Morgunblaðið - 29.06.1985, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.06.1985, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. JÚNt 1985 23 Portugai: Eanes rýfur þing og boðar kosningar Balashov hættir Taxco, Mexíkó, 28. júní. AP. YURI Balashov frá Sovétríkjun- um hefur sökum veikinda hætt þátttöku í millisvæðamótinu, sem nú stendur yfir í Taxco í Mexfkó, samkvæmt tilkynningu er skipu- leggjendur mótsins sendu frá sér í gær, fimmtudag. Á miðvikudag fékk Balashov heiftarlegar innantökur og mætti ekki til leiks. Var hann fluttur á sjúkrahús, þar sem hann gekkst undir margvísleg- ar rannsóknir, og fyrirskipuðu læknar honum að halda kyrru fyrir. í dag er hvíldardagur á mót- inu, en 13. umferð hefst á morg- un, föstudag. N-Kórea fær 4 MiG-þotur Tókýó, 28. jóaf. AP. f SfÐASTA mánuði fengu Norð- ur-Kóreumenn fjórar MÍG-23S- þotur frá Sovétríkjunum, hinar fyrstu af alls 50 þotum af þessari gerð, sem Sovétmenn munu selja þeim, að því er fram keraur í jap- anska blaðinu Sankei Shimbun í dag, fostudag. Blaðið hefur eftir ónafn- greindum heimildarmanni inn- an japanska hersins, að þoturn- ar fjórar hafi verið afhentar í n-kóresku herstöðinni i Pukch- ang, norðaustur af höfuðborg- inni, Pyongyang, seinni hlutann í maímánuði. Þoturnar voru sérstaklega framleiddar fyrir N-Kóreu- menn og voru án ýmislegs bún- aðar, sem alger hernaðarleynd hvílir yfir. Gorbachev og Le Duan ræðast við Moakru, 28. jóní. AP. í DAG hófust í Kreml viðræður sovétleiðtogans Mikhail S. Gorb- achevs og Le Duan, formanns ví- etnamska kommúnistaflokksins, að sögn sovésku fréttastofunnar TASS. Ekkert var látið uppi um efni viðræðnanna. Duan kom til Sovétríkjanna á miðvikudag. Er þetta fyrsta opinbera heimsókn hans þang- að um nærri tveggja ára skeið. Áframhaldandi viðræður stórveldanna Wwhinxton. 28. jóoi. ÞRÁTT fyrir karp á opinberum vettvangi og heitingar um, að af- vopnunarviðræðurnar geti farið út um þúfur, er talið, að Bandaríkin og Sovétríkin hafi þegar samið um það á bak við tjöldin, að við- ræðurnar hefjist að nýju f haust, að sögn embættismanns banda- rísku stjórnarinnar. Samkomulag þetta gerðu samningamenn stórveldanna í Genf, þar sem lítið hefur ann- ars miðað við samningaborðið. Rafsanjani í Peking PekÍBg, 28. jónf. AP. ÍKANSKI þjóðarleiðtoginn Ha- shemi Rafsanjani átti í dag við- ræður við Li Xiannian, forseta Kína, og baðst fyrir með kín- verskum múhameðstrúar- mönnum á öðrum degi opinberrar heimsóknar sinnar í Kína. Opinber talsmaður Rafsanj- anis, Morteza Sarmadi, sagði á fundi með fréttamönnum, að í viðræðunum hefði Li lagt áherslu á „aldagamla vináttu Kína og í rans“ og stuðning sinn við „sjálfstæða utanrfkisstefnu (rana og hlutleysi þeirra gagn- vart stórveldunum". Lissabon, 28. júní. AP. ANTONIO Ramalho Eanes, forseti Portúgals, greindi frá því í gær, fimmtudag, að hann hygðist rjúfa þjóðþingið og efna til kosninga til að leysa stjórnarkreppuna í landinu. Eanes sagði að núverandi rikis- stjórn, sem lýtur forystu sósíalist- ans Mario Soaresar, mundi sitja þar til ný stjórn hefði verið mynd- að. Hann sagði að þingið yrði ekki rofið formlega fyrr en það hefði staðfest samkomulagið um inn- göngu Portúgals í Evrópubanda- lagið. Umræður um samninginn eiga að hefjast 10. júlí. Stjórn Soaresar, hin 15. frá því lýðræði var endurreist í Portúgal árið 1974, tók við völdum f júní 1983 og hefur setið lengur en nokkur önnur lýðræðislega kjörin ríkisstjórn landsins. Hún er jafn- framt fyrsta ríkisstjórnin, sem hefur haft hreinan meirihluta á þingi. Samkvæmt stjórnarskránni verður Eanes að rjúfa þingið fyrir 14. júlí, en þá er hálft ár þar til kjörtímabil hans rennur út. London, 28. jnní. AP. BREZKA þingið samþykkti í gær- kvöldi með 159 atkvæðum gegn 52 að framlengja sérstök neyðarlög um Norður-írland um sex mánuði. Samkvæmt lögunum er N-ír- Fréttaskýrendur telja sennilegast, að kosningarnar verði því 14. júlí, en 90 dagar þurfa að líða frá þing- rofi til þingkosninga. Á seinni hluta þessa árs verða einnig for- seta- og sveitastjórnarkosningar í Portúgal. land undir beinni stjórn brezku stjórnarinnar. Lögin voru fyrst sett 1972, þegar þáverandi ríkis- stjórn rauf þing Norður-írlands Mynduð var framkvæmdastjórn Eanes, forseti Portúgals fyrir N-lrland 1973 þar sem full- trúar mótmælenda og kaþólikka áttu sína fulltrúa. Árið 1974 rann hún skeið sitt á enda og hófst bein stjórn frá London að nýju. Dýr eða ódýr? Við vitum fullvel að Opel er ekki ódýrasti bíllinn á markaðinum. Eða hvað? Hvað er dýrt og hvað er ódýrt þegar um fasteign er að ræða? Hvor fasteignin er til dæmis ódýrari - vel með farin sérhæð á góðum stað í vesturbænum á fjórar milljónir eða þriggja herbergja íbúð í úthverfi á þrjár milljónir? Svarið liggur ekki ( augum uppi. (búðarverðið er nefnilega ekki óskeikull mælikvarði. Það segir þér ekki hver viðhaldskostnaður verður. Pað segir þér lítið um endursöluverð og nýtingu - um það hvað húseignin kostar þig þegar upp er staðið. Nákvæmlega það sama gildir um bíla. Pegar OPEL var valinn bíll ársins í Evrópu fyrir árið 1985 var niðurstaða dómaranna einmitt sú að hlutfall gæða OPEL bílsins miðað við verð hans væri hagstæðara en hjá öðrum bílum. Með öðrum orðum - þeir komust að því að OPEL væri ( raun ódýrasti bíll sem völ er á. Við vissum að OPEL er ekki ódýrasti bíllinn á markaðinum. En nú veist þú jafn vel og við að OPEL er væntanlega sá bíll sem þú gerir bestu kaupin (. Og svo er líka alveg frábært að keyra hann! BILL ÁRSINS 1985 BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 Norður-írland Neyðarlög framlengd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.