Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1985 fólk í fréttum Pamela Dallas: Til heiðurs Astrid Lindgren Hjónin Dr. Esbjorn Rosen- blad, sendifulltrúi í sænska sendiráðinu, og eigin- kona hans, Rakel Sigurðar- dóttir, hafa undanfarin ár tek- ið oft á móti þekktum sænsk- um listamönnum sem staddir eru hér á landi. Nú fyrir nokkru fengu þau Astrid Lind- gren í heimsókn ásamt fjölda gesta, rithöfunda, þýðenda bóka Astrid og fleiri. Júlíus tók meðfylgjandi mynd á heimili þeirra hjóna, en klukkan sem sést á milli þeirra Astrid og Dr. Esbjörns er skosk og líklega frá árinu 1760. Talið frá vinstri: Tage Dan elsson, Dr. Esbjörn Rosen- blad, Astrid Lindgren og Rak Sigurðardóttir. Loks frí eftir strangan vetur Eftir störfum hlaðinn vetur eru Karl og Díana, ríkis- arfar Bretlands komin í lang- þráð frí. Eftir langa og stranga og vel heppnaða Ítalíuferð þar sem þau fóru bæði á kostum, sérstaklega Díana sem heillaði alla sem hana litu, komu þau heim, pökkuðu niður og héldu ásamt drengjum sínum tveim út í snekkjuna „Brittania". 17 daga slökunarfrí var í vænd- um og þau tjáðu frétta- mönnum að tilhlökkunin væri mikil. Á myndinni standa þau á þilfari snekkjunnar, sem er að láta úr höfn, og William prins veifar til fólks í landi feðra Sú helgi, sem nú stendur yfir, verður lengi í minnum höfð hjá bandarísk- um aðdáendum sjónvarps- þáttaraðarinnar Dallas. Það gerist nefnilega um helgina, að Bobby Ewing safnast til feðra sinna til þess að leikar- sinna inn Patrick Duffy geti farið að sinna nýjum og ef til vill meira spennandi verkefnum. Dallas á sér mikið og traust fylgi í Bandaríkjunum og því hefur verið mótmælt kröft- uglega með tugþúsundum bréfa og símhringinga til framleiðenda Dallas, að Bobby skuli hverfa. Er það mál manna að Bobby hafi verið talsmaður hins góða í þætti þar sem hið illa allt að því fer hamförum. Blöð hafa látið málið til sín taka og fyrirsagnir á borð við: „Sjón- varpið myrðir Dallas-hetju" hafa ekki verið óalgengar. En við þessu er ekkert að gera, þetta er búið og gert, Patrick Duffy vildi breyta til, með semingi þó, hann var því látinn lenda í bílslysi og hverfur því á braut úr Dall- as. Spurningin hver verður nú til að halda í við hinn fúla JR. Bobby Ewing fer til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.