Morgunblaðið - 29.06.1985, Page 12

Morgunblaðið - 29.06.1985, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNl 1985 Veiðiþáttur Umsjón: Guömundur Guöjónsson Sportmennska i lögmæti sínu eða óhæfuverk? Eigi fágaet uppákoma við Norðurá, bæði í vor og f fyrra. Laxinn ekki til viðræðu og veiðigarpar sitja í makindum og ræða um heima og geima. Af sem áður var Einhvers staðar minnir umsjón- armann þessa þáttar að hann hafi lesið að ef veiðimenn gerðu sér veiðivonir í hófi legðu ekki upp í hverja veiðiferð með þann ásetning einan að drepa hverja einustu bröndu í ánni, þá væri til muna Ifk- legra að þeir kæmu heim ánægðir með veiðitúrinn og jafnframt væru þeir til muna ólíklegri til að gerast sekir um óhæfuverk á veiðistað. Má ætla að undir „óhæfuverk" falli húkk, netaveiði, dínamftfiskerí og þvíumlíkt. •Eru allir sportmenn sem bregða ekki út af reglum er þeir veiða, fer það ekki eftir atferli þeirra og framkomu gagnvart veiðidýrinu lífs og liðnu, náttúr- unni sem þeir umgangast? Undir- ritaður ætlar að greina frá atviki sem hann vill kalla „óhæfuverk á veiðistað" þótt atburðurinn eigi ekkert skylt við veiðiþjófnað eða harðbannaðar veiðiferðir. Stangveiðimenn geta vart talist standa undir nafni ef þeir bera ekki virðingu fyrir veiðidýrinu, Nýlega kom út tímaritið „Á veið- um“, 2. tölublað 2. árgangs. Er það eins og nafnið bendir til tímarit um stanga- og skotveiði. Það kennir ýmissa grasa í blaðinu sem endra- nær og skal nú nokkuð af því talið hér. I blaðinu er grein eftir Stefán Jónsson um urriðasvæðið í Laxá i Mývatnssveit, 2. hluti, en fyrsti hluti var í síðasta blaði og spurn- ing hvort Stefán heldur áfram niður i Laxárdal í næsta blaði. Þetta er vönduð og skemmtileg grein, prýdd góðum litmyndum Rafns Hafnfjörð. Þá er í blaðinu grein um fæðurannsóknir á bleikjunni dyntóttu i Hliðarvatni í Selvogi, viðtal við Jóhannes Kristjánsson aflakló á Akureyri, viðtal við Orra Vigfússon um laxveiðar á Englandi, viðtal við James L. Hardy sem var á ferð hér á landi á vegum verslunar- innar „Veiðimannsins" síðastlið- laxinum eða silunginum. Dæmið sem greint verður nú frá er um bráðsnjallan, veiðimann, hreinan snilling og hvernig hann sýndi í votta viðurvist laxi einum tak- markalausa lítilsvirðingu, með- höndlaði hann eins og hvern annan dilk eða sviðakjamma. E.t.v. er undirritaður með of mikla tilfinningasemi í þessu máli, en dæmi hver fyrir sig Ég leit við hjá vini mínum í Leirvogsá fyrir nokkrum árum. Hann var þar að veiðum ásamt vini sínum og vinur vinarins hafði kíkt upp eftir til að forvitn- ast. Það hafði einnig verið látið í veðri vaka við vin vinarins, að hann gæti e.t.v. „rennt og tekið einn“ eins og það var orðað. Vin- ur vinarins var og er geysislyngur veiðimaöur, ofsalega næmur og veiðinn. Ákaflega fylginn sér og duglegur. Satt að segja var ég að vonast til þess að hann fengi brátt að renna, því ég bjóst við að það yrði kennslustund út af fyrir sig í tækni sem var manni að mestu framandi. Hann veiddi á inn vetur, grein um þurrflugur og púpur eftir Stefán Jónsson og heídur óvenjuleg „veiðisaga" af Arnarvatnsheiði. Þá er sagt frá nýjum verslunum fyrir sport- veiðimenn og fluguhnýtingaþátt- urinn er á sínum stað með litsíð- unni og uppskriftum. „Á veiðum" verður æ vandaðra og það sama má einnig segja um helsta keppinautinn, „Sportveiði- blaðið". Frá sjónarhóli lesanda má segja að hvorugt blaðið geti án hins verið, það tryggir gæðin. Þriðja blaðið er til sem fjallar einnig um sportveiði, síðast en ekki síst, „Veiðimaðurinn“ sem hefur komið út áratugum saman. „Veiðimaðurinn" var orðinn held- ur „þreyttur" á seinni árum, en með tilkomu samkeppninnar gerðist það gleðilega, frá sjónar- hóli lesenda, að „Veiðimaðurinn" hefur nú einnig tekið kipp og síð- ustu tölublöð verið hreint ágæt. maðk. Það var nóg af fiski þarna, þetta var í Varmadalsgrjótunum og tækifærin fyrir hendi. Svo fór kappinn að veiða og hver sprikl- andi laxinn af öðrum hafnaði á bakkanum. Hann var ótrúlega fljótur að finna fiskinn, setja í hann og fljótastur af öllu að landa löxunum, enda voru „græj- urnar“ í stakk búnar. Þetta