Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 17
17 Einar Valdimarsson „Það er tímabært að stjórnmálamenn hér í Reykjavík átti sig á því að skortur á heppilegu vistrými fyrir aldraða er eitt stærsta félagslega vandamálið í dag. Þetta vandamál verður ekki borið til grafar í B-álmu Borgarspítalans.“ tveggja legudeilda fyrir aldraða í B-álmu spítalans hefur álagi á al- mennu Lyflækningadeildina auk- ist, stafar það m.a. af því að bráðainnlagnir fara ekki fram f B-álmu, hins vegar leitar aldrað fólk, sem útskrifast hefur úr B-álmu gjarnan til Lyflækninga- deildarinnar, geti það ekki hafst við heima. Af þessum ástæðuni öllum m.a. er vandi Borgarspítal- ans vegna langlegusjúklinga stærri nú en nokkru sinni fyrr. Stærsta vandamálið í daglegum rekstri Borgarspítalans er skortur á langvistunarrými. Landspítal- inn glímir við þetta vandamál og Landakotsspítali vissulega líka. Skortur á vistrými fyrir sjúk og lasburða gamalmenni er vaxandi þjóðfélagslegt vandamál síðustu árin, sem ýtt hefur verið yfir á bráðaspítalana að miklu leyti og stjórnmálamenn virðast hafa lok- að augunum fyrir. Það má heita dæmigert fyrir afstöðu íslenskra stjórnmálamanna til þessa þjóð- félagsvandamáls, þegar þeir lýsa því yfir í fjölmiðlum að til standi að leysa langleguvanda Landa- kotsspítalans með því að leggja hluta Borgarspítaians, þ.e. Hafn- arbúðir, undir Landakotsspítala og flytja þá sjúklinga, sem nú vist- ast í Hafnarbúðum yfir í B-álmu Borgarspitalans, þar sem biðlisti er þegar orðinn mjög langur. Það ætti að vera hverjum manni ljóst að slík ráðstöfun breytir engu um vandamál langlegusjúklinga á höfuðborgarsvæðinu. Það geta hvorki talist lýðræðisleg eða skynsamleg vinnubrögð að standa að slíkum samningi án nokkurs samráðs við forráðamenn og starfsfólk Borgarspítalans og í rauninni i beinni andstöðu við skoðanir og vilja þessa fólks. Það getur ekki talist mannúðleg ráð- stöfun að flytja gamalt fólk úr Hafnarbúðum, sem hafa verið heimili þess um langt skeið, inn í B-álmu í Fossvogi. Það er tímabært að stjórnmála- menn hér í Reykjavík átti sig á þvi að skortur á heppilegu vistrými fyrir aldraða er eitt stærsta fé- lagslega vandamálið í dag. Þetta vandamál verður ekki borið til grafar í B-álmu Borgarspítalans. Fyrir svo sem 15—20 árum síðan hefði sennilega mátt líta á B-álm- MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNl 1985 una sem einskonar allsherjar lausn á vistrýmisvanda aldraðra í Reykjavík. Síðan hafa viðhorf breyst verulega og öldruðum fjölg- að mjög. Aldraðir sem vegna lík- amlegrar og eða andlegrar heilsu sinnar geta ekki lengur búið á heimilum sínum eru ákaflega sundurleitur hópur með fjöl- breytilegar þarfir. Það sem ein- kennir nútíma afstöðu til vistun- armála þessa fólks er, að byggt sé í smáum einingum, sem eru hann- aðar með hinar margvíslegu þarf- ir fólksins fyrir augum, jafnframt er leitast við að dvalarstaðirnir séu í sem minnstri fjarlægð frá heimilum nánustu ættingja. Sjúkradeildir B-álmunnar eru hannaðar eftir nútíma staðli sjúkradeilda á