Morgunblaðið - 30.07.1985, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1980
Fiskimjölsverksmiðjan hf. í Eyjum:
Nýr suðu- og
pressubúnaður
fyrir 17 millj. kr.
FISKIMJÖLSVERKSMIÐJAN hf. í Vestmannaeyjum er búin að gera samn-
ing við Stord í Noregi um kaup á nýjum suðu- og pressubúnaöi, en sú
endurnýjun sem hér um ræðir varðar helminginn af vélbúnaði verksmiðjunn-
ar sem hefur nú tvær vélasamstæöur sem hvor um sig getur framleitt úr 600
tonnum af hráefni á sólarhring. Sú endurnýjun sem nú er búið að semja um
kostar um 17 milljónir kr. að sögn Viktors Helgasonar, framkvæmdastjóra
Kiskimjölsverksmiðjunnar hf.
„Þessi nýi búnaður," sagði Vikt-
or, „sem reiknað er með að verði
kominn i gagnið í febrúar, á að
geta nýst í þeim framtíðaráform-
um sem uppi eru um nýja verk-
smiðjubyggingu. Hér er um mjög
260 Tékkar
á skemmti-
ferðaskipi
Á fóstudaginn eru væntan-
legir 260 tékkneskir ferða-
menn með rússnesku skemmti-
ferðaskipi. Mun þetta vera
fyrsti tékkneski ferðamanna-
hópurinn, sem hingað kemur,
að sögn Haralds Jóhannes-
sonar hjá Faranda, sem sér um
móttöku hópsins.
Tékkarnir koma hingað
með skemmtiferðaskipinu
Mikhail Kaliin, og eru þeir
eini hópurinn um borð. Skip-
ið kemur hingað til Reykja-
víkur snemma á föstudags-
morguninn. Tékkarnir fara í
skoðunarferðir um Reykjavík
og einnig fara þeir til Þing-
valla. Skipið heldur til Akur-
eyrar um kvöldið. Á sunnu-
daginn fer hópurinn í skoð-
unarferð um Þingeyjarsýslu
að Mývatni og um borð á
Húsavík að ferðinni lokinni.
fullkomin tæki að ræða sem m.a.
gefa möguleika á endurnýtingu
hita, en slíkt hefur ekki verið
hægt áður, þannig að hér er jafn-
framt um verulega orkusparandi
aðgerðir að ræða. Þá eigum við
með þessum búnaði að geta náð
betri framleiðslugæðum, en þessi
framkvæmd nú er þrep í áttina að
nýrri verksmiðju þar sem m.a. er
reiknað með reyklausri og lyktar-
lausri verksmiðju og reyndar er
ekki gert ráð fyrir reykháfum á
verksmiðjunni þar sem um gufu-
þurrkun verður að ræða.“
Morgunblaflið/Júllus
Ekið á lögreglumann á gangbraut
Ekið var aftan á lögreglumann á bifhjóli á gangbraut
við Þjóðleikhúsið í Reykjavík um níuleytið í gærmorg-
un. Hann var fluttur á slysadeild en reyndist ekki
mikiö meiddur, kenndi þó eymsla í baki, og fékk að
fara heim skömmu síðar. Slysið vildi þannig til að
lögreghimaðurinn stöðvaði hjól sitt við gangbrautina
til að hleypa gangandi vegfaranda þar yfir. í þann
mund bar að bfl sem ók aftan á lögreglumanninn.
Fundur ráðherra með svína-
og alifuglabændum leystist upp
Tek hraustlega undir hugmyndir um nýtt stéttarsamband,“ segir Einar Eiríksson
n
FUNDUR, sem Jón Helgason landbúnaðarráðherra, boðaði forystu-
menn svína- og alifuglabænda og Stéttarsambands bænda á síðdegis í
gær til að ræða endurgreiðslu kjarnfóðurgjalds leystist upp þegar
forystumenn hinna fjögurra félaga svína- og alifuglabænda gengu af
fundi. Voru þeir með því að mótmæla því að ekki var tekið undir tillögu
þeirra um breytingar á kjarnfóðurgjaidinu, sem þeir kynntu sl. föstudag.
Landbúnaðarráðherra hefur boðað sérbúgreinamennina til fundar ár-
degis í dag, en óvíst er að af þeim fundi verði þar sem vafasamt er að
formenn sérbúgreinanna mæti þar. í framhaldi af þessum atburðum
hafa komið upp hugmyndir um stofnun sérstaks stéttarsambands sér-
búgreinanna.
o
INNLENT
„Þetta gekk lítið í dag. Staðan
er nánast óbreytt frá því sem ver-
ið hefur, nema hvað fjármála-
ráðherra hefur gefið vilyrði fyrir
lítilsháttar greiðslufresti á
grunngjaldinu sem hjálpar okkur
Iítið,“ sagði Einar Eiríksson í
Miklaholtshelli, formaður Félags
alifuglabænda, þegar hann var
spurður um stöðu málsins. Hann
sagði að þeir hefðu farið af fund-
inum þar sem ekki var tekið undir
tillögu þeirra og formaður Stétt-
arsambandsins hefði beinlínis lýst
sig andvígan henni og þeir því
ekki séð ástæðu til að ræða málið
frekar. „Ég mæti þar a.m.k. ekki
og á von á að það geri hinir for-
mennirnir heldur ekki, því við höf-
um verið mjög samstíga í þessu
máli og ljóst er orðið að tilgangs-
laust er að ræða þessi mál frekar,"
sagði Einar þegar hann var spurð-
ur um fundinn sem landbúnaðar-
ráðherra hefur boðað í dag.