virt- ist fyrirhafnarlaust hjá honum, samt hlaut þetta að útheimta gíf- urlega tækni og næmni, auk þekkingar á staðháttum. Þótt upphaflega hafi aðeins verið hugmyndin að gesturinn „tæki einn“, þá urðu þeir reyndar all miklu fleiri áður en yfir lauk og vinirnir tveir fengu ekki stöngina aftur í hendurnar það sem eftir lifði veiðitímans og það út af fyrir sig hlaut að teljast meiri háttar ókurteisi af hálfu gestsins. En var honum vorkunn? Þarna voru áhorfendur þó nokkrir og allir dáðust að sniild hans. Kapp- ið fór vaxandi og ég átti eftir að missa mest af því áliti sem ég hafði á þessari veiðikló. Hann var nú kominn yfir ána, neðst í Grjótunum, áhorfendaskarinn var Varmadalsmegin. Hann hafði séð einn á lygnri breiðu og þurfti að vaða yfir til að geta kitlað nebbann á laxinum með maðkin- um. Hann renndi og eftirvænt- ingin var mikil. Auðvitað stóðst laxinn ekki mátið og gleypti á augabragði. Þetta var 4—5 punda nýrunninn hængur, hinn falleg- asti fiskur, en við vissum aldrei hvort hann hefði afl á við lík- amsburði, því hann var sprikl- andi í fjörunni ca. 15 sekúndum eftir að hann tók. Veiðiklóin rot- aði fiskinn, en hvað var svo til ráða? Laxinn magagleiptur og maðkabaukurinn á bakkanum hjá okkur. Og hann sá ekki betur en að þarna rétt hjá sér væri ann- ar lítill nýrenningur geyspandi ótt og títt. Jú, hann lét það vera að losa úr, rakti 10—15 metra af línu ofan af hjólinu, sporðtók lax- inn dauðann og þeytti honum yfir ána, svo hann small í stórgrýtinu fyrir framan okkur. „Losa af og beita," hrópaði hann til okkar ljómandi af áhuga og veiði- gleði... Nokkrir veióimenn sátu heldur brúnaþungir í veiðihúsi einu í Borgarfirði fyrir nokkrum dögum. Veiðin var næstum engin, lítið vatn, bjart veður og heldur daufar horfur. Þeir höfðu fengið fréttir frá Þverá, þar gekk ekkert, en menn töldu þó að nokkrir tugir laxa væru í veiðistað sem Kirkjustrengur nefnist, en þeir fiskar létu öllum illum látum í hylnum, æddu um allt eins og skrattinn væri á eftir þeim. Nokkru áður hafði frést að „stór ganga" hefði komið í Þverá og dokað við í Kirkjustreng. Þar var nokkuð af fiski fyrir, en þó voru taldir aðeins vera milli 30 og 40 fiskar í hylnum. Félagarnir veltu fyrir sér gangi mála og loks sagði einn fullur bjartsýni: „Jæja, Kirkju- strengurinn er þó fullur af fiski, það eru sennilega milli 30 og 40 laxar í honum og alls ekki færri en 20 ef þeir misreikna sig ekki veiðimennirnir þar.“ Við þessi orð setti alla hljóða og svo sagði einn hinna eldri á staðnum: „Þó það nú væri að það væri einhver fiskur einhvers staðar. Það eru ekki mörg ár síðan að það þótti ekkert tiltökumál þó maður veiddi 20 laxa eða meira í hverri einustu veiðiferð í Norðurá, Þverá og hvað þær nú heita. Nú er það frétt ef menn fá einn eða tvo laxa á stöng á dag, þykir hörkuafrek. Nú eru 20 laxar orðnir að „stórri göngu“.“ Við þessu áttu hinir félagarnir ekkert svar, því vissulega er af sem áður var þó enn gangi lax í íslenskar ár. „Á veiðum“ komið út — tímaritunum um veiðiskap fer ört fram WONDER RAFHLÖÐUR örugg orka í leik Þessartvíefldu rafhlöður frá wonder gera útslagið á árangurlnn. WONDER ALKALINE OG WONDER SUPER RAFHLÖÐUR. f £ Fást á bensinstöðvum ESSO og miklu víðar Olíufélagið hf <0 Reynir Pétur til Eyja Vestmannaeyjum, 25. júní. Vestmanneyingar hafa fylgst náið með frægðargöngu Reynis Péturs Ingvassonar eftir hringveginum. Hér í Eyjum á göngugarpurinn óskipta aðdáun bæjarbúa og hefur fjöldi fólks skrifað sig á áheitalista vegna íslandsgöngu Sólheimagarpsins. Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyj- um hafa boðið Reyni Pétri form- lega til Eyja og er áformað að hann komi með Herjólfi um næstu helgi. Eyjamenn líta á Herjólf sem sinn þjóðveg milli lands og Eyja. Herjólfur tengir jú okkur við hringveginn. Ráðgert er að taka veglega á móti göngugarpin- um um helgina. Honum verður fagnað með lúðrablæstri á bryggj- unni og Eyjamenn ætla að sýna hug sinn í verki til afreksmanns- ins og málefnis þess, sem hann hefur á svo eftirminnilegan hátt vakið þjóðarathygli á. hkj. Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.