Morgunblaðið - 30.07.1985, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.07.1985, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985 Prestastefnan og samkirkjuhreyfingin — eftir Pétur Sigurgeirsson Vinur minn, séra Jón Habets prestur kaþólskra í Stykkishólmi, skrifar grein í Morgunblaðið 24. júlí sl. um álit prestastefnunnar á hinni svokölluðu Lima-skýrslu. Þar gætir missagna, sem mér er skylt að leiðrétta. I geininni stendur: „Það var hlutverk nýafstaðinnar presta- stefnu að ræða um hina samkirkjulegu Lima-skýrslu, Mér virðist augljóst, að þar kom eng- inn raunverulegur áhugi á sam- kirkjulegu starfi fram, og það er uggvekjandi, því að ísland þarfn- ast þess.“ Þetta er ekki rétt, eins og best kemur í ljós í samþykkt þeirri, sem gerð var á prestastefnunni um þetta mál. Samþykktin er svo- hljóðandi: „Prestastefna íslands 1985 fagnar þeim áhuga til samkomu- lags, sem birtist í Lima-skýrsl- unni: Skírn, máltíð Drottins, þjón- usta og lætur í ljós von um, að árangur náist af samræðum kirknanna í samræmi við vilja Krists: Að allir séu þeir eitt. Vill prestastefnan hvetja til þess, að unnið verði innan safnaðanna að kynningu á skýrslunni og hún sé skoðuð í ljósi hins lútherska arfs, notuð sem grundvöllur fræðslu- stunda um þá frumþætti kristinn- ar trúar, tilbeiðslu og skipulags, er hún fjallar um.“ Tillaga þessi var einróma sam- þykkt á prestastefnunni. í grein séra J.H. er eins og sjá má mjög hallað réttu máli. Það var gleði- efni, að skýrslan skyldi hljóta svo jákvæðar undirtektir prestanna. Samkirkjuhreyfingin, sem miðar að því að samansafna hinni kristnu hjörð í stað þess að sund- urdreifa henni, er vissulega kall tímans. Veígamikill þáttur í því samstarfi kirkju Krists, er örugg- lega hin svokallaða Lima-skýrsla. Skýrslan er kennd við borgina Lima í Perú, þar sem Trúar- og skipulagsmáladeild Alþirkjuráðs- ins samþykkti hana í jan. 1982. í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá nærfellt öllum kristnum kirkjudeildum í heiminum. Skýrslan fjallar um þrjá höfuð- þætti í hinni kristnu kirkju: Skírnina, altarisgönguna og emb- ættin. Ágreiningsmál um þessi at- riði hafa verið rædd á þessum vettvangi um hálfrar aldar skeið. Niðurstaða nefndarinnar er því mjög athyglisverður viðburður í kirkjusögunni. íslenska þjóðkirkjan hefur eins og aðrar kirkjur í heiminum feng- ið þessa skýrslu til umfjöllunar, til þess að gera sínar athugasemd- ir og skoða hana „í ljósi hins lúth- erska arfs“ eins og segir í sam- þykktinni. Þannig munu allar aðr- ar kirkjudeildir koma fram með sitt álit og senda Trúar- og skipu- lagsmálanefndinni, eins og hún hefur beðið um. Þetta hafa kirkj- urnar verið að gera, og okkar kirkja mun einnig koma með sinar athuganir eins og framsöguerind- in á prestastefnunni báru vott um. Það verður síðan verkefni Trúar- og skipulagsmálanefndar að vinna úr þeim athugasemdum, sem verð- ur mikið verk og vandasamt. í annan stað ræðir séra Jón Habets þannig um Lúther og af- stöðu lúthersku kirkjunnar og þeirrar kaþólsku, að ég tel miður heppilegt á sama tíma, sem verið er með samkirkjuhreyfingunni að vinna markvisst að samstöðu inn- an kirkjudeildanna. Það kveður dálítið við annan tón í ræðu erkibiskupsins Jóhannesar Willebrands forseta stjórnardeild- ar Vatikansins að einingu krist- inna manna, er hann talaði á 7. þingi lútherska Heimssambands- ins í Búdapest í fyrrasumar. Hann sagði m.a. „Það er með sérstöku þakklæti sem við minnumst þess, hve vel og vendilega Drottinn sög- unnar hefur fært mótmælendur og rómversk kaþólska nær hvor öðrum. Það eru varla 20 ár síðan við hófum saman opinberar við- ræður á alþjóðlegum vettvangi. Lútherska Alheimssambandið var fyrsti aðilinn að slíkum viðræðum að loknu 2. Vatikanþinginu. Árangur sameiginlegrar sögu- skoðunar hefur einkum náðst í sambandi við tvo mikilvæga við- burði. Ég á þar við rannsóknir. sem fram hafa farið á Ágsborgar- játningunni í tilefni af 450 ára af- mæli hennar (1980) svo og tilraun- ir þær, sem gerðar hafa verið til þess að öðlast staðgóða þekkingu á lífi og verkum Marteins Lúthers, er 500 ár voru liðin frá fæðingu hans (1983) I báðum tilfellum opnaðist leið til undraverðs skiln- ings, sem leiða mun til raunhæfari árangurs en menn höfðu áður tal- ið að hægt væri að ná. Hátíðarárin urðu hér ákveðin viðmiðun, en til- efni þeirra kemur ekki að fullum notum nema þau séu leyst úr tengsium við tímatalið til þess að geta náð vítt yfir bæði tíma og rúm sem áhrifamiklir þættir sög- unnar. Við gerum okkur ekki ánægða með að nema staðar við það, sem náðst hefur. Við verðum að koma sameiginlegum niður- stöðum og álitsgerðum í fram- kvæmd og sjá til þess, að þróun þessarra mála haldi áfram." (Úr gerðum 7. þings LH) Þegar Kristur biður fyrir ein- ingu lærisveinanna, þá segir hann: „Ég bið.. að allir séu þeir eitt, eins og þú, faðir, ert í mér og ég í þér, svo séu þeir einnig í okkur, til þess að heimurinn trúi, að þú hef- ur sent mig.