Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. jUNl 1985 9 Innilegar þakkir til allra, sem á margan hátt glöddu mig á 80 ára afmœli mínu þann 18. júní sl. VIÐ STÆKKUM!! Núna um helgina stækkar Mandarin um helming. Viö tökum í notkun nýjan sal, sem viö teljum aö viöskipta- vinir okkar kunni aö meta. Salurinn er búinn þægindum og skreyttur japanskri og kínverskri list. ... og svo hefur matseöillinn enn stækkaö, núna bjóöum vlö 47 ATRIÐI Á MATSEÐLI Megum viö vineamtegast benda i: Snöggateiktan smokkfisk eóa Kínakil m/belgbaunum og mandarínsósu Snðggsteikt lamb m/blönduöu grmnmeti eóe Hauta-Chow-htein nú oób þi Snöggsteikt nautakjöt m/gulrí baunasósu. AHt eru þetta úrvals réttir, matbúnir samkvæmt hinni ævafornu austurlensku matarhefö. Manðarín Nýbýlavegi 20 Sími 46212 Munid austurlensku veisl- urnar sem viö setjum upp um alla borgina ásamt viö- eigandi austurlandaskrauti. Aukid verdgildi krónunnar akió á GOODfÝEAR Hættur viö að hætta Á laugardaginn fyrir réttri viku var þeirri skoö- un lýst í Þjóðviljanum, að Karl Steinar Guðnason, þingmaður Alþýðuflokks- ins og varaformaður Verkamannasambandsins, befði beitt sér fyrir því aö samningar tókust í nýaf- staðinni kjaradeilu vegna valdabaráttu innan Verka- mannasambandsins. Karl Steinar ætlar sér að sögn Þjóðviljans að sækjast eftir formennskunni og ná henni af Cuðmundi J. Guð- mundssyni, núverandi formanni Verkamanna- sambandsins. Og ekki nóg með það, Jón BaJdvin Hannibalsson á að hafa lofað Karli Steinari ráð- herraembætti fyrir viðvik- ið. í fyrradag birtist svo for- síðuviðtal við Guðmund J. Guðmundsson í Þjóðviljan- um þar sem fram kemur að hann ætlar ekki aö standa við það fyrirheit sem hann gaf á þingi Verkamanna- sambandsins fyrir tveimur árum, að hætta for- mennsku þar nú í haust „Mér er einfaldlega erfitt að hætta núna. Verkefnin eru svo gapandi," segir Guðmundur J. í Þjóðvilja- viðtalinu og færir meðal annars þessi frumlegu rök fyrir því, að hann sé hættur við að hættæ „En það vill svo til, að þó Morgunblaöið haldi stundum að gangi veraldarsögunnar sé ráðið á ritstjórnarskrifstofunum í Aöalstræti, þá verður það fólkiö á þingi Verka- mannasambandsins sem kýs formann. Nú, ég get lofað því að næstu tvö ár yrðu mér engin róleg- heitaár." Kannski gapa einhverjir af undrun við að lesa þessi orð Guðmundar J. Þau eru í ætt við það sem áður hef- ur verið rætt í Stakstein- um, að svo virðist sem það, er birtist hér í blaðinu, ráði ölhim gerðum alþýðu- bandalagsmanna, þegar þeir huga að eigin stöðu og flokksins. Formaður VMSÍ Gef kost á mér áfram GuðmundurJ. Guðmundsson: Gef kost á mérþó Morgunblaðið ogDV vilji annað. Verður að lyfta kaupmættinum. Guðmundur J. í vanda Eins og aðrir forkólfar Alþýöubandalagsins stendur Guömund- ur J. Guömundsson frammi fyrir miklum vanda. í Staksteinum í dag er litiö á þaö í hverju þessi vandi hans er fólginn. Jafnframt er leitast viö aö létta af honum áhyggjum. Þeirri spurningu er þó ósvaraö, hver tekur ráöin af Guömundi J. í næstu kjarasamning- um. Ábending í fullri vinsemd í fullri vinsemd skal Guðmundi J. Guðmunds- syni bent á það, að þeim sem sitja á ritstjómar- skrifstofúm Morgunblaðs- ins við Aðalstræti er það síst af ölhi á móti skapi að hann sitji tvö eða tvisvar sinnum tvö ár til viðbótar á formannsstóli f Verka- mannasambandinu. En fyrir Guðmund J. og þá sem styðja hann með at- kvæði sínu á þingi Verka- mannasambandsins hlýtur I»* vera íhugunarefni, hvort hann eigi að leggja á sig allt erfíðið sem hann sér framundan næstu tvö ár. Það hefur nefnilega komið í Ijós á undanforn- um mánuðum, að hann hefur ekki haft erindi sem erfiði innan Verkamanna- sambandsins. Áður en Fylkingarfélag- ar ákváðu að ná undirtök- unum innan Alþýðubanda- lagsins höfðu þeir tekist á við Guðmund J. og haft