Morgunblaðið - 30.07.1985, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ/ÞRIÐJUDAGUR 30, JÚLÍ 1985
14
myndlistar-
á Akureyri
um virkar það nokkuð óljóst
hvaða stefnu viðkomandi munu
taka í framtíðinni.
Þó er eitt ljóst og það er, að
margt er að brjótast um í þessu
fólki og sýningin er um ýmislegt
næsta ólík þeim, sem listrýnir-
lega fjarrænt. 1 sumum tilvikum
er líkast því sem útlendingar séu
á ferðinni. Það er gott og gilt að
vera nútímalegur eins og þeir í
útlandinu, en einu virðast alltof
margir gleyma er þeir láta hríf-
ast af vinnubrögðum útlendra
þeir taka til meðferðar firringu
stórborgarinnar. Ég tek þetta
sem dæmi því að það má liggja
ljóst fyrir að útkoman verður
ekki eigin upplifun gerandans.
Það er einmitt þetta, sem er svo
mikilvægt, hvað svo sem málað
er, að í gegn skíni hin sérstaka
lifun gerandans og afstaða til
myndefnisins. Skiptir engu máli
hvað málað er. Það verður eng-
inn gamaldags þótt hann máli
Skarðsheiðina, Pollinn eða
gðmlu bárujárnshúsin í síbylju
heldur eru það tökin á viðfangs-
efninu sem ráða úrslitunum. Svo
einfalt er það.
Einn af hinum miklu súrreal-
istum aldarinnar Réne Magritte
var t.d. stöðugt að sjá hluti í
inn hefur séð frá hendi þeirra
norðan heiða til þessa.
Hér er hvorki um að ræða átt-
hagalist né innansveitarkróníku
heldur í flestum tilvikum ómót-
uð áhrif víða að og eiginlega er
yfirbragð sýningarinnar merki-
listamanna og það er, að þeir
hinir sömu eru í nær öllum ef
ekki öllum tilvikum börn nán-
asta umhverfis síns.
Á þann veg eru t.d. málarar
dreifbýlisins óneitanlega ekki að
lýsa sínu nánasta umhverfi er
næsta nágrenni sínu í nýju
óvæntu ljósi. Nýbylgjumálar-
arnir eru margir hverjir að lýsa
ógnvekjandi áhrifum í myrkviði
stórborganna. Piet Mondrian,
Kandinsky, Malevitch og margir
fleiri voru að upplifa form er
■AL#É
ÉWMHÍ 1
Ungir
menn
IWyndlist
Bragi Ásgeirsson
SVO sem fram hefur komið sýna
um þessar mundir rúmlega 20 ung-
ir myndlistarmenn milli 130—140
verk sín í íþróttaskemmunni á Ak-
ureyri. Eiga þátttakendurnir það
sameiginlegt að hafa stundað list-
nám um lengri eða skemmri tíma
utan heimabyggðarinnar, ýmist í
Keykjavík eða erlendis. Elestir eru
Akureyringar, en einnig eru í
hópnum aðrir Norðlendingar, sem
hófu listnám í Myndlistarskóla
Akureyrar. Tilgangur sýningarinn-
ar, sem styrkt er af Menningar-
sjóði Akureyrarbæjar, er að sýna
hvað ungt myndlistarfólk frá Akur-
eyri og nágrannahyggðum er að
fást við og hvers er að vænta af
nýrri kynslóð á þessu sviði.
— Á þessa leið hljóðaði nokk-
urn veginn fréttatilkynning í
dagblöðunum er athygli mína
vakti og þótti mér rétt að skjót-
ast norður til að forvitnast um
hvað ungu myndlistarfólki norð-
an heiða lægi á hjarta. Myndlist-
arfólki utan af landsbyggðinni
hefur fjölgað ótrúlega mikið hin
síðari ár og verður það að teljast
heilbrigð þróun þótt fæst af því
sé starfandi innan heimabyggð-
ar sinnar. Það kemur þó vonandi
að því að aukinn starfsgrund-
völlur myndist fyrir skapandi
listir í dreifbýlinu því það er í
hæsta máta óréttlátt að Reykja-
vík einoki t.d. alla myndlist i bak
og fyrir.
