Morgunblaðið - 25.08.1985, Síða 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
ÁSTRALÍA —
HINN NÝI TÖFRAHEIMUR
dvalið í lúxusíbúðum Peninsula,
við hvíld og skemmtun. Þar verður
einnig boðið upp á kynnisferðir
um nágrennið, meðal annars í
heimsfrægt sjávardýrasafn, þar
sem hákörlum er gefinn matur og
sæljón leika listir sínar.
Hinn 3. desember hittast heims-
reisufarar á ný í Sydney og verður
þaðan flogið til Denpasar, höfuð-
borgar eyjarinnar Balí. Um Balí
hefur verið sagt, að þar brosi fólk-
ið og tilveran við mönnum með
seiðandi dulmögnuðum töfrum
sem séu líkt og af öðrum heimi.
Eyjan sé vitnisburður um fegurð,
samhljóm og samræmi, sem lýsi
sér jafnt í fegurð landsins og lífi
fólksins. Þar birtist háþróuð
menning í handbragði og listum
þessa nægjusama fólks, dönsum
þess, tónlist og myndskurði.
Næstu tvo daga verður dvalið á
Nusa Dua Beach, um 20 km fyrir
utan Denpasar á rólegum, friðsæl-
um stað við pálmaekru og hvíta
strönd. Farið verður í kynnisferðir
um eyjuna, meðal annars í lista-
þorpin og til fjallsins helga, Gun-
ung Agung. Hinn 6. desember
verður svo haldið heim á leið og
lent í Amsterdam að morgni
næsta dags, og þá er framhalds-
flug til Keflavíkur fyrir þá sem
þess óska. Möguleikar á framleng-
ingu ferðarinnar eru margar, til
dæmis í Amsterdam, viðbótarvika
á Balí og einnig er hægt að verða
eftir í Sydney og fljúga heim síðar
um Balí.
Hér hefur aðeins verið unnt að
Norræna húsið:
Tveir norskir myndlistarmenn
KAARK Espolin Johnson málari og
Knut Skinnarland myndhöggvari
opna sýningu á verkum sínum í sýn-
ingarsölum Norræna hússins í dag
kl. 15.00.
Kaare Espolin Johnson hefur
sýnt verk sín víða, bæði heima og
erlendis og á myndir á mörgum
söfnum m.a. í Nasjonalgalleriet í
Ósló. Hann hefur gert mikið af
myndum frá Norður-Noregi,
myndirnar eru oft dökkar og
þungbúnar, en fullar af stórkarla-
legri kímni. Hann er ættaður frá
íslandi, nánar tiltekið frá Espihóli
eins og nafnið bendir til. Hann
vinnur myndir sínar oft í „naiv“-
stíl og ein af þekktari myndum
hans heitir „Bærinn hans langa-
langafa á Islandi". Þar má sjá
burstabæ, þar sem konur laga mat
í einu af bæjarhúsunum, gestir
blóta Bakkus i öðru, langafi faðm-
ar kærustu sína í því þriðja og
hestarnir bíta gras á þekjunni.
Knut Skinnarland hefur oft tek-
ið þátt í Listasýningu ríkisins í
Noregi og sýnt bæði á einkasýn-
ingum og samsýningum í Noregi
og víðar um lönd. Hann hefur m.a.
unnið að höggmyndum og skreyt-
ingum við Niðarósdómkirkju.
Hann sýnir hér bæði höggmyndir,
skissur og vatnslitamyndir.
Sýning þeirra félaga mun
standa til 1. september.
í vetur gefur Atlantik kost á
dvöl á Mallorka, frá 21. októ-
ber til 26. marz.
í boöi er hiö glæsilega hótel
Bosque Sol, í höfuðborg Mall-
orca, Palma. Dvaliö er í stúdíó-
íbúöum, sem eru stofa og eld-
hús, en einnig er fullkomin
hótelþjónusta, ásamt hitaöri
sundlaug, sauna, nuddi, mini-
golfi, þvottahúsi, verzlun, bar
og fleiru. Innifaliö er hálft
fæöi.
Hótelið er vel staðsett, viö Belver Park, þar sem stutt er í allar verzlanir,
veitingahús og yfirleitt allt er hugurinn girnist.
m(KVTM(
Feröaskrifstofa, lónaóarhúsinu, Hallveigarstíg 1, s. 28388.
DINERS CLUB
INTERHATIONAL
á íslandi í 50ár
KAUPMENN
Höfum til afgreiöslu strax
búöarvogir á mjög hagstœðu veröi.
Ath. sérstaklega góð greiðslukjör
Leitið nánari upplýsinga.
ÖUVflJR OÍSIASOW 4 CO. HF
SUNDABORG 22 104 REYKJAVIK SIMI 84800
Fullkomin viðgerða og varahlutaþjónusta að
Smiðshöíða ÍO Sími 686970.