Morgunblaðið - 30.07.1985, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 30. JÚLl 1985
Ánægja með Þör-
ungavinnsluna
Miðhúsum, 21. júlí.
Aðalfundur sýslunefndar
Austur-Barðastrandarsýslu var
haldinn í hótel Bjarkalundi dag-
ana 17. og 18. júlí. Ýmsar sam-
þykktir voru gerðar og má þar til
greina:
Þörungavinnslan: Sýslunefndin
lýsir yfir ánægju með þá af-
greiðslu sem mál þörungavinnsl-
unnar hefur fengið hjá iðnaðar-
ráðherra og Alþingi. Afar mikil-
vægt er að starfsemi fyrirtækisins
haldi áfram fyrir byggðalögin frá
Hvammsfirði og vestur á Barða-
strönd.
Hringormanefnd og selveidi:
Sýslunefnd fjallaði um frumvarp
að lögum um selveiði og vísar í því
tilfelli til fyrri samþykkta nefnd-
arinnar, en þar er aðferðum
Hringormanefndar ákveðið mót-
mælt og færð fyrir því haldgóð
rök.
Um sveitarstjórnarmál: Aðal-
fundur Sýslunefndar Austur-
Barðastrandarsýslu 1985 hefur
farið yfir frumvarp til sveitar-
stjórnarlaga og hefur nefndin
komist að þeirri niðurstöðu að þar
megi finna ýmislegt til bóta, en
ekki nógu mikið til þess að rétt-
lætanlegt sé að gera þetta frum-
varp að lögum.
Nefndin beinir því til félags-
málaráðherra, að hann skipi nýja
nefnd með það fyrir augum að hún
taki meira mið af aðstæðum dreif-
býlisfólks.
Nefndin telur æskilegt að fjórð-
ungssamböndin eigi þar sína full-
trúa og Sýslumannafélag tslands
eigi þar fulltrúa. Félagsmála-
ráðherra skipi nefndinni formann.
Breiðafjaröarferja: Sýslunefnd
A-Barð. fagnar því að hreyfing er
komin aftur á smíði Breiðafjarð-
arferju, þar sem hún hlýtur að
teljast eðlilegur liður í framtíð-
arsamgöngum á milli Vestfjarða
og annarra landshluta.
Markaskrá: Sýslunefnd A-Barð.,
ályktar að gefin verði út ein
markaskrá fyrir alla Vestfirði og
um leið verði sammerkingum út-
rýmt á milli svæða þar.
Fjárveitingar: Ýmsar fjárveit-
ingar voru til menningarmála og
eins og gefur að skilja í minnsta
sýslufélagi landsins þá eru fjár-
hæðir ekki stórar á landsmæli-
kvarða. Sýslan veitti 75 þúsund
krónum til Dvalarheimilisins á
Reykhólum og 10 þúsund krónum
til Byggðasafnsins á Reykhólum.
Byggðasafnsnefnd er nú að vinna
að því að safna saman munum og
hefur Magnús Gestsson safnvörð-
ur á Laugum í Dalasýslu verið þar
mikil hjálparhella. Formaður
Byggðasafnsnefndar er Guðlaug
Guðmundsdóttir símstjóri í
Króksfjarðarnesi. Sýslan á hluta-
fé í Gesti hf. en það rekur hótel
Bjarkalund. Meirihlutann á Kaup-
félag Króksfjarðar. í vetur voru
gerðar miklar endurbætur á
vinnuaðstöðu starfsfólks. Hótel-
_____________________________21_
stjóri er nú í sumar Reynir Rein-
hard Reynisson.
Þetta er síðasti aðalfundur sem
þessi sýslunefnd heldur og ef svo
illa vildi til að frumvarpið um
sveitarstjórnarmál yrði að lögum
óbreytt, þá munu sýslunefndir
hverfa en samsvarandi nefndir
settar á stofn með öðru nafni, sem
er með öllu óskiljanlegt nema að
sýslumannastéttin fari svo í taug-
arnar á þeim sem sömdu frum-
varpið að orðið sýsla verði að víkja
og héraðsnefnd að koma í staðinn.
