Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAHDAGUK 29. JtJNÍ 1985
Engin fjárveiting
til einkaskólans á
fjárlögum þessa árs
— segir Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra
„Það er ekki gert ráð fyrir neinni fjárveitingu til einkaskólans við Tjörnina á
fjárlögum þessa árs og ég sé ekki framm á að fjármálaráðuneytið leggi til
neinar aukagreiðslu til menntamálaráðuneytisins vegna skólans," sagði Al-
ber Guðmundsson fjármálaráðherra þegar hann var spurður um fjárveitingu
til Tjarnarskóla.
„Menntamálaráðherra er hins-
vegar frjálst að ráðstafa fjárveit-
ingu síns ráðuneytis að eigin vild
og ef hún getur styrkt einkaskóla
af fjárveitingunni þá er hún frjáls
að því. Fjármálaráðuneytinu hef-
ur ekki borist nein beiðni um auka
fjárveitingu vegna skólans og ég
tel fráleitt að ríkið fari að styrkja
einkaskóla með þvi að gera skóla-
gjðldin frádráttarbær frá skatti.
Þá mætti alveg eins hugsa sér að
foreldrar með börn í ríkisskólum
fengju frádrátt á sínum skatti.
Eg hef sjálfur verið í einkaskóla
í Englandi á sínum tíma og líkaði
vel en þá borgaði ég fullt gjald
fyrir mig sjálfur. Einkaskólar eru
mér því ekki neinn þyrnir í augum
og fólki auðvitað frjálst að not-
færa sér þá hafi það tök og efni á
slíkri þjónustu, ég hef ekkert á
móti því.
Þetta ævintýri kennaranna er
að mínu áliti viðleitni til að afla
hærri tekna fyrir vinnu í sínu fagi
á kostnað þeirra, sem vilja borga
fyrir þessa þjónustu. Ég hef
hinsvegar ekki trú á því að kennsl-
an í einkaskóla verði neitt betri
heldur en í ríkisskóla því kennarar
hafa alltaf gert sitt besta þrátt
fyrir þau laun sem þeir hafa.
Þekking þeirra eykst ekki með
hærri launum,“ sagði Albert að
lokum.
Pólýfónkórinn:
Hljómleikar á þriðju-
dag í Langholtskirkju
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning fri
Pólýfónkórnum:
Velunnarar Pólýfónkórsins láta
í sér heyra með ýmsu móti. einu
beinu útgjöldin vegna hljómleik-
anna hérna heima nk. þriðjudag
eru 15 þúsund króna greiðsla til
Háskólabíós vegna morgunæf-
ingar á sunnudaginn, en Lang-
holtskirkja hefur sýnt þá velvild
að lána kirkjuna ókeypis til ann-
arra æfinga og hljómleikanna 2.
júlí, kvöldið fyrir brottför.
Við eigum víða skilningi að
mæta og söngfólkið leggur hart að
sér við æfingar. í kvöld koma
flestir hljóðfæraleikararnir heim
frá Frakklandi til að hefja æf-
ingar að nýju fyrir þessa ferð.
Þeim og öðrum flytjendum er mik-
ill vandi á höndum því að leikur
þeirra verður borinn saman við
það bezta í heiminum. Viku áður
en Pólýfónkórinn flytur H-moll
messuna í Flórens verður hún
flutt þar tvisvar undir stjórn hins
heimsfræga Carlo Maria Giulini,
sem talinn er líklegastur arftaki
Herberts von Karajan. Þá verða
líka nýbúnir að vera á ferðinni í
Flórens á listahátið New York
fílharmoníuhljómsveitin undir
stjórn Zubin Metha, RAI, ítalska
útvarpshljómsveitin undir stjórn
Rafael Frúhbeck de Burgos,
Munchen fílharmoníusveitin und-
ir stjórn Lorin Maazel, Vínar
sinfónían undir stjórn Georges
Prétre og Virtuosi di Moskva und-
ir stjórn Vladimir Spivakov, að
ótöldum einleikurum og heims-
frægum einsöngvurum. A flestum
þessum tónleikum er flutt eitt-
hvað af tónlist J.S. Bachs í tilefni
300 ára afmælis hans og árs tón-
listarinnar.
Eitt íslenzkt fyrirtæki færði
Pólýfónkórnum 100 þúsund krón-
ur að gjöf í dag til styrktar ferða-
sjóðnum og kr. 21.000 voru lagðar
inn á sparisjóðsreikninginn nr.
240 í Múlaútibúi. Pólýfónkórinn
þakkar af alhug hlýhug og góð
framlög."
