Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1985 Ekur einhver úr Grafarholtinu á morgun á Toyota- verðlaunabflnum? — Opna GR-mótið hefst í dag í Grafarholti OPNA GR-mótid í golfi hofst í dag á Grafarholtsvolli og stendur þar til annað kvöld. Þetta er í 8. skipt- ið sem mðtiö fer fram en þetta er mesta golfmótið sem haldið er hór á landi árlega ef landsmótiö er undanskiliö. Verölaun eru mjög glæsileg — og nú ber sérstaklega aö nefna aö Toyota-umboöiö hefur ákveöiö aö gefa bíl sem aukaverölaun. Keppt veröur um bílinn á morgun, þannig aö fari einhver kylfingur „holu í höggi" á 17. braut fær hann bifreiö aö verömæti 400.000 krónur aö launum Fari tveir eöa fleiri kepp- endur „holu í höggi", þá skipta þeir bifreiöinni eöa andviröi hennar á milli sín. Þátttakendur á Opna GR-mót- inu í fyrra voru 152 og er Ijóst aö þeir veröa talsvert fleiri nú. Leiknar veröa 36 holur meö forgjöf í punktakeppní, 7/a forgjöf. Há- marksforgjöf sem gefin er veröur 21 þannig aö mest er gefiö eitt högg á holu. Verölaun eru glæsileg sem fyrr segir. 24 fyrstu sætin gefa verö- laun, auk þess veröa aukaerölaun á stuttu brautum vallarins. Meöal verölauna eru 7 utanlandsferöir, demantshringar, svínsskrokkur, húsgögn, alls konar golfáhöld og fleiri nytsamir hlutir. Tveir keppendur eru saman í liði. Veröi tvö lið jöfn í verölauna- sæti þá ræöur punktafjöldi á 6 síö- ustu holum. Séu liö enn jöfn veröa reiknaöar 9 síöustu holur og síöan 3 holur til viöbótar þar til úrslit fást. Wimbledon tennismótið: Djarfur klæðnaður óheimill BANDARÍSKUR keppandi á Wimbtedon-tennísmótinu i Eng- landi, Anne White að nafni, var í fyrradag veitt aðvörun vegna klæðaburðar er hún mætti til keppni. Stúlkan mætti til leiks í þröngum nylon-galla, meö hárband og legghlífar. Áhorfendur kunnu vel aö meta þessa nýbreytnl í klæöa- buröi og flautuöu á White. Dóm- arar á Wimbledon-mótinu voru ekki eins hrifnir. Þaó hefur lengi loóaö viö tennisíþróttina aö menn væru íhaldssamir á ýmsa hluti og sannaöist þaö rækilega í þetta skipti. Hingaö til hafa kvenkepp- endur á tennismótum ætíö klæöst peysu og stuttu pilsi — og ekki virðist mega breyta út af jjeirri venju. Eins og áóur sagöi kunnu áhorf- endur vel aö meta nýjung White og sagöi einn þeirra, fatahönnuöurinn Teddy Tinling, aö White væri í full- komnum rétti aö klæöa sig á þennan hátt — auk þess sem hún heföi vel efni á því þar sem hún væri svo vel vaxin ... Morgunblaöið/AP-símamynd • Anne White frá Bandaríkjunum á Wimbledon-mótinu í fyrradag. Hinum íhaldssömu dómurum keppninnar þóttu hún of djarflega klædd og bönnuðu henni að masta aftur svona til fara... Haf nir í efsta sæti — þrír jafnir markakóngar í VIKUNNI voru tveir leikir i 4. deild íslandsmótsins í knatt- Kópavogsvöllur Breiðablik — Skallagrímur kl. 16 í dag Útvegsbanki íslands, Kópavogi WEF Banki Kópavogsbúa |&íf innréttingaþjónusfcan Vt JlMi Ko|i.i\«m|í Sim 7'uumi ISPAN HF. Breiðablik í umoro BYKO Kópavogsnesti, Nýbýlavogi 10, sími 42510. spyrnu, einn í B-riöli og annar í E-rMML f B-riöli áttust viö Hafnir og Mýrdælingar og var leikiö suöur meö sjó. Heimamenn réöu gangi leiksins algjörlega og sigruöu 8:1. Valur Ingimundarson skoraöi þrennu og þaö geröí Gunnar Björnsson einnig en þeir Július Ólafsson og Hilmar Hjálmarsson skoruöu eitt mark hvor. Meö þess- um sigri sínum eru Hafnir komnar f efsta sæti B-riöilsins meö 13 stig en Afturelding er í ööru sæti meö 10 stig og keppnin er nú hálfnuö. Æskumenn sóttu ekkí gull í greipar Tjörnesinga þegar þeir brugóu sér austur tll þeirra. Hörku- leikur sem endaói með sigri heimamanna 3:2. Siguröur llluga- son, Magnús Hreiðarsson og Guö- mundur Jónsson skoruöu fyrir Tjörnes en þeir Einar Kristjánsson og Atli Brynjólfsson fyrir Æskuna. Æskumenn voru óhressir meö dómara leiksins og sögöu aö þaö væri lenska þegar leikið væri þarna eystra aö dómarar væru fyrir neöan allar hellur. Þessi leikur breytir engu um röö liöa í riölinum. Tjörnes enn í þriöja sæti og nú meó 8 stig en Æskan enn á botnin- um meö ekkert stig. Markahæstu menn fyrir leikinn í gærkvötdi í 4. deildinni eru: Siguröur Halldórsson, Augnabliki Sólmundur Kristjánsson, Stokkseyri Garóar Jónsson, Hvöt Jónas Ólafsson, Súlunni Jón Gunnar Traustason, Geislanum Páll Leó Jónsson, Stokkseyri Þrándur Sigurðsson, Sindra Friöstelnn Stefánsson, Aftureldingu Lárus Jónsson, Aftureldingu Páll Rafnsson, ÍR Erling Aóalsteinsson, Gróttu Gunnar Björnsson, Höfnúm Arl Torfason, Vaski Jónas Baldursson, Vaski jflovflunMnfrifr iiiwiiini Flugleiðamótið: Breyttur leiktími ÞAÐ HAFA verið geröar smá- vægilegar breytingar á dagskrá Flugleiöamótsins í handknattleík sem fram fer þessa dagana hér á landí. i dag veröur leikið á Sel- fossi eins og fyrirhugaö var en tímasetningu leikjanna hefur ver- ið breytt. Fyrri leikurinn, sem er á milli íslensku liðanna hefst kl. 16.00 í stað 15.00 og seinni leikur- inn á milli Hollands og Noregs veröur því kl. 17.30. Á morgun, sunnudag, veröur leikiö aö Varmá kl. 10.30 og eru þaö íslensku liöin sem leika hvort viö annaö en siöar um daginn veröur haldiö upp á Akranes þar sem leiknir verða þrír leikir. Fyrsti leikurinn hefst þar kl. 11.00 um morguninn og veröa þaö Noregur og Holland sem þar leika en kl. 17.00 leika B-liö islands og Noreg- ur og strax aö j>eim leik loknum, um kl. 18.30, leika ísland A og Hol- land. Mótinu lýkur síöan í Laugardals- höll á mánudagskvöldiö. Þar munu leika ísland B og Holland. Síöasti leikur mótsins veröur Noregur — ísland A. Fyrri leikurinn hefst kl. 19.00 en sá seinni um kl. 20.30. Aö mótinu loknu munu þjálfarar liöanna kjósa leikmann mótslns og auk þess veröur kjörinn bestl markvöröur mótsins og marka- hæsti leikmaöur mótsins veröur einnig heiöraöur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.