 og 52194 INNRITUN Innritun í Fjölbrautaskólann í Garöabæ fyrir haustönn 1985 stendur nú yfir. Boöiö er upp á kennslu á eftir- töldum brautum: (4 ára nám) (4 ára nám) (1 árs nám) ED - Eóiiafratóibraut FÉ - Félagsfraóabraut F1 - Fiskvinnalubraut F2 - Fiskvinnslubraut (2 ára nám) FJ - Fjölmiðtobraut (4 ára nám) H2 - Heilsugreslubraut 2 (2 ára nám) H4 - Hailsugaaslubraut 4 (4 ára nám) Í2 - iþróttabraut 2 Í4 - Íþróttabraut 4 LS - Latinu- og sðgu- MA - Málabraut NÁ - Náttúrufraaóabraut TÓ - Tónlistarbraut Tt - Tasknibraut TjE - Tnknitraaóibraut T4 - Töivufraaói - vióskiptabraut 4 U2 - UppekJiabraut 2 U4 - Uppaidiabraut 4 V2 - Vióskiptabraut 2 V4 - Vióskiptabraut 4 (2 ára nám) (4 ára nám) (4 ára nám) (4 ára nám) (4 ára nám) (4 ára nám) (4 ára nám) (2 ára nám) (4 ára nám) (2 ára nám) (4 ára nám) (2 ára nám) Námi lýkur meö stúdentsprófi. Námi lýkur meö stúdentsprófi. Bókteg undirbúningsmenntun fyrir nám í fiskiön. Bókieg undirbúningsmenntun fyrir nám í fisktækni. Námi lýkur meö stúdentspróf). Bóklegt nám sjúkraliöa. Námi lýkur meö stúdentsprófi. Undirbúningur undir frekara iþróttanám. Náml lýkur meö stúdentsprófi. Námi lýkur meö stúdentsprófi. Námi lýkur meö stúdentspróf). Námi lýkur meö stúdentsprófi. Námi lýkur meö stúdentsprófi. Náml lýkur meö stúdentsprófi. Aófararnám aö námsbrautum i tæknlfræöi í tækniskólum. Náml lýkur meö stúdentsprófi. Undlrbúningur fyrir fóstur- nám. Námi lýkur meö stúdentsprófi. Námi lýkur meö verslunar- prófi. Námi lýkur meö stúdentsprófi. (4 ára nám) Umsóknir skal senda til Fjólbrautaskólans í Garöabæ, Lyng- ási 7—9, 210 Garöabæ. Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl. 8.00—16.00, sími 52193 og 52194. Þeir sem óska geta fengiö send umsóknar- eyöublöó. Innritunin stendur til 6. júní nk. Skólameistari er til viðtals alla virka daga kl. 9.00—12.00. ^ . Rússnesk listsýning — sovésk bókasýning Sýningarnar „Myndlist í Rússlandi" og „Sovéskar bækur“ veröa opnar í húsi MÍR aö Vatnsstíg 10 um hvítasunnuhelgina (laugardag, sunnudag og mánudag) kl. 14—19. Næstsíöasta sýningarhelgi. Aögangur ókeypis. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.