Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.07.1985, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985 41 Grétar G. Hafsteins- son framleiðslu- meistari - Minning Fæddur 7. nóvember 1937 Dáinn 23. júlí 1985 Mig langar i fáum orðum að minnast mágs míns, Grétars Haf- steinssonar, sem lést á heimili sínu 23. júlí sl. Grétar fæddist í Reykjavík 7. nóvember 1937, sonur hjónanna Hafsteins Björnssonar bókara og Ingibjargar Guðmunds- dóttur. Hann var næstelstur af fjórum börnum þeirra hjóna. Ungur að árum réðst Grétar á ms. Gullfoss sem ungþjónn og starfaði þar um tveggja ára skeið. Mun þá hafa vaknað áhugi fyrir því starfi sem síðan varð ævistarf hans. Árið 1954 hóf Grétar nám í framreiðslustörfum á veitinga- húsinu Nausti, sem þá var ný- stofnað, og lauk námi sinu árið 1957. Mér er kunnugt um að í þessu starfi hafi hann verið vel látinn, enda skap hans vel til fall- ið. Grétar var glaðlyndur, hjálp- samur og ósérhlífinn. Ég er einn af þeim sem fengu að kynnast þessum eiginleikum hans er ég dvaldi á heimili Grétars og systur minnar um lengri eða skemmri tíma. Alltaf var hann til- búinn að rétta hjálparhönd og greiða úr hinum ýmsu málum. Grétar hefur unnið við fram- reiðslustörf nær alla sína starfs- ævi, utan nokkur ár við verslunar- störf. Nú síðast var hann rekstrar- stjóri á veitingahúsinu Rán við Skólavörðustíg. Hann var þrek- mikill og heilsuhraustur alla tíð, þess vegna kom okkur öllum á óvart sá sjúkdómur sem lagði hann að velli langt um aldur fram, aðeins 47 ára að aldri. Grétar var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Helga Jóhannsdótt- ir. Með henni eignaðist hann eina dóttur, Karen, fædd 23. apríl 1958. Þau slitu samvistir. Þann 15. des- ember 1962 kvæntist hann systur minni, Ragnheiði Guðnadóttur frá Moshvoli, Rangárvallasýslu. Böm þeirra eru: Guðni Hrafn, fæddur 13. mars 1969, Hafsteinn Hrafn, fæddur 3. apríl 1973, og Guðlaug Ingibjörg, fædd 7. mars 1974. Fyrir tíu árum réðust þau í að byggja sér einbýlishús að Vestur- bergi 15. Þar fóru saman dugnað- ur og smekkvísi þeirra beggja, hvort sem var innanhúss eða í garðinum, sem þau voru búin að leggja svo mikla vinnu í og einmitt nú skartar sínu fegursta. En eng- inn veit hvenær kallið kemur. Mitt á sólríkum sumardögum er hann hrifinn brott frá fjölskyldu og vin- um. Elsku Ragnheiður, ég veit að söknuður þinn og barnanna er sár- astur, en við eigum öll kærar minningar um góðan dreng. Ég bið Guð að styrkja ykkur og blessa, svo og foreldra Grétars, systkini hans, tengdaforeldra og aðra ástvini. Eg og fjölskylda min óskum honum góðrar ferðar til þeirra heima þar sem við vitum að vel hefur verið tekið á móti hon- um. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi. hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt." (V. Briem) Gunnar Guðnason í dag er kvaddur hinstu kveðju frá Fossvogskapellu vinur okkar, Grétar G. Hafsteinsson fram- reiðslumeistari, en hann lést 23. júlí síðastliðinn, langt um aldur fram, aðeins 47 ára gamall. Grétar hafði nokkru áður kennt sér meins af þeim sjúkdómi, sem leiddi hann til dauða. Grétar Hafsteinsson fæddist 7. október 1937, sonur hjónanna Hafsteins Björnssonar og Ingi- bjargar Guðmundsdóttur. Grétar