Morgunblaðið - 30.07.1985, Síða 46

Morgunblaðið - 30.07.1985, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985 „ Hann gleymir cxlltciF nafninu sinu." M að prjóna handa honum yolf-yrifflur TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved • 1978 Los Angeles Tlmes Syndlcate Við skulum láta hvítingjana halda að það sé mjög hollt að anda að sér reyknum frá tóbaksblöðunum. Með morgunkaffinu vinnustaðnum held ég að frekar sé um að ræða hár, en að það sé köngulóarvef- ur! HÖGNI HREKKVÍSI Maður líttu þér nær Gabríel skrifar: Höfum við íslendingar ekki byrjað á öfugum enda, rétt einu sinni? Öll þau mál, sem að sjúkum lúta, eru í slíkum ólestri að með ólíkindum er og þjóðinni til stór- skammar. Hjálparstofnun kirkjunnar stendur nú fyrir enn einni stór- söfnun vegna þurfandi fólks í Eþíópíu. Er í sjálfu sér ekkert nema gott um það að segja, „ef“ við þyrftum ekki að horfast í augu við þá staðreynd, að mörgum deildum sjúkrahúsanna í landinu hefur verið lokað og margur sjúkl- ingurinn sendur heim, vegna skorts á hjúkrunarfræðingum. Á meðan standa hjúkrunarfræð- ingarnir nánast í biðröðum til þess að komast til hjálparstarfs- ins í Eþíópíu, og það „mjög færir hjúkrunarfræðingar", eins og einn af forsvarsmönnum Hjálparstofn- unarinnar sagði í viðtali á rás 2 nú fyrir skömmu. Hvað erum við íslendingar að hugsa? Erum við að vinna okkur inn nokkur prik á alþjóðavettvangi á kostnað fólksins okkar? Til hvers eiginlega er Hjálpar- stofnun kirkjunnar? Vinnur hún aðeins á þeim vett- vangi að hjálpa fólki erlendis? Væri okkur ekki nær að byggja upp í okkar litla landi þann grundvöll að heilbrigðisstéttirnar gætu vel við unað og gert að virki- lega eftirsóttum starfsvettvangi. Þetta fólk er búið að leggja á sig langt og strangt nám og er það okkur til stórskammar að borga því svo lág laun að það nánast hrekst í burtu. Hjálparstofnunin virðist geta borgað þessu fólki það vel, að greinilega er mjög eftirsótt að komast til hjálparstarfsins. Flest þau tæki sem ættu að vera „sjálfsögð" á hverju sjúkrahúsi hafa Lyons-menn, Kiwanis eða önnur líknarfélög gefið. Þeir hafa unnið gott og óeigingjarnt starf en samt vantar mikið á. Er hér ekki „stórt verkefni" sem Hjálparstofnun kirkjunnar ætti fyrst af öllu aó leggja lið? Er það ekki einmitt hér, sem Hjálparstofnunin ætti að byrja? Illa farið með almannafé l>orleifur Kr. Guðlaugsson skrif- ar: Heiðraði Velvakandi. Ég vildi segja nokkur orð um fiskeldisölduna sem gengur yfir landið. Mikill áróður er nú fyrir fisk- eldi, miklu fé veitt til þeirrar at- vinnugreinar frá ríkinu. Mér finnst að fá orð séu höfð um þau gífurlegu skakkaföll sem hafa orð- ið í þessu verkefni og lítið lagt til að fiskræktin gangi áfallalaust. Hundruð milljóna króna tjón hefur orðið, svo sem þegar þús- undir silungsseiða drápust og þús- undir laxa. Aftur á móti munu menn ekki svo sárir yfir tapinu vegna þess að hagnaðurinn er mikill þegar vel tekst til. Allir vita að tilgangslaust er að stofna fyrirtæki sem ekki skilar hagnaði og þar af leiöandi ekki skattfært, en ríkisfyrirtæki geta þetta með því að skella skuldinni á almenning í bókstaflegum skiln- ingi. Þá er komið að því hvort sá hugsunarháttur sé farinn að ríkja, að nú borgi sig best að láta ríkið styðja allan atvinnurekstur, þar sem allur arður er tekinn af ein- staklingum í skattheimtunni. Þessu er því miður farið að bera á í atvinnurekstrinum. Ég get ekki fellt mig við það að aukinn ríkisrekstur sé að verða stefna sjálfstæðismanna, heldur sé þetta vegna þess að allir hinir flokkarnir vinna meira og minna að ríkisrekstri og ekki sé fært að stunda sjálfstæðan atvinnurekst- ur við þær aðstæður sem upp eru komnar vegna andstöðu vinstri aflanna við einkaatvinnurekstur. Það þarf að efla Sjálfstæðis- flokkinn, en hann er næstum of frjálslyndur að mínu mati. Ég hef talið að Morgunblaðið væri málgagn Sjálfstæðisflokks- ins. Það er að vísu virðingarvert að senda út sýnishorn af málflutn- ingi andstæðinganna og styðja þar með blöð þeirra og málflutning, en gagnrýni á stefnu þeirra mætti vera meiri og er reyndar hættu- lega lítil. Það mun mjög þægilegt að fá verkin unnin svona fyrir sig og geta svo gefið út og selt á okur- verði smáblaðsnepla sem eru vel fimmfalt efnisminni en Morgun- blaðið, en á sama verði. Guli liturinn góður á strætó Ella skrifar: Kæri Velvakandi. Ég vil koma þessu á framfæri: Mér finnst litur vel valinn á stræt- isvagnana. Þessi guli litur er alveg topplitur, miðað við þennan grá- græna felulit. Þessi grágræni litur fellur alveg inn í umhverfið ef svo má segja. Ég vona að þið notið gula litinn á strætisvagna Reykja- víkurborgar í framtíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.