Morgunblaðið - 25.05.1985, Page 20
20
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1985
MX-áætlunin skorin
niður um helming
— í meðförum öldungadeildarinnar
Wanhington, 24. nui. AP.
ÖLDl'NGADEILD Bandaríkjaþings samþykkti i gær með miklum meiri-
hluta að skera MX-áætlun Reagans forseta niður um helming, nema því
aðeins að bandaríska varnarmálaráðuneytið láti þróa betri aðferðir til þess
að vernda og geyma þessar kjarnorkuflaugar, sem svo miklar deilur hafa
staðið um.
Samþykkt þingdeildarinnar var
gerð með 78 atkvæðum gegn 20.
Samkvæmt þeirri áætlun, sem
hún heimilar, á að koma fyrir 50
MX-flaugum í Wyoming og Ne-
braska í Minuteman-skotbyrgjum,
sem þar eru þegar fyrir hendi.
Reagan forseti hafði hins vegar
farið fram á, að smíðaðar yrðu 100
MX-flaugar. Fulltrúadeild þings-
ins á eftir að greiða atkvæði um
frumvarpið og er talið, að hún
samþykki jafnvel ekki fleiri en 40
MX-flaugar.
Reagan forseti hefur haldið því
fram, að þðrf sé á 100 MX-flaug-
um til að endurnýja kjarnorku-
vopn Bandaríkjamanna, sem kom-
ið er fyrir á landi. Er ástæðan sú,
að þau eru að verða úrelt vegna
aldurs. Þeir, sem gagnrýnt hafa
MX-flaugarnar, halda því fram, að
þær séu lítt verndaðar fyrir
Suður-Kórea:
Átök vegna Kwanju
Seonl, Sutar-Kóreo, 24. n»i. AP.
FJÖLMENNT lið lögreglu barðist í
dag við hundruð námsmanna sem
vildu lýsa stuðningi við kröfur hóps
fólks sem hefur búið um sig í bygg-
ingu upplýsingaþjónustu Bandaríkj-
anna í Seoul. Margir urðu sárir og
fjöldi manns var handtekinn í
slagsmálunum.
Fólkið í upplýsingamiðstöðinni
hefur gert þá kröfu á hendur
Bandaríkjastjórn, að hún hætti
allri efnahags- og hernaðarlegri
aðstoð við stjórnina í Seoul vegna
aðgerða suður-kóreska hersins í
Veður
víða um heim
Akureyri 0 snjók oma
Amilerdam 9 17 okýjaó
Aþena 19 31 tieiöokirt
Barcelona 20 skýjoð
Beriin 8 16 okýjaó
Brflooel 10 18 heióokírt
Chicago S 23 hoióskirt
DuMin 10 16 heiöskírt
Feneyior 22 hétfok.
Frankfurt s 17 okýjaó
Genf s 20 heióskírt
Heloinki 5 13 skýjaó
Hong Kong 26 29 skýjaö
Jenisatem 14 26 heióskfrt
Kaupm.höfn 15 skýjaó
Lao Palmao 20 skýjaó
Liooebon 10 18 heióokírt
London 11 16 okýjaó
Loo Angeleo 17 27 okýjaó
Luzomborg 17 hálfsk.
26 léttokýjaó
Mallorca 20 rigning
Miami 26 30 okýjaó
Montreal 8 25 heióokírt
Mookva 11 13 skýjaó
New York 16 20 skýjaó
Ooló 4 10 skýjaó
borginni Kwanju árið 1980. Þar
hófust bardagar skömmu eftir að
forseti landsins lýsti yfir herlög-
um i landinu. Stóðu bardagar her-
manna og stjórnarandstæðinga í 9
daga áður en herinn braut and-
stöðuna á bak aftur. Opinberlega
hefur verið sagt að 190 manns hafi
látið lífið, en stjórnarandstæð-
ingar segja þá tölu hlægilega, hin
rétta sé miklu hærri. Þá krefst
fólkið þess að Bandaríkjastjórn
biðji kóresku þjóðina afsökunar á
meintri þátttöku í aðgerðum hers-
ins. Bandaríkjastjórn hefur marg-
neitað að hafa komið nærri átök-
unum í Kwanju.
skyndiárás Sovétmanna, ef þeim
er komið fyrir í óhreyfanlegum
skotbyrgjum.
Thatcher
ekkert á því
að gefast upp
LoBdoo, 24. moi. AP.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra, sem hlotið hefur slæma út-
komu fyrir sig og flokk sinn í nýleg-
um skoðanakönnunum, sagði í dag,
að hún væri ekki reiðubúin að „gef-
ast upp“ og draga sig í hlé.
Fréttamaður óháðrar út-
varpsstöðvar í London spurði for-
sætisráðherrann, hvort þær
stundir kæmu ekki, að hún hefði
fengið sig fullsadda á arginu í
þinginu.
Thatcher svaraði til, að stund-
um sviði undan gagnrýni stjórnar-
andstöðunnar. „En það hefur aldr-
ei hvarflað að mér að gefast upp,“
sagði hún.