Myndlistarfólkið, sem er að
sýna í Skemmunni á það og sam-
eiginlegt, að það hefur annað
tveggja nýlokið námi heima eða
erlendis eða er enn við nám og
hjá sumum er um að ræða frum-
raun á sýningarvettvangi. Þetta
er allt saman ungt fólk níunda
áratugarins. Sýningin ber þess
og öll merki, að hér er um ung-
gróður að ræða og menn eru
misjafnlega langt á veg komnir á
þroskabraut og í mörgum tilvik-
þjónaði kröfum nýrrar aldar.
Þetta spratt allt af innri þörf og
þeim hræringum er áttu sér stað
allt um kring. Að sjálfsögðu
urðu þessir menn fyrir víðtæk-
um áhrifum úr öllum áttum en
þeir unnu úr þeim í samræmi við
eigin skaphöfn. Ekkert varð til
af sjálfu sér.
Sem myndlistarmaður upplifi
ég t.d. Akureyri á sérstakan hátt
og þannig er ég alveg viss um að
ég myndi um margt mála eitt-
hvað öðruvísi en í Reykjavík.
Áhrifin sem ég verð fyrir af
þessum tveim stöðum eru gjör-
ólík bæði hlutlægt og huglægt
séð.
Menn geta ekki þurrkað nán-
asta umhverfi sitt út af sjón-
himnunni og eiga ekki heldur að
reyna það til að þóknast ein-
hverjum listapáfum ytra og
menn skulu vera minnugir þess
að þeir hafa úr sömu frumform-
um að moða og erlendir starfs-
bræður þeirra. Skiptir engu hvað
málað er og hvernig, einungis ef
fram kemur sérstök lifun og
áhrif er tengjast innri lífæðum
nánasta umhverfis.
Ég er síðasti maðurinn til að
prédika útkjálkasjónarmið og
innansveitarkróníku í listum og
hér er einungis til umræðu hvort
menn eigi að lifa sig inn í hlut-
ina upp á eigið sjálfdæmi eða
annarra. — Það sem ég er að
reyna að segja hér er að mér
fannst of lítil samsemd með upp-
runanum í verkum flestra á sýn-
ingunni í Skemmunni. í mörgum
tilvikum er það næsta skiljan-
legt því að fólkið hefur dvalið
fjarri heimaslóðum og margt er
að brjótast um í því. En sýningin
í heild gaf þó tiiefni til ýmissa
hugleiðinga svo sem hér hefur
komið fram.
Eftir sitja helst í minningunni
hin stóru og öflugu málverk
Kristjáns Steingríms, skúlptúr-
verk Þóreyjar Magnúsdóttur og
skálar Margrétar Jónsdóttur unn-
ar úr steinleir og steypu ásamt
einni og einni mynd hinna þátt-
takendanna, sem of langt væri
upp að telja. Hér mætti einnig
nefna hæfileikaríkt fólk í miðju
námi og eru þar mest áberandi
Kristín Guðrún Gunnlaugsdóttir
og Aðalsteinn Svanur Sigfússon.
Annars er íþróttaskemman
ekki alltof vel fallin til mál-
verkasýninga í óbreyttri mynd
— sérhanna þyrfti skilrúm og
minnka lofthæðina t.d. með
ljósnæmum dúk.
Sýningin er sett upp á vondum
tíma og stendur of stutt sem
sumarsýning.
PappíislœWtar frá EBA veila °JV99 ■
Það er áhœtt að Ireysta sympathrc 100
fyrir trúnaðarmálunum. -
ig&t
Ekjaran
"^woaz.ioeHEYKJAvlK
ÁRMULA 22, SiMI
GÆ.T1Ð
nRVGGlS MEÐ
EBP
|sj^K\ÆIVTNI
eX /1° ,./u 'A
jy
/o
’J 1
1 /• k H
Vi V
y E»
Verslunin verður lokuð frá kl. 13—17 í dag
vegna útfarar Hjartar Nielsen f.v. kaupmanns
cí-ljörtur^ U / $
KRISTALL OG POSTULÍNSVÖRUR
TEMPLARASUNDI 3
LITGREINING MED
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN
Bindindismótið Caltalækjarskógi ?:«azn?j£'gin
^uglýsinga-
síminn er 2 24 80