Svína- og alifuglabændur telja
sig ekki geta staðgreitt 50% fóð-
urgjaldið, þar sem þeir eru með
hala á eftir sér af gamla gjaldinu
sem gjaldfrestur var á. Lögðu þeir
til að gjaldið verði lækkað úr 4.000
kr. í 1.000 kr. sem áfram rynni í
rikissjóð en sérstaka gjaldið verði
8.000 kr. og endurgreitt til bú-
greinanna. En til að ríkissjóður
fái sínar 100 milljónir á þessu ári,
eins og fjárlög gera ráð fyrir,
verði 70 milljónir millifærðar úr
gamla kjarnfóðursjóðnum sem
enn er verið að greiða í og þeir
telja að í standi um 130 milljónir,
þar af vegna alifugla- og svína-
bænda 70 til 80 milljónir kr.
„Mér sýnist ekki annað að gera
en að ná þessum grófa skatti inn i
hækkuðu afurðaverði, sem mér
sýnist að þurfi að vera, þegar á
allt er litið, um 15% á egg, en það
er sú framleiðsla sem ég þekki
best. Já, ég get ekki annað en tekið
hraustlega undir þær hugmyndir,"
sagði Einar þegar leitað var álits
hans á hugmyndum um stofnun
sérstaks stéttarsambands sér-
búgreinanna. Sagði Einar að slíkt
hefði oft borið á góma að undan-
förnu, en af meiri alvöru þegar
þeir félagarnir gengu út af fundi
með landbúnaðarráðherra og
Stéttarsambandsmönnum síðdeg-
is í gær.
Hólmavík:
Gunnars vaka Þórðarsonar
BRJÓSTMYNI) úr vaxi af bljóm-
listarmanninum Gunnari Þórðar-
syni var afhjúpuð i „Gunnars vöku
Þórðarsonar, sem haldin var í sam-
komuhúsinu Sævangi á sunnu-
dagskvöldið síðastliðið. Var vax-
myndin afhent hreppsnefnd
Hólmavíkur til varðveislu í vænt-
anlegu samkomuhúsi staðarins,
sem nú er í byggingu.
Það var hljómsveitin Stuð-
menn sem stóð fyrir kvöldvök-
unni og þótti þeim félögum vel
við hæfi að tileinka Gunnari
Þórðarsyni þetta kvöld, en hann
er fæddur á Hólmavík og ólst
þar upp til níu ára aldurs. Gunn-
ar Þórðarson var heiðursgestur
hátíðarinnar og lék hann og sðng
með Stuðmönnum nokkur af
þekktustu lögum sínum. Þá var
brugðið upp litskyggnum frá
ferli Gunnars á tónlistarsviðinu.
Var Gunnari vel fagnað af fyrr-
um sveitungum sínum á Hólma-
vík.
Morgunblaöift/Friftþjófur
„Ég verð að viðurkenna að það er svipur með okkur,“ sagði Gunnar
Þórðarson, hljómlistarmaður og tónskáld, eftir að vaxmyndin af hon-
um hafði verið afhjúpuð á sviðinu í Sævangi.
Bifreiðagjald
hækkar um 16%
ráðherra og BSRB og gr. 5.8 í
aðalkjarasamningi fjármálaráð-
herra og BHM.
Suðurgata:
Ný gang-
brautarljós
MIÐVIKUDAGINN 31. júlf nk. kl.
14.00, verða tekin í notkun ný umferð-
arljós fyrir fótgangandi vegfarendur.
Ljósin eru staðsett í Suflurgötu sunnan
Melatorgs gegnt Háskóla Islands.
Fyrirhugað er að breikka Suður-
götuna á næsta ári á kaflanum frá
Melatorgi að ónefndri götu að Hótel
Sögu. Verður gatan þá 4 akreinar,
tvær í hvora átt, með 3,5 m miðeyju.
Umferðarljósastólparnir eru því
staðsettir í samræmi við fyrirhug-
aða breytingu og miðeyjan breikkuð
við ljósin.
Aukin hefur verið lýsing á gang-
brautinni með því að koma fyrir
ljósastaur í miðeyju ásamt hnappi
fyrir fótgangendur til aukins örygg-
is. Slíkt fyrirkomulag er þegar fyrir
hendi á nokkrum stöðum eins og á
Hringbraut við Elliheimilið Grund,
á Háaleitisbraut norðan Smáagerðis
og á Elliðavogi á móts við Klepp.
Bifreiðagjald ríkisstarfs-
manna hækkaði um ríflega
16% er síðasta launahækkun
tók gildi, 1. júní sl, skv. til-
kynningu um laun ríkis-
starfsmanna frá fjármála-
ráðuneytinu, launadeild, frá
6. júlí.
Bifreiðagjaldinu er skipt í al-
mennt gjald annars vegar og sér-
stakt gjald hins vegar. Almennt
akstursgjald frá 1. júlí er sem
hér segir: Fyrir fyrstu 10.000 km
á ári greiðast 12,25 kr fyrir hvern
ekinn kílómetra og fyrir næstu
10.000 km eru greiddar 10,95 kr á
km. Fyrir akstur umfram 20.000
km á ári eru greiddar 9,65 krónur
fyrir hvern kílómetra sem ekinn
er. Sérstakt gjald er öllu hærra,
það er sem hér segir: Fyrir fyrstu
10.000 km kr 13,95 á km, fyrir
næstu 10.000 greiðast kr 12.50 á
km og fyrir akstur sem fer um-
fram 20.000 km á ári hverju eru
greiddar 11 kr fyrir kílómetrann.
Almennt gjald er greitt fyrir
akstur í þéttbýli og á vegum með
bundnu slitlagi. Fyrir akstur á
öðrum vegum er greitt sérstakt
gjald. Ferðakostnaðarnefnd
ákveður dagpeninga og bifreiða-
gjald skv. ákvæðum gr. 5.8 f
aðalkjarasamningi fjármála-