Morgunblaðið - 29.06.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1985
7
Nýir húsnæðissparnaðarreikningan
Fjórðungur inn-
leggs er frádrátt-
arbær til skatts
I NÆSTSÍÐUSTU viku liöins Al-
þingis voru samþykkt ný lög um sk.
húsneðissparnaðarreikninga.
Landsbankinn verður fyrsti bankinn
til þess að bjóða slík innlán , en í
þeim fellst sú nýbreytni að hluti inn-
leggsins er frádráttarbær frá skatti,
allt að 30.000 kr.
Um húsnæðisparnaðareikn-
ingana gilda mjög strangar regl-
ur. í upphafi hvers árs gerir eig-
andi reikningsins samning við við-
komandi banka um þá upphæð er
spara skal, og hvenær leggja skal
inn. Lágmarksfjárhæð er sam-
kvæmt lögunum ákveðin 12.000 kr.
en hámark 120.000 kr. Skylt er að
leggja inn reglulega, eða a.m.k
ársfjórðungslega. Féð sem lagt er
inn á reikningana er bundið til 10
ára, en er að þeim tíma liðnum
frjálst til afnota. Þó er heimilt að
leysa innistæðuna út ef reiknings-
eigandi byggir íbúðarhúsnæði eða
kaupir, en aldrei fyrr en þremur
árum eftir að sparnaður hófst.
Lögin kveða á um að reikningarnir
skuli á hverjum tíma njóta bestu
ávöxtunar sem völ er á í viðkom-
andi banka.
Helsta nýjungin sem fólgin er í
húsnæðissparnaðarreikningunum
er sú að hluti sparnaðarins er frá-
dráttarbær frá skatti. Afsláttur-
inn nemur fjórðungi sparnaðarins,
eða frá 3.000-30.000 kr. á ári.
Ströng viðurlög eru við því ef eig-
andi reiknings stendur ekki við
gerða samninga um sparnað.
Dragist það að leggja inn á um-
sömdum tima, skapar sá hluti ekki
rétt til skattafrádráttar. Sé við
árslok ekki búið að gera full skil á
innleggi er upphæðin ekki frá-
dráttarbær, og reikningseigandi
þarf að endurgreiða skattafrá-
drátt síðustu tveggja ára á undan
að viðbættum 25% vöxtum.
Landsbankinn mun á mánudag
byrja að bjóða upp á þessa nýju
reikninga. Reikningarnir verða
verðtryggðir, en fari almennir
vextir fram úr verðtryggingu
verður það leiðrétt sjálfkrafa í lok
Evrópumótið í
bridge:
Sigur gegn
Luxemborg
og Noregi
ÍSLENSKA landsliðið í opnum
flokki vann tvo síöustu leiki sína í 8.
og 9. umferö Evrópumótsins í
bridge, 18—12 gegn Luxemburg og
17—13 gegn Noregi. ísland er þí í
9.—10. sæti ásamt Portúgal með 138
stig. ísraejsmenn eru enn efstir með
175 stig. íslensku konurnar töpuðu
hins vegar í 2. og 3. umferð í
kvennaflokknum, 11—19 fyrir Aust-
urríki og 13—17 fyrir Sviss. Kvenna-
liðið er með 38 stig eftir þrjár um-
ferðir.
Jón Baldursson og Sigurður
Sverrisson spiluðu allan leikinn
bæði gegn Luxemburg og Noregi,
og að sögn Jakobs R. Möllers far-
arstjóra og fréttaritara Morgun-
blaðsins, voru þeir í miklu stuði.
„Staðan í hálfleik í leiknum við
Noreg var jöfn, en í þeim síðari
gjörsamlega yfirspiluðu Jón og
Sigurður norska parið Voll og
Stqfning. Jón vann meðal annars
tvö geim á vandaðri spilamennsku
sem töpuðust á hinu borðinu,"
sagði Jakob.
Staða efstu þjóða í opna flokkn-
um eftir níu umferðir er þessi:
ísrael 170, Frakkland og Bretland
165, Pólland 164, Austurríki 160 og
Holland 156.
ísland leikur í dag við Frakka
og Svisslendinga, en á morgun við
Austurríkismenn og Belga.
hvers árs. Landsbankinn mun síð-
an bjóða lántökurétt sem miðast
við lengd sparnaðartímabilsins.
Verður þannig hægt að fá lán sem
er tvisvar, þrisvar eða fjórum
sinnum hærra en höfuðstóll reikn-
ingsins, þó aldrei meira en ein
milljón króna. Fimm til tiu árum
eftir opnun „Húsnæðisreiknings",
getur því komið til ráðstöfunar
fimmfaldur höfuðstóll auk áunn-
ina vaxta og verðbóta.
Glerþak ca.1200 m2
Framleiðendur — innflytjendur — umboðsmenn
Næsta sumar veröur sett glerþak á Eiðistorg í miöbæ Seltjarnarness um 1200 m2
að stærö. Viö viljum meö þessari auglýsingu komast í samband viö aöila er
framleiöa eöa hafa umboö fyrir fyrirtæki er sérhæfa sig í framleiðslu „prófíla" er
hentaö gætu í slíkt þak.
Vinsamlega hafiö samband viö Ormar Þór Guðmundsson hjá Arkitektastofunni,
Borgartúni 17 eöa Sigurgeir Sigurösson, bæjarstjóra Seltjarnarness.
Bæjarstjórinn Seltjarnarnesi
laugardag frá kl. 13 til 17
Viö kynnum fjóra OPEL bíla á bílasýning-
unni í BÍLVANGSSALNUM á laugar-
daginn: OPEL KAPETT, sem valinn
hefur veriö sem bíll ársins 1985, OPEL
ASCONA, sem fullnægir flestum kröfum
bílaáhugamannsins, OPEL BEKOBIL
bílinn sem sker sig hvarvetna úr. og OPEL
COBSA, smábílinn sem allir falla fyrir.
OPEL bílarnir eru samnefnari þess besta í
þýskri hönnun. Traustir og liprir í akstri og
einstaklega þægilegir fyrir ökumann og
farþega.
Þú kynnist þessum bílum á Opelsýning-
unni aö Höföabakka 9. Ef þú átt góöan
notaöan bíl erum viö vísir til aö vilja kipþa
honum upp i einn nýjan og spegilgljáandi
OPEL til aö auövelda þér viöskiptin.
Greiösluskilmálamir hjá okkur eru líka
sveigjanlegri en gengur og gerist.
BiLVANGUR SF
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687BOO