Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.05.1985, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1985 36 Minning: Þuríður Árnadótt- ir frá Hurðarbaki Fædd 4. ágúst 1894 Dáin 15. maí 1985 Langamma mín, Þuríður Árna- dóttir frá Hurðarbaki, sat á frið- arstóli á Selfossi öll þau ár sem ég þekkti hana og hennar naut við. Allt frá fyrstu tfð man ég faðminn hennar mjúka og hlýja, látbragðið snarpa og raustina háu. Hin aldna kona var miðpunktur hvers sam- kvæmis, ómissandi með gust sinn og drifandi lífsfjör. Brosleit augun sýndu sál sem vildi ekki eldast. Hún hafði verið valkyrja í sveit- inni, sinnt bústörfum og stýrt kvenfélagi af sama óslökkvandi eldmóðinum. Sem fagiærð sauma- kona úr höfuðstaðnum sneið hún og saumaði á sveitunga sína ai- klæðnaði og veitti tíðum hárskurð f leiðinni ef karlarnir voru úfnir orðnir um kollinn Það munaði því svo sannarlega um hana í Vill- ingaholtshreppi. Þar sem annars staðar. Og þó hún lifði i ekkjudómi á Selfossi í þrjátíu ár fyldi andi sveitarinnar alitaf. 1 minningunni stafaði ljómi af nafni bæjarins — og hennar, enda kenndi Þuríður sig ætíð við Hurðarbak. Á áttræðisafmælinu 1974 sam- einaði hún tryggðina við sveitina hlýleika sinum til ættmenna vina og annarra veiunnara sem svo sannarlega troðfylltu Þjórsárver hinni góðu konu til heiðurs. Sem ellefu ára piltungur sá ég hana f systkinahópi við langborðið, um- faðmandi frændgarðinn með há- værum gleðiiátum, óþreytandi all- an liðlangan daginn. Þá rikti með sann konungleg stemmning í ver- inu, glaumur og gleði Hurðarbaks- ættar kringum afmælisbarnið — drottninguna í öndveginu. En oftast hitti ég hana þó, ein- samla eða í þröngum hóp, á heim- ili hennar við Birkivelli, hvar hún naut öruggs skjóls dóttur og tengdasonar til fjölmargra ára. Ég held að i eldhúskróknum þar hafi ég náð við hana nánustum tengslum andlegum, á milli þess sem hún hvatti mig til ósleytilegs kökuáts og ávarpaði kettina. Hún var ómetanleg ættmóðir sínum sífjölgandi afkomendum, sem nú síðast voru komnir vel á annan tug hins annars hundraðs. Hver og einn einasti þeirra átti sér vísan samastað í þessu stóra hjarta sem og hver vandalaus er leitaði þar ásjár með vináttu í huga. Já, svo stór var þesi gamla kona í öllu, svo einlæg í sinni lífs- gleði til hins síðasta að undrunar- efni verður hverjum daufgerðum meðalmanninum er jafnvel telur sig ungan og frískan. Síðasti samfundur okkar tveggja var nú í april sl. Þá fór máttur hennar mjög þverrandi, en það breytti hinu ekki — viðtökur hennar voru jafn hjartanlegar sem fyrr, hláturmildin vermandi, kossamir heitir og faðmlagið hlýtt. Og á náttborðinu lá himna- sendingin, bókin sem var hennar Bibiía siðustu misserin, „Ábú- endatal Villingaholtshrepps". Það var henni sannkallaður skemmti- lestur og drjúg sárabót í heilsu- leysinu að endurnýja kynnin við gömlu, góðu sveitungana hérna megin og handan. Hún hafði lesið þá bók upp til agna. Er tímar líða verður minningin um þessa formóður æ dýrmætari. Þvi Þuriður frá Hurðarbaki var einstök — og barn þess tíma sem aldrei kemur til baka. Kristinn Jón Guðmundsson í dag er til moidar borin amma mín, Þuríður Árnadóttir, fyrrum húsfreyja að Hurðarbaki i Vill- ingahoitshreppi. Dagurinn var orðinn æðilangur svo hún hefur vafalaust verið hvíldinni fegin gamla konan. Áðeins munaði níu árum að hún lifði heila öld. Amma sá tímana tvenna eins og flestir af hennar