Morgunblaðið - 25.08.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.08.1985, Blaðsíða 22
22 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985 _________Brids____________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag Reykjavíkur Síðbúinn aðaifundur BR verð- ur haldinn að Hótel Esju (Þern- ey) miðvikudaginn 28. ágúst nk. kl. 20.30. Á dagskrá verða venjuleg að- alfundarstörf auk verðlaunaaf- hendingar fyrir mót síðasta vetrar. Eru félagsmenn hvattir til að mæta og taka þátt í mótun vetrarstarfsins. Sérstök ástæða er fyrir verðlaunahafa að láta sjá sig. Opið hús á laugar- dögum ólafur Lárusson og Hermann Lárusson munu gangast fyrir Opnu húsi í vetur í Bridgekeppn- um og æfingum. Spilað verður í Borgartúni 18 hvern laugardags- eftirmiðdag og hefst spila- mennska kl. 13, stundvíslega. Ef þátttaka verður góð, er ekkert til fyrirstöðu að hefja leikinn fyrr, sé þess óskað. Skipulögð keppnisspila- mennska um helgar, hefur ekki verið reynd fyrr á landinu, svo umsjónarmönnum sé kunnugt um. Mikill áhugi er þó fýrir hendi, enda Bridge-spilið að verða ein vinsælasta afþreying manna, nú hin síðari ár. Það sýnir hinn mikli fjöldi sem sótt hefur Sumarbridge að undan- förnu, og hópast hefur til þátt- töku í landsmótum. Fyrsti spila- dagur hjá Opnu húsi (sem ef til vill fær nafngiftina Fullt hús) verður laugardaginn 14. sept- ember nk. Fyrirkomulag verður með svipuðu sniði og í Sumarbridge, enda sömu menn að verki. Spilað verður í riðlum, eftir mætingu og þátttökugjaldið hið sama, kr. 150 pr. mann. Sótt verður um leyfi til Bridgesambands Is- lands, að spila um meistarastig á spiladögum. Umsjónarmenn telja þetta fyllilega tímabært, að hefja slík- ar keppnir. Auglýsingum varð- andi þessa spilamennsku verður dreift til allra hótelanna í bæn- um, svo og þeirra sem annast al- menningstengsl, varðandi skemmtiferðamenn og kaup- sýslumenn sem erindi eiga til fs- lands (Reykjavíkur) og vilja gjarnan taka í slag einn eftir- miðdag. Einnig má benda á, að hver spiladagur er sjálfstæð eining, þannig að enginn er bundinn af slíku fyrirkomulagi. Allir geta verið með, jafnt byrjendur sem lengra komnir. Hægt er að hafa safn riðla, þannig að vilji ein- hver ákveðinn hópur spila sam- an í „grúppu" (riðli) er ekkert því til fyrirstöðu. Þarna hafa umsjónarmenn í huga hópa af vinnustöðum, félagssamtökum, ættingjum o.s.frv. Einnig t.d. þann hóp sem stundað hefur framhaldsspilamennsku úr Bridgeskólanum hjá Páli Bergs- syni, enda getur vel komið til greina að umsjónarmenn stundi einhverja leiðbeingarstarfsemi, jafnhliða almennri stjórnun í Opnu húsi. (y Vestfjarðamótið í tvímenningi Sl. föstudag voru yfir 20 pör skráð til leiks í Vestfjarðamótið í tvímenningi, sem haldið verður á ísafirði um næstu helgi. Frest- ur til að tilkynna þátttöku renn- ur út nk. mánudagskvöld. Hægt er að hafa samband við Arnar Geir á ísafirði, s. 4144 og 3214 (heima), til skráningar. Spilaður verður Barometer, með 3 spilum milli para, allir við alla. Keppnisstjóri verður Ólafur Lárusson, Reykjavík. Spilað verður bæði laugardag og sunnudag, enda spilafjöldi milli 80—90 spil. Sumarbrids Skag- fírðinga FULLT hús var hjá Skagfirðing- um sl. þriðjudag. Spilað var í þremur riðlum og urðu úrslit þessi (efstu pör): A-riðill: Ármann J. Lárusson- Sigurður Sigurjónsson 287 Björn Árnason- Daníel Jónsson 242 Anton R. Gunnarsson- Friðjón Þórhallsson 235 Margrét Margeirsdóttir- Gróa