Morgunblaðið - 30.07.1985, Side 1
64 SÍÐUR MEÐ 12 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐl
STOFNAÐ 1913
168. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
AP/símamynd
Tito Okello hershöfðingi (th.), nýr leiðtogi í Uganda, ásamt Milton Obote (tv.), sem steypt var af stóli um helgina.
Obote flýði til Kenýa og er þar nú óhultur. Okello er á áttræðisaldri og hefur verið yfirmaður alls herafla Uganda. Er
hann sór embiettiseiö í gær kvaðst hann mundu sitja stutt á valdastóli því senn yrði efnt til kosninga í landinu.
Okello tekinn
við stjórninni
Tl'lO OKELLO hershöfðingi, yfirmaður herafla Uganda, tók formlega við
völdum í dag í kjölfar þess að stjórn Miltons Obote forseta var steypt af stóli.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins í Nairóbí er Obote nú
óhultur í Kenýa, en ekki er vitað hversu lengi stjórnvöld treysta sér til að
veita honum landvist vegna viðskiptahagsmuna.
Okello sagði við embættistök-
una að hann mundi ekki sitja lengi
því senn yrði efnt til lýðræðislegra
kosninga í landinu. Útvarpið í Úg-
anda skýrði frá því í dag að efnt
yrði til kosninga að ári. Athöfnin
fór fram fyrir utan þinghúsið. Við
hlið Okello stóð Basilio Olara
Okello liðsforingi, helzti foringi
uppreisnarinnar gegn Obote.
Okello sagði landsmenn myndu
lengi minnast byltingardagsins.
Þá hefðu Ugandamenn, sem fórn-
uðu lífi og limum til þess að koma
einræðisherranum og morðingjan-
um Idi Amin, risið gegn gagns-
lausum einræðisherra, sem valdið
hefði landsmönnum ómældum
þjáningum.
Sendiherra Bandaríkjanna í
Kampala hefur tvívegis rætt við
nýju valdhafana en formælandi
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins varðist allra frétta af fundun-
um.
Sjá vettvangsgrein, „Ættbálka-
rígur í hernum leiddi til valda-
ráns“, á bls. 27
Geimferjan:
rétt eftir
flugtak
Shevardnadze í fyrstu ferð sinni utan Sovétríkjanna:
Vill bæta sambúð austurs
og vesturs með stórátaki
HelHÍnkí, 29. júlí. AP.
EDUARD A. Shevardnadze, ný-
skipaður utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, kom í dag til Helsinki, þar
sem hann situr fund, sem haldinn er
í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá
undirritun Helsinki-samþykktarinn-
Baskar
myrða
aðmírál
Madrid. 2». júlí. AP.
TVEIR menn, sem taldir eru
félagar í aðskilnaðarhreyfingu
baska, myrtu í dag Fausto
Escrigas Estrada aðmírál,
helzta hernaðarráðunaut
spænsku stjórnarinnar, er hann
var á leið til vinnu sinnar í
Madríd. Bílstjóri hans særðist
alvarlega í árásinni.
Mennimir tveir sátu fyrir
Escrigas Estrada skammt frá
heimili hans. Voru þeir á
Renault-9-bifreið og er bif-
reið aðmírálsins ók framhjá
hófu þeir vélbyssuskothríð.
Hæfðu 30 skot aðmírálinn og
bflstjórann.
Morðið átti sér stað
skömmu fyrir fund Jose
Barrionuevo innanríkisráð-
herra og Edwin Meese, dóms-
málaráðherra Bandaríkj-
anna, sem ræddu í dag leiðir
til varnar hryðjuverkum og
eiturlyfjadreifingu.
ar. Er þetta fyrsta ferð Shevardn-
adze til útlanda í embættistíð sinni.
Við komuna til Helsinki hvatti hann
til þess að menn legðust á eitt um að
bæta andrúmsloftið í samskiptum
austurs og vesturs.
Shevardnadze var ófús til að
fjalla um væntanlegan fund þeirra
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að tíminn
yrði að leiða í Ijós hver útkoman
yrði. Þeir munu ræða sín á milli
um vígbúnað, mannréttindamál og
fund Reagans, Bandarikjaforseta,
og Gorbachevs, formanns sovézka
kommúnistaflokksins, í nóvember,
að sögn bandarísks embætt-
ismanns. .
Helsinki-fundurinn hefst á
morgun, þriðjudag. Til borgarinn-
ar eru komnir utanríkisráðherrar
33 Evrópuríkja, Bandaríkjanna og
Kanada. Ráðherrarnir flytja allir
ræðu á fundinum, sem Mauno
Koivisto, Finnlandsforseti, setur.
