Morgunblaðið - 25.08.1985, Side 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST1985
SÍÐASTI
HÁLFTÍMINN
Enn er beðiö endan-
legrar skýringar á
orsök flugslyssins í
Japan, hins mesta í
sögunni, þegar 520
fórust með Boeing
747SR-flugvél jap-
anska flugfélagsins
(JAL).
Önnur tveggja lík-
legra skýringa á slys-
inu gæti orðið til þess
að hundruð flugvéla af
þessari gerð yrðu sett-
ar í langt flugbann svo
að hægt verði að rann-
saka þær. Reynist hin
skýringin rétt þarf lít-
ið að lagfæra.
Staðfest hefur verið
að fundizt hafi stórt
þrýstingsskilrúm, sem
var aftast í flugvél-
inni, og á því hafi ver-
ið sprungur á sex stöð-
um. Reynt hefur verið
að ganga úr skugga
um hvort sprungurnar
hafi verið helzta orsök
slyssins eða afleiðing
þess.
Einnig hefur verið
talið hugsanlegt að
tæplega 40 sentimetra
langur skrúfbolti, sem
festi fremsta hluta
stélkambsins við búk
flugvélarinnar, hafi
losnað þegar hún
hækkaði flugið, að gat
hafi komið á skrokk-
inn og að afleiðingin
hafi orðið mikið þrýst-
ingsfall og sprenging.
Ef skrúfboltinn er
orsökin er lítill vandi
að kippa því í lag.
Síðasti klukku-’
tíminn
• Saku Osutaka-fjall
Missir stjórn
6.47 e.h.
Flugstjóra leiöbeint frá
Haneda, en hann segir
•V«
6.57 e.h.
Flugvélin hverfur af ratsjá í
Haneda
6.55 e.h.
Flugstjóra sagt aö hefja aö-
flug
6.54 e.h.
Flugstjóra sagt frá staösetn-
ingu vélar og hann svarar.
JAPAN
Missir hæð
6.57 e.h. 6.54
6.55
Tirni
6.47
Y«ir landi
6.31
6.28 6.25
m ÍM
25.000
20.000
X 15.000 10,000
^ S-000
Ylir sjó 6.12 e.h.
Hvers vegna
varð bilaður
stélkambur
520
að bana
Ef bilun hefur orð-
ið á þrýstings-
skilrúminu getur
það haft alvarleg-
ar afleiðingar
fyrir Boeing. All-
ar Boeing-747-
flugvélar, jafnvel
þær sem hafa farið heimingi færri
ferðir en flugvél JAL, yrðu settar í
flugbann svo að rannsókn geti far-
ið fram.
Alls eru tæplega 600 Boeing-
747-flugvélar í notkun í heiminum
og a.m.k. 150 og allt að 300 yrðu
stöðvaðar. Fyrirtækið yrði neytt
til að endurskoða mat sitt á end-
ingu Boeing-747-flugvéla og gera
nýjar og nákvæmar áætlanir um
viðhald flugvélanna til að tryggja
nákvæmt eftirlit með þrýstings-
skilrúmunum þegar þær eldast.
Flugfélög, sem stæðu andspænis
tekjumissi vegna stöðvunar flug-
véla, yrðu að taka á sig jafnvel enn
meiri kostnað til að halda þeim
við.
William Tench, fv. yfirmaður
rannsóknarnefnda flugslysa í
Bretlandi, segir: „Um það er ekk-
ert hægt að segja hvað olli slysinu
fyrr en fyrir liggja óyggjandi
sannanir og ýmislegt getur komið
til greina. En hafi orðið bilun í
þrýstingsskilrúminu verður að
setja flugvélar í flugbann. Ef gera
þarf breytingar á þrýstingsskil-
rúminu verður það umfangsmikil
endursmíði. Verið getur að ódýr-
ara verði að kaupa nýjan skrokk."
Flugvélin sem fórst var smíðuð
1974 og var sú þriðja af sérstakri
gerð, sem var ætluð til flugs á
stuttum leiðum í Japan. Þótt hún
væri aðeins 11 ára gömul — og
hefði átt að endast helmingi leng-
ur og vel það — hafði hún lent og
hafið sig til flugs 38.000 sinnum.
Mikið álag hefur verið á þrýst-
ingsskilrúminu í 18.830 ferðum
flugvélarinnar. Venjulega er það
aðeins skoðað með hjálp vasaljósa
og spegla. Hugsanlegt er að tær-
ing hafi gert vart við sig án þess
að því hafi verið veitt eftirtekt.
Síðustu daga hefur athyglin eink-
um beinzt að þessu atriði.
Hálftíma barátta
Ljóst er að flugstjóri japönsku
flugvélarinnar, Masami Taka-
hama, missti ekki stjórn á flugvél-
inni þegar stélkamburinn fór að
tætast í sundur.
Honum tókst að fljúga flugvél-
inni af mikilli leikni í rúman hálf-
tíma og ætlaði að reyna nauðlend-
ingu eftir aðeins nokkrar mínútur
þegar hún fór allt í einu að missa
hæð og rakst á fjallshlíð.
Fyrstu fréttir bentu til þess að
flugvélin hefði ætt stjórnlaus í
norður eftir að þrýstingsskilrúmið
gaf sig og loft úr loftþrýstu far-
þegarýminu æddi upp í stélkamb-
inn með þeim afleiðingum að hlið-
arstýrið og vökvabúnaðurinn eyði-
lögðust (vökvabúnaðurinn er
notaður til að hreyfa hallastýri,
vængblökur, hæðarstýri og hlið-
arstýri). Eftir það hafi flugvélin
verið dauðadæmd.
En samkvæmt hljóðritanum,
sem greinir frá síðustu 32 mínút-
um japönsku flugvélarinnar og
fannst á slysstað, liðu a.m.k. 16
mínútur frá því stélið rifnaði og
þar til þrýstingurinn minnkaði.
Flugvélin fór frá Haneda-
flugvelli í Tókýó kl. 6.12 e.h. að
staðartíma á mánudegi. Hún var í
24.000 fetum og enn að klífa í
áætlaða flughæð þegar Masami
Takahama flugstjóri tilkynnti 'I
flugturninum í Tókýó að hann
ætti í erfiðleikum og yrði að gera
neyðarráðstafanir. Þá var klukkan
6.25 og flugvélin yfir Sagami-flóa.
Takahama tilkynnti að hann
ætlaði að lækka flugið úr 24.000
fetum í 22.000 fet, en í staðinn
hækkaði flugvélin flugið í 24.900
fet á næstu tveimur mínútum
samkvæmt ratsjárupplýsingum.
Þetta sýnir að hæðarstýrið hefur
valdið Takahama erfiðleikum,
þótt ekki sé vitað til þess að það
hafi fokið. Eina skýringin getur
hafa verið alvarleg bilun á vökva-
kerfinu.
Takahama minnkaði aflið til
allra hreyflanna fjögurra til að
lækka flugið hægt. I ljós kom á
ratsjá að það tók flugvélina 15
mínútur að lækka sig í 11.900 fet
úr 24.900 fetum, kl. 6.31.
Vökvakerfi óvirk
Kl. 6.35, um tíu mínútum eftir
að Takahama ákvað að grípa til
neyðarráðstafana, tilkynnti
áhöfnin: „öll vökvakerfin óvirk."
Samkvæmt hljóðritanum gaf
einhver, sennilega flugstjórinn,
nokkrar skipanir, m.a. „beygið til
hægri“, „aukið afl til hreyflanna".