“ (Jóh. 17:20—21.) Við tökum eftir að Jesús biður um að Um verslunarmannahelgina stendur Landssamband KFUM og KFUK fyrir kristilegu unglinga- móti í Vatnaskógi, sumarbúðum KFUM í Reykjavík. Vatnaskógur er í Svínadal í Borgarfjarðarsýslu og tekur það um eina og hálfa klukkustund að aka þangað úr Keykjavík. Á dagskrá mótsins verður m.a. Jane Fonda-leikfimi, fótbolti, koddaslagur á rá úti á vatni, hæfileikakeppni, alls kyns þraut- ir, reiptog, fjallgöngur, burtróð- Pétur Sigurgeirsson biskup „AÖ leita sannleikans og bera viröingu fyrir skoöunum annarra, er rétta leiöin í einingar- starfi hinnar kristnu kirkju.“ þeir séu eitt, ekki að þeir séu eins. Við vitum að lærisveinarnir voru ólíkir á margan hátt, en áttu þrátt fyrir það að vera ein hjörð: „Og það verður ein hjörð, einn hirðir." (Jóh.10:16.) ur og ýmsir aðrir leikir bæði á þurru og í vatni, að ógleymdum kvöldvökum, þar sem endað verð- ur með hugleiðingu úr Guðs orði. Mótsgjald er kr. 300.- Innifalið í því eru bátar, tjaldstæði og öll hreinlætisaðstaða. Þeir sem vilja fá keyptan mat eða vilja sofa innan dyra þurfa að láta vita á skrifstofu KFUM og KFUK að Amtmannsstíg 2b. Að öðru leyti þurfa menn ekki að láta skrá sig. Sætaferðir verða frá BSÍ föstu- daginn 2. ágúst kl. 19.00 (7.00). Það er markmið samkirkju- hreyfingarinnar að fylgja eftir þessum orðum Jesú, þó vitað sé, að kirkjudeildirnar eru ekki eins frekar en lærisveinarnir. Þess vegna var jafn eðlilegt, að fram kæmu athugasemdir við um- rædda skýrslu, eins og það er ein- dreginn vilji prestanna að fagna samkirkjuhreyfingunni og lýsa yf- ir stuðningi sínum við þá hreyf- ingu. Það var þetta, sem Presta- stefna fslands 1985 gerði. Starfandi er samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á íslandi, þar sem þjóðkirkjan og kaþólska kirkjan eru í samstarfi með öðrum trúfélögum, og hefir nefndin átt góðu heilli ánægjulegt samstarf um alþjóðlega bænaviku í janúar ár hvert. Ég treysti því einnig, að um- fjöllun nefndarinnar um Lima- skýrsluna fari á sama veg. Að leita sannleikans og bera virðingu fyrir skoðunum annarra, er rétta leiðin í einingarstarfi hinnar kristnu kirkju. „Einn er Drottinn, ein trú, éin skírn, einn Guð og fað- ir allra, sem er ýfir öllum, með öllum og í öllum.“ (Ef. 4:5.) Um leið og við trúum og játum með passíusálmaskáldinu: Jesú, þín kristni kýs þig nú kóngur hennar einn heitir þú Þá erum við í reynd hjörð hins góða hirðis, hvað sem kirkjan okkar eða kirkjudeildin kann að heita. Höíundur er biskup íslands. Áfengi og önnur vímuefni eru stranglega bönnuð á svæðinu. Þess skal getið að félagar úr Kristilegum skólasamtökum (KSS) verða virkir þátttakendur í mótinu. Allir krakkar 13 ára og eldri eru velkomnir í Vatnaskóg um verslunarmannahelgina til þess að kynnast hressilegum jafnöldr- um og síðast en ekki síst að kynnast frelsara okkar mann- anna, Jesú Kristi. (FrétUtilkynning.) Verslimarmannahelgin: Kristilegt mót í Vatnaskógi OMRON AFGREIÐSLUKASSAR Minni fyrirhöfn-meiri yfirsyn Við höfum að staðaldri yfir 10 mismunandi gerðir af Omron afgreiðslukössum á lager. Allt frá einföldum kössum upp í stórar kassasamstæður. Omron afgreiðslukassarnir stuðla að aukinni hag- kvæmni og öryggi í viðskiptum. Þeir búa yfir stækkunarmöguleikum og sjálfvirkri tölvuútskrift sem skapar meiri yfirsýn og stuðlar að markvissari og betri rekstri. OMRON SÉRTILBOÐ Nú bjóðum við OMRON afgreiðslukassa á einstöku tilboðsverði: * sex vöruflokka: kr. 17.900 SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hverfisgðtu 33 - Sími 20560 Pósthólf 377 Omi»" »’* atvöruve'í'a aar. y Sétvers\a"«sundlaugar - ate vcltlngahus' „

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.