Morgunblaðið - 25.05.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1985
Sólin
vekur mig
Jónsbók var aldeilis óborganleg
í morgunútvarpi gærdagsins.
Tónlistarstjórinn fór þar á kost-
um yfir hið undarlega landslag
efnahagsmálanna og benti rétti-
lega á að æskilegast væri að menn
gætu unnið 30 stundir dag hvern,
en því miður væri það ekki hægt
einfaldlega vegna þess að í sól-
arhringnum væru ekki nema 24
stundir. Þá vék tónlistarstjórinn
að „hinni þjóðinni" sem hann
vorkenndi óskaplega enda vitað
mál að ekkert er leiðinlegra en
máta föt, hanga á flugvöllum og
væflast um í ellinni í 400 fermetra
steinkössum, svo útslitinn af rápi
að heiti potturinn verður grafreit-
ur köngulóa. Benti Jón Örn út-
varpshlustendum raunar á fleiri
staðreyndir efnahagsmála, til
dæmis þá staðreynd, að nú skyldu
loksins „verkin látin tala“ en því
miður hefði enginn tima til að tala
nema forkólfar verkalýðsfélaga og
vinnuveitenda. Hafi Jón örn Mar-
inósson þökk fyrir þennan ágæta
pistil um efnahagsmál, er ég viss
um að hann gæti fengið vinnu hjá
Stjórnunarfélaginu við að leysa
efnahagsvandann við eitthvert
pallborðið.
Regína
Hún Regína Stefnisdóttir, vin-
kona mín, hefir stundum verið að
ýja að því við kaffiborðið á vinnu-
staðnum okkar að Jóhann
Hjálmarsson skáld hafi samið um
sig bók. Ég skildi aldrei hvað hún
Regína átti við með þessum um-
mælum, fyrr en Karl Guðmunds-
son leikari mætti á fimmtudags-
kveld uppúr hálf ellefu á rás eitt
að lesa úr bók Jóhanns: Frá Um-
svölum. Ég hafði að vísu lesið rit-
dóma um bók Jóhanns og efni
hennar borið á góma í viðræðu við
Ijóðaunnanda en ekki nælt mér i
eintak fyrr. Hvað um það, þá var
reglulega gaman að kynnast
óvenjulegum lífsferli Regínu,
vinkonu minnar, og Elíasar Ág-
ústssonar, manns hennar, af vör-
um Jóhanns Hjálmarssonar. Það
er annars fremur óvenjulegt að
nútímaskáld yrki með jafn Ijósum
hætti og Jóhann gerir í þessari
bók, enda virðist mér takmark
hans hér að segja á eins ljósan og
auðskilinn hátt og mögulegt er frá
óvenjulegu lífi venjulegs fólks.
Hygg ég að Jóhann vilji með þess-
um verkhætti afsanna þá almennu
og viðteknu skoðun, að nútímaljóð
séu tyrfin og málfar þeirra upp-
skrúfað og fjarlægt málfari hvers-
dagsmanna.
Öngull í tímann
Eins og áður sagði las Karl Guð-
mundson úr þessari sérstæðu út-
leitnu ljóðabók Jóhanns Hjálm-
arssonar. Karl er góður upplesari
og næmur á blæbrigði málsins, en
mér hefði fundist skynsamlegra,
að lesa alla bókina í einni lotu svo
heildstæö sem hún er. Þá hefði
ekki verið úr vegi að leiklistar-
deildin hefði komið hér frekar við
sögu og bætt inn leikhljóðum, til
dæmis öldugjálfri. Geri ég að til-
lögu minni að heildstæðir ljóða-
bálkar verði framvegis fluttir af
leiklistardeildinni, svipað og leik-
rit, með áhrifahljóðum og leik-
rænum tilburðum. Ég bíð raunar
spenntur eftir að heyra hvernig
Karli tekst upp meö flutninginn á
síðari hluta Umsvala, en þar ger-
ist Jóhann Hjálmarsson ögn per-
sónulegri eins og til dæmis í þess-
um ágætu línum er skáldið lýsir
brottför sinni á vit Ella og Regínu
á Kópaskeri: Ragga hjálpaði mér
að pakka niður/ eins og venju-
lega/ og kyssti mig á flugvellin-
um/ og ég kyssti stelpurnar/ og
kvaddi Þorra með handabandi/ af
því að hann er orðinn svo stór.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / S JÓN VARP
Á -V
1 +
Kirkja Óháða safnaðarins í Reykjavík.
Hátíðarmessu sjónvarpað
úr kirkju Óháða safnaðarins
■i /Á morgun,
00 hvítasunnudag,
““ verður sjón-
varpað frá hátíðarmessu í
kirkju Óháða safnaðarins
í Reykjavík kl. 17.00.
