Morgunblaðið - 25.08.1985, Síða 12

Morgunblaðið - 25.08.1985, Síða 12
1Z & MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. AGUST 1985 Ástralía, hinn nýi töfraheimur: ÞANGÁÐ YRÐIALDREI FLUTTSVO MARGTKVMFÉ AÐ HAGA ÞRYTI Frásagnir frá Ástralíu 1 tilefni af heimsreisu Útsýnar Ástralía býr yfir einstædum töfrum að dómi flestra sem þangað hafa komið. Heimildir, sem skráðar hafa verið um þessa fjarlægu heimsálfu, bera þess glöggt vitni, að landið er fullt af undrum og hinum furðulegustu fyrirbærum, sem á sérkennilegan hátt blandast saman við hámenningu, sem byggð er á rótgrónum evrópskum grunni. Á aðra höndina eru stórborgir iðandi af mannlífi, en litskrúð- ug náttúrufegurð með framandi gróðri og dýralífi á hina. „Óvenjuleg og litrík til- brigði af flóru og fána,“ voru þau orð sem Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Út- sýnar, notaði um ástralska náttúru, en að vonum er Ástralía ofarlega í huga Ingólfs þessa dagana. Hinn 16. nóvember næst- komandi verður lagt upp í sjöttu heims- reisu Útsýnar, hina mestu til þessa, til Ástralíu, Nýja Sjálands og Fiji-eyja, með viðdvöl í Bangkok á útleið, en Bali á heimleið. Fyrsta heimsreisan var til Mex- íkó árið 1980, þá kom Brasilía 1981, Kenýa 1982, Bangkok, Bali og Singapore 1983, sem endurtekin var 1984, en heimsreisan 1984 var til Egyptalands og ísrael. Markmið þessara ferða er að gefa fólki kost á að kynnast undrum og dá- semdum heimsins í vel skipulögðum hóp- ferðum til staða, sem ekki liggja í alfara- leið okkar íbúa norðurhjarans, ferðir sem fæstum gefst kostur á að fara ella. í ár er það Ástralía, hin framandi heims- álfa hinum megin á jarðarkúlunni. Sydney, ein nýtískulegasta og fegursta borg heims, sem skipar öndvegi í sögu Ástralíu. Fremst má sjá hid víðfræga óperuhús borgarinnar. að kann að þykja undarlegt á vor- um tímum, þeg- ar menn ferðast til hinna ystu endimarka heims á fáum klukku- stundum, að fram á síðustu aldir voru heilar heimsálfur á jarðarhnettinum, sem hvítir menn höfðu enga hugmynd um að væru til. Eftir að Norðurálfuþjóðir voru sestar í öndvegi, liðu þúsundir ára svo, að um þriðjungur hinna auðugustu og byggilegustu landa var þeim al- gjörlega hulinn heimur. Snemma á öldum munu þó hafa komist á kreik sagnir um mikið og stórt land fyrir sunnan miðbaug. Grikk- ir höfðu til dæmis einhverjar óljósar hugmyndir um land, sem þeir kölluðu „Terra Australis", það er „landið í suðri“. Þetta land varð þó ekki á vegi Spánverja og Portúgala, þegar þessar þjóðir lögðu á úthöfin, uppgötvuðu hinar víðlendu heimsálfur í vestri og fundu nýjar siglingaleiðir og eyjar í Suðurhöfum. Litlu munaði þó að spánski sæfarinn Luis de Torres rækist á landið er hann sigldi um sundið milli Ástralíu og Nýju- Guineu árið 1606. Ekkert bendir til að hann hafi svo lítið sem séð til lands á Ástralíu og má það furðulegt teljast því hann var tvo mánuði að flækjast um sundið, sem síðan er við hann kennt. Fyrstu óyggjandi fregnir, sem menn hafa fyrir landtöku hvítra manna á meginlandi Ástralíu, eru skrásettar um svipað leyti. Hol- lendingar voru þá sem óðast að kanna hinn mikla eyjaheim f austrinu og sendu smáskútu, sem hét Duyfken (Dúfan) austur um hafið til að kanna suðurströnd Nýju-Guineu. Skipstjóri hét Will- em Jansz. Hann fór um Torres- sund og lá leið hans fram með lág- lendri og hrjóstrugri strönd, þar sem hann tók land er vistir og vatn voru á þrotum. Það var á vesturströnd Yorkskaga, sem gengur af meginlandi Ástralíu austanverðu. Ekki voru móttök- urnar vinsamlegar af hálfu inn- fæddra. Landsmönnum er þannig lýst, að þeir hafi verið svartir á hörund, villimenn og mannætur — og víst er, að níu menn drápu þeir af áhöfn Dúfunnar. Þótt Hollendingar eigi heiður- inn af að hafa fundið meginland Ástralíu, urðu þeir ekki fyrstir hvítra manna til þess að byggja það. Bæði voru lýsingar þeirra á landinu og íbúunum heldur óglæsilegar og auk þess fannst þar hvorki krydd né gull. Enga versl- un var hægt að reka við frum- byggja landsins. Að dómi Hollend- inga voru þeir á lágu menning- arstigi, höfðu ekkert að selja og engu að miðla