Morgunblaðið - 29.06.1985, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. jUNl 1986
29
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Bandarískir karlmenn
óska eftir að skrifast á við is-
lenskar konur með vináttu eða
nánari kynni í huga. Sendið uppl.
um starf, aldur og áhugamál
ásamt mynd til:
Femina, Box 1021M,
Honokaa, Hawaii
96727, U.S.A.
Vantar
.Au Pair" til London.
Asset Agency, 9 Rockways,
Arkley, Herts EN5 3JJ,
England.
Heimatrúboð leikmanna
Hverfisgötu 90
Almenn samkoma á morgun kl.
20.30.
Allir velkomnir.
Ferðafólk Borgarfiröi
Svefnpokapláss í 3ja-5 manna
herbergjum meö aögangi aö eld-
húsi, miðsvaeöis í Borgarfiröi,
sundlaug og önnur þjónusta á
staönum, einnig rúmgott félags-
heimili. Tilvalinn staður fyrir ætt-
armót. Verið velkomin,
Farfuglaheimllið
Varmalandi.
Símar: 93-5301 og
93-5305.
Skerpingar
Skerpi handsláttuvélar, hnífa,
skæri og önnur bitjárn.
Vinnustofan Framnesvegi 23,
simi 21577.
í dag er opið hús i Þribuöum
Hverfisgötu 42, kl. 14.00-17.00.
Littu við og rabbaðu um lífiö og
tilveruna yfir kaffibolla. Aö vanda
tökum viö lagiö kl. 15.30. Allir
velkomnir.
Samhjálp.
KROSSINN
ÁLFHÓLSVEGl 32 - KÓPAVOGI
Samkomur á laugardögum kl.
20.30. Samkomur á sunnudög-
um kl. 16.30. Biblíulesfur á
þriöjudögum kl. 20.30.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoman fellur niöur í
kvöld vegna samkomunnar meö
Celebrant Singer í Bústaöakirkju
kl. 20.30.
ÚTIVISTARFERÐIR
Sunnudagur 30. júnf kl. 13.00.
Viðeyjarferö
Ferö í Viöey undir leiösögn Þórs
Magnússonar þjóöminjavaröar.
Verö 150 kr. Frítt fyrir börn meö
fullorönum Þetta er síöasta Vlö-
eyjarferöin aö sinni. Brottför frá
Kornhlööunni viö Sundahöfn kl.
13.00. Sjáumst I
Útivisf.
UTIVISTARFERÐIR
Dagsferöír
Laugardagur 29. júní
kl. 13. Viöeyjarfsrö. Kynníst
sögu Viöeyjar undir leiösögn
Lýös Björnssonar sagnfræöings.
Tilvalin fjölskylduferö Verö 150
kr. Fritt f. börn m. fullorönum.
Brottför frá kornhlööunni Sunda-
höfn. Muniö símsvarann: 14606.
Sunnudagur 30. júnf
kl. 8. Landmannalaugar. Nýj-
urtg. Ekiö um nýopnaöa Dóma-
dalsleiö í Laugar. Þar veröur lit-
ast um í nokkrar klst. og fariö i
baö. Fariö aö Ljótapolli á heim-
leiö. Verö 650 kr.
Kl. 8. Þórsmörk. Stansaö 3-4
tima í Þórsmörkinni. Verö 650 kr.
Kl. 13. Karlingargil - Tindstaöa-
hnúkur. Ganga i norövestur-
hluta Esju. Verö 350 kr. Fritt f.
börn m. fullorönum. Brottför frá
BSÍ. bensinsölu. Sjáumst
Utivist
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferöir
Ferðafélagsins:
1. 29. júní, kl. 08:00. Gönguferö
á Hefclu (1491 m)
Dagsferö. Verö kr. 600.
2.30. júní, kl. 10:00. Botnsdalur—
Síldarmannagötur-Skorradalur
(gömul þjóöleiö). Verö kr. 500.
3.30. júní, kl. 13:00. Skorradalur—
-ökuferð. Verö kr. 500.
