Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
/4L
V
Kauðárkrókur 28. júui. Frá Iager Önnu Aikmnn blaónmnnni Morgunblaóains.
Norðurlandsleikarnir voru settir á Sauðárkróki í kvöld, en þátttakendur eru börn og unglingar á aldrinum 9—14,
alls 1100 talsins. Leikarnir hófust með því að gengið var fylktu liði frá Barnaskóla bæjarins út á íþróttaleikvang-
inn, þar sem mótið var sett við hátíðlega athöfn.
40 bátar búnir
með sinn kvóta
— 48 aðrir langt komnir — flestir á SV-landi
' ■ - * v?1
-r* X
Morgunblaðið/ Valdimar
Beðið eftir einkunnum
það er hlutskipti keppenda á Fjórðungsmóti besUmanna í Reykjavík að
upplifa þá spennu og eftirvæntingu sem ávallt fylgir alln keppni og ekki
síst þegar mikið er í hún. Þegar úr dómhring er komið er þungu fargi létt
af en hjartslátturinn magnast þegar beðið er eftir einkunnum dómar-
anna. Hér er það Lárus Sigmundsson sem bíður „dómsins" ásamt hesti
sínum Herði frá Bjóluhjáleigu. Sjá frásögn og myndir á bls. 4.
Norðurlandsleikarnir settir
SímamynH/ Bjarni
FJÖRUTÍU bátar hafa þegar veitt all
an þorskkvóta sinn í ár, þar af 24 á
suðvesturlandi 48 aðrir bátar erj um
Geitungar
komnir til
Akureyrar
Akureyri, 27. júní.
í VOR hafa ýmsir Akureyringar
orðið varir við nýstárlegar flugur,
og hefir tekist að handsama
nokkrar þeirra. Komið hefir verið
með 8 eintök til Náttúrugripa-
safnsins á Akureyri, þar sem þær
hafa verið teknar til varðveislu.
Hér er um þrjár tegundir að
ræða, vespula vulgaris, vespula
norvegica og eitt eintak af vesp-
ula crabro, sem er um 3,5 sm að
lengd og digur að sama skapi og
stærsta vesputegund Evrópu.
Hún virðist vera nýr landnemi
hér, en þó fannst ein dauð og
illa farin í Fossvogi í fyrra og
ein í Reykjavík í vor.
V. norvegica fannst fyrst hér
á landi í Skorradal árið 1983, og
þar fannst meira að segja stórt
bú í hvítgrenitré. Annað bú
fannst á Austfjörðum í fyrra.
Þessarar tegundar varð svo
vart í Mývatnssveit í vor og nú
á Akureyri.
Allar fyrrgreindar þrjár teg-
undir teljast til sömu ættkvísl-
ar, geitunga. Ekkert bú hefur
enn fundist á Akureyri.
Sv.R
það bil að verða búnir með sinn
kvóta, að sögn Jakobs Jónssonar frá
Fiskifélagi Islands. Kvótinn nær til
alls 652 skipa.
Á Austfjörðum eru sjö bátar
búnir með sinn kvóta, sex á Norður-
landi og þrír á Vestfjörðum. Af
þeim 48 bátum, sem eru á „hættu-
mörkurn”, þ.e. búnir með 90% eða
meira af sínum kvóta, eru 31 á
SV-landi, þrettán á Norðurlandi og
fjórir á Áustfjörðum.
„Þetta eru almennt vertíðarbát-
ar, sem taka sinn afla frá því í
janúar og fram á vor,“ sagði Jakob
Jónsson. „Enn er enginn togari
kominn svona langt með sinn
kvóta.“
Upp úr helgi munu væntanlega
liggja fyrir tölur Fiskifélags Is-
lands um heildaraflann frá áramót-
um og fyrr en það gerist verður erf-
itt að meta hversu langt einstakir
fjórðungar hafa gengið á kvóta sinn
í ár, að því er Jakob sagði.
Vinnuveitendasamband Breiðafjarðar:
Starfsfólki Framkvæmda
stofnunarinnar sagt upp
„Alþingi ákvað að leggja fram-
kvæmdastofnun niður frá og með I.
október. Þá taka við þrjár aðrar
stofnanir, byggðastofnun, fram-
kvæmdasjóður og þróunarfélag. Því
var ekki um annað að ræða en að
segja öllum starfsmönnum fram-
kvæmdastofnunar upp, enda gerði
stjórn stofnunarinnar það. Ég hef því
leyst frá störfum í dag forstjórana og
framkvæmdastjórana og meðal ann-
arra iðnaðarráðherra, Sverri Her-
mannsson," sagöi Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra en
starfsmönnrm framkvæmdastofnun-
ar voru send uppsagnarbréf í gær.
