Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
jregtuitftbtMfe
STOFNAÐ 1913
144. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flugritinn og
flakið fundið
Cork, Delhí, 28. júní. AP.
SKIP brezka flotans hefur fundið flugrita og aðalbrak indversku þotunnar,
sem fórst suðvestur af írlandi á sunnudag, með 329 manns innanborðs, að
sögn talsmanns írsku stjórnarinnar. Brakið er á nær 2ja kflómetra dýpi og
erfitt talið að bjarga megi flugritanum, svarta kassanum, en hann geymir
upplýsingar, sem skýrt gætu hvað olli því að þotan fórst
Mælingaskip brezka flotans,
HMS Challenger, fann flakið og
nam hljóðmerki frá flugritanum.
Verður reynt að bjarga honum
Afganskur
hershöfð-
ingi veginn
Delhí, 28. júní. AP.
ÚTVARPIÐ í Kabúl skýrði frá því í
kvöld að afgönsku frelsissveitirnar
hefðu fellt einn æðsta hershöfðingja
landsins í bardaga. Dagskrá var rof-
in til að skýra frá þessu, og er það
óvenjulegt.
Útvarpið sagði Ahmed Uddin
hershöfðingja, sem var 45 ára,
hafa fallið í bardaga við „stiga-
mennina", eins og frelsisöflin eru
jafnan kölluð í Kabúlútvarpinu.
Sagði útvarpið hvorki frá því hvar
bardagarnir áttu sér stað né hve-
nær.
Talið er að Ahmed Uddin sé
valdamesti hershöfðingi í af-
ganska stjórnarhernum, sem
frelsissveitirnar hafa feílt. Út-
varpið í Kabúl hefur ekki áður
skýrt frá falli hershöfðingja í
átökum sovézka innrásarliðsins og
afganskra frelsissveita. Uddin
hlaut þjálfun sína í Sovétríkjun-
um. Sagði útvarpið hann „hlið-
stæðu" yfirmanns stjórnarhers-
ins, án þess að útskýra nánar við
hvað væri átt.
AP/ Símamynd
Sá elzti
Japaninn Shigechiyo Izumi held-
ur í dag, laugardag, upp á afmæli
sitt, en þá verður hann 120 ára.
Samkvæmt metabókum Guinness
er hann sannanlega elzti núlif-
andi maður veraldar. Er hann við
góða heilsu ef undan er skilin lít-
ilsháttar bakveiki. Myndin var
tekin í gær er Izumi þakkaði góð-
ar kveðjur mannfjölda, sem safn-
aðist saman við heimili hans á
Tokunoshima, sem er lítil eyja
undan Kagoshima. Hans fyrsta
verk, er hann fer á fætur á
morgnana, khikkan 5 sólskins-
daga en 6 ef skýjað er, er að
drekka boila af ávaxtalíkjör.
með aðstoð ómannaðra dvergkaf-
báta. Bretar eiga slíka báta, sem
aðeins komast niður á 1.000 metra
dýpi. Indverjar báðu bandarísk
stjórnvöld í dag um aðstoð við
björgun braksins og flugritans.
Við nákvæma rannsókn á seg-
ulbandsupptöku í flugturninum á
Shannon-flugvelli komu 1 ljós
daufur dynkur og ómur af hrópi
stuttu áður en þota Air India
hvarf af ratsjám i turninum. Er
það talið merki þess að flugstjóri
þotunnar hafi reynt að senda frá
sér neyðarkall.
AP/ Símamynd
Frá fundi leiðtoga ríkja Evrópubandalagsins í Mflanó. Fundurinn bófst I gær en lýkur í dag. Á fundinum leitast
leiðtogarnir við að finna nýjar leiðir í baráttunni við alþjóðlega hermdarverkastarfsemi og flugrán. Aðalmálið verður
þó drög Frakka og Vestur-Þjóðverja að Bandaríkjum Evrópu, sem hefur í Tör með sér náið samstarf á sviði öryggis- og
utanríkismála.
Leiðtogafundur EB í Mflanó:
MÍUnó, 2S. júní. AP. __
VESTUR-ÞJÓÐVERJAR og Frakkar lögðu fram drög að samningi um
Bandaríki Evrópu á fundi leiðtoga ríkja Evrópubandalagsins. Felur hann
í sér náið samstarf EB-ríkja á sviði utanríkis- og varnarmála.
fram drög að
aríkjum Evrópu
Hermt er að Danir og Bretar
séu andvígir tillögunni, en ítalir,
Hollendingar og Belgar hlynntir.
Eru Hollendingar og Belgar sagðir
vilja ganga lengra og hraðar í þvi
að efla stjórnmálasamstarf ríkja í
Vestur-Evrópu.
