Morgunblaðið - 30.07.1985, Side 18

Morgunblaðið - 30.07.1985, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985 lögum nr. 25 og nr. 59 frá 1954 veiti sveitarstjórnum rétt til að leggja þessa ábyrgð á húseigend- ur. Skattamisrétti vá- tryggingarfélaga Þegar einkaréttur Brunabótafé- lagsins á húsatryggingum var af- numinn tók félagið upp alhliða vátryggingarstarfsemi, (1955), og hefur ekki verið gert að greiða tekju- og eignarskatt allan þennan tíma, enda þótt engin ákvæði séu í lögum um skattfrelsi þess. Að jafna ágóðahluta til sveitar- stjórna við tekju- og eignarskatts- greiðslu eins og forstjóri Bruna- bótafélgsins gerir, er ekki rökrétt að minu mati. Frekar má líta á það sem aukaskatt á húseigendur, hinna vátryggðu, eins og fram er komið hér að framan. Ákvæði um ágóðahluta til hinna vátryggðu er í mörgum vátryggingarsamning- um og væntanlega hjá flestum tryggingafélögum, ef ekki öllum, en þau greiða eftir sem áður tekju- og eignarskatt. ’í lögum um bátaábyrgðarfélög og í lögum um Samábyrgð íslands á fiskiskipum eru bein ákvæði um undanþágu frá tekju- og eignar- skatti. Þetta kann að hafa verið réttlætanlegt, þegar starfsemi þessara félaga var takmörkuð við skyldutryggingu fiskiskipa undir 100 rúmlestum. Nú reka þessi fé- lög alhiiða vátryggingarstarfsemi hvað snertir útgerð fiskiskipa og það í samkeppni við önnur félög en njóta enn skattfrelsis. Auk þessa eru vátryggingarskírteini, sem fé- lögin gefa út, stimpilsgjaldsfrjáls. í lögum fslenskrar endurtrygg- ingar eru ákvæði um, að félagið sé undanþegið tekju- og eignarskatti. Eins og áður er fram komið, er hagnaður vátryggingarfélags, þ.m.t. Húsatrygginga Reykjavík- ur, vegna samnings um bruna- tryggingar húsa við sveitarstjórn undanþeginn tekjuskatti. Ég er þeirrar skoðunar, að allar framangreindar skattaundanþág- ur eigi að afnema úr lögum, því nú finnast engin rök fyrir þeim jafn- framt því sem í þeim felst óþol- andi misrétti milli vátryggingar- félaga. Höfundur er forstjóri Tryggingar- miðstöðrarianar bf. vera ákvæði „um ábyrgð vátrygg- ingartaka á skuldbindingum fé- lagsins." Af þessu leiða skyldur húseigenda sem eru víðtækari en það eitt, að standa skil á umsömdu iðgjaldi. í mínum huga vaknar sú spurning hvort heimildir samkv. Bókaflokkur um ræktun pottaplantna BÓKAÚTGÁFAN Vaka hefur gefið út bókina „Svona dafna blómin best“, en það er fyrsta bókin í flokki um ræktun pottaplantna sem forlagið hefur ákveðið að gefa út. Bókin „Svona dafna blómin best“ er aðgengileg handbók með ráðleggingum um grundvallaratriði blómaræktar og eru litmyndir á hverri síðu bókarinnar. Hún er 64 síður, innbundin og plasthúðuð. Fríða Björnsdóttir hefur þýtt bók- ina og staðfært miðað við íslenskar aðstæður, en bókin er sænsk að uppruna. Samheiti bókaflokksins er Allt um inniplöntur. Gefur það til kynna að víða verði komið við á þessu sviði og fjölbreytni efnis- ins verði mikil. Vaka hefur þegar gert samninga um útgáfu átta bóka í þessum flokki, tvær þeirra fjalla um ræktun inniplantna al- mennt, umhirðu þeirra og með- ferð, tvær bókanna eru ítarlegar kynningar- og ráðgjafarbækur um blaðpiöntur eða svokallaðar grænar plöntur, þrjár bækur fjalla um blómstrandi plöntur af ýmsum gerðum og ein um blóma- skreytingar af ýmsu tagi. Blómabækurnar verða ein- göngu boðnar innan vébanda Blómaklúbbsins, sem er nýstofn- aður fræðslu- og ræktunarklúbb- ur fyrir áhugafólk um blóma- rækt. Með slíkri klúbbsölu er ætlunin að ná upplagi bókanna verulega upp fyrir það, sem al- gengt er á almennum markaði, en það gerir bókaútgáfunni kleift að halda verði þeirra í algeru lágmarki. Hver bók verður seld á 298 krónur og fylgir ókeypis með henni fréttablað Blómaklúbbsins og poki með fræjum til ræktunar á vinsælli pottaplöntu. Fyrsta bókin í bókaflokknum býðst aft- ur á móti á sérstökum kynn- ingarafslætti sem nemur um 50% af venjulegu klúbbverði og kostar þá umræddur pakki að- eins 148 krónur auk sendingar- kostnaðar. Prentsmiðjan Rún sf. annaðist setningu og umbrot bókarinnar Svona dafna blómin best, en prentun og bókband fór fram í Hollandi. Brunatryggingar húsa og skattalegt misrétti — eftir Gísla Ólafsson Nokkur skrif hafa átt sér stað um brunatryggingar húseigna og skattalegt misrétti milli vátrygg- ingarfélaga, síðast grein Inga R. Helgasonar forstjóra Brunabóta- félags íslands. Af því tilefni leyfi ég mér að leggja nokkur orð í belg. Stofnun