4. Miövikudag 3. júlí, kl. 20. Búr-
fellsgjá-Kaldársel (kvöldferö).
Verö kr. 250.
5. Miðvikudag 3. júli, kl. 08:00.
Þórsmörk.
6. Sunnudag 7. júli, kl. 08:00.
Þórsmörk-dagsferð.
Ath.: Sumarfeyfisdvöi f
Þórsmörk.
Fariö frá Umferöarmiöstööinni,
austanmegin. fritt fyrir börn i
tylgd fulloröinna. Farmiöar viö
bíl
Feröafélag Islands
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
tilboö — útboö
& Úificð
Óskaö er eftir tilboöum í um 400 einkatölvur
fyrir Menntamálaráöuneytiö til notkunar viö
kennslu í grunnskólum.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri og kosta
kr. 1.000.
Tilboðverðaopnuðþriðjudaginn 10.sept. 1985,
kl. 11.00 f.h. að viðstöddum bjóðendum.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartuni 7, sími 26844.
Útboð
Bæjarsjóður Grindavíkur óskar eftir tilboöum
í lagningu slitlags á nokkrar götur í Grindavík.
Helstu magntölur eru:
Malbik 14.267 fm.
Olíumöl 7.246 fm.
Jöfnunarlag 22.113 fm.
Verkinu skal lokið 15. september 1985.
Útboðsgögn veröa afhent hjá byggingarfull-
trúa Grindavíkurbæjar, Hafnargötu 7b,
Grindavík, frá og meö 27. júní 1985, gegn
5.000 kr. skilatryggingu.
Skila skal tilboði í lokuöu umslagi merktu
nafni útboðs til bæjarstjóra Grindavíkur, Vík-
urbraut 42, Grindavík, fyrir kl. 14.00 hinn 15.
júlí 1985.
Bæjarstjórinn i Grindavík.
& Ú£lwí>
Útboð
Tilboð óskast í prentun kennslubóka fyrir
Námsgagnastofnun. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama staö kl. 11.00. f.h.,
fimmtudaginn 11. júlí nk.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, simi 26844.
Þórhallur Hálfdánarson, framkvæmdastjóri:
Tækjum varðskipsins
er í ýmsu ábótavant
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi vfirlýsing frá hórhalli
Hálfdanarsyni, framkvæmdastjóra
sjóslysanefndar:
„Gunnar Bergsteinsson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar hefur
svarað í samtali við blaðamann
Mbl. ummælum þeim, sem fram
komu í viðtali við mig vegna brun-
ans í bv. Sjóla. Ljóst er að mikið
tjón varð í þessum eldsvoða, en
sem betur fer urðu ekki teljandi
slys á mönnum. Eldsvoði í skipi á
hafi úti er alvarlegur atburður og
er brýnt vegna tíðra eldsvoða í
skipum að um þá sé fjallað á hlut-
lausan hátt, svo það megi bæta
sem miður fer.
Við sjópróf vegna brunans í bv.
Sjóla, sem fram fóru í Hafnarfirði
19. þ.m. kom ýmislegt fram, og af
því má draga ákveðnar ályktanir
og lærdóm. Það er því ekki ljóst
hver meining býr að baki orða for-
stjóra landhelgisgæslunnar þegar
hann segir: „Ég veit ekki hvort
það borgar sig að elta ólar við
þessa menn.“ Er forstjórinn að
veitast að sjódómi Hafnarfjarðar
eða sínum eigin mönnum. Varla
talar bann um mig í fleirtölu.