Guðnadóttir 232 Erla Ellertsdóttir- Kristín Jónsdóttir 230 B-riðill: Helgi Jóhannesson- Magnús Torfason 132 Erla Sigurjónsdóttir- Jón Páll Sigurjónsson 128 Ragnar Björnsson- Sævin Biarnason 126 Baldur Ásgeirsson- Magnús Halldórsson 113 Oriðill: Sigmar Jónsson- Vilhjálmur Einarsson 119 Lárus Hermannsson- Sveinn Þorvaldsson 118 Hulda Hjálmarsdóttir- Þórarinn Andrewsson 116 Þorsteinn Laufdal- Þröstur Sveinsson 116 Og eftir 13 spilakvöld í Sumar- brids Skagfirðinga, er staða efstu spilara orðin þessi: Anton R. Gunnarsson 10, Guð- mundur Auðunsson, Þórarinn Árnason og Tómas Sigurjónsson 9, Guðrún Hinriksdóttir 8,5, Sveinn Þorvaldsson 8, Lárus Hermannsson, Steingrímur Jónasson og Magnús Torfason 7. Vakin er enn athygli á því, að spilað verður á fimmtudaginn í Drangey í næstu viku. Sumar- brids í Borgartúni verður næsta þriðjudag, í stað fimmtudagsins. Og skráning í Barometer- tvímenningskeppnina, sem hefst hjá Skagfirðingum 17. septem- ber nk. (miðað við 36 para þátt- töku) stendur nú yfir hjá Ólafi Lárussyni. Bikarkeppnin Þrír leikir voru á dagskrá í 3. umferð Bikarkeppninnar í vik- unni. Sveit Jóns Hjaltasonar Reykjavík, sigraði sveit Þórar- ins, Sigþórssonar, Reykjavík, með miídum mun. Svo miklum, að menn Þórarins fóru heim eft- ir 30 spil og gáfu þar með leik- inn. I sveit Jóns eru, auk hans: Hörður Arnþórsson, Símon Sím- onarsson og Jón Ásbjörnsson. Sveit ísaks ö. Sigurðssonar spilaði við sveit Jóns Hauksson- ar, Vestmannaeyjum. Þar var sama sagan, en Jón þraukaði til loka og sneri heim með 90 stig á bakinu. Sveit ísaks, Reykjavík, skipa, auk hans: Sturla Geirsson, Sigurður Sigurjónsson, Júlíus Snorrason, Hermann Lárusson og ólafur Lárusson. Sveit Jóns Gunnars Gunnars- sonar frá Hornafirði bætti enn við óvænt úrslit í þessari Bikar- keppni, með því að leggja sveit Stefáns Pálssonar, Reykjavík, að velli. Þar var munurinn 6 stig, Jóni í vil, eftir að sveit Jóns hafði leitt allan leikinn. Með Jóni eru í sveitinni: Geir Björnsson, Kolbeinn Þorgeirsson og Björn Gíslason. Og þá er aðeins ólokið tveimur Fimmta og síðasta sagan Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Lawrence Durrell: QUINX OR THE RIPPER’S TALE A Novel Faber and Faber 1985 Með þessari sögu lýkur Durrell fimm binda skáldsögu, sem gerist að mestu leyti í Avignon. Fyrsta sagan var „Monsieur", sem kom út 1974; síðan „Livia", 1978; svo „Constance", 1982; „Sebastian", 1983 og loks „Quinx" í ár. Bakgrunnurinn er Avignon, þar sem sagan býr og sögur um hryll- ing og dýrð fortíðarinnar eru hluti andrúmsloftsins. Rústir fornra halla og kastala musterisriddar- anna, sem sumar persónur sög- unnar eru tengdar vekja upp forn- ar launhelgar og leit að huldum fjársjóði reglunnar, sem er talinn falinn á þessu svæði. Durrell lýsir á meistaralegan hátt andrúms- lofti þessara ævafornu byggða við Miðjarðarhafsströnd Frakklands og víðar við Miðjarðarhafið. Tími sögunnar er fyrir, í og eftir síð- ustu heimsstyrjöld. Persónurnar mótaðar og mettaðar af arfleifð Erosar og Þanatosar. Persónur Durrells eiga sér ákveðnar fyrir- myndir úr samtíð hans, mótaðar til þeirrar gerðar sem hentar þess- um skemmtilega heimi sem hon- um hefur tekist að skapa. í „Quinx“ safnast persónurnar 5DAGA OG aé. Borð^- .S*»'S . ,0* 611 a •» n SóíaSel“’. ^vö^við^ pieira ^ ^ vil1 e vucu. a (en tSs í>essa að áðureIÍ títsaJ®11 er eK* 5ett- oiss >v (D

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.