Séra Baldur Kristjáns-
son prédikar og þjónar
fyrir altari. Karl V.
Matthíasson guðfræði-
nemi les ritningartexta,
Jónas Þórir sér um orgel-
leik og stjórnar kór safn-
aðarins. Að auki mun Jón-
as Þórir Dagbjartsson
leika á fiðlu og trompet og
kór Melaskólans syngur
undir stjórn Helgu Gunn-
arsdóttur.
Óháði söfnuðurinn er
fríkirkjusöfnuður stofn-
aður árið 1950.
„Kínverjar
°g
kynbomburM
— frönsk bíómynd
frá árinu 1965
^^■■1 Frönsk bíó-
Ot 30 mynd frá árinu
^ 1 — 1965 er bíó-
mynd kvöldsins og nefnist
hún „Kínverjar og kyn-
bombur". Myndin er
byggð á sögu eftir Jules
Verne. Leikstjóri er Phil-
ippe de Broca en með að-
alhlutverk fara Jean-Paul
Belmondo, Ursula And-
ress og Jean Rochefort.
Söguþráðurinn er á þá
leið að Arthur Lempereur
er ungur milljónaerfingi.
Hann er saddur lífdaga en
tekst ekki með nokkru
móti að murka úr sér líf-
tóruna. Velunnari hans
grípur þá til sinna ráða til
að lækna piltinn af lífs-
leiðanum.
Þýðandi er Ragna
Ragnars.
Jean-Paul Belmondo og Ursula Andress f hlutvcrkum sín-
um í myndinni „Kínverjar og kynbombur".
„Var i Norden“
— dagskrá á sænsku
H „Vár i Norden"
35 nefnist dag-
— skrárliður sem
er í útvarpinu klukkan
22.35 í kvöld og stendur
hann í um klukkutíma.
Þetta er dagskrá á
sænsku með ljóðum og
tónlist frá finnska útvarp-
inu. Camilla Aromaa-
Quickström tók saman.
Meðal annars verða
lesnar þýðingar á ljóðum
eftir Ólaf Jóhann Sigurðs-
son. Lesarar eru: Borgar
Garðarsson, May Piilhl-
gren, Bodil Sandman og
Leif Wagner.
„Vor í Vín“
■i „Vor f Vín“ er
00 heiti dagskrár-
““ liðar í sjón-
varpi í kvöld er hefst
klukkan 23.00. Sinfóníu-
hljómsveit Vínarborgar
flytur verk eftir W.A.
Mozart, L.V. Beethoven, J.
Brahms, A. Dvorak, F.
Smetana og Johann og
Josef Strauss.
Einsöngvarar eru Rob-
ert Holl og Gabriele Beck-
anova-Cap. Einleikari á
fiðlu er Erich Hoebarth.
Stjórnandi hljómsveitar-
innar er Leopold Hager.
Þýðandi og þulur er Ingi
Karl Jóhannesson.
Alls verða flutt 13 verk
og stendur dagskrárliður-
inn í tvo tíma. Þátturinn
kemur frá austurríska
sjónvarpinu.
„Hér og nú“
— fréttaþáttur í vikulokin
■i Fréttaþáttur-
00 inn í vikulokin
— „Hér og nú“ er
á dagskrá rásar 1 að
vanda klukkan 14.00 í dag.
Umsjónarmenn að þessu
sinni eru fréttamennirnir
Ólafur E. Friðriksson,
Atli Rúnar Halldórsson
og Sigríður Árnadóttir.
Atli Rúnar sagði í sam-
tali við Mbl. að fjallað
verði um í þættinum
framtíð launamála í land-
inu nú þegar atvinnurek-
endur hafa boðið að fyrra
bragði kauphækkun. „Við
fáum talsmenn inn í stúd-
íó til okkar og ræðum þau
mál fram og til baka. Feg-
urðarsamkeppnin á
Broadway verður tekin
fyrir, en hún er einmitt
haldin um þessa helgi.
Síðan er ætlunin að
fjalla stuttlega um lands-
leikinn i næstu viku milli
Skotlands og íslands. Og
síðast en ekki síst verð ég
staddur norður á Dalvík í
frystihúsi þeirra Dalvík-
inga og útvarpa þaðan. Ég
mun segja frá gæðastýr-
ingarkerfi sem SÍS er að
taka upp í fleiri frystihús-
um víða um land. En
fyrsta slíka kerfið kom í
frystihúsið á Dalvík."
ÚTVARP
LAUGARDAGUR
25. maí
7.00 Veðurtregnir. Fréttir.
Bæn. Tónleikar. Þulur velur
og kynnir. 7.20 Leikfimi.
Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morg-
unorð — Helgi Þorláksson
talar.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
Tónleikar. 8.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Valdimars
Gunnarssonar frá kvöldinu
áöur.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Oskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.) Óskalög sjúklinga
frh.
11.20 Eitthvað fyrir alla.
Siguröur Helgason stjórnar
þætti fyrir bðrn.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12^0 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 Hér og nú.
Fréttaþáttur I vikulokin.
15.15 Listapopp.
— Gunnar Salvarsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir. Tónleikar.
16.30 Bókaþáttur.
Umsjón: Njöröur P. Njarðvlk.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 A óperusviðinu.
Umsjón: Leifur Þórarinsson.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18/45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Til-
kynningar.
19.35 „Glefsur úr Islensku revl-
unni“ eftir Gerard Lemarquis.
Umsjón: Asta R. Jóhannes-
dóttir.
20.00 Otvarpssaga barnanna:
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
les arablskar sðgur úr „Þús-
und og einni nótt" I þýðingu
Steingrlms Thorsteinssonar.
(&)•
20.20 Harmonikuþáttur.
Umsjón: Bjarni Marteinsson.
21.50 Sjálfstætt fólk I Jðkul-
dalsheiði og grennd.
2. þáttur: Sauöspeki og siö-
menning. Umsjón: Gunnar
Valdimarsson. (Aður á dag-
skrá I júll 1977.)
21/15 Kvöldtónleikar.
Þættir úr slgildum tónverk-
um.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvðldsins.
22.35 Vár i Norden.
Dagskrá á sænsku með Ijóö-
um og tónlist frá finnska út-
varpinu. Camilla Aromaa-
Quickström tók saman.
Meðal annars lesnar þýð-
ingar á Ijóöum eftir Ölaf Jó-
hann Sigurðsson. Lesarar:
SJÓNVARP
16.30 Enska knattspyrnan.
17/45 iþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
1925 Sögustundin Talandi
brúöan og Hókus Pókus.
Sænskar barnamyndir.
Þýöandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Lesari Ingibjörg Jó-
hannsdóttir. (Nordvision —
Sænska sjónvarpiö.)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
2025 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Kvikmyndahátiðin 1985.
Umsjón og stjórn: Arni Þór-
arinsson og Sigurður Sverrir
Pálsson.
20/50 Hótel Tindastóll.
Sjötti og slðasti þáttur.
Breskur gamanmyndaflokk-
ur I sex þáttum um sein-
LAUGARDAGUR
25. maí
heppinn gestgjafa, starfsliö
hans og hótelgesti.
Aðalhlutverk: John Cleese.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.30 Kinverjar og kynbombur.
(Les tribulations d'un Chino-
is en Chine)
Frönsk blómynd frá árinu
1965, byggö á sðgu eftir
Jules Verne.
Leikstjóri: Philippe de Broca.
Aðalhlutverk: Jean-Paul
Belmondo, Ursula Andress
og Jean Rochefort.
Arthur Lempereur er ungur
milljónaerfingi. Hann er
saddur llfdaga en tekst ekki
með nokkru mótl að murka
úr sér llftóruna Velunnari
hans grlpur þá til sinna ráða
til að lækna piltinn af llfsleið-
anum.
Þýðandi Ragna Ragnars.
23.00 Vor I Vln
Sinfónluhljómsveit Vlnar-
borgar flytur verk eftir W.A.
Mozart, L.v. Beethoven, J.
Brahms, A. Dvorak, F. Smet-
ana og Johann og Josef
Strauss.
Einsðngvarar: Robert Holl og
Gabriele Beckanova-Cap.
Einleikari á fiðlu: Erich Hoeb-
arth.
Stjórnandi: Leopold Hager.
Þýöandi og þulur: Ingi Karl
Jóhannesson. (Eurovision —
Austurrlska sjónvarpiö.)
01.00 Dagskrárlok.
Borgar Garöarsson, May
Piilhlgren, Bodil Sandman og
Leif Wagner.
23225 Operettutónlist.
24.00 Miðnæturtónleikar.
Umsjón: Jón örn Marinós-
son.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
03.00.
LAUGARDAGUR
25. maí
14.00—16.00 Léttur laugar-
dagur
Stjórnandi: Asgeir Tómasson.
16.00—18.00 Milli mála
Stjórnandi: Helgi Már Barða-
son.
Hlé.
24.00—00.45 Listapopp
Endurtekinn þáttur frá rás 1.
Stjórnandi: Gunnar Salvarsson.
00.45—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Kristln Björg Þor-
steinsdóttir.
(Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar 1.)