Morgunblaðið - 25.08.1985, Page 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
SÍÐASTI
HÁLFTÍMINN
V
X
•t
H
m
m
Minningarathöfn japanskra glfmumanna í flakinu. Eiginkona og tvaer
dætur leiðtoga þeirra fórust
hugavert við viðgerð er afturhluti
vélarinnar rakst í flugbraut í
iendingu 1978. Þá var skipt um
neðri hluta þrýstingsskilrúms.
Ýmsir telja að þrýstingsfallið
hafi stafað af því að stélkambur-
inn losnaði, en ekki að stélkamb-
urinn hafi losnað vegna þrýst-
ingsfallsins.
Sumir segja að hægt þrýstings-
fall og leki í gegnum þrýstings-
skilrúmið hafi losað hluta stélsins
á einhvern hátt. Þegar flugvélin
hækkaði flugið hafi hraði loftsins,
sem lék um hina Iausu hluta stéls-
ins, togað stélið í burtu yfir Sag-
ami-flóa.
Aðrir segja að snöggt þrýst-
ingsfall og sprenging hafi orðið,
en ekki fyrr en loftið úr farþega-
klefanum lak greiðlega í gegnum
þrýstingsskilrúmið. Samkvæmt
því hafi Takahama þá neyðzt til
að lækka flugið í örugga hæð, en
flogið hættulega nærri fjallinu og
því hafi vélin farizt.
Sérfræðingar Boeing útiloka að
bilun á þrýstingsskilrúm hafi
valdið slysinu. Þeir telja að „utan-
aðkomandi þrýstingur" hafi valdið
skemmdum á stélkambinum og
álita útilokað að loft hafi skyndi-
lega farið að streyma út úr loft-
þrýstu farþegarýminu. Þeir hafa
ekki útskýrt hvað þeir eigi við með
slíkum þrýstingi, en kenningin um
að hurðin hafi rekizt í stélkamb-
inn hefur verið útilokuð að heita
má, þar sem hún fannst óskemmd.
Þessir sérfræðingar segja að
stélflöturinn hafi verið veikastur
fyrir efst og sá hluti hans hafi
sennilega losnað fyrst, ef hann
hafi orðið fyrir höggi innan úr
flugvélinni. En svo virðist að
stélkamburinn hafi fyrst brotnað
neðst. Efsti hlutinn hefur ekki
fundizt.
Fjórtán tíma töf
Sennilega hefði verið hægt að
bjarga miklu fleiri mannslífum, ef
björgunaraðgerðir hefðu ekki taf-
izt í 14 klukkutíma vegna klúðurs
og innbyrðis deilna japanskra
hjálparsveita að sögn Observers
Flestir þeirra 520, sem fórust,
létust samstundis og 464 lík fund-
ust, þar af 288 þekkjanleg, auk
þeirra fjögurra kvenna, sem kom-
ust lífs af.
Læknarnir, sem stunduðu kon-
urnar, segja að sterkar líkur séu á
því að fleiri hafi lifað af brotlend-
inguna, en dáið af völdum tauga-
Sérfræðingar rannsaka hluta þrvstingsskilrúmsins, sem brast.
og gat ekki hreyft mig. Eg missti
meðvitund."
„Ég heyrði gífurlega spreng-
ingu, farþegar fylltust skelfingu,
margir féllu í yfirlið og vélin
hristist og skókst," sagði Hiroko
Yoshizaki, átta ára, sem einnig
komst lífs af.
1 erfðaskrá og skilaboðum, sem
einn farþeginn, Hirotsugu Kawag-
uchi, hripaði í vasabók síðustu
mínútur flugsins sagði hann frá
„reyk, sem virtist koma frá
sprengingu í farþegaklefanum.
Við misstum hæð,“ skrifaði hann.
„Hvað gerist næst?“
Stjórnlaus
„Verið góð við hvert annað og
dugleg,“ skrifaði hann þremur
börnum sínum síðustu mínúturn-
ar þegar flugvélin hrapaði. „Vertu
sæl. Hugsaðu vel um börnin,"
skrifaði hann konu sinni.
