Morgunblaðið - 25.08.1985, Page 13

Morgunblaðið - 25.08.1985, Page 13
----------MORQUKDLAPIÐ, 8BWNWPAQUH29: ÁOÚ9T1989 ---- .'B "—19» fjötrum, en hún losaði brátt af sér handjárnin og hóf sjálft landnám- ið. Hinir nýju landnemar tóku að erja jörðina, fyrst ófrjálsir en síð- ar eigin herrar. Fólkið leitaði inn í landið, fann góð beitilönd og kom sér upp bústofni. Fátæklegu tjaldborgirnar og hrörlegu bjálka- kofaþorpin urðu smám saman að borgum og bæjum. Saga Ástralíu á þessum frumbýlingsárum er að vísu harla ófögur á köflum enda var þar misjafn sauður í mörgu fé. Lífsbarátta þessa fólks var geysi- hörð og hin mikla fólksfæð stóð landinu fyrir þrifum lengi framan af. Fangainnflutningurinn hélt áfram og ýmsir örlagaríkir at- burðir, svo sem fundur gulls og ullarframleiðsla urðu til að örva fólksflutninga til landsins. Þannig þróaðist Ástralía hægt og hægt, en framfarir urðu ekki stórstígar fyrr en eftir miðja 19. öld og þó einkum eftir síðustu aldamót, er ríkin sameinuðust undir einni stjórn og Sambandsríkið Ástralía var stofnað. Ein öld í sögu þjóðar er ekki langur tími, en engum dylst, að stórstígar framfarir hafa orðið í Ástralíu á seinustu áratugum. Ef Sir Joseph Banks og Arthur Phill- ip mættu rísa úr gröfum sínum til þess að sjá hinar glæsilegu stór- borgir, margþætt atvinnulíf og at- orkusama íbúana, myndi þeim sjálfsagt þykja allvel hafa ræst úr hinum hlekkjuðu löndum sínum. * A vit ævintýranna Skal nú vikið að ferðaáætlun heimsreisunnar í stórum dráttum. Flogið verður frá Keflavík til Amsterdam að morgni hins 15. nóvember ög þaðan áfram til Bangkok með tveimur millilend- ingum. Að morgni 16. nóvember verður lent í þessari litríku, glað- ■ - * Astralir eru þekktir fyrir ullarfram- leiðsluna og í landinu eru yfir 10 milljónir sauöfjár. mannaforráð á skipi því, sem Jörgensen kom á til íslands í hinni sögufrægu ferð sinni 1809, er hann lýsti sig „verndara íslands og hæstráðanda til sjós og lands“. Einkennilegri tilviljun er það þó að örlög Jörgensens og land- námssaga Ástralíu bundust sam- an í þéttriðinn hnút. Þar rættist æskudraumur hans, að sigla í kjölfar sjógarpsins mikla, James Cook, og þar beið hans einnig hin dýpsta niðurlæging. Sem ungur maður stundaði Jörgensen hval- veiðar frá Sydney og hann var stýrimaður á skipinu, er flutti fanga þá, sem stofnuðu Newcastle í Nýja Suður-Wales. Síðar á æv- inni var Jörgensen sjálfur fluttur t hlekkjum til sakamannanýlend- unnar, sem velgjörðarmaður hans, Sir Joseph Banks, hafði átt þátt í að stofna, og þar lauk hann stormasamri og viðburðaríkri ævi sinni. fslenskir heimsreisufarar mega því minnast þess, er þeir drepa fæti á ástralska grund, að * Fjölbreytileiki dýralifsins í Ástrslíu er meö ólíkindum. Kengúran er þó Áströlum hjartfólgnust enda þeirra einkaeign. Leiöin sem farin verður i sjöttu heimsreisu (Jtsýnar. þar steig fyrrum verndari þeirra, eini maðurinn sem borið hefur konungsnafn á (slandi, sín þyngstu spor. Fyrsti flotinn En hér skal farið fljótt yfir sögu. í janúar 1788 sigldi fyrsti floti fangaskipanna inn á Flóru- flóa. Skipin voru 11 talsins með tæplega 1500 manns innanborðs, þar af voru rúmlega 700 fangar, konur og karlar. Kjör þessa fólks voru ákaflega bágborin, en margir höfðu látist á leiðinni af illri með- ferð, hungri og drepsóttum. Art- hur Phillip, leiðangursstjóri, var kjörinn fyrsti landstjóri Ástralíu og fékk hann ærið verkefni að koma þar á réttri skipan mála. Phillip flutti sig til Port Jackson og stofnaöi formlega nýlendu í Syndney Cove hinn 26. janúar 1788. Var það fæðingardagur ástr- ölsku þjóðarinnar og síðar þjóð- hátíðardagur hennar. Koma fyrstu fangaskipanna til Ástralíu hefur að vonum rist djúpt í sögu þjóðarinnar. Hvert mannsbarn þar kannast við orðin „The First Fleet“, og veit hvað þau tákna þegar rætt er um þessa at- burði. Ástralska þjóðin fæddist í Frá Nambung þjóögaröinum f Vestur-Ástralíu. væru höfuðborg skemmtanalífsins í Austurlöndum og haldið beint á „Bangkok Hilton Hotel“ þar sem dvalið verður í þrjá daga á þessum glæsilega gististað. Boðið verður upp á kynnisferðir um borgina og nágrenni hennar, á flotmarkað- inn, i Rósagarðinn, Konungshöll- ina, Wat Phra Keo-musterið og helstu Búddha-musterin, svo sem musteri Gull-Búddha, Marmara- Búddha og Hallandi-Búddha, svo eitthvað sé nefnt að undrum þessa töfraheims. Bangkok hefur yfir sér leyndardómsfullan ævintýra- hjúp og því viðbúið að dvölin þar verði mönnum minnisstæð. Að morgni 19. nóvember verður haldið áleiðis til Sydney með við- komu í Singapore og Jakarta, höf- uðborg Indónesíu. Sydney er ein- hver nýtískulegasta og fegursta borg heims og skipar öndvegi í sögu Ástraliu, eins og fram kemur hér að framan. Þar verður dvalið næstu átta nætur, á einu glæsi- legasta hóteli borgarinar, Sydney Hilton. Ástralía er 7,7 milljón fer- kílómetrar að stærð þar sem fjöl- breytni landslags, gróðurs og dýralífs er með ólíkindum, frá al- þjóðlegum nútímaborgum austur- strandarinnar um víðáttur mið- lendisins til eyðimerkurinnar í vestri. Heimsreisufarar fá nokkra innsýn i þennan framandi heim, með fjölbreyttu úrvali kynnis- ferða, meðan dvalið er í Sydney. Má þar meðal annars nefna tveggja daga ferðir til Alice Spring og Ayers Rock, sem nefnt hefur verið „hið rauða hjarta Ástralíu“. Þá má nefna dagsferðir til Melbourne og höfuðborgarinn- ar Canberra auk þess sem skoðað verður hið markverðasta í Sydney og nágrenni. Að lokinni þessari viðdvöl í Syd- ney stendur valið um 5 daga ferð til Nýja Sjálands, áframhaldandi dvöl í Sydney eða dvöl á „Gold Coast“, Gullströndinni, einni glæsilegustu baðströnd heims með úrvali veitingahúsa og skemmti- staða. Á Gullströndinni verður f Hitabeltisregnskógum viö Tamborine Mountain.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.