Sýslumenn eiga ekki sæti í hinum
væntanlegu héraðsnefndum, en þó
munu þeir eiga að sjá um bókhald-
ið. Hinum almenna kjósanda er
ekki lengur treyst fyrir því að
velja sér sýslunefndarmann (hér-
aðsþingmann) og fer það yfir á
valdsvið hreppsnefnda að kjósa
héraðsþingmanninn. Lýðræðislegt _
val fólks er því þrengt.
- Sv. G.
Úvalsfeiúir 1} rir
wskna og músetta
til Daun Eifei og Mallorca
Feröaskrifstofan Úrval viö Austurvöll, sími 26900.
Brottfarir 15. og 29. september,
Innifaliö er flug til Luxemborgar og heim.
Akstur milli Daun og Luxemborgar. Gisting
meö morgunveröi í 2 vikur og örugg
fararstjórn.
Hægt er aö kaupa kvöldverö fyrir alla
dagana í einum pakka.
Verðiö er afar hagstætt:'Aðeins kr. 3.700,-
fyrir 13 kvöldveröi.
Maliorca
3ja vikna sólarferð 11. september með
gistingu á nýju stórglæsilegu íbúðarhóteli,
Alcudia Park, sem er staðsett á ströndinni.
Á þessum tíma eru allar aðstæður ákjósan-
legar á Mallorca, veður milt, ströndin hrein
og sjórinn tær.
Aðbúnaður á Alcudia-hótelinu er frábær.
Herbergi eru rúmgóð og mjög smekklega
innréttuð. Önnur aðstaða er til fyrir-
myndar, svo sem inni- og útisundlaug,
sólbaðsaðstaða, góðir veitingastaðir og
einnig er boðið upp á fjölmargar skoðunar-
ferðir.
Fararstjóri er Valdís Blöndal og Kristín
hjúkrunarkona verður einnig með hópnum.
Ferðaskrifstofan Crval býður upp á
sérstakar sumarleyfisferðir fyrir roskna og
ráðsetta til Mallorca og sumarhúsanna
í Daun Eifel. Ferðirnar eru skipulagðar
með það í huga að ferðalangarnir þurfi sem
minnst að hafa fyrir hlutunum og þeim til
halds og trausts verða þrautreyndir
íslenskir fararstjórar.
Daun Eifel
Úrval býður nú rosknum og ráðsettum
2ia vikna ferðir til hinna 'glæsilegu sumar-
húsa í Daun Eifel. Flogið er til Luxem-
borgar (aðeins 3ja tíma flug), þar tekur
fararstjóri Úrvals, Elísa Þorsteinsdóttir, við
og fylgir hópnum til Daun. I Daun Eifel er
aðbúnaður eins og best verður á kosið.
íbúðirnar eru mjög vistlegar með góðum
baðherbergjum og svölum eða verönd.
Boðiö verður upp á skoðunarferðir til eftir-
taldra staða, sem Úrval hefur gert mjög
hagstæðan samning um: Dagsferðir til
Kölnar, skemmtigarösins Fantasíulands,
Burg Eltz, Bernkastel Kues og siglingu á
Mósel. Hálfdagsferðir til Trier og Hirsch
und Saupark dýragarðsins.
Allar ferðirnar eru seldar í einum pakka
fyrir aðeins kr. 2.700,-. En þú þarft ekki að
vera á stöðugum þeytingi því að í Daun
leiðist engum. Umhverfi sumarhúsanna er
ákaflega fagurt. Lítil vötn setja svip sinn á
landið og þar synda gestir gjarnan eða
sóla sig. Við sumarhúsin sjálf er glæsileg
þjónustumiðstöð með snyrtistofu, bjórstofu,
sundlaug og alls konar afþreyingu.
Úrvals-verð (pr. mann):
6 í 3ja svefnherbergja húsi kr. 16.400,-
4 í 2ja svefnherbergja húsi kr. 17.500,-
2 í stúdíóíbúð kr. 18.400,-
FERMSKRIFSrOHN ÚRVAL
Verð pr. manm
4 í íbúð kr. 30.990,-
3 ííbúö kr. 32.790,
2 í stúdíóíbúð kr. 33.530,-
Innifalið er flug, akstur milli flugvallar og
hótels, gisting með hálfu fæði og traust
fararstjórn.
OOTT FÖLK