Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1985 21 DÍANA OG 007 AP SmMny d Díana prinsessa beilsar hér breska leikaranum Roger Moore við frum- sýningu á nýjustu James Bond-myndinni, Víg í sjónmáli, í Lundúnum fyrr í mánuðinum. Moore leikur sem kunnugt er aðalhlutverkið ( myndinni, leyniþjónustumanninn James Bond eða 007, en allur ágóði af frumsýningunni rann til góðgerðarmála. Óhagstæður vöru- skiptajöfnuður Bandaríkjanna Wa.shington, 28. júní AP. ^ VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR Bandaríkjanna var óhagstæður um 12,7 milljarða dollara í maí sl. og var þá óhagstæðari en í nokkrum mánuði síðan í júlí í fyrra, en þá var hann óhagstæður um 13,8 milljarða dollara. Nam innflutningur í maí 30,1 milljarði dollara en útflutningur þá nam aðeins 17,4 milljörðum dollara og hefur hann ekki verið minni síðan í febrúar 1984. Háu gengi dollarans er aðal- lega kennt um þessar óhagstæðu tölur. Vegna þess verða innflutt- ar vörur ódýrari en ella í Banda- ríkjunum en útfluttar banda- rískar vörur dýrari og síður sam- keppnishæfar við vörur annarra þjóða á erlendum mörkuðum. Sumir spá því nú, að vöru- skiptajöfnuður Bandaríkjanna verði óhagstæður um 140 millj- arða dollara á þessu ári, sem yrði enn meira en á siðasta ári, en þá var hann óhagstæður um 123,3 milljarða dollara. Ýmsar hagtölur í maí reyndust þó mun hagstæðari í Bandaríkj- unum en þær voru tvo næstu mánuði á undan og því eru marg- ir bjartsýnir á aukinn hagvöxt þar í landi á næstu mánuðum. Vínber og vín súr Köld tíð og vætusöm í V-Þýskalandi Bonn, 28. júní. AP. VESTUR-þýsku vínin, árgangur 1985, verða líklega ekki færð í annála fyrir gæði því að vínberin eru súr. Valda því látlausar rigningar og köld veðrátta að sögn landbúnaðarráðherra. Lengst af júnímánuði hefur hiti verið undir meðallagi í Vestur- Þýskalandi og víðar í Vestur- Evrópu og miklar rigningar. Af þeim sökum hefur vínviðurinn blómgast hálfum mánuði síðar en venjulega og er búst við að vín- berjauppskeran verði 20—25% minni en í meðalári. Ignaz Kiechle, landbúnaðarráð- herra, segir að líklega verði vinin frá þessu ári kunnust fyrir að vera súr og benti auk þess á að mjög kaldur vetur og haglél hefðu skemmt vínekrurnrar snemma á árinu. Kuldinn og vætan hafa hins vegar ekki aðeins áhrif á vínvið- inn, heldur líka á ferðamenn sem hafa flúið hver sem betur getur og skilið baðstrandirnar í Norður- Þýskalandi eftir auðar. GENGI (ÍJALDMIÐLA: Dollar lækkar DOLLARINN lækkaói nokkuð ( verði i dag á gjaldeyrismörkuðum vegna fréttar Bandaríkjastjórnar um að viðskiptahallinn ( maí hefði verið sá næstmesti í sögunni. Verð á gulli hækkaði hins vegar lítillega. Þegar gjaldeyrismarkaðir lok- uðu í Tókýó í dag kostaði dollar- inn 248,95 japönsk yen. í gær kostaði dollarinn 248,32 yen. f Lundúnum fengust 1,30825 dollarar fyrir pundið. Er það hækkun frá því í gær, en þá fengust 1,2925 dollarar fyrir pundið. Gengi dollars gagnvart öðrum helstu vestænum gjald- miðlum var sem hér segir, tölur frá í gær í svigum: 3,0240 vestur-þýsk