Morgunblaðið - 30.07.1985, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985
Þorlákskirkja:
Þorlákskirkja
vígð á sunnudag
Ragnheiður Olafsdóttir, formað-
ur, Benedikt Thorarensen, Guð-
mundur Friðriksson, Sverrir
Sigurjónsson og Gunnar Mark-
ússon. Enginn gjaldkeri var kos-
inn heldur hefur Pétur Jó-
hannsson, gjaldkeri sóknar-
nefndar, séð um öll fjármál.
Á þessum tíma var Ingimund-
ur Guðjónsson formaður sóknar-
nefndar. Einnig var hann organ-
isti kirkjunnar og stjórnandi
kórsins.
Ekki er hægt að nefna kirkju-
byggingu í Þorlákshöfn án þess
ÞorUluhörn, 29. júlí.
í GÆR, sunnudag, var Þorláks-
kirkja í Þorlákshöfn vígð.
Biskup íslands, herra Pétur Sig-
urgeirsson, annaðist vígsluna.
Vígslubiskup Skálholtsbiskups-
dæmis, séra Ólafur Skúlason þjón-
aði fyrir altari ásamt sóknarprest-
inum séra Tómasi Guðmundssyni
og séra Sveinbirni Sveinbjörnssyni
prófasti Árnesprófastsdæmis.
Kirkjumálaráðherra, Jón
Helgason, herra Sigurbjörn Ein-
arsson biskup, biskupsritari svo
og flestir vígðir menn í Árnes-
sýslu voru viðstaddir þessa há-
tíðlegu og jafnframt sögulegu
stund.
Athöfnin hófst með því að
karlmennirnir í kórnum sungu
Þorlákstíðir um leið og biskupar,
prestar, byggingar- og sóknar-
nefnd gengu í skrúðfylkingu inn
kirkjugólfið.
Ragnheiður Ólafsdóttir flutti
bæn og biskup tók við munum á
altari.
í vígsluræðu sinni minntist
biskup Ingimundar Guðjónsson-
ar. Hann rakti stuttlega gang
byggingarmála og dásamaði
dugnað Þorlákshafnarbúa fyrir
að reisa jafn dýrlegt guðshús á
svo skömmum tíma sem raun
ber vitni. Hann blessaði síðan
hús og muni og afhenti söfnuði
húsið til varðveislu og afnota.
Einsöngvararnir Bergþór
Pálsson og Sólrún Bragadóttir
sungu við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. Einnig lék
Gréta Guðnadóttir á fiðlu.
Söngfélag Þorlákshafnar sá að
öðru leyti um sönginn undir
stjórn söngstjórans, Hilmars
Arnar Agnarssonar. Ingveldur
Hjaltested söng einsöng með
kórnum í Ave María.
Þegar sjálfri athöfninni var
lokið stóð upp Steingrímur
Jónsson og afhenti kirkjunni til
varðveislu hökul, sem kominn er
nokkuð til ára sinna. Upphaflega
var hökullinn í kirkju þeirri er
lögð var af 1770, þaðan fór hann
í Arnarbæliskirkju sem lögð var
af 1907, síðan hékk hann uppi í
Kotstrandarkirkju. Var að vísu
aldrei notaður en gekk alltaf
undir nafninu Hafnarhökullinn.
Þaðan lá leiðin í Byggðasafn
Árnessýslu, en forráðamenn
þess ákváðu að afhenda hann
Þorlákskirkju til varðveislu við
þetta tækifæri.
í lokin flutti formaður sóknar-
nefndar, Gunnar Markússon,
ávarp og notaði hann tækifærið
til að þakka öllum, sem höfðu
lagt hönd á plóg bæði við bygg-
inguna og þessa yndislegu at-
höfn. Hann bauð að lokum öllum
til kaffisamsætis í félagsheimil-
inu.
Minningartónleikar
Klukkan 17 voru svo minn-
ingartónleikar um Ingimund
Guðjónsson. Þar sáu þeir Jónas
Ragnheiður Ólafsdóttir formaður byggingarnefndar flytur bæn í upphafí vígslunnar.
Byggingar- og sóknarnefnd, talið frá vinstri: Sverrir Sigurjónsson, Benedikt Thorarensen, Pétur Jóhannsson,
Engilbert Hannesson, Ragnheiður Ólafsdóttir, Gunnar Markússon, Ellen Ólafsdóttir og Ragnheiður Jóhannsdóttir.
