Morgunblaðið - 25.05.1985, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. MAÍ 1906
,28
„Sælla er að gefa en
þiggja“ þörungavinnslu
Kundur var í efri deild Alþingis í
gær. Frumvarp um Landmælingar
Islands var afgreitt til neðri deildar.
Frumvarp um veitinga- og gististaöi,
frumvarp um þörungavinnslu vid
Breiðafjörð og frumvarp um tóbaks-
varnir vóru afgreidd til þriðju um-
reðu og eiga öll eftir að ganga til
neðri deildar. Þá kom svokallað
bjórframvarp til fyrstu umræðu,
samþykkt fri neðri deild.
Nokkrar umræður spunnuzt um
frumvarp um þörungavinnslu við
*Breiðafjörð, sem fjallar um sölu
þessa ríkisfyrirtækis til hlutafé-
lags heimamanna.
Það kom m.a. fram í máli Dav-
íðs Aðalsteinssonar (F) að fyrir-
tækið væri nánast gjaldþrota. Það
yrði fyrirsjáanlega rekið með tapi
næstu ár, jafnvel þó að það þyrfti
ekki að standa undir eftirgjaldi
fjármagns.
Karl Steinar Guðnason (A)
spurði hvort hér væri ekki um
„hefndargjöf" að ræða, sem gæti
stofnað heimaaðilum í mikla erf-
iðleika, þar sem ýmsir óvissuþætt-
ir væru í málinu, m.a. markaðsmál
varpið, kvað það sannast nú sem
oftar, „að það er sælla að gefa en
þiggja". Hér væri hinsvegar um
fyrirtæki að ræða sem skipti
miklu, atvinnulega, fyrir litið
byggðarlag og hann kvaðst hafa
trú á framtaki og dugnaði heima-
aðila. Það væri lágmarksskylda
fyrri eiganda, ríkisins, við starfs-
fólk sitt á þessum stað, að gefa
heimaaðilum kost á að reka fyrir-
tækið, ef þeir æsktu þess, og búa
það þann veg í hendur þeim að
viðunandi væri.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
' (S), sem mælti fyrir nefndaráliti
er hvetur til stuðnings við frum-
Þróunarhjálp íslands:
Erum aflögufærir
- ad mati þingnefndar
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
(Kvl.) mælti sl. fimmtudag fyrir
sameiginlegri tillögu utanríkis-
málanefndar um þróunaraðstoð fs-
lands, sem gerir ráð fyrir því að á
næstu sjö árum skuli með reglu-
bundinnni aukningu framlaga náð
því marki að opinber framlög fs-
lands til uppbyggingar í þróunar-
ríkjum verði 0.7% af þjóðarfram-
leiðslu hér. Framlag okkar nú er
nífalt lægra en þetta markmið seg-
ir til um, en það var 72 m.kr. eða
0,107% 1984.
Það kom fram i máli
framsögumanns að það er
markmið velmegunarríkja að
leggja fram 1% af þjóðarfram-
leiðslu til þróunarstarfsemi í fá-
tækari ríkum heims, þ.e. 0,7% af
opinberu fé og 0,3% á vegum
samtaka og einkaaðila.
Þingmenn, sem til máls tóku,
studdu allir tillöguna. Töldu þeir
velmegun á fslandi slíka, að ekki
væri stætt á minni aðstoð af
okkar hálfu. Ljóst væri hinsveg-
ar að fjármunir, sem færu til
þróunarhjálpar, yrðu ekki jafn-
framt nýttir heima fyrir, þann
veg að við þyrftum að neita
okkur um samsvarandi
fjárstuðning til ýmiskonar
heimaverkefna.
Frá neðri til efri deildar:
Verðbótabann á laun afnumið
Neðri deild afgreiddi tvö mál til
efrí deildar í fyrradag: 1) frumvarp
um fella niður verðbótabann á laun,
^.sem sigldi hraðbyri gegn um þing-
deildina, og frumvarp um heimild til
sölu meðalsterks öls (bjórs), sem
sætti annarri og tímafrekari með-
ferð, en er nú, seint og um síðir,
komið til efri deildar.
