Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAfilÐ, LAUGARDAGUR 29. JtJNl 1985
félk í
fréttum
Atlantshafsflugrallið
SYSTIR
SYLVESTER STALLONE
Reynir fyrir sér i
fyrirsætustörfum
Tonian Stallone er yngsti fjölskyldumeðlimurinn og 21 árs. Hún
er eins og nafnið bendir til systir hins kunna Sylvester Stallone
og er nú að fikra sig áfram á fyrirsætubrautinni. Hún tekur það
nærri sér er sögusagnir heyrast að hún ætli að notfæra sér nafnið
við að koma sér áfram.
„Ég myndi vera að gera nákvæmlega það sama í dag jafnvel þó
Syívester væri verkamaður að grafa holur einhverstaðar. Hvað á ég
að gera? Afneita bróður mínum?"
Til að sanna sjálfstæði sitt leigir hún ásamt tveimur stúlkum til
að halda kostnaði í lágmarki.
17. júní
í Riccione
Hinn 17. júní sl. var haldin íslensk þjóðhátíð á Riccione á Ítalíu
þar sem nú dveljast um þrjú hundruð íslendingar á vegum
Samvinnuferða-Landsýnar.
Veðrið minnti á íslenskt þjóðhátíðarveður, þ.e. rok og skýjað, en
landarnir létu sér það í léttu rúmi liggja og skemmtu sér hið besta.
Á „La Traviata" hittust Islendingarnir fyrst klukkan 18.00 og
þar var mættur Langholtskórinn eftir söngferðalag um Evrópu og
tók hann lagið og þáði veitingar frá íslandsvinunum Nerio og
Maurizio.
Við tækifærið afhenti Maurizio Jóni Stefánssyni kórstjóra bikar
fyrir hönd veitingastaðarins.
Um sjöleytið var haldið á annan veitingastað nefndan „Punta de
Est“ til að snæða og undir borðum voru ýmis skemmtiatriði m.a.
sungu krakkarnir „Allir krakkar", starfsfólk Samvinnuferða var
með uppákomur og að sjálfsögðu tók allur hópurinn lagið.
Að borðhaldinu loknu var haldið á diskótek og dunaði dansinn
fram undir morgun.
Að sögn Bergljótar Leifdóttur fréttaritara okkar á Riccione
tókst þessi dagur það vel að einn landinn hafði sagt „Við verðum
líka að halda upp á 18. júní því hann er líka aðeins einu sinni á ári.“
MorgunblftdiÖ/Þorkell
Bandarísku flugmennirnir Mel Kilner og Bob Stroup voru tvímælalaust óheppnustu flugmennirnir I Atlantshafs-
flugrallinu, sem lauk um helgina. Þeir flugu minnstu vélinni, Cessnu 172 Cutlass Turbo.
„Við skulum
til Parísar“ \
sögðu flugkapparnir sem urðu tepptir á Hornafirði
Ætli við séum ekki með
óheppnustu rallflug-
mönnum sem um getur í seinni
tíð,“ sögðu bandarísku flugmenn-
irnir Mel Kilner og Bob Stroup, en
þeir urðu eftir á íslandi eftir að
hafa gert þrjár árangurslausar til-
raunir til að komast héðan áleiðis
að lokamarkinu, París. Þeir flugu
minnstu vélinni í Atlantshafsflug-
rallinu, Cessnu 172 Cutlass RG II.
í fyrstu tilraun urðu þeir að
snúa aftur til Reykjavíkur vegna
mikils mótvinds. Daginn eftir
reyndu þeir á nýjan leik en þá
bilaði forþjappa í hreyfli sem
leiddi til olíuleka og því ógerlegt
að halda til Skotlands. Hugðust
þeir taka áætlunarflugvél til
London og áfram til Parísar til
að vera viðstaddir lokaathöfn
keppninnar. Þá náðist ekki
framhaldsflug frá London í tæka
tíð.
— Hvernig var tilhugsunin að
vera tepptir á HornafirðÍ vitandi
um félagana á leiðarenda í borg
gleðinnar, París?
„Jú, við vorum svo sannarlega
fýídir. Við gerðum okkur þó smá
dagamun þó að kampavínið hafi
vantað. Annars hefðir þú átt að
heyra í okkur í gær þá vorum við
virkilega óhressir. Núna erum
við búnir að sofa það versta úr
okkur.“
— Hvert er ferðinni heitið
næst?
„Við skulum komast til París-
ar, þó ekki sé nema í smá frí. Við
ætlum ekkert að hætta á miðri
leið þó keppninni sé lokið.“
— Þetta er eina flugvélin af
þessari tegund í heiminum sem
er búin forþjöppu. Hvernig hefur
hún reynst í keppninni?
„Þrátt fyrir að hún sé lltil hef-
ur hún reynst vel og skilað góð-
um afköstum. Hefðum við verið
á flugvél án forþjöppu Hefðum
við að líkindum komist áfram.
Það var forþjappan sem bilaði.“
Að lokum sögðust þeir félagar
vera ánægðir með að vera komn-
ir aftur til Reykjavíkur og fyrst
þeir hefðu á annað borð orðið
fyrir þessari töf hefðu þeir
hvergi viljað vera tepptir ann-
arsstaðar en á íslandi. Nema þá
kannski helst í fyrirheitnu borg-
inni, París.
Að auki bilaði flugvél i
Reykjavík og á Hellu. Sú síðar-
nefnda náði að haida til Skot-
lands og Parísar.
Hluti af unga fólkinu sem tók þátt í hátíðahöldunum 17. júní.
Ljósm./Fréttaritari Mbl. í Riccione, Bergljót Leifsdóttir.