Morgunblaðið - 01.06.1985, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LMJGARDAGUR L JÚNÍ 1985
Tré eiga að fara i sorphauga eða í þar til gerða ruslagáma.
Svo má
prýða sem
NÍI STENDUR yfír mikil herferð í
Reykjavík. Borgina á að hreinsa og
fegra. Hreinsunardeild borgarinnar
hvetur menn óspart til að taka til
hendinni og tína saman og láta fjar-
lægja alls kyns dót sem það hefur
safnað saman á lóðum sínum, setja
upp vinnuvettlinga og ráðast í að
gera ýmis verk í garðinum sem lengi
hefur staðið til að vinna en af ýms-
um orsökum hafa dregist, mála hús
og grindverk, sem þess þurfa með og
svo mætti iengi telja. Til þess að
auðvelda mönnum starfíð hefur
hreinsunardeildin komið fyrir gám-
um víðs vegar um borgina þar sem
menn geta losað sig við drasl.
Mikið hefur áunnist í þessum
efnum sl. tíu ár að sögn Péturs
Hannessonar, yfirmanns hreins-
unardeildar Reykjavíkurborgar.
Hann sagði að það væri eftirtekt-
arvert hve snyrtimennska í garð-
rækt og viðhaldi eigna héldist í
hendur við gatnaframkvæmdir.
Þar sem lagðar hafa verið góðar
götur og gangstéttir situr góð um-
gengni í fyrirrúmi hjá íbúum.
Hann kvað umgengni hafa batnað
mikið sl. tíu ár og nú vantaði að-
eins herslumuninn til að viðun-
andi mætti teljast.
Umgengni og hreinlætismál
hafa löngum verið mönnum hug-
leikin og hefur margt verið rætt
og ritað um þau efni um áratuga
skeið og ekki að ófyrirsynju. í
gömlu hálfdönsku Reykjavík var
sorpi og úrgangi hellt i Lækinn
sem þá rann opinn um miðbæinn.
Ekki þótti lyktin ávallt góð sem
upp af þeim dammi lagði en þetta
Bakhlið ísbjarnarins hf. á Örfirisey. Þar er frágangur til fyrirmyndar eins g öll umgengni við það fyrirtæki.
níða
þótti ekki tiltökumál þá og var
raunar á þeim timum síst betra í
öðrum löndum. T.d. tíðkaðist það i
Edinborg að ef menn vildu losa sig
við rusl þá fóru þeir með úrgang-
inn út að glugga, ráku upp sér-
kennilegt óp og létu síðan draslið
vaða út um gluggann. Vegfarend-
ur voru viðbragðsfljótir að forða
sér út á miðja götu þegar slik óp
kváðu við. ólafur Davíðsson segir
frá því i dagbók sinni “Ég læt allt
fjúka“, að tveir skólabræður hans
reikuðu eitt sinn um götur
Reykjavíkur i „lýriskum trans“.
Vissu þeir þá ekki fyrr til en yfir
þá var skvett úr hlandkoppi og fór
þá hin ljóðræna stemmning fyrir
lítið hjá þeim félögum.
Skipuleg hreinsun á vegum
Reykjavíkurborgar hófst um 1920,
að sögn Péturs Hannessonar. Þá
var Knud Zimsen bæjarstjóri í
Reykjavík. Pyrst voru notaðar
hestakerrur til að hirða sorp frá
húsum í Reykjavík en fyrstu
„öskubílarnir“ voru teknir i notk-
un upp úr 1930. Hestvagnar voru
notaðir við götusópun fram til
ársins 1940. Knud Zimsen segir
frá þvi í ævisögu sinni að hann
hafi verið fenginn til að leggja
fyrstu skolpleiðslu í höfuðstaðn-
um, frá Landakoti niður Ægis-
götu, árið 1903. Um svipað leyti
fór hann að leggja vatnsleiðslur í
hús. Knud segir einnig frá því að
við húsið Gimli við Lækjargötu,
sem hann og kona hans, Flora,
reistu árið 1906, komu þau hjón
sér upp skrúðgarði sem var mjög
fágætt á þeim tíma og gróðursettu
fyrsta vorið tvö hundruð hríslur
þó þess sjái ekki stað núna.
A fyrstu árum skipulegrar
hreinsunar i Reykjavík voru ýmsir
þættir þess starfs heldur óyndis-
legir svo sem að hreinsa úr kömr-
um bæjarbúa. 1 ágústlok 1928
skrifar Halldór Laxness grein um
þrifnað á íslandi þar segir m.a.:
„Einhver mesta andstyggð sem ég
hef nokkurstaðar orðið var við í
landi sem á að hánga í því að heita
siðað, er útbúnaður íslenskra sal-
erna og frágángur þeirra. Jafnvel í
illræmdustu fátækrahverfum
Suðurevrópu þekkist ekki annað
eins.“ Nú er salernismálum ís-
lendinga á þann veg háttað að
kamrahreinsun er úr sögunni.
Þeir sem að sorphreinsun vinna
í Reykjavík, sem eru um tvö
hundruð að sumarlagi, tæma sorp-
tunnurnar í einhvern af þeim tutt-
ugu bílum sem hreinsunardeildin
hefur yfir að ráða. Einnig eru á
hennar snærum þrír götusópara-
bílar og sérstakur götuþvottabíll.
Nú er svo komið að það er frem-
ur fátítt að sjá hús með illa hirt-
um garði hvað þá að ekki hafi ver-
ið gengið frá lóð. Svona mikil
breyting hefur átt sér stað á þeim
áttatíu árum sem liðin eru síðan
Knud Zimsen vann það brautryðj-
Mynd af bæjarstarfsmönnum að moka möl á bfl, tekin árið 1920, við gamla kennaraskólann við Laufásveg.
Myndin er tekin framan við Safnahúsið við Hverfisgötu órið 1922. Bfllinn er
Ökumaður er Valdimar Stefánsson.
R 12, árgerð 1919, Ford T Model.
%
Gamli Laugarnesbærinn, byggður um aldamót. Þarna er sagður vera hinsti
hvílustaður Hallgerðar langbrókar. Menn telja að þetta hús fói að standa en
eigi svo að vera þarf að rífa skúra á lóðinni og endurbyggja húsið.
Gömul bflhræ eru ekki til prýði á húslóðum.