Fyrra frumvarpið, afnám verð-
bótabanns á laun, var samþykkt
með 28 samhljóða atkvæðum í
þingdeildinni. Það er stjórnar-
frumvarp en ráðherrar vilja láta á
það reyna, samkvæmt rökstuðn-
ingi þeirra með frumvarpinu,
hvort vinnuveitendum og launþeg-
um tekst að semja um kaup og
kjör á vinnumarkaði, þann veg að
stuðli í senn að áframhaldandi
hjöðnun verðbólgu og stöðugleika
í efnahagslífi, án lögbanns við
vísitölu. Forsætisráðherra mælti
fyrir málinu í efri deild í gær og
gekk það þar til þingdeildar.
Síðara frumvarpið, bjórfrum-
varpið, er þingmannafrumvarp,
var samþykkt með 20:16 atkvæð-
um við þriðju umræðu í þingdeild-
inni. Málið, sem var flutt snemma
þings, hefur tafizt svo í neðri
deild, að miðað við þinglausnir á
venjulegum tíma væri það þegar
„fallið á tíma“. „Framlenging"
þingtíma, sem fyrirsjáanleg er
vegna óhjákvæmilegra verkefna,
gerir það hinsvegar kleift fyrir
síðari þingdeild að taka afstöðu til
málsins, ef vilji stendur til. Það
kom til fyrstu umræðu þar í gær
og gengur væntanlega til meðferð-
ar í þignefnd fyrstu daga næstu
viku.
Hvítasunnukappreiðar
Fáks hófust á fímmtudag
Hvítasunnukappreiðar Fáks hóf-
ust á fimmtudaginn á Víöivöllum
með keppni í B-flokki gæðinga. Úr-
slit fóru þannig:
1. Sölvi, kn. Gunnar Arnarson,
eink. 8,68.
2. Hörður, kn. Lárus Sig-
mundsson, eink. 8,60.
3. Gári, kn. Sigurbjörn Bárðar-
son, eink. 8,49.
4. Fróði, kn. Hreggviður Ey-
vindsson, eink. 8,40.
5. Goði, kn. Trausti Þór Guð-
mundsson, eink. 8,36.
6. Senior, kn. Baldvin Guð-
laugsson, eink. 8,36.
' 7. Krummi, kn. Sigvaldi Ægis-
son, eink. 8,32.
8. Snillingur, kn. Sveinn Hjör-
leifsson, eink. 8,28.
Ferming í
Grundarfirði
Setbergsprestakall, ferming í
Grundarfjarðarkirkju á hvítasunnu-
dag kl. 11. Prestur er sr. Jón Þorst-
einsson.
^ Fermd verða:
Arnheiður Fanney Magnúsdóttir,
Auður Bergþóra Erlarsdóttir,
Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir,
Benedikt Gunnar ívarsson,
Friðfinnur Níelsson,
Guðlaugur Magnús Guðlaugsson,
Ólafur Gunnarsson,
Smári Örn Árnason,
Steinar Þór Alfreðsson,
Særún Sigurjónsdóttir.
9. Kórall, kn. Orri Snorrason,
eink. 8,23.
Þessir níu efstu hestar tryggðu
sér þar með rétt til að keppa á
fjórðungsmótinu sem haldið verð-
Varaformaður
stjórnar WHO
ALMAR Grímsson var kjörinn vara-
formaður stjórnar Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar á fundi sem
fram fór að loknu 38. allsherjarþingi
stofnunarinnar. Er þetta í fyrsta
skipti sem Norðurlönd eiga varafor-
mann í stjórn WHO.
WHO er ein af undirstofnunum
Sameinuðu þjóðanna. Aðildarríki
hennar eru 160 og starfsmenn eru
yfir þrjú þúsund.
ur í Reykjavík í sumar.
í gær var keppt í A-flokki gæð-
inga en úrslit voru ekki kunn er
Morgunblaðið fór í prentun.
í dag, laugardag, verður keppt í
unglingaflokkum kl. 9 og kl. 11.