bráðaspítala. Þess- ar legudeildir í B-álmu henta því aðeins ákveðnum, litlum hópi þeirra öldruðu, sem þurfa á lang- tíma eða ævivistun að halda. Sem langvistunarstofnun hentar álm- an best þyngstu hjúkrunarsjúkl- ingunum meö líkamlega kvilla. Aðrir hópar gamalmenna og mun miklu stærri, sem ekki geta dvalið i heimahúsum þarfnast dvalar- staða af allt öðru tagi. B-álman er ekki sú allsherjar lausn á vistrým- isvanda aldraðra sem margir virð- ast halda. Það er því fyrir löngu tímabært að hefjast handa við skipulegt átak í uppbyggingu lít- illa hjúkrunarheimila eða eininga víðs vegar um borgina. Ég er viss um að íslenskir stjórnmálamenn, flestir hverjir, vilja eins og kolleg- ar þeirra í nágrannalöndum okkar fremur vita af lasburða, öldruðum ættingjum sínum inni á slíkum smáum heimilislegum stofnunum, en inni í spítalabákni eins og B-álman er. Að leggja hluta Borgarspítalans undir Landakotsspítala leysir ekki á neinn hátt vanda hjúkrunar- sjúklinga í Reykjavík. Reykjavík- urborg þarf á öllum sínum hjúkr- unarplássum að halda og miklu fleiri þarf til, sem fjölbreytilegust, á sem flestum stöðum til að geta sem best mætt knýjandi þörf í samræmi við nútíma viðhorf. Það er forkastanlegt að ætla að leysa vandamál Landakotsspítala með því að auka á vanda Borgarspítal- ans. Hreppaflutningur gamals fólks úr Hafnarbúðum suður í Fossvog er ómannúðlegur. Vandi Landakotsspítala vegna langlegu- sjúklinga verður ekki leystur á raunhæfan hátt með öðru móti en því að útvega spítalanum húsnæði undir ný hjúkrunarrými. Það verður fróðlegt að fylgjast með þvi nú á næstunni af hvaða þekkingu og framsýnf ráðherrar og ráðamenn Reykjavíkurborgar leysa það mál sem nú hefur komið upp og snýst ekki bara um vanda Landakotsspítala vegna langlegu- sjúklinga. Höfundur er læknir í Borgarspítal- anum í Reykjarík. Lúðrasveit Hafnarfjarðar. Lúðrasveit Hafnarfjarðar heldur í hljómleikaferð LÚÐRASVEIT Hafnarfjarðar heldur upp á 35 ára afmæli sitt nú í ár. Af þessu tilefni leggur sveitin upp í hljómleikaferð til Þýskalands og Austurríkis nú um helgina. f Þýskalandi tekur sveitin þátt í hátíðahöld- um vegna afmælis Lúðrasveitar Niederrimsingen. Að því loknu liggur leiðin til Piirg í Austurríki en þar tekur lúðrasveitin þátt í lúðrasveita- móti. í Lúðrasveit Hafnarfjarðar eru 35 hljóðfæraleikarar. Stjórnandi er Hans Ploder. SUZUKI FOX PICKUP Bíll sem býður upp á marga möguleika Aflmikill og lipur jeppi og umfram allt ótrúlega spameytinn. ísparaksturskeppni BIKfí ogDV9. júní sl. eyddi Suzuki Fox 413 aðeins 6.2 Itr. pr. 100 km. Nú getum við boðið upp á vönduð trefjaplasthús á Suzuki Fox pickup. Þar sem Fox pickupinn er 57 cm lengri en Fox jeppinn, þá hentar hann mjög vel fyrir alla þá sem þurfa á miklu farangursrými að halda. Verð: Suzuki Fox 410 pickup 4 gíra kr. 339.000.- Suzuki Fox 413 pickup 5 gíra kr. 395.000.- Trefjaplasthús kr. 64.700.- Því meira sem þú ekur SUZUKI - því meira sparar þú SVEINN EGILSSON HF. Skeifunni 17. Sími 685100. PÁV Prtnlsrrudfa Anta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.