lætur eftir sig eiginkonu, Ragn- heiði Guðnadóttur, og fjögur börn, Guðna Hrafn, 16 ára, Hafstein Hrafn 12 ára, og Guðlaugu Ingi- björgu, 11 ára, og frá fyrra hjóna- bandi sínu Karen, 27 ára og tveggja barna móður. Grétar kynntist eftirlifandi konu sinni, Ragnheiði, í Naustinu og voru þau gefin saman í desem- ber 1962. Hann hóf framreiðslu- nám í Naustinu þegar það var opnað fyrir rúmum þremur ára- tugum. Grétar starfaði í Naustinu í samfellt 10 ár, til ársins 1964. Þá hóf hann störf hjá Véltækni og var þar í 4 ár. Árið 1968 keyptu þau hjónin tóbaks- og sælgætis- verslun á Laugavegi 92 og ráku i 2 ár. Grétar hóf að nýju framreiðslu- stórf árið 1970 þegar hann réðst til starfa á Hótel Holti. Tveimur árum síðar hóf hann störf á Grill- inu og var þar næstu sjö árin að hann hóf verslunarstörf á ný, þá í Hagabúðinni. í mars 1983, tæpum þremur ára- tugum eftir að hafa hafið fram- reiðslunám, réðst Grétar á ný til Naustsins. Þegar við hjónin ásamt Sigurði Hrafni keyptum verslun í Barmahlíð fyrir rúmu ári lá beint við að Grétar tæki að sér stjórn verslunarinnar vegna víðtækrar þekkingar og reynslu, en jafn- framt starfaði hann um helgar í Naustinu. f ágúst í fyrra tók Grétar svo að sér veitingastjórn á veitingahús- inu Rán, sem við rekum. Þar eins og ávallt rækti Grétar starf sitt af stakri prýði. Hann var sannur vin- ur og traustur starfsmaður; mað- ur sem ávallt var hægt að reiða sig á. Grétar réð ávallt um heilt þegar vanda bar að höndum og til hans var gott að leita. Hann lagði hart að sér til að tryggja hag fyrirtækj- anna og bar umhyggju gesta ávallt fyrir brjósti. Með Grétari er fallinn frá einn okkar færasti framreiðslumaður, ötull og vandvirkur. Hans verður sárt saknað en minning um góðan dreng lifir. Við vottum eiginkonu, börnum, barnabörnum og foreldr- um okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur öll í fram- tíðinni. Ómar Hallsson og Ruth Ragnarsdóttir. Kveðja: Hjörtur Nielsen Fæddur 16. aprfl 1898 Dáinn 25. júlí 1985 Ekki man ég hvort það voru átj- án eða tuttugu ár, sem Hjörtur Nielsen mætti samfleytt á öllum fundum Lionsklúbbs Reykjavíkur, en þeir eru haldnir tvisvar í mán- uði meginpart ársins. Ekki gat þar verið um neitt „met“ hjá honum að ræða, því hann var meðal allra elstu Lionsfélaganna og má því segja að hann hafi jafnan verið að slá sitt eigið met ár eftir ár. Öll árin er hann var starfandi Lionsmaður var hann „stallari", sem er virðingarstaða innan Lionshreyfingarinnar. Þeir eru fá- ir hér á landi, sem lagt hafa ís- lensku Lionshreyfingunni jafn fágætt lið og Hjörtur Nielsen. Hér skal aðeins minnt á blindrastaf- ina, sem um þær mundir voru nýir hér á landi og fengnir voru blind- um í hendi af hálfu Lionsmanna. Hjörtur hafði verið Lionsmaður í nær 34 ár er hann lést hér í borg 21. júlí síðastliðinn (f. 16. apríl 1898). Faðir hans var Sophus Jörge Nielsen frá ísafirði. Hjörtur lærði matreiðslu í Kaupmannahöfn, var bryti hjá Eimskip á fyrstu árum félagsins, rak um skeið Hótel Vífil við Aust- urstræti. Kunnastur var hann sem yfirþjónn á Hótel Borg. Þau árin þekkti þorri borgarbúa yfirþjón- inn vinsæla, Hjört á Hótel Borg. Síðustu árin rak Hjörtur kúnstverslun í Templarasundi. Segja má að tíminn líði