kynslóð. Hún ólst upp i torfbæ, sá danskan kóng á Þing- völlum árið 1907 þrettán ára göm- ul og varð gjafvaxta um líkt leyti og plágan kom til íslands og fjali gaus austur í sveitum. Ári eftir að Island varð fullvalda ríki giftist hún Guðmundi Kristni Gíslasyni frá Urriðafossi og lifði með hon- um í farsælu hjónabandi uns hann lést fyrir rúmum þrjátiu árum. Eftir það bjó hún að mestu hjá dóttur sinni og tengdasyni á Sel- fossi, Jóhönnu Guðmundsdóttur og Sigurði Sigurðssyni. Amma lifði sin æskuár í heimi sem ungmenni i dag geta varla gert sér í hugarlund. Bráðum verða þeir aliir horfnir sem þekktu 19du öld af eigin raun eins og hús. Þá er hætt við að rofni strengurinn sem tengir okkur við hið liðna. Slíkt væri afar slæmt því enginn getur þekkt sjálfan sig að ráði án þess að hann þekki for- tíð sína. Þjóð sem gleymir upp- runa sínum týnir um leið sjálfri sér. Ég bar gæfu til að búa með ömmu allan minn barnsaldur og fæ seint fullþakkað það. Amma kenndi mér margt og opnaði mér heima sem ég hefði annars ekki kynnst. Nú er það orðið næsta sjaldgæft að þrír ættliðir búi í sambýli. Áður fyrr nutu hinir yngstu hins vegar handleiðslu og samveru þeirra elstu, enda líktust þeir sjaldnast rótslitnum blómum eins og svo mörg börn nú á tímum. Ég held að þessir sambúðarhættir hafi verið mikilvægari og virðast kann í fljótu bragði. Þeir tryggðu samhengið á milli kynslóða og ræktuðu samkennd sem of lítið fer fyrir núna. Ég átti því láni að fagna að kynnast ömmu til muna og vona ég njóti enn góðs af þvi. Hún kenndi mér virðingu fyrir því fátæka en hugrakka fólki sem bú- ið hefur í haginn fyrir okkur sem enn höfum ekki hálfnað okkar ald- argöngu, átti og mikið af kærleika handa drengstaula, ástúð og skiln- ing. Það var gott að vera vinur hennar af því að hún hafði tíma til að vera manneskja og börn þarfn- ast einskis annars fremur til að líða vel. Amma ól tíu börn og á í dag yfir hundrað afkomendur. Oft hefur mér komið í hug að fáir eigi jafn mikið í samfélaginu og konur eins og hún. Þær hafa haft djúpstæðari áhrif með því að vera tii en þeir sem fara með hávaða á torgum. Njóta þó minni fjölmiðlafagnaðar. Þeirra hlutur má samt og mun ekki gleymast. Nú, við leiðarlok, langar mig tii að þakka ömmu samfylgdina. Hún skiiur eftir sig fallega og dýrmæta minningu sem ekki fyrnist. Von- andi gistir hún nú þá vistarveru sem hún trúði alla tíð að biði hennar. Með afa. Matthías Viðar Þuríður Árnadóttir frá Hurð- arbaki í Villingaholtshreppi lést 15. maí sl. Það er mér ljúft og skylt að minnast hennar í fáum orðum að skilnaði. Amma frá Hurðarbaki var mikil kona og orð verða lítils megnug að lýsa ævi hennar og persónuleika. Þuríður fæddist 4. ágúst 1894 að Hurðarbaki í Villingaholtshreppi og ólst þar upp hjá foreldrum sín- um Áma Pálssyni hreppstjóra og Guðrúnu Sigurðardóttur. Árni fæddist að Þingskálum á Rangár- völlum og var ættaður þaðan, son- arsonur Guðmundar á Keldum. Hann ólst upp að Flögu í Flóa. Guðrún var fædd að Lambafelli undir Eyjafjöllum en ólst upp að Flókastöðum. Lífshlaup Þuríðar einkenndist af mikilli reynslu, stórkostlegum dugnaði, fórnfýsi, staðfestu og reisn. Hún átti fullkomna virðingu allra samferðamanna sinna. Það var á hana hlustað. Hún var heil í öllum orðum sínum og gjörðum og lét ekki glepjast af aukaatriðum eða fánýtum hlutum. Harðbýlt land ól af sér fólk sem kappkost- aði að komast af og gekk ákveðið