Morgunblaðið - 25.08.1985, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.08.1985, Blaðsíða 9
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 25, ÁGÚST 1985 B 9 áfalls eða blóðmissis, þar sem björgunarsveitarmenn voru svo lengi að komast á slysstað. Læknar, sem krufu lík þeirra sem fórust, telja að sum fórnar- lömbin hafi lifað margar klukku- stundir eftir brotlendinguna. Tólf ára gömul stúlka, Keiko Kawakawi, sem lifði af slysið, staðfesti að fleiri hefðu lifað af brotlendinguna en hún, Yumi Ochiai, Hiroko Yoshizaki og Mik- iko, móðir hennar. Kawakawi sagði að hún, faðir sinn og systir hefðu reynt að hughreysta hvert annað „lengi“ áður en faðir hennar og systir lét- ust. „Eftir brotlendinguna voru bæði faðir minn og systir á lífi. Ég talaði lengi við þau. Við fylgdumst hvert með líðan annars og hug- hreystum hvert annað,“ sagði hún. Þegar hún bað föður sinn að hjálpa sér svaraði hann: „Pabbi er fastur og getur ekki hreyft sig.“ „Síðan hætti pabbi að tala og þegar ég snerti hann var líkami hans kaldur," sagði Keiko. Hún sagði að systir sín hefði sagt fyrst „það er allt í lagi með mig“, en síðan gefið frá sér hljóð, eins og hún væri að skyrpa, og hætt að tala og þá hafi líkami hennar ver- ið orðinn kaldur. „Mamma, mamma, ekki fara að sofa,“ hrópaði Hiroko litla til móð- ur sinnar, „þú deyrð ef þú sofnar." Keiko sagði að hún hefði heyrt til fleiri farþega. Fólk hefði spurt hvert annað og sagt: „Er allt í lagi með þig?“, „Hertu upp hugann." Keiko slapp með skrámur, beinbrot og skurði á handleggjum og fótum og slasaðist minnst þeirra sem komust af. Afskekkt svæði Flugvélin brotlenti í afskekkt- um og skógivöxnum fjöllum hér- aðsins Gumma. Áhöfn C-130-flug- vél bandaríska flughersins frá Yokota-flugstöðinni kom fyrst auga á rjúkandi leifar hennar kl.7.19 e.h, um 19 mínútum eftir brotlendinguna, og Phantom-þota staðfesti fundinn kl.7.21. Yfirmenn Yokota-flugstöðvar- innar, sem er aðeins rúma 50 km frá slysstaðnum, buðu frekari að- stoð við björgunaraðgerðir, en japönsk yfirvöld höfnuðu boðinu. 1 staðinn voru tvær japanskar her- flugvélar sendar kl. 7.54 og 8.13 til að „kanna slysstaðinn vandlega i fjóra tíma“ svo að hægt yrði að ákveða hvort hægt yrði að senda björgunarsveitir með þyrlum. Þótt flugmennirnir hefðu undir höndum upplýsingar um hvar Boeing-flugvélin hefði trúlega horfið af ratsjárskermum flug- turnanna í Tókýó og Yokota fann hvorug könnunarflugvélin slys- staðinn. Kl.8.40 lagði hópur 38 manna úr japanska flughernum af stað í bif- reið á slysstaðinn, einungis búin áttavita, og villtist í giljum og skógum Gumma-héraðs. Samkvæmt fyrstu fréttum var talið að Boeing-flugvélin hefði hrapað i næsta héraði, Nagano, og þyrla lögreglunnar þar fann slys- staðinn um nóttina. Þegar flugmanninum var sagt að hann væri í Gumma-héraði sneri hann við, þar sem hann vildi ekki ryðjast inn á athafnasvæði annarrar lögreglu. Lögreglan í Gumma-héraði átti enga þyrlu. Þyrla japanska flughersins gat loks sýnt nákvæma staðsetningu slysstaðarins skömmu fyrir dögun — kl. 4.39 f.h. — á þriðjudags- morgni, næstum því 10 klukkutím- um eftir að flugvélin brotlenti. Sennilega var þetta þyrlan, sem Yumi Ochiai flugfreyja sá þar sem hún lá föst í flakinu. Fyrsti björgunarmannahópur- inn, 73 fallhlífarhermenn, fór frá Narashimo austur af Tókýó, kl. 7.40 og lét sig síga í köðlum úr þyrlum sínum einni klukkustund og 10 mínútum síðar. Konurnar fjórar, sem komust. lífs af, voru fluttar til þorpsins Uenomura kl.1.29. Þá var liðinn 18 og hálfur tími frá því flugvélin brotlenti og 520 fórust í mesta flugslysi sög- unnar. GH skv. Sunday Times o.fl. meginþorra þjóðarinnar daglega! Auglýsingc síminn er224{ SKQIA DITVFI&D K11 V ÁGJAFVE Við bjóðum síðustu eintök sumarsins af hinum viðurkenndu Message skólaritvélum með hreint ótrúlegum afslætti: MLSSAGL 610 TR ÁÐUR KR. 8.490 NÚ AÐEINS KR. 5.490 MLSSAGL 350 ÁÐUR KR.6.890 NÚ AÐEINS KR.3.990 Vlð erum að selja síðustu vélarnarl £ % SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. % r Wv Hverfisgötu 33 — Sími 20560 Pós,h6"377

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.