Morgunblaðið - 25.08.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.08.1985, Blaðsíða 31
i* 3i MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985 SYLVESTER STALLONE Lenti í lífsháska ríður til Hollywood og var búsett þar í þrjú ár. Leiðin lá svo til New York og þar átti hún sitt heimili í ein sex ár. 1 millitíðinni dvaldi hún í Austurlöndum og kom heim af og til og söng og gerði nokkra sjónvarpsþætti. „Það voru ýmis tilboð í upphafi sem ég fékk og hafnaði þar sem þau voru ekki nógu fýsileg og þar á meðal var eitt frá Columbia Pictures sem hljóðaði upp á 7 ára starfssamning. í New York vann ég við sjón- varpsauglýsingar og þá t.d. fyrir merki eins og Revlon, Cadilac, Mercedes Benz, Kent, IBM, Luft- hansa og Clarol. Ég kom einnig fram í sjónvarps- þáttum eins og þáttum Dean Martin, Lucy og Dr. Kildare. Þekktasti sjónvarpsþátturinn sem ég lék í var Beverly Hill-Billies sem CBS sjónvarpsstöðin lét gera. Nú, ég lék í nokkrum kvikmynd- um og fór m.a. með aðalhlutverkið í myndinni „The Crawling Hand“ sem er sambland af geimvísinda- og hryllingsmynd. Sú mynd hefur reyndar aldrei verið sýnd hér heima. Þá lék ég í myndunum „Hitler" og „Bedside Story" en í þeirri síðarnefndu voru aðalhlut- verkin í höndum Marlon Brando og David Niven. Nokkru eftir að ég kom heim til íslands ákvað ég að drífa mig í Háskólann og tók BA-próf með ensku sem aðalfag. Ritgerðin mín fjallaði um bók É.M. Forster „A Passage To India". Ég lagði áherslu á eina aðalpersónu sög- unnar frú Moore en samkvæmt minni túlkun byggir Forster per- sónur sínar á andstæðum. Að undanförnu hef ég verið að kenna við Fjölbrautaskóla Suður- nesja en er að leita mér að vinnu núna. — Hefurðu eitthvað sungið eða leikið undanfarin ár? „Nei, það hefur gefist lítill tími til þess. Síðast söng ég opinber- lega á Sögu 1972 en svo söng ég um hríð með Pólýfónkórnum en það dæmi gekk ekki upp með skól- anum. Ég lék aftur á móti í mynd Hrafns Gunnlaugssonar „Okkar á milli" sem verið var að gera um það leyti sem ég var að ljúka BA- ritgerðinni minni og það var mjög skemmtileg tilbreyting frá nám- inu segir Sirrý að lokum og brosir óþvinguð um leið og hún stillir sér upp fyrir ljósmyndarann augsýni- lega vön linsunni sem viðmælend- ur blaðamanna líta annars oft á tíðum á skelkuðum augum. Svona í leiðinni birtum við þessa mynd sem tekin var í 39 ára afmælisveislu hans fyrir skömmu. Á myndinni eru með honum unnustan Gitte og sonur- inn Sage. COSPER — Þið rerðið að fyrirgefa að ég lét ykkur ekki rita að ég ræri að koma. Ég rildi bara tryggja að þið yrðuð heima. Þegar verið var að taka upp atriði í mynd Sylvesters Stallone, „Rambo, First Blood, part 11“ í Acapulco, Mexíkó, lenti hann í lífsháska þegar stormur geisaði á staðnum. Þessi stormur var með þeim verri sem menn muna eftir í lang- an tíma og skaðinn sem hann olli nam 50 milljónum dollara. Á tímabili lá við að allt ætlaði um koll að keyra þar sem Sylvest- er var staddur og fólki ráðlagt að forða sér hið skjótasta. Vanda- málið var þó að vegir voru allir lokaðir og engin undankomuleið, nema að ganga. Öryggisverðirnir voru í burtu þennan dag og það var enginn ná- lægt stjörnunni nema einn vinur hans, hinir voru í 9 mílna fjar- lægð. En Stallone var í góðri þjálfun og ásamt vini sínum sem heitir Tony lögðu þeir af stað um miðja nótt og börðust í gegnum rigningu og storm yfir fjöllin til að ná til Acapulco. Þeir voru í fjórar klukkustundir að komast til byggða og því morg- unn þegar þeir mættu á skrifstofu framleiðandans til að skýra frá hremmingum sínum. Bandalag kennarafélaga og Kennaraháskóli íslands efna til ráöstefnu um ÍSLENSKA SKÓLASTEFNU laugardaginn 31. ágúst kl. 9.00 til 17.00 aö Borg- artúni 6, Reykjavík. Erindi flytja: Jónas Pálsson rektor Kennaraháskóla íslands, Sólrún Jensdóttir skrifstofustjóri í Menntamála- ráðuneyti, Svanhildur Kaaber formaður Banda- lags kennarafélaga, dr. Wolfgang Edelstein próf- essor viö Max Planck-rannsóknarstofnunina í Vestur-Berlín. Tilkynnið þátttöku á skrifstofu Kennaraháskól- ans í síma 91-686065 fyrir 28. ágúst. Ráðstefnan er öllum opin. Hyper Sapien Ég þakka fyrir hönd Talia Film í London fyrir hinn mikla áhuga á hlutverkum í myndinni „Hyper Sapien", en tökur hefj- ast í Kanada 9. september. Þótt mjög margir heföu komiö og sýnt mikla hæfileika þá var samt ákveðiö aö velja ekki krakka í þessa mynd héöan. Ekki er hægt aö skýra frá því aö svo stöddu hvaöa krakkar voru valdir í hlut- verkin vegna þess aö samningar viö viökomandi eru ófrágengnir. Öllum myndböndum og Ijósmyndum sem hafa veriö send utan af landi verö- ur skilaö. VILHJALMUR KNUDSEN Vokfilm (The Volcano Show), Hellusundi 6A, Reykjavík. Bátar til sölu Lengd: 6,20, br. 2,45. Vél: Suzuki 85 hp. Ganghraöi: 28 milur. Fullfrágenginn meö svefnplássi fyrir 4—5, vask og eldunaraöstöðu. Sumarhús á sjó. Sómi 600 Lengd: 6,15, br. 2,42. Vél: BMW 190 hp. Ganghraði: 38 mílur. Ekki alveg fullfrágenginn en sjóklár. Góöur sjó- bátur. Báöir bátarnir eru nýir og ónotaðir. Viö- urkenndir af Siglingamálastofnun ríkis- ins. Greiöslukjör möguleg. Bátarnir eru til sýnis í Snarfarahöfn, Elliöaárvogi. Upp- lýsingar eftir kl. 17.00 í síma 41020. Upplýsingar veitir infjj Vélar & Taeki hf. \VII>y Tryggvagata 10. TSBf Símar 21286 og 21480. Flipper 620

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.