Breytingar á samningi
íslands við Evrópubanda-
lagið ræddar í Briissel
TVEIR fundir voru haldnir í Briissel
í gær milli fulltrúa Evrópubanda-
lagsins og íslenskra embættismanna
varðandi nýgerða samninga um inn-
göngu Spánar og Portúgals í EB og
þær breytingar á fríverslunarsamn-
ingi íslands og EB, sem af stækkun
bandalagsins óhjákvæmilega leiða.
t frétt frá viðskiptaráðuneytinu
segir að fulltrúar EB hafi kynnt
helstu atriði samninganna, sér-
staklega þau sem snerta viðskipti
íslands. Á hinn bóginn gerðu ís-
lensku fulltrúarnir grein fyrir
þeim atriðum, sem mestu máli
skipta fyrir ísland og óskuðu frek-
ari upplýsinga og skýringa. Stefnt
er að því að gera viðbótarsamn-
inga fyrir árslok milli EB ann-
arsvegar og sex EFTA-ríkja
hinsvegar vegna stækkunar EB.
í sambandi við inngöngu Spánar
og Portúgals í Evrópubandalagið
skiptir ákvörðun EB um að leggja
aftur toll á saltfisk, saltfiskflök og
skreið höfuðmáli fyrir ísland. Var
þetta einnig aðal umræðuefnið á
reglulegum fundi sameiginlegrar
nefndar EB og íslands, sem líka
fórfram í gær í Brussel.
í frétt viðskiptaráðuneytisins
segir að þannig sé hvert tækifæri
notað til að koma á framfæri
gagnrýni á saltfisktollinn við EB
og aðildarríkin, en fulltrúar þeirra
sitja þessa fundi sem haldnir eru
hálfsárslega. Af íslands hálfu
sátu þessa þrjá fundi, Þórhallur
Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri,
Tómas Á. Tómasson, sendiherra
og Valgeir Ársælsson, sendi-
fulltrúi.
Staðinn að
ólöglegum
veiðum
VÉLBÁTURINN Farsæll GK 162
var staóinn aó meintum ólöglegum
veiðum með dragnót undir Krísu-
víkubjargi um miðjan dag á fimmtu-
dag. Það var flugvél Landhelgisgæsl-
unar TF-SÝN sem kom auga á bát-
inn.
Málið var rannsakað í gær af
embætti bæjarfógetans í Keflavík
og var það síðan sent saksóknara
til nánari ákvðrðunar.
Morgunblaðid/Asdi8
Allir keppendur sem mæta fyrír sitt hestamannafélag á fjórðungsmótinu klæðast félagsbúningum sem hvert
félag hefur og þar með taldir unglingarnir. Átta keppendur í yngrí flokki unglinga eru hér samankomnir á
hestum sínum áður en haldið var í keppnina.
Fjórðungsmót hestamanna:
Hörkukeppni og góðir skeiðsprettir
einkenndu A-flokkskeppnina
HorgunblaðiA/Valdimar
Eftir æsispennandi forkeppni í A-flokki gæðinga stóð efstur Júní frá
Syðri-Gróf með 8,.49 en naumt var forskotið því aðeins munaði 0,01 stigi
á honum og næsta hesti. Knapi á Júní var Einar Öder Magnússon sem
hér tekur gæðinginn til kostanna.
FORKEPPNI í A-flokki gæðinga
lauk á Fjórðungsmóti sunnlenskra
hestamanna í Reykjavík í gær og
var keppni jöfn og spennandi. Efst-
ur varð Júní frá Syðri-Gróf sem
Einar Öder Magnússon sat og
hlaut hann einkunnina 8,49. í öðru
sæti varð Glæsir frá Glæsibæ,
knapi Gunnar Arnarson, með 8,48.
Þá korau Börkur frá Kvíabekk,
knapi Ragnar Tómasson, með
8,39, Ljúfur frá Ytra-Dalsgerði,
knapi Albert Jónsson, með 8,38,
Nana frá Hellu, knapi Ragnar
Hilmarsson, með 8,34, Rúbín frá
Stokkhólma, knapi Aðalsteinn Að-
alsteinsson, með 8,31, Þrymur frá
Brimnesi, knapi Erling Sigurðsson,
með 8,30 og Ás frá Vallanesi,
knapi Tómas Ragnarsson, með
8,26. Þessir átta hestar mæta til
úrslita kl. 16.45 á sunnudag.
í gær fóru einnig fram úrslit í
flokki unglinga yngri en 12 ára.
Þar sigraði Berglind Ragnars-
dóttir frá Hestamannafélaginu
Andvara með einkunnina 8,37. í
öðru sæti varð Borghildur Krist-
insdóttir frá Geysi með 8,35. Þá
var Kolbrún Birgisdóttir frá
Sleipni í þriðja sæti með 8,30,
Daði Bjarnason frá Háfeta í
fjórða sæti með 8,28 og í fimmta
sæti varð Haraldur Pétursson
frá Ljúf með 8,19.