Brunabótafélags ís- lands 1915 var einn þáttur í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar, þ.e. að taka brunatryggingar hús- eigna inn í landið. BI var gefinn einkaréttur til þessara vátrygg- inga. Jafnframt voru þær lögskip- aðar og félagið undanþegiö tekju- og eignaskatti Ég efast ekki um að þessar ráðstarfanir voru nauð- synlegar á sínum tfma til að ná þeim tilgangi, sem að var stefnt. Aðstæður breytast á styttri tima en 70 árum, en þær skulu ekki raktar hér. Meginatriðin í umræðunni eru tvö, annars vegar heimild sveitar- stjórna til að semja við eitt (eða fleiri) vátryggingarfélög um brunatryggingar húseigna innan síns sveitarfélags og hinsvegar skattalegt misrétti milli vátrygg- ingarfélaga eftir rekstrarformi þeirra. Brunatryggingar húseigna Með lögum nr. 59/1954 er sveit- arstjórnum utan Reykjavíkur veitt heimild til að semja við eitt (eða fleiri) vátryggingarfélög um brunatryggingar húsa. Hagnaður vátryggingarfélags af slíkum samningi er undanþeginn tekju- skatti skv. sömu lögum. Vegna einkaréttar Brunabótafélagsins í 40 ár þar á undan hafði félagið algjöra sérstöðu, þegar breyting þessi var gerð. Menn hafa mismunandi skoðun á því, hvort rétt er, að sveitar- stjórnir hafi þessa heimild. Reykjavíkurborg hefur sérstöðu, því auk framangreindar heimild- ar, hefur borgarstjórn heimild til að reka sitt eigið tryggingarfélag, sbr. lög nr. 25/1954 og hefur borg- arstjórn rekið Húsatryggingar Reykjavíkur allt frá þeim tíma. Þeir, sem telja rétt, að sveitar- stjórnir hafi þessa heimild, segja að með því fáist hagstæðustu kjör fyrir húseigendur, jafnframt því, að sveitarstjórn geti fengið lána- fyrirgreiðslu og ágóðahluta, sem hvort tveggja er nýtt til bruna- varnastarfsemi. Hagnaður Húsa- trygginga Reykjavíkur er notaður í sama tilgangi. Um hagstæðustu kjör fyrir hús- eigendur liggur ekkert fyrir því á það hefur ekki enn reynt. Hins- vegar skapar þessi heimild sveit- arstjórnum möguleika á tekjum, sem ekki er gert ráð fyrir I lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Að réttlæta þessa heimild með því, að þær tekjur eða fyrir- greiðsla, sem sveitarstjórn hafi af henni renni til brunavarna er vægast sagt ósanngjörn. Með þessu er einungis verið að skatt- leggja húseigendur sérstaklega. Menn verða að hafa í huga að í hverju sveitarfélagi eru mikil verðmæti í vélum, tækjum, vöru- birgðum, búslóðum o.fl. sem al- mennar brunavarnir sveitarfélags eiga að þjóna engu síður en hags- munum húseigenda. Fáum eða engum dettur í hug að skattleggja brunaiðgjöld af þessum verðmæt- um, þó ekki væri nema af þeirri einu ástæðu að þeir, sem ekki sýna þá fyrirhyggju að brunatryggja eignir sínar, slyppu við skattinn, en nytu eftir sem áður þjónust- unnar. Allar sveitarstjórnir utan Reykjavíkur brunatryggja hús- eignir hjá gagnkvæmu vátrygg- ingarfélagi, Brunabótafélaginu eða Samvinnutryggingum. í lög- um nr. 50/1978 um vátryggingar- starfsemi segir: „Hver sá, sem tryggir hjá gagnkvæmu vátrygg- ingarfélagi, er sameigandi þess.“ 1 samþykktum slíks félags skulu Gísli Ólafsson „Þegar einkaréttur Brunabótafélagsins á húsatryggingum var af- numinn tók félagid upp alhliða vátryggingar- starfsemi (1955) og hef- ur ekki verið gert að greiða tekju- og eign- arskatt allan þennan tíma, enda þótt engin ákvæði séu í lögum um skattfrelsi þess.“ sumarleyfisstaður viðbæjardymar Það er engin tilviljun að mörg félaga- samtök hafa valið Hótel Borgarnes sem funda- og ráöstefnustaö. Borgarnes er I þjóðbraut, hæfilega langt frá ys og skarkala Stór-Reykja- vlkursvæðisins. Bæjarstæðið er sérkennilegt og fag- urt, en umfram allt friðsælt. Upp af Borgarnesi teygir sig hið sögu- fræga Borgarfjaröarhérað og býður upp á ótal möguleika til útivistar og skoöanaferöa. Fólk sem vill leita friðsældarog næðis án þess að leggja á sig langt feröalag gistir Hótel Borgarnes. Það færist og I vöxt að laxveiöimenn sem veióa I ám Borgarfjarðar hafi þar aósetur svo og rjúpnaskyttur á haustin. í Hótel Borgarnesi eru 36 herbergi, þar af 20 með baöi. Morgunveróur er fram- reiddur I kaffiterfu. Veitingasalir fyrir ráðstefnur, dansleiki og veislur eru I hótelinu, fyrir allt að 300 manns. Hótel Borgarnes leggur áherslu á alúð- legt viðmót og góða þjónustu og reyniraó koma til móts við óskir hvers og eins. rearncs slmi 93-7119 & 7219 (FrélUtilkjnning)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.