hratt, er Hjörtur er kvaddur, 87 ára gam- all. Jafnan var hann kunnur mað- ur í „borgar“lífinu, vinsæll og gerði allt vel, sem hann tók sér fyrir hendur. Eiginkona Hjartar, Marzelina, lést árið 1969. Lionsmenn kveðja hér gamlan vin. Pétur Ólafsson + Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, BJÖRNS SVEINBJÖRNSSONAR, verkfrnöinga, Sunnuflöt 6, Garöabae, fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 1. ágúst nk. kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaöir, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á styrktar- og líknarsjóö Oddfetlow. Guölaug Björnsdóttir, Nanna T. Björnsdóttir, Stephen Kaye, Ólöf G. Björnsdóttir, Vigfús Árnason, Sveinbjörn E. Björnsson, Ase Gunn Guttormsen, Helga L. Björnsdóttir, Tryggvi Agnarsson, Guörún Þ. Björnsdóttir, Halldór Reynisson og barnabörn. Lovísa Jóns- dóttir - Minning Fædd 3. ágúst 1890 Dáin 24. júlí 1985 I dag fer fram minningarathöfn um Lovísu Jónsdóttur frá Hrísey. Það vekur ekki mikla athygli þó gömul kona kveðji þetta líf. Það skilja fáir, sem lifa góðu lífi í dag, hvað þessi kynslóð sem fæddist fyrir aldamót þurfti að stríða við, svo hafa breytingarnar verið miklar. Ég man þann dag vel er ég leit Lovísu í fyrsta sinn, þessa hæg- látu, prúðu konu. Það var opinn faðmur og ætíð síðan. Lovísa fæddist á Selá, Árskógs- strönd. Hún giftist ung Áskeli Þorkelssyni, sem dó fyrir tuttugu og fjórum árum. Þau bjuggu Iengst af í Hrísey. Þau eignuðust 12 börn, 6 þeirra dóu kornung. Hún varð svo fyrir þeirri sáru sorg að missa dóttur sína á besta aldri og manninn sinn ári seinna. Ég vil með þessum fáeinu línum þakka, þakka fyrir að hafa kynnst þessum hjónum og læra það sem ég fann hjá þeim. Lovísa var hlynnt svokölluðum andlegum málum og hjá henni fann ég bækurnar „Bréf Ingu“, enda mágur hennar sem gaf þær út, hafa þær verið mér leiðarljós æ síðan. Ég bið góðan Guð að lýsa henni og leiða áfram veginn. Ég veit að heimkoman hefur verið henni góð. Hún verður flutt til Hríseyjar og jörðuð þar við hlið mannsins síns. Ég veit að Eyjafjörður mun skarta sínu fegursta þennan dag, eins og ég leit hann fegurstan frá Hrísey. Guð blessi minningu Lov- ísu. Af eilífðar ljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir, vort líf sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Með samúðarkveðju til aðstand- enda. BJ.G. t Móöir okkar, K ARÓLÍNA MARGRÉT HAFLIOADÓTTIR, sem lést 26. júlí, veröur jarösungin frá Hafnarfjaröarkirkju miöviku- daginn 31. júli kl. 13.30. Halldóra Skúladóttir, Vilhjálmur G. Skúlason. + Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur, tengdafööur og afa, ÁSGRÍMS ÁSGEIRSSONAR, stýrimanns. Ólöf Helga Benónýsdóttir, Benóný Ásgrímsson, Elísabet Bergstað, Ásta Ásgrímsdóttir, Júlíus Elliöason, og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér samúö og vinarhug viö andlát og útför bróöur mins, RÚTS HANSSONAR, og vottuöu minningu hans viröingu. Þórlaug Hansdóttir, Hverfisgötu 13. + Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför ÞORSTEINS BENEDIKTS HELGASONAR, Grettisgötu 6A. Elín Helgadóttir, Sigríöur Helgadóttir, Andrea Helgadóttir, Guörún Helgadóttir, Anna María Helgadóttir. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.