Á myndina vantar Finnboga Vikar.
Ingimundarson, píanóleikari, og
Hilmar Örn Agnarsson, organ-
isti, um tónlistarflutning.
Allt tónlistarfólkið, sem var á
sjálfri vígsluathöfninni, kom og
tók þátt í þessum tónlistarvið-
burði sem tókst mjög vel í alla
staði og var fjölsóttur.
Kirkja lögð niður 1770
Kirkja stóð í Þorlákshöfn allt
fram til 1770 en þá var hún lögð
niður. Það var síðan á almennum
safnaðarfundi 4. september 1975
að tekin var ákvörðun um að
reisa kirkju.
Á þessum fundi var bygg-
ingarnefnd kosin og er hún eins
skipuð allt til dagsins í dag:
Biskuparnir á leið í vígsluna. Fremstur er séra Ólafur Skúlason, þá
kemur séra Sigurður Sigurðarson, séra Sigurbjörn Einarsson og herra
Pétur Sigurgeirsson.
að geta sérstaklega um þátt
hans, því að öllum öðrum
ógleymdum er hann sá maður
sem hvað ötullegast gekk fram,
hann braut ávallt ísinn og ruddi
leiðina.
Hann var hugsjónamaður,
sem setti markið hátt og lét
verkin tala. Ekki entist honum
aldur til að sjá kirkjuna fullbúna
og vígða, því hann féll frá í
blóma lífsins 4. desember 1982.
Síðan þá hefur Gunnar Mark-
ússon verið formaður sóknar-
nefndar.
Fyrsta skóflustungan
28. apríl 1979 var fyrsta
skóflustungan tekin. Jörundur
Pálsson arkitekt teiknaði kirkj-
una sem er 300 fm og tekur um
200 manns í föst sæti. Sverrir
Sigurjónsson var bygginga-
meistari. Allri steypuvinnu var
lokið fyrir árslok 1980. Fokheld
var byggingin fyrir árslok 1981. í
árslok 1982 var hún tilbúin undir
tréverk og nú í júlí 1985 er kirkj-
an fullbúin með öllum munum
og gripum sem í kirkju þurfa að
vera.
Munir í kirkjunni
Atlaristafla er prýðir kirkjuna
er múrrista unnin af Gunnsteini
Gíslasyni og mun hún vera eina
tafla sinnar tegundar í kirkju
hér á landi. Hún er nefnd:
„Herra bjarga þú mér“.
Kirkjudyrnar eru mikil völ-
undarsmíð, allar útskornar af
Erlendi Magnússyni frá Hvera-
gerði. Jörundur Pálsson arkitekt
hannaði hurðina, en myndirnar
segja sögu Krists frá fæðingu til
krossfestingar.
Altari, predikunarstóll og
skírnarfontur eru úr grágrýti.
Gjafír og
sjálfboðavinna
í upphafi var ákveðið að leggja
ekki þunga skatta á bæjarbúa
vegna byggingarinnar, enda
sýndi það sig fljótt að þess var
ekki þörf, því fórnfýsi og dugn-
aður einstaklinga og félagasam-
taka á staðnum var alveg með
eindæmum.
Skuldir eru nánast engar í
dag, þó lætur nærri að fram-
reiknaður byggingakostnaður sé
um 10 milljónir.
Flestir ef ekki allir munir í
kirkjunni eru gjafir'. Ekki er
mögulegt að telja það allt upp
eða nefna nöfn gefenda því þá
yrði, eins og formaður sóknar-
nefndar komst að orði, að prenta
íbúaskrá Þorlákshafnar nær
óbreytta auk fjölda vina og vel-
unnara utan byggðarlagsins.
Bygging þessa glæsilega guðs-
húss sýnir hvers samtakamátt-
urinn er megnugur þegar sam-
staða og fórnfýsi er til staðar.
Hilmar Örn tónlistarkennari,
sem haldið hefur uppi geysi-
miklu og góðu tónlistarlífi hér í
Þorlákshöfn í tvö ár, er nú á för-
um til Þýskalands til 4 ára fram-
haldsnáms.
Ég hef verið beðinn að flytja
honum þakkir fyrir frábært
starf og óska honum og fjöl-
skyldu hans alls hins besta í
framtíðinni.
JHS
01) PIONEER
....OG BÍLLINN MERÐUR EINS OG HU6HLEiK4HÖU. Á HJCHJUM
______:_____________