betur. Þeir Pétur Tyrf- ingsson og Guðmundur J. Hallvarðsson höfðu í fulhi tré við Guðmund J. innan Dagsbrúnar, hans gamla félags. í nýafstaðinni samningalotu ætlaði Guð- mundur J. að fylgja harð- linustefnunni sem Fylk- ingarfélagarnir höfðu mót- að fýrir hann. Þá bar hins vegar svo við, að hinir skynsamari innan Verka- mannasambandsins tóku völdin af Guðmundi J. og samningastefnan varð ofan á. Þeir sem vildu viðræður svo framarlega sem þær bæru engan árangur urðu sem sé undir. Ástæðulaust er fyrir Morgunblaðið eða nokk- urn annan að setja það fyrir sig, hvort Guðmundur J. er formaður Verka- mannasambandsins eða ekki. Reynslan sýnir, að það eru aðrir en hann, sem ráða þar ferðinni þegar á herðir. Hin raunveru- lega ástæða Á blaðsiðu 2 í Þjóðviljan- um lýsir Guðmundur J. Guðmundsson hinni raun- verulegu ástæðu fýrir því, að hann vill hætta við að hætta sem formaður V erkamannasambandsins. Það liggur sem sé við, að Verkamannasambandið sé að klofna undir hans for- ystu og hann vill ekki hætta áratuga löngu starfi f verkalýðshreyfingunni við þær aðstæður, að hans verði minnst sem manns- ins sem skyldi við Sam- bandið klofið. í Þjóðviljaviðtalinu segir Guðmundur J. meðal ann- ars „Mér kemur ekki á óvart þó ýmsir tali nú um að stofna sérstakt sam- band fiskverkafólks. Ef að- ilar standa sig ekki í fram- tíöinni þá hlýtur að koma að þvi Eg veit um marga í röðum fiskverkunarfólks og forystu þess sem eru þeirrar skoðunar. En það væri ógæfuspor, til lengri tíma, ef ASf klofnaðL" Af hverju er þessi hug- mynd komin upp meðal fiskverkunarfólks? Jú, vegna þess að mörgu þeirra þykir Guðmundur J. Guðmundsson ekki hafa staðið sig nógu vel í samn- ingunum. Hvert telur Guð- mundur J. mesta afrek sitt í þágu þessa fólks? Hann segir „Málefni fiskverk- unarfólks hafa aldrei verið meira i kastljósi fjölmið- lanna og núna... Eg bind vonir við að sú athygli sem málefni fiskverkunarfólks njóta nú, muni bera árang- ur síðar.“ (I) Nú er að sjá, hvort þess- ar vonir Guðmundar J. Guðmundssonar duga hon- um í kosningunni á þingi V erkamannasam bandsi ns, úr því að hann er hættur við að hætta. Kostakaup og Kjötbær: Framleiða unnar kjötvörur eftir dönskum uppskriftum Morgunbladid/Árni Sæberg Frá vinstri: Hákon Sigurðsson, Karl Kristinsson kjötiðnaðarmeistari, Ómar Gunnarsson kokkur og Gísli Halldórsson. Þeir kynntu nýju kjötvörurnar fyrir blaðamönnum. VERSLANIRNAR KosUkaup hf. og Kjötbær hf. boðuðu nýlega til blaða- mannafundar til að kynna nýja ís- lenska framleiðslu. Kjötiðnaðar- menn verslananna hafa framleitt eftir dönskum uppskriftum 42 teg- undir af unnu kjötmeti. Verslanirnar hafa umboð frá tveim erlendum fyrirtækjum, sem hafa með sér samstarf um þróun í matvöruframleiðslu. Annað fyrir- tækið er þýskt og sérhæfir sig í kryddum ýmiss konar. Hitt er danskt og aðalframleiðsla þess eru uppskriftir að margvíslegum kjötréttum. Að sögn Hákonar Sigurðssonar hjá Kostakaupum hf. komu menn frá báðum þessum fyrirtækjum hingað til lands nú í vor og kenndu íslenskum starfsbræðrum sínum handbrögðin við framleiðsluna. Hákon sagði ennfremur að þessum erlndu kjötiðnaðarmönnum hefði þótt íslenskt hráefni henta mjög vel til vinnslu, ekki síst lamba- kjötið. Á fundinum kom einnig fram að gerðar væru mjög strangar kröfur í bæði Danmörku og Þýskalandi um hvernig staðið skuli að kjöt- vinnslu. Til dæmis séu allir fram- leiðendur í þessum löndum hættir að nota fyllingarefni í pylsur. Hér á iandi verður farið eftir þessum reglum. „Þetta mun að sjálfsögðu hækka verðið dálitið," sagði Há- kon Sigurðsson. Eins og fyrr segir er búið að framleiða 42 tegundir nú þegar og stendur til að framleiða fleiri. Hér er um að ræða spægipylsur, smur- áleggspylsur, kjötbúðinga, paté og fleira.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.