Munu ráðherrarnir nota tækifær-
ið til mikilla fundarhalda sín á
milli og er talið að athyglin bein-
ist öðru fremur að þessum fund-
arhöldum en hátíðarfundinum.
Utanríkisráðherrar Evrópubanda-
lagsríkjanna hyggjast fjalla um
ástandið í Suður-Afríku og hvern-
ig bandalagið eigi að bregðast við
því.
Óvenjuleg mótmæli gaf að líta í
Helsinki á sunnudag, er landflótta
fólk frá Eystrasaltsríkjunum fór
þar í mótmælagöngu gegn Sovét-
ríkjunum. Slíkt hefur ekki gerst I
Finnlandi siðan innrásin var gerð
í Tékkóslóvakíu 1968.
Sjá „Óvenjuleg mótmæli gegn
Sovétríkjunum" á bls. 22.
AP/Símamynd
Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra með Paavo Vayrynen utanríkisráðlierra
Finnlands á flugvellinum í Helsinki í gær. Geir situr fund ráðherra 35 ríkja í
tilefni þess að áratugur er liðinn frá undirritun Helsinki-sáttmálans.
Botha hafnar við-
ræðum við Tutu
JóluBDemrborg, 29. jvll. AP.
P. W. BOTHA, forseti Suður-Afríku, hafnaði beiðni Desmonds Tutu biskups
um tafarlausar viðræður til að reyna að draga úr ólgu í landinu, en blóðugar
óeirðir hafa staðið yfir í tæpt ár í Suður-Afríku.
Bandaríkjastjórn lét I ljós von-
brigði með afstöðu Botha og ítrek-
aði áskoranir sfnar um að teknar
yrðu upp viðræður leiðtoga svartra
og stjórnarinnar.
Botha svaraði Tutu á þann veg
að honum væri velkomið að slást í
hóp kirkjunnar manna, sem hann
mundi taka á móti eftir þrjár vik-
ur. Lýsti Tutu hryggð sinni með
þessi málalok. „Hér er allt á von-
arvöl og ég vildi reyna leggja mitt
lóð á vogarskálarnar til að finna
leið út úr ógöngunum," sagði Tutu.
Frá setningu neyðarlaga hafa
1.215 verið handteknir í Suður-
Afríku. Botha hótaði að reka úr
landi hundruð þúsunda blakkra
farandverkamanna frá útlöndum
ef Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
beitti sér fyrir því að gripið yrði til
efnahagslegra refsiaðgerða gegn
Suður-Afríku, eins og samþykkt
hefur verið í ráðinu.
Kanaveralbörúa, 29. júlí. AP.
BILUN varð í einum hreyfli
geimferjunnar af þremur sex
mínútum eftir flugtak, en
ferjan hafði samt nóg afl til
að komast á braut um jörðu.
Vonast var til að ekki þyrfti
að breyta ferðaáætluninni, en
í fyrstu var geimförunum
skipað að koma sér á braút i
lægri hæð en áætlað var og
búast til lendingar fyrr en
ráð var fyrir gert.
Kabúl
skalf í
fjórar
mínútur
IsUmabnd, 29. júlí. AP.
ÖFLUGUR jarðskjálfti skók norður-
hluta Pakistan og Afganistan í dag.
Vitað er um tvo menn, sem biðu
bana í skjálftanum, en óttast er að
tala látinna eigi eftir að hækka. Gíf-
urleg skelfíng greip um sig meðal
íbúa skjálftahéraðanna og flýðu þeir
á götur ÚL
Upptök skjálftans, sem mældist
7,3 stig á Richter-kvarða, voru í
Hindu Kush-fjöllunum í norður-
hluta Afganistan. Skjálftinn
mældist 6,5 stig i Pakistan og
hans varð greinilega vart í Ind-
landi og íran.
Síma- og vegasamband rofnaði
við afskekkt héruð i Pakistan.
Hrundu hús þar til grunna. Vitað
er um a.m.k. tvo menn sem biðu
bana i skjálftanum í norðurhluta
landsins, en talið er að sú tala eigi
eftir að hækka.
Sérfræðingar telja annað úti-
lokað en að skjálftinn hafi valdið
gífurlegu tjóni í Afganistan. Út-
varpið i Kabúl sagði aðeins að höf-
uðborgin hefði skolfið í fjórar
mínútur og skjálftinn mælst 7,3
stig. Jarðskjálfti, sem mælist 6
stig, getur valdið verulegu tjóni á
mannvirkjum, og 7-stiga skjálfti
er 10 sinnum öflugri.