Morgunblaðið - 29.06.1985, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 29. JÚNl 1985
11
Póstur og sími kynnir tvær nýjungan
„Postfax-tækin eru
bylting í póstþjónustu"
segir Kristján Helgason umdæmisstjóri hjá Pósti og síma
PÓSTUR og sími hefur tekið upp
tvær nýjungar í þjónustu sinni við
landsmenn og voru þær kynntar i
blaðamannafundi nýlega. Annars-
vegar er hér um að ræða svokallaða
postfax-þjónustu, og hinsvegar þá
nýbreytni í póstþjónustu að nú er
hægt að senda svokallaðan for-
gangspóst, sem berst milli landa svo
skjótt sem unnt er.
Postfax-tæki voru fyrst tekin í
notkun hérlendis fyrir tæpu ári.
Þau gera mönnum kleift að senda
myndir, bréf eða prentað efni milli
staða á örfáum mínútum, eins og
fram kom á fundinum. Kostar
hver sending milli 218 kr. og 630
kr. á blaðsíðu, en miðað er við
stærðina A4. Hvert tæki hefur
svokallað telefax-númer, og sá
sem þekkir það getur sent efni úr
öðru postfax-tæki hvaðan sem er.
Tækið myndar efni á svipaðan
hátt og ljósritunarvél og sendir
gegnum þráð. Að sögn Kristjáns
Helgasonar umdæmisstjóra hjá
Pósti og Síma kostar tæki af sömu
gerð og stofnunin notar um
300.000 krónur. Það sé því mögu-
legt fyrir einstakiinga og stofnan-
ir að verða sér úti um slíkt tæki,
en að sjálfsögðu sé alla þjónustu
þessu viðvíkjandi einnig að fá á
pósthúsum í Reykjavík og á
nokkrum öðrum stöðum um land-
ið. „Þessi tæki eru bylting í póst-
þjónustu," sagði Kristján.
Forgangspóstþjónusta er veitt í
nýja pósthúsinu við Ármúla. Að
sögn talsmanna Pósts og síma er
slíkum pósti komið á áfangastað á
eins skömmum tíma og hugsanl-
egt er. Póstburðargjald fyrir for-
gangspóst er 2.500 krónur fyrir
MorgunblaðiA/Bjarni
Talsmenn Pósts og síma á fundinum voru, frá vinstri: Kristján Hafliðason, Kristján Helgason, Sigurður Ingason, Jón
Helgason, Jóhann Hjálmarsson blaðafulltrúi stofnunarinnar og Gylfí Gunnarsson. Fyrir framan þá sést einhverskon-
ar póstfæriband, eitt af fjölmörgu í Múlastöðinni nýju, sem auðveldar alla flokkun pósts.
„Maður er ekki fæddur
í heiminn til þess
að safna peningum“
Rætt við Elías B. Halldórsson myndlistarmann
ELÍAS B. Halldórsson er myndlist-
armaður og hefur verið búsettur á
Sauðárkróki síðastliðin tuttugu ár.
Hann heldur nú um þessar mundir
sýningu á Kjarvalsstöðum og hitti
blaðamaður Morgunblaðsins hann
að máli af því tilefni.
Elías sagði að það hefði vissu-
lega haft mikil áhrif á feril sinn
að vera utan af landi, en kvaðst
ekki gera sér grein fyrir þvi
hvort þau væru heldur jákvæð
eða neikvæð, sennilega hvort
tveggja. „Það er nauðsynlegt
fyrir hvern listamann að stunda
list sína í tengslum við náttúr-
una,“ sagði hann. „Þótt maður
máli kannski ekki landslag eða
yrki um það, hefur náttúran
geysimikil áhrif á listamanninn
og hvetur hann til dáða. Það er
því hollt að dvelja i samneyti við
hana hvort sem er í stuttan eða
langan tíma,“ bætti hann við. Þó
taldi Elías að hann hefði sjálfur
verið fulllengi búsettur úti á
landi, enda væri hann nú farinn
að huga að flutningum til höfuð-
staðarins.
Elías B. Halldórsson við eitt verka
sinna
Elías hefur haldið fjölda sýn-
inga viðsvegar um landið, meðal
annars á Egilsstöðum, Seyðis-
firði og Akureyri. Hann sýndi
síðast í Reykjavik fyrir nokkrum
árum og þá í Norræna húsinu.
Elías er ættaður úr Borgar-
firði eystra, fæddur þar og upp-
alinn. Hann stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskólann
en dvaldist að því loknu um
skeið i Stuttgart. Seinna lá leið
hans til Kaupmannahafnar og
svo heim. Hann hefur búið á
Sauðárkróki síðan og framan af
stundaði hann ýmis störf þar í
bæ, en málaði í hjáverkum. „Ég
leit ekki á mig sem listamann i
þá daga,“ segir hann. En svo var
það árið 1974 að hann sneri sér
alfarið að málaralistinni, segist
hafa fundið að honum færi ekk-
ert fram með þessu lagi. „Ég var
kominn i ágætlega launaða
stöðu, loksins farinn að eiga
eitthvað af peningum. En maður
er ekki fæddur i heiminn til að
safna peningum,” segir hann að
lokum og glottir við.
fyrsta kílóið en 200 krónur fyrir
hvert kíló eftir það.