mörk (3,0560), 2,5415 svissneskir frankar (2,5635), 9,2350 franskir frankar (9,3350), 3,4115 hollensk gyllini (3,4540), 1.936,00 italskar lírur (1.936,00), 1,3612 kanadískir doll- arar (1,3636). Á markaðnum í Lundúnum fengust 317 dollarar fyrir gull- únsu. Það er hækkun frá því gær, þegar únsa af gulli kostaði 316,75. Vestur-Þýskaland: Engir öryggisverðir í flugvélar Lufthansa Bonn, 28. júnL AP. VESTUR-ÞÝSKA stjómin hætti í dag við áform um að setja vopnaða verði um borð í allar flugvelar flug- félagsins Lufthansa. Innanríkisráðherrann Fried- rich Zimmermann sagði fyrr í vikunni að líkur væru á að örygg- isverðir yrðu hafðir í flugvélum Lufthansa vegna þeirra flugrána sem framin hafa verið undanfar- ið. Hins vegar tóku talsmenn flugfélagsins það ekki í mál, þar sem öryggi farþeganna væri með því stefnt í hættu. Samgönguráðherra vestur- þýsku stjórnarinnar, Werner Dollinger, sagði í þingræðu í dag að hætt hefði verið við áformin sökum þeirrar hættu sem skapast kynni ef kæmi til skotbardaga í flugvélunum milli flugræningja og öryggisvarða. Hann sagði þó að stjórnin yrði vakandi fyrir öllum nýjungum, sem stuðlað gætu að auknu ör- yggi í flugvélum, og enn væri ekki útséð um hvort verðir yrðu hafðir um borð í þeim í framtíðinni. Dollinger upplýsti ennfremur að öryggiseftirlit á vestur-þýsk- um flugvöllum væri nú mjög gott, enda hefðu um 45 þúsund hlutir, sem unnt væri að nota sem vopn, verið gerðir upptækir, þar á með- al 817 skotvopn. Kanada: Vilja samvinnu við Indverja í baráttunni við hermdarverk Nýju Delhí, 28. júní. AP. KANADÍSKA stjórnin, sem sætt hefur gagnrýni vegna linkindar sinnar í samskiptum sínum við her- skáa shíka búsetta í ( Kanada, hef- ur fallist á að taka upp samvinnu við indversk stjórnvöld í baráttunni við hermdarverkamenn. Ótilgreindur embættismaður staðfesti þetta í dag. Sagði hann að ákvörðun Kanadastjórnar hefði verið komið á framfæri á fundi sendiherra Kanada á Ind- landi, William Warden, og ind- verska utanríkisráðherrans í dag. Hann sagði ennfremur að Kanadastjórn mundi vinna með Indverjum í því skyni að koma í veg fyrir hermdarverk af öllu tagi. Liður í því væri að fylgjast með athöfnum öfgasinnaðra shíka sem búa í Kanada. Þess má geta að indversk dag- blöð hafa oft haldið því fram shíkar, sem búsettir eru í Banda- ríkjunum, Kanada, og Bretlandi, fjármagni aðgerðir hermdar- verkamanna, sem vilja koma á sjálfstæði shíka í Pújab-fylki. Noröur-írland: Sprengja IRA gerð óvirk Belfast, 28. júní. AP. BRESKI herinn gerði í nótt óvirka sprengju, sem liðsmenn írska lýð- veldishersins (IRA) höfðu komið fyrir í húsi golfklúbbs skammt frá landamærum írska lýðveldisins. Lögregla lét rýma húsið eftir að hringt hafði verið í hana í gær- kvöldi og skýrt frá sprengjunni. Sprengjusérfræðingar hersins komu síðan á vettvang, fundu sprengjuna og gerðu hana óvirka. Verð frá kr. Við tökum notaða bílinn þinn upp í þann nýja og greiðsluskilmálar eru sérlega hagstæðir! BiLVANGUR Sf= HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.