Kl. 6.46 hafði Takahama aftur
samband við flugturninn og ljóst
var að áhöfnin var ekki lengur að-
eins áhyggjufull — mikill ótti
hafði gripið hana.
Nú hafði flugvélin lækkað flugið
í áformaða hæð, en nær ógerning-
ur var að stjórna henni. Halla- og
hæðarstýri voru óvirk og Taka-
hama gat aðeins stjórnað flugvél-
inni með hreyflunum.
Framundan, í tæplega 40 km
fjarlægð, var bandaríska flugstöð-
in í Yokota (milli slysstaðarins og
Tókýó). Aðalflugbrautin hafði ver-
ið hreinsuð svo að flugvél JAL
gæti nauðient þar.
Flugvélin gat lent í Yokota og
um tima var hún nær Nagoya en
Tókýó. En Takahama ákvað að
snúa heldur aftur til Tókýó vegna
þess að þar var löng flugbraut og
öruggari aðstæður. Sérfræðingar
telja að það hafi verið rétt ákvörð-
un.
Takahama hefur líklega minnk-
að aflið til hreyflanna á stjórn-
borða til að beygja til hægri, aust-
ur til Tókýó. Það getur hafa verið
skýringin á miklum sveig sem
flugvélin tók nálægt Fuji-fjalli,
sem er 100 km vestur af Tókýó.
Nokkrum mínútum síðar hafði
flugvélin farið heilan hring (sjá
kort). Það getur hafa stafað af því
að Takahama hafi mistekizt að
stjórna þotunni með hreyflunum
einum með því að láta mismun-
andi mikið eldsneyti fara til hvers
hreyfils um sig og að stélkambinn
vantaði svo að ekki var hægt að
halda vélinni stöðugri. Takahama
virðist enn ekki hafa vitað að hlið-
arstýrið og mestallur stélkambur-
inn voru horfin.
Sjónarvottar, sem sáu Boeing-
flugvélina á síðustu mínútum
hennar, segja að hún hafi flogið
mjög lágt norður með hlíðum
Mikuni-fjalls, sem er 1828 metra
hátt.
Þar sem Takahama gat ekki
hækkað flugið með venjulegum
ráðum varð hann að gefa öllum
hreyflum fullt afl til að komast
yfir fjöllin. Flugvélin straukst við
nokkra fjallshryggi, klauf trjáboli
á einum þeirra og skall síðan á
suðurhlið fjallsins Osutaka, sem
Flugritinn fluttur (japanska sam-
göngumálaráðuneytið.
er 1639 metra hátt og 110 km
norðvestur af Tókýó.
Sumir telja að Takahama hafi
ekki gert sér grein fyrir því í
hvaða hæð flugvélin var og að við-
vörunarhljóð í flugstjórnarklefa
til marks um nálægð við jörðu
hafi heyrzt of seint til þess að
hægt væri að komast hjá brot-
lendingu.
En líklega hefur sérþekking
Takahamas ekki nægt til að
bjarga stýrislausri, óstýranlegri
vél með óvirku hæða-, halla- og
hliðarstýri og óvirkum vökvabún-
aði. „Ef Takahama hefði ekki ver-
ið flugstjóri í ferðinni hefði flug-
vélin steypzt í sjóinn eða til jarðar
miklu fyrr,“ segir talsmaður JAL.
Þrjár kenningar
Þeirri spurningu hefur enn ekki
verið svarað hvers vegna stélið
brotnaði með þeim afleiðingum að
520 létu lífið.
Þrjár helztu kenningarnar eru
þessar að sögn The Times:
— Tæring vegna þéttingar raka
og leka frá salerni hafi valdið bil-
un í þrýstingsskilrúminu með
þeim afleiðingum að stélið losnaði.
— Málmþreyta eftir þúsundir
flugferða á stuttum leiðum hafi
valdið sprungumyndun á þrýst-
ingsskilrúminu, eða orðið til þess
að festingar stélkambsins losnuðu.
— Stélkamburinn hafi losnað,
þar sem eitthvað hafi verið at-