í fyrirsögn viðtalsins segir
Gunnar Bergsteinsson að dælurn-
ar séu léttari svo hægt sé að flytja
þær milli skipa. Það er auðvitað
ljóst að það er kostur að hafa
björgunardælur léttar, en megin-
tilgangur þeirra er samt að þær
geri gagn. Að ósk sjódómsins var
Brunamálastofnun ríkisins fengin
til að gera úttekt á dælum og
froðutækjum varðskipsins Ægis
19. júní sl. í skýrslu rannsóknar-
manna kemur fram að tækjum
varðskipsins var í ýmsu ábóta-
vant. M.a. að þrýstimælir á froðu-
tæki var brotinn, sigti ryðguð föst
og froðuskammtara vantaði. Við
þessa athugun voru sömu dælur
prófaðar og notaðar voru við
brunann í Sjóla og náðist ekki
nema xk kg þrýstingur og engin
froða myndaðist, enda nauðsyn-
legt að þrýstingur sé 5 kg til að
árangur náist. Reynt var að rað-
tengja 2 dælur og náðist þá 1 Vi kg
þrýstingur. Kom þá mjög þunn
froða. í skýrslunni segir ennfrem-
ur að vegna lítils þrýstings frá
dælunni náist aldrei að myndast
froða til að fylla rými.
Um flutning á dælum með þyrl-
um, sem forstj. segir óframkvæm-
anlegan, skal á það bent, að 16.
júlí 1982 flutti þyrlan TF-RÁN
fjórar dælur um borð í togarann
Ymi þar sem hann var í sjávar-
háska við Eldey. Þá var stórviðri
og hafrót. Sú þyrla sem nú er not-
uð er að allra áliti mun betri en
hin var og því ekkert að vanbúnaði
að flytja dælur til Sjóla, enda var
þar hægviðri og nær ládautt.
Dælur voru tiltækar bæði í
Reykjavík og Patreksfirði miklu
afkastameiri en þær sem voru um
borð í varðskipinu. Forstjóri land-
helgisgæslunnar segir að aldrei
hafi komið beiðni um aðstoð, held-
ur heyrði skipherrann samtal
Sjóla við ísafjarðar radíó, þar sem
rætt var um brunann. Það að aldr-
ei hafi komið bein beiðni um hjálp
er hártogun. Upplýsingar lágu
fyrir um að eldur væri laus í skip-
inu og því bar öllum nærstöddum
skipum að fara til tafarlausrar að-
stoðar eins og önnur skip gerðu
líka, enda tilkynnti varðskipið að
það væri á leiðinni, og óþarfi að
boða það frekar. Full þörf hefði
hins vegar verið á að stjórnstöð
landhelgisgæslunnar, sem barst
tilkynning um brunann skömmu
áður en varðskipið vissi um hann,
hefði strax haft samband við
varðskipið og jafnframt gerðar
ráðstafanir til að flugvélar land-
helgisgæslunnar yrðu til taks.
Ekkert af þessu var gert.
Þá gerir forstjórinn að umtals-
efni þjálfun varðskipsmanna og
segir að í fyrstu hafi allar áhafnir
varðskipanna fengið sérstaka
þjálfun hjá slökkviliðinu í Reykja-
vík. Samkvæmt áreiðanlegum
upplýsingum var það aðeins hluti
áhafnar varðskipsins óðins sem
fékk tilsögn hjá slökkviliðinu
dagpart í fyrra, aðrar áhafnir
varðskipanna komu þar ekki það
árið. Engin þjálfun áhafna
varðskipanna hefur farið þar fram
á þessu ári.
Eftir hörmulegt brunaslys í ms
Gunnjóni GK 506 árið 1983 kom
fram að dælur varðskipsins, sem
þá kom á vettvang voru ekki nógu
kraftmiklar til að byggja upp
froðu.
Rannsóknarnefnd sjóslysa rit-
aði því Samgönguráðuneytinu
bréf, dagsett 21.9. 1983, og óskaði
eftir að ráðuneytið beitti sér fyrir
því við dómsmálaráðuneytið að
varðskipin væru ávallt búin full-
komnasta búnaði sem völ væri á
til hvers konar björgunarstarfa,
þar eð varðskipin eru samkvæmt
lögum einnig björgunarskip. Afrit
af bréfi rannsóknanefndarinnar
var sent landhelgisgæslunnar.
Engin svör hafa enn borist við
þessari málaleitan. Hefði þó mátt
ætla að Gunnar Bergsteinsson,
forstjóri gleddist yfir stuðningi
Rannsóknanefndar sjóslysa um
úrbætur á búnaði varðskipanna."