Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 42
42 MORGtfNBLAÐID, LAUOAHDAGt-H 25. MÁÍ 1985 L uÉg minníst hinAa $ömlu 0Óðu daqft, pegar eg ennþci opfc se& til Ojluggan*." ~ H Ast er ... i ... að kl&ra henni á bak- inu þar sem hún nær ekki til TM Reg U.S. P?t. Oft.—2.'! rtgSS :íK.í~ j s i»Q3 'los Ángeles Times'Syndicate l*ú rétt rsður því ef þú lætur þenn- an ofstopa fá peninga! Nei, ég veit ekki hvar Vatikanið er og þú verður sjálfur að gæta þess sem þú átt, drengur minn! HOGNI HREKKVISI „NÚ ElttO ÖKV(3<SLE6A AÐ FIMNA EIN — HOEt2JA AFSÖKUM FÝRlR tví A£> Z&TA i LA0FAHRÚ60NMI !" Réttur maður á réttum stað II.S. skrifar: Á dögunum flutti Markús Örn útvarpsstjóri ávarp í sjónvarpinu og var það með miklum ágætum, þar fór saman frábær flutningur og málfar og framkoma öll. í ör- stuttu máli lagði hann fyrir hlust- endur á góðan og skýran hátt störf og stefnu ríkisútvarpsins. Ég held að öllum, sem hlustuðu á þessa stuttu og þaulhugsuðu ræðu, hafi orðið ljósara en áður hve miklu hintverki ríkÍ2úív2rp (hljóðviirp og sjónvarp) gegnir í þjóðlífinu og hve mikils það er vert að þar sé vandað til alls eftir föngum og að þjóðin standi einhuga að því að gera það sem best úr garði, m.a. með því að víkja sér ekki undan að greiða þá litlu upphæð sem af- notagjaldið er. Ef einhver hefur verið með efasemdir um val út- varpsstjóra munu þeir flestir vera á einu máli um það nú, að þar sé réttur maður á réttum stað. Svo er það líka annað. Eftir Koooq rno/Sn n ♦yornoofí Ár" margir gert sér betri grein fyrir því en áður að hér er engin þörf fyrir fleiri útvarps- og sjón- varpsstöðvar. í Morgunblaðinu var í gær eða fyrradag skýrt frá því að tveir nafngreindir menn væru svo að segja tilbúnir með sjónvarpsstöð fyrir fólk hér vestan heiða. Gam- an hefði ég og líklega margir fleiri að frétta af því hvort skáldið, rit- stjóri Morgunblaðsins, teldi að slík stöð og aðrar áþekkar yrðu til ST!:r.gar ísienskri menningu. Þessir hringdu . . . Rásin æðisleg sjónvarpið leiðinlegt G.R. hringdi: Viðvíkjandi bréfum sem borist hafa Velvakanda, gefandi það 1 skyn að rás 2 væri leiðinleg, þá vil ég segja það að mér finnst rásin alveg æðislega góð. Hins vegar vil ég kvarta und- an því hversu sjónvarpið er allt- af leiðinlegt. Nú eru til margar myndbandaleigur með mjög góð- um bíómyndum. Er ekki hægt að sýna álíka góðar myndir og þar finnast I sjónvarpinu? Úrelt lög falla R.G. skrifar: Mig langar til að svara bréfum sem nokkrir Duran Duran að- dáendur hafa skrifað. Þið talið um að lögin „Save a Prayer" og „Some Like it Hot“ falli niður listann og ykkur finnst það skrýtið. Þið verðið að gera ykkur grein fyrir því að þið þekkið ekki ALLA, sem hringja í vinsælda- listann. Einnig verðið þið að kyngja því að úrelt lög falla niður listann og það er og hefur alltaf verið. Of mörgum hleypt inn Jón, norður í landi hringdi: Flestir, eflaust, muna eftir slysinu í Bradford á Englandi á fótboltaleikvangi þar sem marg- ir létust og fleiri meiddust þar sem margt — of margt — fólk var samankomið. Ég var á ráðstefnu suður í Reykjavík fyrir nokkru og kom þá nokkuð athyglisvert mál upp í sambandi við samkomuhús, fé- lagsheimili o.þ.h. Það að hrúga inn í húsin hundruðum manna og jafnvel fram yfir það sem talið er að húsin beri, er algjörlega óhæft. Þegar t.d. samkomuhús er byggt, er auðvitað gert ráð fyrir neyð- arútgöngum, en við getum sagt okkur það sjálf hvað myndi ske ef allt upp í helmingi fleiri væru staddir í húsinu á tíma, er slys kæmi upp. Það getur verið að við verðum heppin, en við getum líka orðið óheppin. Ég vil varpa þeirri spurningu til réttra aðila hvort ekki sé orð- ið tímabært að fara að skoða þessi mál. Hvern vantar filmur? Guðmundur Hallgrímsson hringdi: Ég kom frá Bandaríkjunum á uppstigningardag, frá Kennedy- flugvelli í New York með Flug- leiðum. En á Kennedy hafði ver- ið farið í töskur farþeganna og hreinlega stolið dóti frá farþeg- um. Hins vegar vil ég láta vita af því, að þegar ég tók upp úr mín- um töskum þegar heim var kom- ið fann ég fimm filmur, sem ég á ekki. Ég fór með filmurnar I framköllun og kannaðist ég strax við andlit manns er ég sá að var í vélinni til íslands. Ég veit engin deili á honum og vildi því gjarnan að hann nálgaðist filmurnar sínar hjá mér. Heima- síminn minn er 42117 og vinnu- síminn er 45511. Hvers virði eru lífeyris- sjóðirnir? Ellilífeyrisþegi hringdi: Hvers virði eru eiginlega allir þessir lífeyrissjóðir í kringum okkur fyrir fólk, sem nú er kom- ið á eftirlaun og búið er að borga í fjöldamörg ár í þá? Ef upphæðin fer upp úr 4.000 krónum á mánuði, sem við fáum úr lífeyrissjóðnum, þá skerðir það tekjutrygginguna hjá okkur, og tekur af okkur frían síma. Ég sé ekki fram á annað en að hafa einn lífeyrissjóð fyrir alla svo að allt fólk fengi bara ákveðna upp- hæð og ekki þyrfti sífellt að færa á milli sjóða. Mér finnst tíma- bært að fara að athuga hvernig sjóðirnir virka í raun fyrir okkur, gamla fólkið. Við, sem erum búin að borga í lífeyrissjóði alla okkar ævi og erum nú sest í helgan stein, vilj- um gjarnan fá að njóta stritsins. Maður var nú að vona að þegar maður hætti að vinna væri hægt að láta eitthvað eftir sér nú loks- ins þegar tími er til þess. Maður er búinn að vinna á lægstu iaun- uro allt sitt líf og síðan sér mað- ur að réttindin eru svo til engin eftir allt þetta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.