Thatcher, sem kemst á hefð-
bundinn eftirlaunaaldur í Bret-
landi, er hún verður sextug 13.
október í haust, kvaðst ekki hafa i
hyggju að draga sig þá í hlé, held-
ur vonaðist hún til að „koma á
óvart" í kosningunum 1988 og
sigra í þriðja sinn. „Allt er þá
þrennt er,“ sagði hún. „Við mun-
um standa málefnalega vel að
vígi.“
Megingagnrýnin á stjórn
Margaret Thatcher stafar af vax-
andi atvinnuleysi í Bretlandi, sem
nú nær til 13% af heildarvinnu-
aflinu.
Tvífari Marilyn Monroe
Tékkneska leikkonan Olivia Link sést hér dansa fyrir fram-
an styttu af leikkonunni Marilyn Monroe, en stytta þessi,
sem gerð er af belgíska listamanninum Rene de Boyer,
stendur í kvikmyndahúsinu í Cannes í Frakklandi. Olivia
Link, sem er 25 ára gömul, þykir líkjast Marilyn mjög.
Nígeríumenn sakaðir um
óhæfuverk á landamærunum
Abidjan, ruabeinaotritndinoi. 24. nui. Ar.
STJORNVÖLD í Nígeríu greindu
frá því í dag, að lokið væri annarri
herferð þeirra að reka ólöglega inn-
flytjendur úr landi. Aður en herferð-
in hófst fyrir næstum tveimur vikum
voru um 700.000 siíkir innflytjendur
í landinu, en óstaðfestar tölur herma
að um 200.000 þeirra hafi verið
reknir burt. Fregnir hafa borist um
mannvíg á landamærum Ghana og
Nígeríu.
Fólksflutningar þessir hafa
mælst illa fyrir meðal hinna
minni nágranna Nígeríu, sem
standa sjálfir frammi fyrir mikl-
um erfiðleikum vegna atvinnu-
leysis og lélegs efnahags. Eitt
þessara ríkja er Ghana og stjórn-
völd þar hafa sakað nígeríska
landamæraverði um hryðjuverk.
Að sögn talsmanns stjórnar
Ghana, skutu landamæraverðir 65
menn til bana, sem gerðu sig lík-
lega til að þráast við að hverfa
siðasta spottann yfir landamærin.
Nígeríumenn hafa neitað þessu, en
viðurkennt að fáeinir óspektar-
Stjóm Suður-Afnku:
Vill framsal
liðsforingja
Jókaniiesarbarg, 24. nuí. AP.
STJÓRNVÖLD í Suður-Afríku hafa
sent Angólastjórn orðsendingu og
óskað eftir viðræðunum við hana um
framsal suður-afrísks hermanns,
sem handtekinn var í norðurhluta
Angóla fyrir þremur dögum.
Þetta er í fyrsta sinn sem Suð-
ur-Afríkumenn viðurkenna, að
staðhæfing Angólamanna um að
þeir hafi handtekinn einn suður-
afrískan liðsforingja og fellt tvo
aðra, hafi við rök að styðjast.
Stjórnvöld í Angóla segja að
mennirnir hafi verið vel vopnum
búnir og haft i förum sínum
sprengiefni. Telja þau, að mönn-
unum hafi verið ætlað að sprengja
í loft upp olíugeyma.
Látnir lausir í skiptum fyrir 1.100 Palestínumenn
Á þessari mynd sjást ísraelarnir þrír, sem látnir voru lausir á mánudag í skiptum fyrir 1.100
Palestínumenn, en myndin var tekin í Damaskus skömmu áður en þeir lögðu af stað heim á
leið. Mennirnir lentu í höndum Palestínumanna árið 1982, er ísraelski herinn réðst inn í
Líbanon.
menn hafi látist í átökum við lög-
reglu.
Atvinnuleysi bíður flestra þess-
ara flóttamanna, en stjórnvöld í
Nígeríu vörðu verknað sinn með
því að segja að fólk þetta væri ým-
ist afbrotamenn eða ófaglærðir
verkamenn sem tækju störf af
Nígeríumönnum.
GENGI
GJALDMIÐLA
Dollarinn
lækkar
lítillega
24. mnl. AP.
Bandaríkjadollar lækkaði
aðeins gagnvart flestum
gjaldmiðlum heims í dag.
Hann stóð þó í stað gagnvart
sterlingspundinu. Þannig
fengust fyrir pundið 1,2 572
dollarar eins og í gær. Gengi
dollarans var að öðru leyti
þannig, að fyrir hann fengust
3,0885 vestur-þýzk mörk
(3,0877), 2,5975 svissneskir
frankar (2,5980), 9,4187
franskir frankar (9,4325),
3,4855 hollenzk gyllini
(3,4920), 1.971,00 ítalskar lír-
ur (1.973,00), 1,3745 kanadísk-
ir dollarar (1,3727) og 251,07
jen (251,40).