Undanrásir í stökki og brokki
hefjast kl. 14.00.
Annan í hvítasunnu er aðaldag-
ur mótsins. Þá verða efstu hestar i
A- og B-flokki gæðinga kynntir og
kappreiðar halda áfram.
Nú hefur nýtt félagsheimili
Fáks verið tekið í notkun á svæði
félagsins á Víðivöllum og er þar
sæti fyrir um 200 manns. Gott út-
sýni er yfir skeiðvöllinn. Öll úrslit
birtast jafnóðum á tölvuskjá sem
komið hefur verið fyrir í félags-
heimilinu.
*
Ovissa eykur á spennu:
Tvísýnar horfur
bjórsins í efri deild
Þannig lítur svokallað bjór-
ftumvarp út, eins og neðri deild
afgreiddi það frá sér sl. fimmtu-
dag. Fái frumvarpið samþykki efri
deildar taka hin nýju lög gildi 1.
marz á næsta ári (1986). í ákvæði
til bráðabirgða segin „Ákvæði laga
þessara skulu endurskoðuð í Ijósi
fenginnar reynslu af þeim fyrir
árslok 1988.“
Það eykur á spennu varðandi
þetta mál að úrslit þess í efri deild
þykja mjög tvísýn. Fólk og fjöl-
miðlar spá gjarnan í úrslit þess, þó
það verði ekki gert hér. Hér gefst
lesendum þingsíðu Morgunblaðs-
ins hinsvegar kostur á að sjá þing-
deildartal efri deildar, sem notað
er þá nafnakall er viðhaft um mál,
og geta þá sjálfir reynt, hver eftir
sinni þekkingu og forsjá, að „spá í
spilin".
iW4J5 lW,. '***
-------------------
(Eltit 3 un
, Nd . Ö- *
(El,.. > '
IV
1 v ■»*
3 F.~***£2$. *
a2^S3SSs=s-“.
kfifflll It*n’ .. k„(ul
^flu.n.np- eI 5 V . M(, y«no •»*
^ „ „ l>8,nn. n.*." ’V° ,, ”
\Z1. *■>*'• “»<•“«>’ •""
(ytirtoæl' un’
Vorsýning Myndlistarskólans á Akureyri
Akureyri. 24. mai.
VOKSÝNING Myndlistarskólans á
Akureyri verður opnuð í íþrótta-
skemmunni klukkan tvö eftir hádegi
laugardaginn 25. maí. Á sýningunni
verða u.þ.b. eitt þúsund verk eftir
nemendur hinna ýmsu deilda skól-
ans. Þetta er stærsta og veglegasta
sýning á verkum nemenda skólans
till
Almar Grímsson
Starfsemi Myndlistarskólans er
einkum tvíþætt. Annars vegar eru
það síðdegis- og kvöldnámskeið
fyrir börn og fullorðna í hinum
ýmsu greinum sjónmennta og hins
vegar fullgildur dagskóli þ.e.
Fornámsdeild, sem er fyrsta ár
reglulegs listnáms og málunar-
deild, sem er þriggja ára sérnám.
Einnig annast skólinn hinn fag-
lega þátt myndlistarbrautar
Menntaskólans á Akureyri.
Nemendur geta nú lokið list-
námi sínu hér við Myndlistarskól-
ann á Akureyri og munu fyrstu
nemendurnir verða brautskráðir í
vor úr málunardeild að loknu fjög-
urra ára námi við skólann. Með
því er mikilvægum áfanga náð í
sögu skólans.
Umsóknarfrestur um skólavist í
dagskóla veturinn 1985—86 er til
29. maí. Gefst því þeim sem hug
hafa á að sækja um skólavist gott
tækifæri til að kynnast starfsemi
skólans laugardag, sunnudag og
mánudag í íþróttaskemmunni.
Sýningin verður opin alla dagana
frá klukkan tvö til tíu eftir hádegi.
Nemendur Myndlistarskólans á
Akureyri voru tvö hundruð á
hvorri önn í vetur og kennarar tíu.
Skólastjóri er Helgi Vilberg.
— GBerg.