Samningurinn gerir ráð fyrir
stofnun sérstakrar skrifstofu er
samræmi stefnu ríkjanna í utan-
ríkismálum og tíðum fundum
utanríkisráðherra þeirra. Ríkin
taki einnig sameiginlega afstöðu
til mála innan ýmissa alþjóðlegra
stofnana, s.s. Sameinuðu þjóð-
anna.
Bretar segja tillöguna að mestu
samhljóða þeirra eigin tillögu frá
10. júní. Segjast þeir þó andvígir
ýmsum atriðum og telja formleg-
an sáttmála ónauðsynlegan. Telja
þeir „bindandi samkomulag" duga.
Þeir vilja aðeins litla samræm-
ingarskrifstofu en ekki stóra
skrifstofu, sem framkvæmdastjóri
stýri, eins og tillaga Frakka og
V-Þjóðverja gerir ráð fyrir.
Á fundi sínum í dag ræddu leið-
Sýrlendingar munu
taka við gíslunum 39
ReirúL 28. iúní. AP.
togarnir um nýjar leiðir í barátt-
unni við alþjóðlega hermdar-
verkastarfsemi og flugrán. Búist
er við að yfirlýsing um aðgerðir í
þeim efnum verði birt á morgun,
laugardag.
Beirút, 28. júní. AP.
HEIMILDIR, sem taldar eru
áreiðanlegar, herma að Sýrlendingar
hafl fallist á að taka við gíslunum
39, sem eru í haldi amal-shíta, sem
rændu þotu TWA, og að þeir verði
látnir lausir þegar shítar í fangelsum
í ísrael verða látnir lausir. Reagan
Bandaríkjaforseti gaf í skyn í heim-
sókn í skóla í Chicago að árangur
væri að nást af pólitískum tilrauni'm
til að fá gíslana lausa.
Munu Sýrlendingar hafa sam-
þykkt að taka við gíslunum þegar
náðst hefði samkomulag um skipti
á þeim og shitum, sem eru fangar
tsraela. Berri, leiðtogi amal-shita,
kveðst vongóður um lausn deil-
unnar innan tveggja sólarhringa.
Jean-Claude Aime, fulltrúi SÞ.,
sem verið hefur milligöngumaður
í deilunni, sagði í einkaviðræðum
að gíslarnir yrðu frjálsir menn
annað kvöld, laugardagskvöld.
Hélt hann til Jerúsalem í tsrael í
dag eftir viðræður við Berri. í gær
ræddi hann við Assad forseta
Sýrlands í Damascus.
Nokkrir gíslanna kvörtuðu í dag
yfir skothríð við húsið, þar sem
þeir eru í haldi. Báðu þeir um að
verða fluttir í sendiráð í Beirút
þar sem þeir óttast um öryggi sitt.
Jesse Helms, öldungadeildar-
maður, sagði að íranir hefðu
skipulagt og stæðu að verulegu
leyti að baki ráninu á TWA-þot-
unni og töku gíslanna. Einn ræn-
ingjanna hefði verið í þriggja
vikna þjálfun i íran í maí.
Vopnabúr
IRA fundið
Glasgow, 28. júní. AP.
LÖGREGLAN í Glasgow flutti
hundruó manna á brott úr íbúða-
blokk í James Gray Street í Shaw-
lands-hverfínu í suðurhluta borgar-
innar og lokaði nærliggjandi götum.
Varðist lögreglan allra frétta af að-
gerð þessari, en út spurðist að fund-
ist hefði vopnabúr og sprengju-
geymsla írska lýðveldishersins, IRA.
. íbúarnir kváðust hafa heyrt
daufan dynk er þeir voru fluttir á
brott. Einn þeirra spurði lögreglu-
þjón hvað olli brottflutningnum
og var sagt að sprengja væri í hús-
inu. Lögreglan sagði einungis að
„hlutir" hefðu fundist í húsinu.
A-þýzkir leikskólar:
Kennsla efld í fræðum Marx
Auntur Krrlín, 28. jnnf. AP.
Austur-Þjóðverjar munu stórefla
kcnnslu um kommúnisma í leik-
skólurn landsins frá og með sept-
ember nk., að sögn Rudolfs Parr
aðstoðarmenntamálaráðherra
Austur-Þýzkalands.
Parr sagði að efla þyrfti
kennslu í fræðum Karl Marx á
forskólaaldri til þess að „ætt-
jarðarástin skyti dýpri rætum í
hjörtum barnanna". Hann sagði
nauðsynlegt að leggja snemma
áherzlu á „vináttu við Sovétríkin
og önnur kommúnistaríki".
Ummæli þessi koma fram i
tímariti um menntamál, sem hið
opinbera gefur út. Þar segir Parr
að fræða verði börn á forskóla-
aldri um heimsmynd kommún-
ista og verðmætamat þeirra.
Börn í kommúnistaríkjum yrðu
að vera fær um að „greina milli
góðs og ills, réttlætis og rang-
lætis, vináttu og fjandskapar".