Morgunblaðið - 25.05.1985, Page 27
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAI1985
Afmæiiskveðja:
Skafti Jónasson
Organisti Helgi Bragason. Annar
í hvítasunnu: guösþjónusta Sól-
vangi kl. 13.30. Sr. Gunnþór
Ingason.
KFUM og KFUK Amtmannsstig
2B: Almenn samkoma hvíta-
sunnudag kl. 20.30. Guöni Gunn-
arsson talar. Einsöngur: Anders
Josephsson. Einnig veröur
barnastund í öörum sal seinni
hluta samkomunnar.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Hvíta-
sunnudagur: messa kl. 14.
KIRKJUVOGSKIRKJA: Messa kl.
17. Sóknarprestur.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guösþjón-
usta laugardag kl. 18. Hvíta-
sunnudag: hátíöarguösþjónusta
kl. 14. Orgelleikari Einar Sigurös-
son. Sr. Heimir Steinsson.
HVALNESKIRKJA: Hátíöarguös-
þjónusta kl. 11 hvítasunnudag.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Hátíöarguös-
þjónusta kl. 14. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Hátiöarguös-
þjónusta kl. 10.30. Sr. Björn
Jónsson.
HVERAGERÐISPREST AK ALL:
Messur um hvitasunnu. Ferming-
ar i Þorlákshöfn á hvítasunnudag
kl. 11 og kl. 13.30. Annan hvíta-
sunnudag er messaö i kapellu
NLFÍ Hveragerði kl. 11 og Hvera-
geröiskirkju kl. 14. Sr. Tómas
Guömundsson.
MOSFELLSPREST AK ALL:
Messa í Lágafelli kl. 11. Sr. Birgir
Ásgeirsson.
N J ARÐ VÍK URPREST AK ALL: Á
hvítasunnudag fara kirkjukórarn-
ir í Njarövíkurprestakalli ásamt
organista og presti í heimsókn
aö Bæ í Borgarfiröi, þar sem flutt
veröur kl. 14 messa Þorkels Sig-
urbjörnssonar. Guömundur Sig-
urösson syngur einsöng. Annan í
hvítasunnu veröur messa kl. 14 í
Ytri-Njarövíkurkirkju. Guömund-
ur Sigurösson syngur einsöng.
Oranisti Örn Falkner. Sr. Guö-
mundur örn Ragnarsson.
í dag er Skafti Jónasson Fann-
dal, Lundi, Höfðakaupstað, 70 ára.
Hann fæddist á Fjalli í Skaga-
hreppi Austur-Húnavatnssýslu,
25. maí 1915. Voru foreldrar hans
Jónas Þorvaldsson bóndi og kona
hans Sigurbjörg Jónasdóttir. —
Jónas var gildur bóndi, jafnlyndur
og iðjusamur. Jörðin er landmikil
með hlunnindum, silungsveiði í
vötnum. Túnið var stórt á fyrri-
tíma mælikvarða, grasgefið, engj-
ar út frá túninu. Harðindi eru þar
mikil í snjóavetrum, en á góðu
dægri kemur jörðin græn undan
snjónum. Sigurbjörg móðir Skafta
var mikil húsmóðir og góður upp-
alandi barna sinna. Þau eignuðust
fimm börn.
Skafti ólst upp með foreldrum
sínum og systkinum við störf til
sjós og lands. Honum var ætlað að
verða bóndi á Fjalli. Skafti gekk í
hjónaband með Jónu Guðrúnu Vil-
hjálmsdóttur frá Siglufirði en
hafði alist mikið upp i Ásbúðum á
Skaga, mætri konu. Fór giftingin
fram 17. júní 1939 í Ketukirkju, á
þeim árstíma er sól skín í heiði og
fegurst er í Skagafirði. Þess má
geta að móðir Jónu Guðrúnar Vil-
hjálmsdóttur og Guðrún Árna-
dóttir skáldkona frá Lundi í Fljót-
um voru bræðradætur. Var Guð-
rún um þessar mundir húsfreyja á
Mallandi á Skaga. — Ennfremur
giftu sig þá í Ketukirkju Jóhanna
systir Skafta á Fjalli og Angantýr
Hilmar Jónsson, skáld, sonur Guð-
rúnar frá Lundi. Var þetta hátíð-
leg stund meðal þeirra ættmenna
er sr. Helgi Konráðsson gaf þau
saman.
Hófu nú Skafti og Jóna búskap
á Fjalli 1939 en fluttu til Höfða-
kaupstaðar 1941. Þá fluttu að
Fjalli Angantýr og Jóhanna og
voru þar til 1943. Búskapur þeirra
varð skemmri en ætlað var er
bærinn brann á Fjalli til kaldra
kola, en Angantýr og Jóhanna
fluttu til Höfðakaupstaðar er þá
var í miklum uppgangi. — Ólafur
bróðir þeirra systkina tók nú við
jörðinni og bjó þar um langa hríð
og var síðasti bóndinn á Fjalli.
