Morgunblaðið - 30.07.1985, Qupperneq 15
Snæfjallaströnd
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLl 1985
15
Fjölmennt
niðjamót
Skarðshjóna
Bæjum, Snæfjallaströnd, 22. júlí.
ÆTTARMÓT eru orðin nokkuð sinna í fulla kirkju Unaðsdals-
snar þáttur í tilveru okkar landsins sóknar, og þökkum þeim með góð-
barna, og eru mikils virði í kynningu um huga fyrir komuna hingað.
og samskiptum öllum, — svo sem Jens í Kaldalóni
ættir kvíslast út um allar byggðir -
þessa lands.
Morgunblaðið/Kristján Bergþórason
Hluti hópsins, sem sótti ættarmótið á Snæfjallaströnd. Fremstar á myndinni eru systurnar Guðjóna, Bjarnveig, María
og Sigurborg Jakobsdætur, dctur Símoníu og Jakobs Kolbeinssonar.
Þar hittast og kynnast gamlir vinir
og nýir afkomendur sem stundum
ekki, jafnvel áður hafa sést, þar sem
fjarlægðin hefur einangrað sam-
skipti öll og náin kynni, — og ekki
þá síður hitt, að kærleikstaugar frá
bernskudögum draga heim til æsku-
stöðvanna í Ijúfum minningum sem
oftast áleitnari verða, þá árin færast
yfir, og lyfta þá huganum yfir farinn
veg til þeirra fyrstu sporaslóða æsk-
unnar, sem svo hafa föstum rúnum
grópast í vitund barnssálarinnar, að
þaðan ekki máist út hvort nú blíða
lífsins hefur brosað við fótmáli
hverju, eða þá skýjabólstrar tilver-
unnar skyggt yfir gengna slóð.
En að þessum formála loknum
skal hér frá sagt ættarmóti af-
komenda Jakobs Kolbeinssonar og
Símoníu Sigurðardóttur frá
Skarði á Snæfjallaströnd, þar sem
saman var kominn um 100 manna
hópur fólks i samkomuhúsi átt-
hagafélags Snæfjallahrepps
12.—14. þ.m., en afkomendur
þeirra mætu hjóna telja nú hart
nær 140 manns á öllum aldri lifs-
ins.
Jakob var sonur aflamannsins,
bóndans og hreppstjórans Kol-
beins í Dal, en Símonía frá Skarði
ættuð, miklar dugnaðar- og
sæmdarmanneskjur. Komust þau
vel af, sem svo í þá daga að kallað
var, enda Jakob einstakur dugnað-
armaður, sjómaður flesta vetur
með hinum mikla aflamanni Kitta
Geira, sem svo i daglegu tali
nefndur var, á stóru bátunum á
Isafirði, sem svo voru kallaðir, og
átti Jakob þar jafnan árvisst
skiprúm, svo sem tryggði hans og
afkomu alla, en konan þá jafnan
ein heima með búsýslu alla og
börnin sér til hjálpar.
En uppúr 1940 fluttu þau hjón
til Súðavíkur, og hefur svo í eyði
verið jörðin sú, en áður þótti gott
að hvíla þar lúin bein, þeim sem
um ströndina röltu á tveimur
jafnfljótum, enda rausnarviðtökur
þeim sem að garði þar báru. Er nú
aðeins æskuminningin í hugum
barna þeirra um sín fyrst gengnu
spor um túnhólana á Skarði. En
það var einmitt á þeim túnhól sem
móðir forseta bæjarstjórnar Bol-
ungarvíkur og nú varabæjarstjóra
þar tifaði sín fyrstu spor á grænni
grundu, en hinsvegar við Bjarna-
núpinn í Grunnavík að faðir hans
rann upp sem fífill i túni. En hvort
sem hann er nú meiri íhaldsmaður
eða krati, þá er sá mæti maður af
sterkum stofni upprunninn, enda
sem og aðrir afkomendur þessarar
ættar velgefið skynsemis- og
dugnaðarfólk, sem fátt lætur sér
fyrir brjósti brenna til átaka í
okkar lífsins ólgusjó.
GAP
BUASIMINN
VEITA /
SAMEININGU
FRÁBÆRA MÓNUSTU
Allir þeir sem notaö hafa bílasíma á undan-
förnum árum hafa kynnst hinni frábæru
þjónustu sem veitt er á afgreiðslunni hjá 002.
Stúlkurnar þar taka starfið alvarlega,
— þeirra hlutverk er umfram allt
að koma á sambandi milli akandi símnotenda
og annarra næstum hvar
sem er á landinu
— og það gera þær svo sannarlega.
Þær koma skilaboðum, sjá um
að reyna aftur þegar viðkomandi bíll eða númer
svara ekki og eru að auki ein allsherjar
símaskrá fyrir bílasímanotendur.
AP bílasíminn kostar aðeins
56.900,- krónur.
ÞAÐ FÆST ALDREI AFTUR BÍLASÍMI Á ÞESSU VERÐI!
Við erum sveigjanlegir í samningum.
Heimilistæki hf
Tæknideild — Sætúni 8. Simi 27500.
Var þarna hin myndarlegasta
kvöldvaka, söngur, dans og sam-
spil músíkelskandi ungmenna, og
aðrir eldri undirtóku, en á sunnu-
dagsmorgun sungin messa í Un-
aðsdalskirkju af hinum ágætlega
gerða sóknarpresti okkar séra
Baldri Vilhelmssyni í-Vatnsfirði.
Er slík- samkoma lifandi upplyft-
ing í fámennum Söfniiði að fá slík-
an hóp ættjarðarvina æskustöðva
JRImfgttitMfiMfr
Áskriftarsíminn er 83033