til verks í því efni. Árvekni, út- sjónarsemi, dugnaður og fórnfýsi var nokkuð sem kom sér vel i lífsbaráttu þessara tíma. Landið mótaði manninn og lífið var það verðmæti sem tilveran snerist um. Á Hurðarbaki var Þuríður i hópi 13 systkina, af þeim komust 12 til fullorðinsára. Tvö þeirra eru enn á lifi, Guðbjörg og Olafur sem bæði eru búsett i Reykjavík. öll voru systkinin dugnaðarfólk með sterkar taugar til átthaganna, fuli barnagæsku og léttleika. Þó lík- amlegt þrek minnkaði kom alltaf ákveðinn frískleiki fram i sam- ræðum við þau. Þeir sem áttu við þau samskipti vita hvað átt er við, að ekki sé talað um hafi menn set- ið með þeim að spilum eða fylgst með því tómstundagamni þeirra. Á þeim tíma sem Þuríður ólst upp var skólaganga ekki jafn fast- ur liður í hversdagslífinu og nú er. Þrátt fyrir það var hún orðin vel læs 9 ára gömul. Ég spurði hana eitt sinn um skólagönguna og hún svaraði: „Ég var einn mánuð i skóla áður en ég var fermd, lærði fljótt að lesa og pára og reikna. Og Helgakver lærði ég utan að. Ég átti gott með að læra og það var undirstaðan að mér þótti gaman að öllum skepnum og yfirleitt fannst mér gaman að öllu sem ég gjörði og þykir enn. Ég held það sé dýrmætast í lifinu að hafa ánægju af sinu starfi af hvaða tæi sem er.“ Þessi orð hennar eru mér harla eftirminnileg og lýsa kjarnanum í lifsviðhorfi hennar að hafa ánægju af verkum sínum. Það er i þessu efni m.a. sem við sem nú lifum getum lært af þeim kynslóð- um sem gengnar eru. Að greina kjarnann frá hisminu og láta ekki fánýta hluti glepja hugann. Uppvaxtarárin á Hurðarbaki báru auðvitað einkenni sins tima þegar hver og einn á heimilinu hafði sínum verkum að sinna og börnin voru þar ekki undanskilin. Léttir snúningar i fyrstu en fyrst og fremst þátttaka í lífsbaráttu heimilisins. 9 ára var Þuríður lánuð sem vertíðarkona að Syðri-Hömrum í Holtum þar sem hún var frá ver- tíðarbyrjun fram að slætti, í þrjú ár í röð. Ég átti samtal við hana um þessa óvenjulegu reynslu hennar á unga aldri og komst hán þá svo að orði: „Ég var þar til snúninga, var með í fjósinu, opnaði hjá ánum á morgnana og sótti hrossin og snerist eins og ég gat. Þetta voru fullorðin hjón sem ég var hjá, Guðrún og Jón, ákaf- lega gott fólk. Ég var allæs og gat lesið ýmislegt fyrir gömlu hjónin og alltaf var verið að finna eitt- hvað gott fyrir hana Þuru að lesa. Synir þeirra fóru til sjós en dóttir þeirra Guðlaug var heima og hjálpaði ég henni við útiverkin. Mér leið ákaflega vel, fékk nóg að borða og allt sem ég gjörði var með þökkum þegið.“ Að launum fyrir dvölina að Syðri-Hömrum kvaðst hún hafa fengið lamb um haustið eftir fyrsta veturinn. „Þar kom Jón gamli með lamb út í Dælarétt handa mér og mikið varð ég nú glöð og mér heppnaðist það svo mikið vel. Þetta varð gömul ær og missti aldrei lamb.“ Þessi gjöf í Dælarétt varð síðan stofninn að fjárkyni sem hún átti þar til mæðiveikin herjaði og öllu fé var fargað. Þessarar dvalar að Syðri-Hömr- um minntist hún ávallt með gleði og kunni margt að segja af fólki og gangi lifsins þar. Oft voru það spaugileg atvik sem hún sagði frá á sinn sérstaka hátt og fékk mann til að hlægja með sér. í alla sína frásögn fiéttaði hún næman skiln- ing á aðstæðum hvers og eins sem hún sagði frá. Uppeldi þeirra Hurðarbaks- systkina var í föstum skorðum og kirkjuferðir að Hraungerði voru fastur liður. Þeirra ferða minntist hún oft og þá hversu