Morgunblaðið - 30.07.1985, Síða 52

Morgunblaðið - 30.07.1985, Síða 52
ffgunMnfeÍfr HLBOOJRIHBMSKEDJU ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR. Hvalvertíðin: 138 lang- reyöar á land SÍÐASTA eiginlega hvalvertíðin á ís- landi hefur gengið vel það sera af er. Hafa veiðst 138 langreyðar af 161, sem má veiða í ár. l*á eru og óveiddar 38 sandreyðar, sem eru eftirstöðvar af 504 dýra kvóta frá 1980. Gert er ráð fyrir að sandreyðarn- ar veiðist síðari hluta næsta mán- aðar en það er venjuiega ekki fyrr en um það leyti árs, sem sú hvala- tegund fer að ganga hér við land, að sögn Kristjáns Loftssonar, for- stjóra Hvals hf. Megnið af kjötinu er selt til Jap- ans, eða yfir 4000 tonn. Innan við 200 tonn fara á innanlandsmarkað auk nokkurs magns af hrefnukjöti. Morgunblaðift/ól.K.M. Starfsmenn Grænmetisverslunar landbúnaðarins með nýupptekn- ar kartöflur. Nýuppteknar kartöflur í verslanir — einnig rófur og kál NÝUPPTEKNAR kartönur eru þessa dagana að koma í verslan- ir. f>ær eru seldar óflokkaðar og á rúmlega helmingi hærra verði en kartöflurnar frá síðasta sumri. Nýjar gulrófur eru einnig komnar í verslanir og blómkál og hvítkál er að byrja að berast. Fyrstu kartöflurnar komu í Grænmetisverslun landbúnað- arins í gær, og voru þær úr Vík í Mýrdal, og að sögn Magnúsar Jónassonar markaðsstjóra koma sumarkartöflur af sunn- an og austanverðu landinu i meira mæli í vikunni. Heild- söluverð kartaflnanna er 48,50, sem með meðalálagningu gæti verið 56 krónur út úr búð. Að sögn Jóns Magnússonar fram- kvæmdastjóra Þykkvabæjar- kartaflna, í Garðabæ, er von á fyrstu nýuppteknu kartöflun- umm úr Þykkvabænum á morgun. Þá er einnig komið nokkuð úrval af innlendu útiræktuðu grænmeti á markaðinn. Níels Marteinsson sölustjóri í Sölufé- lagi garðyrkjumanna sagði að mikið væri komið af gulrófum. Fyrsta verð var 57 krónur í heildsölu, en í gær voru þær lækkaðar niður í 45 kr. kílóið, og gerir nálægt 55 kr. út úr búð. Níels sagði að kál væri farið að berast frá garðyrkjubændum, bæði blómkál og hvítkál, þó ekki væri enn hægt að anna eftirspurninni. Fyrsta verð á blómkálskílóinu er 145 kr. í heildsölu, sem gæti gert u.þ.b. 180 kr. út úr búð og hvítkálið kostar 61 kr. þessa fyrstu daga, sem gæti þýtt 75 kr. út úr búð. Mokveiði Akureyrarinnar: Aflaverðmæti um 50 millj. króna í tveimur löndunum Akureyri, 29. júlí. „Ég minnist þess ekki að svo mikill fiskur hafi verið um allan sjó jafnlangan tíma og nú, en þessi aflahrota hefur staðið yfir í um það bil tvo mánuði,“ sagði Þorsteinn Vilhelmsson, skipstjóri á Akureyrinni, en togar- inn kom inn í gær með 232 tonn af flökum og hafði áður landað á Ísafíröi 60 tonnum af grálúðu. Þá 24 daga, sem skipið var að veiðum, var aflinn samtals um 620 tonn. Verðmæti afla Akureyrarinn- ar eftir þennan 26 daga veiðitúr er áætlað um 27 til 28 milljónir. í byrjun júlí landaði skipið farmi að verðmæti um 22,5 milljónir króna þannig að afla- verðmætið í mánuðinum er orðið um 50 milljónir króna. Hásetahlutur í þessum síðasta túr er 270 til 280 þúsund krónur, „og mannskapurinn á skilið hverja einustu krónu“, sagði Þorsteinn. „Þetta er þrælavinna, sem aðeins duglegur og góður mannskapur getur afkastað. Á þessum 24 dögum kom það þrisv - ar fyrir, að við þurftum að stöðva veiðar í sólarhring til að vinna að aflanum." Akureyrin er nú búin með þorskkvóta sinn, en nægur kvóti er eftir fyrir aðrar veiðar. Þess má geta, að á síðustu tveimur mánuðum hefur afli Akureyrar- innar