Morgunblaðið - 29.06.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNl 1985
5
Olíugeym-
arnir senn
fullbyggðir
BYGGING tveggja olíugeyma og
dælustöðvar í Helguvík er nú á
lokastigi, svo og leiAslna upp á
Keflavíkurflugvöll. Geymarnir
eru neðanjarftar. í næstu viku er
rádgcrt aó hefja undirbúnings-
framkvæmdir við gerð hafnar-
innar.
Húsaleiga
hækkar
um 11%
LEIGA fyrir íbúðarhúsnæði og at-
vinnuhúsnæði hækkar um 11,0%
frá og með júlíbyrjun 1985, segir í
frétt frá Hagstofu íslands. Reikn-
ast hækkun þessi á þá leigu, sem
er í júní 1985. Júlileigan helst
óbreytt í ágúst og september.
Viöskiptaráðherra
í opinbera heim-
sókn til Noregs:
Ræðir m.a.
ríkisstyrki
Norðmanna
til útgerðar
MATTHÍAS Á. Mathiesen viðskipta-
ráðherra heldur á mánudag, þann 1.
júlí í þriggja daga opinbera heim-
sókn til Noregs. Er hann að endur-
gjalda heimsókn viðskiptaráðherra
Noregs, Asbjörn Haugsvedt, sem
hingað kom á sl. ári.
A mánudag mun Matthías
ásamt fulltrúum sjávarútvegs-
ráðuneytisins ræða við viðskipta-
ráðherra Noregs um sameiginlega
viðskiptahagsmuni Islands og
Noregs. Auk þess mun viðskipta-
ráðherra sérstaklega ætla að ræða
við Haugstadt um þá hluti sem
íslendingar hafa hvað harðast
gagnrýnt hjá Norðmönnum, en
það eru ríkisstyrkir til norsks
sjávarútvegs.
Þá munu ráðherramir ræða
breytta stöðu EPTA við inngöngu
Portúgals f Efnahagsbandalag
Evrópu og væntanlegar samninga-
viðræður EFTA og Efnahags-
bandalagsins.
Á þriðjudag heldur viðskipta-
ráðherra til Bergen þar sem hann
skoðar fiskiræktarstöð og til-
raunastöðvar í fiskirækt. A mið-
vikudag verða viðræður við hags-
munaaðila í fiskirækt, og síðdegis
þann dag kemur viðskiptaráð-
herra aftur heim til íslands.
Embætti borgarfógeta:
Lögbann við
bensínsölu Olís
LÖGBANN við notkun á eignum
Olíuverslunar fslands á lóð bifreiða-
stöðvarinnar Hreyfils var kveðið upp
hjá borgarfógeta í gær. Hreyfíll
krafðist lögbanns við afgreiðslu
bensíns á bensínstöð Olís við
Fellsmúla og var forráðamönnum
Hreyfíls gert að leggja fram 2 millj-
ón króna tryggingu.
Bifreiðastjórar Hreyfils lögðu í
vikunni bifreiðum sínum við inn-
keyrslu að bensínstöð Olís eftir að
hún var opnuð til afgreiðslu. Eftir
úrskurð fógeta hættu bifreið-
astjórar aðgerðum sínum.
Og enn er
Daihatsu Charade
á toppnum
og aldrei betrí
Daihatsu Charade vann sinn fyrsta sigur í spar-
aksturskeppni haustiö 1979 og síöan hefur sigur-
ganga hans meöal íslenskra kaupenda verið óslitin
og 2300 Charade eru nú á götunni. Þaö var Dai-
hatsu Charade diesel sem sigraöi í keppninni sl.
helgi meö 3,72 I pr. 100 km og varö Daihatsu
Charade þriöji í bensínflokki með 4,12 I pr. 100 km.
En þaö segir ekki alla söguna þótt diesel- og
bensínbílar Daihatsu og annarra japanskra fram-
leiöenda eyöi sáralitlu. Þaö sem hefur gerst er aö
bensíneyöslan hefur minnkaö ár frá ári, en Dai-
hatsu Charade hefur engu aö síður stækkaö aö
utan og innan, en veröiö breyst lítiö hlutfallslega.
í dag bjóðum við Daihatsu Charade, glæsilegan rúmgóðan
Allir þekkja gæöin,
þjónustuna og
endursöluna hjá
Daihatsu.
□AIHATSU
umboöiö
Ármúla 23 — 81733 — 685870.
- “—329.800
BÍLASÝNING í DAG
Komiö, skoðið og reynsluakið Daihatsu Charade, Daihatsu Rocky og Daihatsu Cab
Van 4W sendibílnum.