öðrum. Það var ekki fyrr en Englendingar fara að gefa landinu gaum, að brotið er blað í sögu Ástralíu. Fyrstu kynni Englendinga af Ástralíu voru þau, að skipið Trial brotnaði á skerjum undan strönd- inni um 1627 og fórst þar fjöldi manns, en nokkrir komust til Java á skipsbátum. Um þetta leyti var að verða lýðum ljóst, að land mik- ið hafði fundist þar sem Ástralía var. Fyrstur þekktra Englendinga, sem lagði leið sína til Ástralíu, var sjóræninginn William Dampier. Hann var víðförull sægarpur og sjóræningi í fremstu röð. Hann settist um síðir í helgan stein, komst til nokkurra metorða í Englandi og skrifaði víðlesna bók um ævintýri sín og afreksverk, en lýsing hans á Ástralíu var þó ekki vinsamlegri en Hollendinganna. Framtíðarlandið Það er ekki fyrr en um miðja 18. öld að sá maður kemur til sögunn- ar, sem átti merkilegasta og af- drifaríkasta þáttinn í rannsókn Ástralíustranda og fann hin rík- ustu og blómlegustu héruð, þar sem þegar var sýnt að verða myndi framtíðarland. Það var James Cook, sem almennt er tal- inn einhver merkasti sægarpur sem uppi hefur verið. Cook lét úr höfn í Englandi í ágúst 1768 á skipi sínu „The Endeavour" (Til- raunin). Hér var um að ræða vís- indaleiðangur, sem tengdist gangi himintungla. Um borð í skipinu var meðal annarra vísindamanna náttúrufræðingurinn Sir Joseph Banks, þá 25 ára gamall, en Banks átti síðar eftir að tengjast sögur Islands með harla óvenjulegum hætti. Er Cook og félagar höfðu lokið vísindastörfum sínum í Suðurhöf- um komu þeir að austurströnd þess lands, sem þá var nefnt „Nýja-Holland“. Tóku þeir land syðst á ströndinni, þar sem nú er kallað Howehöfði. Eftir nokkurra daga könnunarferð norður með ströndinni komu þeir í fjörð einn og vörpuðu þar akkerum. Þótti náttúrufræðingunum þar girni- legt um að litast, því að þeir fundu svo fjölskrúðugt jurtaríki, að ann- að eins höfðu þeir aldrei séð. Fjörðinn nefndu þeir „Botany Bay“ (Flóruflóa) og stóðu þar við í nokkra daga. Þá var enn haldið norður með ströndinni, og rétt fyrir norðan Flóruflóa sigldu þeir framhjá þröngu fjarðarmynni, sem þeir nefndu Port Jackson. Þar reis síðar upp milljónaborgin Syd- ney, stærsta og elsta borg Ástr- alíu, sem verður einn af viðkomu- stöðum heimsreisufara Útsýnar. Cook fann og rannsakaði endi- langa austurströnd Ástralíu og taldi, að þar væri tilvalið land til nýlendustofnunar vegna frjósemi landsins og ákjósanlegs loftslags, enda var þess ekki langt að bíða, að byggð hæfist þar. Cook nam landið í nafni Bretakonungs og nefndi strandlengjuna „Nýju Suð- ur-Wales“. Hollendingar höfðu að vísu fundið og rannsakað hluta Ástralíustranda, en hvergi fundið stað, sem þá langaði að eignast og töldu landið lélegt og lítt girnilegt. Cook taldi hins vegar „drjúpa smjör af hverju strái" í sínu land- námi og sagði það fyrir, sem fyrir löngu er fram komið, að þar myndi verða akuryrkja mikil og kvikfjárrækt, því að þangað yrði aldrei flutt svo margt kvikfé, að hagar þrytu. Samtvinnuð örlög Næsti örlagaþáttur í sögu Ástr- alíubúa, sjálft landnámið, er sam- ofið sögulegum stórtíðindum á Vesturlöndum, stofnun Banda- ríkja Norður-Ameríku. Enska stjórnin hafði jafnan losað sig við alla sakamenn, gert þá landræka og flutt þá til Norður-Ameríku. Er nýlendurnar lýstu yfir sjálfstæði sínu 1776 var tekið fyrir frekari fangaflutninga þangað frá Eng- landi. Þá var það, að Sir Joseph Banks lagði til, að England stofn- aði sakamannanýlendu við Flóru- flóa á austurströnd Ástralíu. Til- lagan var samþykkt um síðir og má því með nokkrum rétti kalla Sir Banks „föður Ástralíu". Það er vissulega skemmtileg til- viljun, að Islandsvinurinn Sir Jos- eph Banks, sá hinn sami og var í för með Cook er dásemdir Flóru- flóa voru uppgötvaðar og sem síð- ar lagði grunn að landnámi Ástr- alíu, skuli einnig hafa komið við sögu Islendinga á 18. og 19. öld. Sir Banks kom hingað til lands árið 1772. árið eftir að hann kom heim úr Ástralíuferð sinni og það var hann, sem fól Jörgen nokkrum Jörgensen, sem nefndur var Jör- undur hundadagakonungur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.