Á fundinum kom ennfremur
fram að mikil ánægja ríkti með
nýju póst- og símstöðina við Ár-
múla. Öll flokkun póstsins og
dreifing sé nú miklu auðveldari en
áðúr. Á hverjum degi fari um
130.000 bréf gegnum stofnunina,
3.000 bögglar og álíka mörg
ábyrgðarbréf. Björn Björnsson
póstmeistari benti þó á að enn
vantaði nokkuð á að almenningur
gengi nægilega vel frá pósti sín-
um, til dæmis skipti það miklu
máli að póstnúmer væru notuð því
flokkun bréfanna miðaðist alger-
lega við þau.
Sigurður Ingason sagði að lok-
um að sá húsakostur sem Póstur
og Sími hefði nú á að skipa myndi
likast til duga fram yfir næstu
aldamót. Það væri því hægt að
snúa sér að öðrum verkefnum en
húsbyggingum, og stefndi stofn-
unin að því að bæta þjónustu sína
við landsmenn um allan helming á
næstu árum.
16767
Helgarsími
12298 - 42068
Einbýli — raðhús
Hávallagata. 3x92 fm. 1. hæð,
3 stofur, eldh., 2. h. 5 herb., sér
baðherb. sér w.c. Kjallari. Séríb.
með sérinng. V. 7 millj.
Háaleitisbraut. 170 fm tengi-
hús. V. 4,6 millj.
Háagerði. Endaraðh., hæö og
ris. V. 3 millj.
4-5 herbergja
Fálkagata. 93 fm + kj. Verð tilb.
Reykjavíkurv. Hf. 140 fm efri
sérhæð. V. 3 millj.
Kríuhólar. 117 fm í 3ja hæða
húsi. Bílsk. V. 2,2 millj.
3ja herbergja
Stórageröi. 117 fm á 3. hæð.
Furugrund. 90 fm vönduö íb. á
6. hæð í lyftuh. V. 1,9 millj.
Njálsgata. 3 hæöir. 90 fm hver
hæð + einstaklingsíb. í kj.
Njálsgata. 70-80 fm á 2 hæöum.
2ja herbergja
Grettisgata. 50 fm ný standsett
ib. á 1. hæö
Háaleitisbr. 75 fm góð íb. í kj.
Sumarbústaðir
Þrastaskógur — Þingvellir —
Hveragerði.
Stórar og smáar eignir
Hveragerði — Hella — Hvolsv.
— Selfoss — Stokkseyri -
Njarðvík.
Lóðir
Seltjarnarnesi - Skerjafiröi.
Einar Sigurðsson, hri. Laugavegi 56,'simi 16767.
f Hlísv/íiVGun"!
I Wi FASTEIGNASALA
H
LAUGAVEGI 24, 2. HÆÐ.
62-17-17
Opjð í dag 10.00-16.00
Úrval eigna á söluskrá
Viðar Böðvarsson viðskiptafr. — Iðgg. fast.
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0ROARS0N HDL
Til sýnis og sölu auk fjölda annarra eigna:
Ný glæsileg húseign
Á úrvalsstað neðsf í Seljahverfi. Nánar tiltekið einbýlish. um 250 fm
auk 40 fm sérgeymslu. Ennfremur verslunar- og/eöa ibúöarhúsn. um
80x2 fm. Bflsk. um 40 fm. Glteail. lóð næstum frág. Teikn. á skrlfst.
3ja herb. íbúðir við:
Hliðarveg Kóp. Um 85 fm endurnýjuö rishæð. Sérhiti. Svalir.
Kambsveg. 2. hæð um 80 fm. 4ra ára úrvals ib. Stór bilsk.
Framnesveg. Nýleg þakhæð um 80 fm. Góð innrétting. Suðursv.
Suóurvang Hf. A 1. hæð um 95 fm stór og góð. Sórþvottahús.
Furugrund Kóp. A 3. hæö um 80 fm í enda. Mjög góð í 6 íb. húsi.
Mikiö útsýni.
Haaóargaró. Neðri hæð um 85 fm. Tvíbýli. Sórhlti. Sórinng. Sórlóð. Nú
3 svefnherb. Laus strax.
4ra herb. íbúðir viö:
Lindarbraut Seitjn. Neðri hæð um 100 fm. Ný eldhúsinnr. Nýlegt gler.
Góður bílsk. Stór glæsil. lóð. Útsýni.
Inn við Sund. I lyftuh., ofarlega um 90 fm. Góð innr. Stórar suöursv.
Ágæt sameign. Glæsil. úts.
Hjallabrekku Kóp. Glæsil. neöri hæö um 90 fm í tvíb. Sérhiti. Nýteg teppi.
Tvöf. verksm.gler. Stór og fallegur trjágarður. Verð aðeins 1850 þús.
Góð raöhús skiptamöguleiki
Bjóöum til sölu nokkur raðh. m. a. við Jöklasel, Kambasel, Brúarás,
Rauöás, Ásgarö, Otrateig, Hliöarbyggð, Álfhólsveg, Hjallaveg, Brekku-
byggö, Unufell og Reynigrund. Ýmiakonar eignaakipti. Teikn. á akrifat.
Þurfum að útvega m.a.
Ibuðir og elnb. í gamla bænum. 4ra herb. nýja ib. með bilsk. Sérh. í vestur-
borginni eða Hliðunum. Rúmg. íb. sem næst Háskólanum. Einbýtish. eða
raðh. á einni hæö i Kóp. Einbýlish. í Smáíbúöarhverfi. Raöh. i Arbæjar-
hverfi. Mikil útb. fyrir rátta eign. Margskonar eignaskipti mögul.
Opið í dag laugardag
frá kl. 1-5 síðdegis.
Lokað i morgun sunnudag.
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
AIMENNA
FASTEIGNASAL AN