Það stóð til að Skafti yrði bóndi
á Fjalli um langan tíma en til þess
hafði hann góða hæfileika, hann
var hneigður til búskapar og lag-
virkur. En þegar hann kom í kaup-
staðinn var honum gott til vinnu,
sjómaður ágætur, laginn við vélar
og þess á milli stundaði hann
húsasmíði einkum í sveitum. Þá
starfaði hann um árabil í skipa-
smiðastöð Guðmundar Lárusson-
ar og þótti þar vel hlutgengur. —
Skafti keypti býlið Dagsbrún er
hann byggði við og hafði nokkra
grasnyt er þá þótti sjálfsagt að
hafa kýr og kindur.
Hér fyrr á árum var það algengt
að menn réru á vertíð suður með
sjó, og var Skafti einn í tölu
þeirra, en á seinni árum hefur
hann átt bát, sem hann hefur gert
út á grásleppuveiðar með Þorvaldi
syni sínum, hefur þessi útgerð
jafnan gengið vel, enda snyrti-
mennska höfð í hvívetna.
Þau Skafti og Jóna fluttu í betri
og stærri húsakynni á seinni árum
á besta stað í bænum. Hús það
hafði Ole Omundsen, norskur út-
gerðarmaður, byggt og gefið nafn-
ið Lundur.
Jóna Guðrún kona Skafta er góð
húsmóðir, létt um mál og hefur
jafnan litið björtum augum á
mannlífið og haft trú á framtíð-
ina. Hún hefur hneigð til að semja
og rita enda létt um það, eins og
hún á ættir til. Hafa birst eftir
hana greinar í Heima er best og
Húnavöku. — Þá hefur Jóna starf-
að í Kvenfélaginu og Slysavarna-
félaginu.
Þeim hjónum hefur vegnað vel
og eiga fimm uppkomin börn, er
hafa komist vel til manns og voru
þau lengi vel öll búsett á Skaga-
strönd og höfðu stofnað þar heim-
ili með mökum sínum. Alls eru af-
komendur þeirra hjóna 31.
Börn þeirra eru: Hjalti, sem um
árabil annaðist vöruflutninga
__________________________2L
milli Skagastrandar og Reykjavík-
ur, en er nú strætisvagnastjóri í
Reykjavík; Jónas, bifreiðarstjóri á
Blönduósi; Vilhjálmur Kristinn,
lengi vel sjómaður en nú bifreiðar-
stjóri hjá Frystihúsi Hólaness;
Þorvaldur, hefur gegnt ýmsum
störfum, auk félagsmála; Anna
Eygló, búsett í Njarðvíkum.
Að mörgu leyti hefur verið góð
samheldni með þeim ættmönnum,
má það til geta að á 45 ára brúð-
kaupsafmæli þeirra hjóna voru
gefin saman í Hólaneskirkju tvær
sonardætur þeirra hjóna og mak-
ar þeirra.
Þegar nú litið er yfir liðna tíð,
hafa þau hjón Skafti Fanndal Jón-
asson og Jóna Guðrún Vilhjálms-
dóttir, lengst hjóna nú dvalið í
Höfðakaupstað og unað þar vel
ævi sinni og verið vel látin.
Eru mér nú minnisstæðip*
drengir þeirra er ólust upp í
Dagsbrún, næsta býli við guðs-
húsið og sóttu vel kirkju. Höfðu
þeir sæti á næst innsta bekk
ásamt félögum sínum úr Drangey.
Þá fluttu Dagsbrúnardrengir
Hjalti og Jónas jafnan hest minn
frá Hólanesi og niður á Skaga-
strönd. — Þakklátur var ég, gamli
presturinn, er sonur þeirra hjóna,
Þorvaldur, stóð fyrir því að halda
fermingarmót þeirra tuttugu og
tveggja barna er ég fyrir 25 árum
kristnaði í Hólaneskirkju og
okkur hjónum var boðið við það
tækifæri. Flutti ég þá þeim sömu
ræðuna er ég hafði, fyrir 25 árum.
Mælti þá eitt fermingarbarnið: Ég*-
held að ég skilji núna meira í þess-
ari ræðu, en fyrir 25 árum.
Hratt flýgur stund. Minning-
arnar eru margar eftir 40 ára
starf. Þær er gott að ylja sér við á
efri árum er hugurinn reikar
norður heiðar. Blessaða gamla
Skagaströnd.
Pétur Þ. Ingjaldsson
4.
Sádanskimeð
Eins og allir vita hafa SKODA bílarnir alltaf veriö á frábæru verði,
en þó aldrei betra en á þessu ári. Enda fór svo aö allir ódýrustu bílarnir
seldust upp. Til þess aö reyna aö bjarga málinu, hefur okkur tekist aö
ná í nokkra bíla af árg. ’85 sérútbúna fyrir Danmörku.
Kr.166.666.-
Innifalið í þessu ótrúlega verði:
— hliöarlistar
— halogen þokuljós aö framan
— þokuljós aö aftan
— aflhemlar
Nokkrir bílar komu meö stereo/
kassettutæki — tveimur hátölurum
— þremur bylgjum og kosta kr. 173.666,-
Ath. Opið í dag kl. 13.00—17.00.
JOFUR HF
NYBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SIMI 42600