Volalækur- inn var erfiður yfirferðar en jafn- framt heillandi að takast á við og gerði ferðirnar spennandi. Þuríður var fermd 1908 í Laug- ardælum af séra ólafi Sæmunds- syni í Hraungerði, í hópi 14 telpna og eins drengs. Heima á Hurðar- baki var hún svo til tvítugs þá varð löngunin til náms svo sterk að hún dreif sig til Reykjavíkur að læra að sauma. Væri hún spurð um þetta atriði svaraði hún að bragði: „Já, það var nú svo í þá daga drengur minn, að maður varð að geta komið mjólk í mat og ull i fat annars þýddi ekkert að vera að gifta sig. Það var enginn tími til að iiggja í bókalestri. Mig langaði bara eitthvað að læra og saumaskapurinn varð fyrir valinu og það var mitt mesta happ í lif- inu að ég skyldi læra það. Ég þurfti mikið á því að halda að geta saumað, bæði fyrir mig og aðra. Þá var ekki hægt að fá tilbúna flík. Ég saumaði giftingafötin á okkur bæði, fékk blátt siffjot í föt á Guðmund minn en dömuklæði í peysuföt á mig sjálfa.“ Þrátt fyrir stórt heimili saum- aði hún mikið fyrir sig og aðra, allan algengan klæðnað. f sveit- inni var það sjálfsagður hlutur að leita til hennar um sauma og öll- um var vel tekió og sjálfsagt að era þetta viðvik að sauma flíkina. þessum verkum kom vinnu- og sköpunargleði hennar vel fram. Árið 1919 giftist hún Guðmundi Kristni Gísiasyni frá Egilsstöðum í Flóa. Þau giftu sig í Reykjavík í kapellu séra Bjarna þar. Sama ár hófu þáu búskap á Urriðafossi í Villingaholtshreppi á hluta jarð- arinnar á móti Einari, bróður Guðmundar. Á þessum 5 árum eignuðust þau 5 dætur, Guðrúnu, sem lést 1965, Eyrúnu sem býr í Dalsmynni í Villingaholtshreppi, Sigurbjörgu, Jóhönnu og Sigríði sem búsettar eru á Selfossi. Árið 1924 fluttust þau að Hurð- arbaki ásamt foreldrum Guð- mundar. Þar eignuðust þau 5 börn til viðbótar, Guðmund sem býr á Selfossi, Rúnar og Gísla sem búa i Reykjavík, Helgu sem býr á Sel- fossi og dreng sem lést í fæðingu 1929. Afkomendur Þuríðar og Guð- mundar eru nú 114, 44 barnabörn, 59 barnabarnabörn og eitt barna- barnabarnabarn. Sjálfsagt hefur verið erfitt að búa á þessum árum og sjá fyrir stórum barnahóp ásamt því að sinna skyldum við sveitunga sína. En lund þeirra hjóna var staðföst og trúin óbilandi á lífið. Með því að láta sér ekki verk úr hendi sleppa komu þau börnum sínum öllum til manns. Væri Þuríður spurð um árin á Hurðarbaki þá svaraði hún því t Eiginkona mín, móöir og systir, SALBJÖRG ÁSTRÓS RAGNARSDÓTTIR, (Sally Avanariua), lós* á heimili sinu, Long island, New York, 22. maí. William Avenariua, Bára, William, Carol Ann, Finndía Björnadóttir Zuk, Sigmundur og Hilmar Björnaaynir. t Vinkona okkar elskuleg, HULDA BJÖRGÓLFSDÓTTIR, Eakifiröi, lést í Landakotsspitala fimmtudaginn 23. maí sl. Kjartan Pálaaon, Karl Friörikaaon, Sigríöur Lovíaa Bergmann. t SIGRfÐUR ELÍSABET GUÐMUNDSDÓTTIR, Hnífadal, sem lést 20. pessa mánaðar veröur jarösungin frá Hnífsdalskapellu i dag, laugardag 25. mai, kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Fjórðungssjúkra- húsiö á isafiröi. Fyrir hönd aöstandenda, Ingimar Finnbjörnason. t Viö þökkum af alhug öllum þeim er vottuöu okkur samúö vegna fráfalls EGGERTS P. BRIEM fyrrv. fulltrúa, Sunnuflöt 18, Garöabaa. Sigríöur Skúladóttir Briem, Gunnlaugur Sa. Briem, Ragnheióur Briem, Guómundur Elíasaon, Atli Steinn Guómundsson, Kári Snær Guömundsson. Ragnar, Emily, Nettíe,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.