Að sögn Steingríms er ljóst að
mikill hluti þeirra starfsmanna
sem sagt hefur verið upp mun
verða endurráðinn nema þá helst
starfsmenn áætlunardeildar, sem
verður lögð niður. Áhersla verður
lögð á að ný stjórn byggðastofnun-
ar hraði endurráðningu starfs-
fólksins og það sama gildir um
framkvæmdasjóði, þar ætti ekkert
að vera því til fyrirstöðu að fólk
verði endurráðið hið fyrsta.
í stjórn byggðastofnunar eiga
sæti þeir Stefán Guðmundsson,
I Ólafur Þ. Þórðarsson, Eggert
Haukdal, ólafur G. Einarsson,
Halldór Blöndal, Geir Gunnarsson
I og Sigfús Jónsson.
Rainbow Navigation:
Engin svör frá
Schultz ennþá
n a ativ a nimr , ■ v ••■■ i ■ • #_•_ * • * . •
BANDAKÍSK stjórnvöld höfðu ekki
í gærkvöld svarað málaleitan Geirs
Hallgrímssonar utanríkisráðherra
um að komið verði í veg fyrir einok-
un flutninga til varnarliðsins hingað
til lands. George Shultz utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna lofaði á
fundi ráðherranna í Portúgal fyrr í
þessum mánuði að viðbrögð stjórnar
sinnar myndu berast íslendingum
fyrir mánaðamótin.
„Það verður engin afstaða tekin
til hugsanlegra aðgerða af okkar
hálfu fyrr en við höfum fengið
svör Bandaríkjastjórnar," sagði
utanríkisráðherra. „Þeir hafa
boðað svör sín og munu vera að
undirbúa þau. Berist ekki bréf
þeirra um helgina mun ég leita
eftir því á mánudaginn."
Hluti tekna fólks í fisk-
vinnslu verði skattfrjáls
— til að stöðva fólksflótta úr greininni
„Vandamálin, eins og þeim er lýst
í skýrslunni, eru vissulega fyrir
hendi, en mér finnst að þar komi
ekki fram nógu ákveðnar tillögur um
það hvað eigi að gera til úrbóta,"
sagði Soffanías Cecilsson, formaður
Sambands fiskvinnslustöðva, er
hann var inntur álits á skýrslu um
svart útlit í sjávarútvegi, sem greint
var frá í frétt Morgunblaðsins á
fóstudag. Soffanías, sem einnig er
formaður Vinnuveitendasambands
Breiðafjarðar, sagði að Vinnuveit-
endasambandið hefði að undanförnu
unnið að tillögugerð um leiðir til úr-
bóta í fiskvinnslunni.
„Eitt alvarlegasta vandamálið
sem við er að glima er fólksflóttinn
úr fiskvinnslunni og í þeim efnum
leggjum við til, að fiskvinna, sem
er unnin umfram 1700 tíma á ári,
verði gerð skattfrjáls," sagði Soff-
anías. „Með 1700 tímum á ári er
reiknað með einum og hálfum
mánuði í sumarfrí, en hitt eru
dagvinnutímarnir, þannig að
tryggir menn, sem skila 1700 tím-
um í fiskvinnslu, fái alla umfram
vinnu skattfrjálsa. Ég held að
þessi hugmynd sé mjög góð til að
örva fólk til að stoppa í þessum
atvinnuvegi.“
Soffanías sagði ennfremur að
nauðsynlegt væri að breyta um
stefnu í gengismálum. Gengið yrði
að skrá samkvæmt framleiðslu-
kostnaði. „Annað atriði sem við
teljum nauðsynlegt að gangi fram
er að banna að landa óslægðum
netafiski og dragnótafiski, nema
tryggt sé að fiskurinn verði slægð-
ur samdægurs. Það eru allt of mik-
il brögð að því, að fiskurinn
skemmist vegna þess að hann ligg-
ur of lengi óslægður,“ sagði Soff-
anías. „Eins leggjum við til að net-
in verði tekin í land um fríhelgar
og að lágmarksmöskvastærð verði
7 og kvarttomma í stað 6 tommur,
eins og verið hefur. Það myndi
velja úr stærsta fiskinn og með
þessum aðgerðum væri hægt að af-
nema kvótann, sem er til óþurftar.
Góð meðferð aflans eykur stórlega
gæði og verðmæti, en tillögur
okkar miða einmitt að því, þótt ég
hafi hér aðeins nefnt brot af því
sem felst í þessum tillögum," sagði
Soffanías Cecilsson.