Morgunblaðið - 25.08.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
B 37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
Þessir hringdu . .
Tökum höndum
saman viö
Grænfriðunga
Margrét H. hringdi:
Er nokkur sá maður til að hann
sé ekki sleginn hryllingi yfir sel-
kópadrápinu og öðrum þeim „við-
bjóði sem mannskepnan hefur
leitt yfir dýr merkurinnar" eins og
ágætur greinarhöfundur kemst
réttilega að orði í Morgunblaðinu
21. ágúst síðastliðinn? Einnig hef-
ur sést að ekki vilja grjótvinnslu-
mennirnir sleppa þeim kjaftbita
er þeir höfðu, þó sýnt væri að þeir
stæðu að mengun sjávarlífríkis
við næstu strönd. Þarna réðu
ágirnd og dómgreindarleysi ferð-
inni. Gott dæmi um nauðsyn Nátt-
úruverndarsamtakanna. Þetta
leiðir hugann að því, hve skamm-
arlega var tekið á móti erlendu
náttúruverndarmönnunum er þeir
komu hingað á dögunum og ræddu
hvalfriðunarmál. Lítið var um
góðar röksemdafærslur hjá
„hvaladrápsspekúlöntunum" eftir
því að dæma sem stendur i fjöl-
miðlunum, en þess meira um gróf
slagorð, upphrópanir og útúrsnún-
inga. Þótt fólk sé orðið ýmsu vant
og taki lítið mark á orðbragði
sumra alþingismanna er það mik-
iö áhyggjuefni ef þeir af gáleysi
vinna okkar fámennu skuldugu
þjóð vart bætanlegan skaða við-
skipta- og siðferðilega vegna
hvalamálsins. Fulltrúi íslensku
líffræðistofnunarinnar segir í
Morgunblaðinu 20. ágúst síðastlið-
inn að áætlun íslenskra stjórn-
valda um hvalveiðar í vísinda-
yfirskini sé „siðleysi og svartur
blettur á landinu sem erfitt verður
að afmá.“ Látum bað aldrei verða.
Það besta sem Islendingar geta
gert við þessum vanda er að taka
höndum saman við Grænfriðunga'
og spyrna fótum við hverskonar
mengun og eyðileggingu lífríkis
jarðarinnar, þar á meðal útrým-
ingu hvala. Berum gæfu til þess.
Hvar er Heil-
brigdisef tir litió ?
Kona hringdi:
Ég hef verið að velta því fyrir
mér uppá síðkastið hvort hér í
borginni sé ekki lengur starf-
andi neitt heilbrigðiseftirlit.
Þannig er að ég kem stundum í
Kornmarkaðinn við Skóla-
vörðustíg og þar finnst mér allt
vera svo óþrifalegt að ég á bágt
með að skilja hversvegna það er
látið viðgangast. Þessi búð er
náttúrlega búin að starfa í
mörg ár og hefur yfirleitt verið
mjög gott að versla þar en
manni blöskrar bara svona
óþrifnaður. Ég hélt að borgin
eða ríkið starfrækti heilbrigð-
iseftirlit sem sæi um að versl-
anaeigendur meðal annarra
héldu búðum sínum hreinum og
þrifalegum svo víst væri að
engin hætti fylgdi því að koma
þar inn að minnsta kosti. En nú
er mér næst að halda að þessu
sé alls ekkert sinnt lengur. Ég
leyfi niér því að skora á við-
komandi yfirvöld að bæta úr
þessu og svo auðvitað eigendur
Kornmarkaðarins að taka sig á,
annars missa þeir fljótlega alla
viðskiptavini.
Sérstakar akreinar
fyrir hjól
Hjóli hringdi:
Það hefur víst oft verið
talað um hve illa sé búið að
hjólandi fólki í umferðinni
hérlendis. En ekki sakar að
láta enn nokkur orð falla um
það mál, því ekkert virðist
þokast þrátt fyrir allt.
Ég fer allra minna ferða
hjólandi því ég hef ekki
bílpróf og sór þess eitt sinn
dýran eið að sóa aldrei pen-
ingum í þá vitleysu. Þetta
finnst mér mesta þjóðþrifa-
stefna og vildi óska að fleiri
hefðu sömu afstöðu og ég til
þessara mála. Umferðaslys-
um myndi fækka um allan
helming ef allir þeir sem eru
fullfrískir myndu fá sér hjól
í stað bíls. Enda sýnist mér
afskaplega auðvelt að kom-
ast af án bíls í bæjum að
minnsta kosti. Af rútum og
flugvélum er nóg á íslandi
og mætti fólk gera miklu
meira af að nota sér þau far-
artæki.
En hvað um það. Hér í
Reykjavík, ég býst við að
sama gildi um aðra kaup-
staði landsins, er ekkert
hugsað um hjólreiðamenn.
Þeir geta varla hjólað á göt-
unum og er harðbannað að
vera á gangstéttum. Þetta
hlýtur að stórauka hættu á
slysum, því það er ekki hægt
að hjóla nema vera innan
um bílaþvögu. Miklu væri
bjargað ef á fjölfarnarni
götum væru sérstakar ak-
reinar fyrir hjól. Þetta er
gert í flestum öðrum lönd-
um og hefur gefist vel.
Loks langar mig að hvetja
stjórnvöld til að niðurgreiða
hjól og reyna að hvetja fólk
til að kaupa þá farkosti, því
það er öllum til góðs ef fólk
ferðast í auknum mæli á
Fleiri dans-
og söngvamyndir
Soffía hringdi:
Mig langar að biðja sjónvarpið
um að sýna fleiri dans- og
söngvamyndir. Það er alltof
mikið sýnt af heimildamyndum
en þær finnst mér frekar leiðin-
legar.
Soffíu finnst heimildamyndir leiðinlegar en þessi mynd er einmitt úr
einni slíkri, Kyrrahafslöndum, sem sýnd er á miðvikudögum.
Síldarkvóti
Óskum aö kaupa síldarkvóta á komandi
vertíö. Vinsamlega hafiö samband sem
fyrst.
Stakfell
687633
Opið virka daga 9.30—6
og sunnudaga 1—4.
Haust og vetrar-
tískan komin
Rafkniínar
snigilloftþjöppur
frá
INGERSOLL-RAND
O Ótrúlega lágværar
O Sérlega fyrirferðarlitlar
O í utliti eins og nýtísku
heimilistæki
Vinnuþrýstingur: 7,5 kg./cm2
Afköst: frá 1.7 m3/mín. (28 1/sek.)..
Afar hagstætt verð
Til afgreidslu med mjög skömmum fyrírvara
IJmboð [hIheklahf
á Islandi Laugavegt 170-172 Simi 212 40