verið um 1.300 tonn af þorski, en kvóti skipsins var um 1.600 tonn. Eigendur og skipshöfn héldu upp á mettúrinn með því að bjóða fjölskyldum sinum í grill- veislu í Kjarnaskógi í gær. — G. Berg. Hull og Grimsby: Fiskur af íslandsmiðum uppistaðan í markaðnum Verðið 15—20% MINNI AFLI úr Norðursjó, litlar birgðir af frystri þorskblokk og held- ur aukin fiskneysla eru meginskýr- ingarnar á aukinni sölu á fiski af íslandsmiðum í Bretlandi. lindan- farna raánuði hefur uppistaðan í framboði á fiskmörkuöum í Hull og Grimsby verið fiskur af íslandsmið- um, en til samanburðar var mark- aðshlutdeild íslenska fisksins áður á bilinu 15 til 20%. Þá má búast við að verðið í ár, þrátt fyrir aukið fram- boð, sé í það heila tekið 15—20% hærra, en var á síðasta ári. Gert er ráð fyrir að 1.900 tonn af fiski af íslandsmiðum verði seld á fiskimörkuðum í Grimsby og Hull í þessari viku, en svo mikið af íslandsfiski hefur ekki verið selt þar í mörg ár. Samt má búast við að framboðið í næstu viku verði enn meira og fari vel yfir 2.000 tonn. Þegar hafa átta togarar og fjórir bátar ákveðið sölu, auk þess fisks sem fluttur er út í gámum. „Þetta slær öll met, það er nán- ast furðulegt hvað verðið hefur haldist hátt, þrátt fyrir sífellt aukið framboð. Þetta er fimmta hærra en í fyrra sumarið sem ég er hér og verðið hefur aldrei verið svona hátt,“ sagði Pétur Björnsson hjá J. Marr í Hull, er Morgunblaðið ræddi við hann í gærdag. Hann sagði engin merki um það að breytingar væru í aðsigi. Að vísu væri verðið nú aðeins lækkandi, en ekki sem neinu næmi. Hins vegar væru menn dálítið smeykir við næstu viku, þegar framboðið yrði jafn mikið af fiski og fyrirsjáanlegt væri. Pétur sagði flutning á ísfiski í gámum hafa stóraukist, sennilega þrefaldast frá því í fyrra. Að- spurður hvort það breyti ein- hverju hvort fiskurinn væri flutt- ur út í gámum eða siglt með hann, sagði hann svo alls ekki vera. Kaupendur legðu mat á fiskinn á markaðnum og það skipti þá engu hvernig hann væri kominn þang- að. Verðið færi eftir ástandi hrá- efnisins og það væri bein afleiðing af umbúnaði aflans í upphafi. „Það er ekkert sem bendir til þess enn sem komið er, að fiskirí batni hér. Ef íslandsfiskurinn hefði ekki komið til, hefði verið mikill skortur á fiski í Hull og Grimsby,“ sagði Pétur Björnsson að lokum. Markaður fyrir dilkakjöt kannaður í Bandaríkjunum „VIÐ TELJUM að í Bandaríkjunum séu möguleikar til sölu á íslensku dilka- kjöti, sem okkur ber skylda til að athuga nánar, eins og horfir með sauðfjárrækt- ina hjá okkur í dag,“ sagði dr. Sigurgeir Þorgeirsson búfjárfræðingur, en hann og Gunnar Páll Ingólfsson forstjóri fóru nýlega á vegum undirbúningsstjórnar Landssambands sauðfjárbænda til New York til að kanna markaðsmöguleika fyrir íslenskt dilkakjöt. Sigurgeir sagði að á næstu árum þyrfti óhjákvæmilega að flytja út dilkakjöt. Hann sæi ekki framtíð í Evrópumarkaði vegna tolla, inn- flutningshafta og framleiðslu- styrkja en í Bandarikjunum sæi hann helst von til að byggja upp hagstæðan markað. Hann sagði að þeir hefðu fengið góðar undirtektir tveggja matvöruverslanakeðja I New York á þeim grundvelli að ís- lenska kjötið yrði kynnt og selt sem sérstök gæðavara, laus við mengun og lyf. Sagðist hann gera sér vonir um að í Bandaríkjunum mætti, ef vel yrði á málum haldið, vinna markað sem skilaði viðunandi verði í framtíðinni. Sjá einnig grein ívars mundssonar á miðopnu. Guð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.