Síðast á dagskrá í gær voru
undanrásir kappreiða og var
byrjað á skeiðinu. Bestum tíma í
150 metra skeiði náði Penni frá
Arnarholti, 14,58 sek. Næstur
kom Brandur frá Runnum með
14,96 sek. og þriðja besta tíma
náði Jökull frá Hjarðarhaga,
15,32 sek. í 250 metra skeiði náði
bestum tíma Hildingur frá
Hofstaðaseli 23,13 sek. Næst
kom Rakel frá Steinsstöðum á
23,26 sek. og Villingur frá
Möðruvöllum var með þriðja
besta tímann 23,43 sek. I 300
metra brokki lá aðeins einn
hestur, Héðinn frá Hamrahóli
og brokkaði hann vegalengdina á
38,10 sek. I 250 metra stökki
reyndist fljótastur Lótus frá
Götu, sem hljóp á 18,17 sek.,
annar varð Þorlákur frá Kana
öðum á 18,92 og þriðji Ljósbrá
frá Nýjabæ á 19,13. í 350 metra
stökki var með bestan tíma
Tvistur frá Götu 24,96 sek.
Næstur kom Úi frá ólafsvík með
25,24 sek. og þriðji varð Loftur
frá Álftagerði á 25,28 sek. í 800
metrunum varð fyrstur Lýsingur
frá Brekku á 59,48 sek., annar
Kristur frá Heysholti á 60,76
sek. og þriðji örn frá Uxahrygg
á 61,03 sek. Úrslit kappreiða
verða í dag kl. 14.30 og fara allir
skeið- og brokkhestar annan
sprett en í stökkgreinum keppa
til úrslita þeir sex sem bestum
tíma Snjall frá Gerðum og Olil
Am-
ble sigruðu í forkeppni í B-flokki
gæðinga í fyrradag með ein-
kunnina 8,71. Næstir komu Goði
frá Ey, knapi Trausti Þór Guð-
mundsson, með 8,49, Tralli frá
Teigi, knapi Þórður Þorgeirsson,
með 8,44, Krummi frá Kjart-
ansstaðakoti, knapi Sigvaldi
Ægisson, með 8,40, Gári frá Bæ,
knapi Sigurbjörn Bárðarson,
með 8,39, Dugur frá Hrappsstöð-
um, knapi Hróðmar Bjarnason,
með 8,38, Sölvi frá Glæsibæ,
knapi Gunnar Arnarson, með
8,36 og í áttunda sæti varð Stíg-
andi frá Hjálmholti, knapi Þórð-
ur Þorgeirsson, með 8,34. Úrslit í
B-flokki fara fram á sunnudag-
inn kl. 14.20.
Keppni unglinga 13 — 15 ára
var einnig háð í fyrradag og
sigraði Ingólfur Þorvaldsson frá
Hestamannafélaginu Sleipni
með einkunnina 8,44. f öðru sæti
varð Ásgeir Bragason, einnig frá
Sleipni, með 8,39. Næst komu
Anne Sigfúsdóttir frá Smára
með 8,36, Róbert Jónsson frá
Fáki með 8,31 og í fimmta sæti
varð Siguroddur Pétursson frá
Gusti með 8,14. Keppendur í báð-
um flokkum unglinga verða
kynntir á laugardag kl. 13.00 og
aftur á sunnudaginn kl. 14.00, en
þá verða verðlaun afhent.
Forkeppni í tölti fór fram á
fimmtudaginn og þar var efst
Olil Amble á Snjall með 93,06
stig. Annar varð Trausti Þór
Guðmundsson á Goða með 88,00
stig. Þá komu þeir Orri Snorra-
son á Kóral með 87,73 stig, Einar
Öder Magnússon á Tinnu með
85,06 stig. Þeir Sigurbjörn Bárð-
arson á Gára og Þórður Þor-
geirsson á Tralla voru jafnir
með 84,0 stig. Þessir keppendur
mæta til úrslita á laugardags-
kvöldið kl. 19.30.
Báða dagana hafa kynbóta-
dómarar verið að störfum og
voru stóðhestar, bæði einstakl-
ingar og afkvæmahestar, svo og
hryssur með afkvæmum dæmd á
fimmtudaginn, en hryssur (ein-
staklingar) á föstudaginn.
f dag, laugardag, hefst
dagskráin kl. 9.00 með því að
kynbótahross verða sýnd. Gæð-
ingar í A og B flokki verða
kynntir kl. 12.00 og kynning á
keppendum í báðum flokkum
unglinga hefst kl. 13.00 eins og
áður sagði. Þá verða ræktunarbú
kynnt kl. 13.45. Seinni sprettir í
öllum greinum kappreiða hefjast
kl. 16.00 og síðar fara úrslit fram
. Úrslit í töltkeppninni hefjast
kl. 19.30 og síðan verðlauna-
afhending.
Fjölbreytt kvöldskemmtun
fyrir alla fjölskylduna hefst kl.
20.30 og verður þar boðið upp á
mörg nýstárleg skemmtiatriði.
Dagskránni lýkur síðan með
dansleik sem haldinn verður á
mótssvæðinu, nánar tiltekið í
tamningagerðinu, og hefst hann
kl. 23.00.
Veðrið fyrsta mótsdaginn, á
fimmtudag, var eins og best
verður á kosið, sól og blíða. Að-
eins rigndi seinnipartinn í gær,
en framkvæmd mótsins hefur í
alla staði verið til fyrirmyndar.