Morgunblaðið - 25.08.1985, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 25.08.1985, Qupperneq 18
i8 é og framfylgja skipunum, þótt þær væru óframkvæmanlegar. „EINRÆÐIS- HERRA ÆSKUNNAR“ Þar til önnur æskulýðsfélög en Hitlersæskan voru bönnuð 1. des- ember 1936 hafði hún heyrt undir menntamálaráðuneytið, en sam- kvæmt tilskipuninni varð Schir- ach leiðtogi hennar og ábyrgur gagnvart Hitler einum. Eins og William Shirer bendir á varð Schirach „einræðisherra æsku Þriðja ríkisins". Upp frá þessu tilheyrðu drengir og stúlkur á aldrinum sex til 18 ára ýmsum samtökum Hitlers- æskunnar og síðan tók við skyldu- vinna og herþjónusta. í árslok 1934 voru félagar í Hitlersæsk- unni 3,5 milljónir og í árslok 1936 um 6 milljónir. Þar sem Hitlersæskan tók við af fyrri ungmennafélögum varð breytingin hægfara og varla merkjanleg í fyrstu. Skipulagið, starfsemin, ferðalögin, sumarbúð- irnar, einkennisbúningarnir og varðeldarnir — allt var þetta í samræmi við það sem áður hafði þekkzt, þótt boðskapurinn væri annar og róttækari. Foreldrar, sem voru fundnir sekir um að reyna að koma í veg fyrir að börn þeirra gengju i sam- tökin, áttu yfir höfði sér þunga fangelsisdóma. Viðurlögum var beitt, þótt oft væri eina mótbára foreldranna sú að þeir vildu ekki að dætur þeirra væru í samtökum, sem voru alræmd fyrir að stúlkur í þeim yrðu oft barnshafandi. GEGN SKYNSEMI Menntun æskunnar var skipað skör lægra en pólitískum mark- miðum stjórnarinnar. Árið 1935 hafði verið nár þjálfunar" í ýms- um myndum: líkamsþjálfunar, herþjálfunar, „listaþjálfunar", at- vinnuþjálfunar, „kynþáttaþjálfun- ar“ og jafnvel „heimilisþjálfunar“. Farið var niðrandi orðum um skynsemi, þekkingu og gáfur. Obergebietsfuhrer (yfirsvæðis- stjóri) dr. Hellmuth Stellreicht sagöi: „Á þessu ári viljum við komast á það stig að þýzkir drengir kunni eins vel að fara með byssu og penna. Það er furðulegt hugar- ástand að eyða árum saman mörg- um tímum á dag í skrautritun og réttritun, en ekki einum einasta tíma í skotfimi. Þeir sem aðhylltust frjálslyndi skrifuðu „þekking er máttur" yfir skóladyrnar. En við lærðum það í striðinu og á árunum eftir það að vald þjóðarinnar hvílir að lokum á vopnum hennar og þeim sem kunna með þau að fara.“ Áhrifum innrætingarinnar í Hitlersæskunni var lýst í bókar- auglýsingu: „Hvað gerist innra með svona dreng þegar straumurinn hrífur hann með sér? Hvað er það sem rekur hann áfram? Hvað kallar á hann, fyllir hann hugmóði, tor- tímir honum? Hvað fær 15 ára barn til að fara frá móður sinni, hata föður sinn, fyrirlíta fyrrverandi vipi sína? Norkus og Preisser (ungir „písl- arvottar" nazista) voru lítið eldri þegar þeir létu lífið fyrir hugsjón- ir, sem þeir voru of ungir til að skilja ... hugsjónir sem þeir höfðu aðeins hugboð um .“ „BLÓÐFÁNI“ Drengir á aldrinum sex til tíu voru nokkurs konar lærlingar í Hitlersæskunni. Hver drengur fékk bók, þar sem skráðar voru upplýsingar um frammistöðu hans í hreyfingunni, m.a. hve miklum „hugsjónaþroska" hann hefði náð. Tíu ára gamlir gengu drengir í samtökin Jungfolk, ef þeir stóðust próf í líkamsíþróttum og sögu í anda nazisma, og unnu svofelldan eið: „Ég sver í viðurvist þessa blóð- fána, sem er tákn Foringja okkar, að beita öllum kröftum mínum og allri orku minni í þágu frelsara okkar, Adolfs Hitlers. Ég er þess albúinn að fórna lífi mínu fyrir hann, svo hjálpi mér Guð.“ MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985 Stúlkur úr Hitlersæskunni við hátíðlega athöfn í Berlín í júní 1936. Nokkur veggspjöld Hitlersæskunnar. Fjórtán ára gamlir gengu drengir í Hitlersæskuna sjálfa og voru í henni til 18 ára aldurs, þeg- ar þeir gengu í skylduvinnusveit- irnar og landherinn. Hitlersæskan var geysistór og öflug hreyfing, skipulögð og þjálf- uð sem her líkt og SA. Ungmennin fengu bæði skipulagða þjálfun í útilegum, íþróttum og hugmynda- fræði nazista og hermennsku. Stundum fengu stúlkur þjálfun í hermennsku. A aldrinum 10—14 ára voru þær „Jungmádel" (ung- meyjar) og fengu yfirleitt sömu þjálfun og drengir á sama aldri. Þær urðu m.a. að fara í langar gönguferðir um helgar með þunga bakpoka og fengu sömu innræt- ingu í hugmyndafræði nazista. Hins vegar var á það lögð áherzla í Þriðja ríkinu aö konur væru heilbrigðar mæður, sem ættu heilbrigð börn. Á þetta var lögð aukin áherzla eftir fjórtán ára aldur, þegar stúlkur gengu í BDM (Bund deutscher Mádel), sem þær voru í þangað til þær urðu 21 árs gamlar. Nokkur þúsund átján ára stúlk- ur störfuðu á bændabýlum í eitt ár (Landjahr) og það samsvaraði skylduvinnu pilta. Stúlkurnar dvöldust einnig í vinnubúðum, sem voru stundum í grennd við vinnubúðir piltanna. Oft var kvartað yfir lauslæti, bæði á býl- unum og í búðunum. Svipuð vandamál komu upp þeg- ar 500.000 stúlkur úr Hitlersæsk- unni voru vinnukonur á heimilum í borgum í eitt ár. Hins vegar segir Shirer að sumar af konum þeim, sem stjórn- uðu BDM, hafi brýnt fyrir ungum stúlkum, sem voru undir handar- jaðri þeirra, að það væri siðferði- leg og þjóðleg skylda þeirra að ala börn fyrir Hitlersrikið, helzt inn- an hjónabands, en utan þess, ef það væri nauðsynlegt. ALISHERJAR- KVAÐNING í árslok 1938 voru rúmlega 7,7 milljón ungmenni í Hitlersæsk- unni. Um fjórum milljónum ungmenna hafði þá tekizt að standa utan við samtökin. í marz 1939 voru gefin út lög um kvaðningu allra ungmenna í Hitl- ersæskuna, á sömu forsendu og menn voru kvaddir í herinn. For- eldrar, sem hreyfðu mótbárum, voru varaðir við því að þeir yrðu sviptir forræði yfir börnum sínum og börn þeirra sett á munaðar- leysingjahæli eða aðrar stofnanir, ef þau innrituðu sig ekki. Urval Hitlersæskunnar gekk í þrenns konar skóla: skóla, sem voru kenndir við Adolf Hitler („AH-skólar“) og voru undir stjórn Hitlersæskunnar, og póli- tíska skóla og i „reglukastalala", sem lutu stjórn flokksins. Efnilegustu meðlimir Jungfolk hófu nám í AH-skólunum 12 ára og fengu sex ára þjálfun til undir- búnings því að taka við forystu- hlutverkum í flokknum og þjón- ustu ríkisins. Þetta voru heima- vistarskólar, þar sem járnagi ríkti, og þeir sem útskrifuðust fengu inngöngu í háskóla. Tíu slík- ir skólar voru stofnaðir eftir 1937. Tilgangur pólitísku skólanna var að endurvekja kennslu, sem áður hafði verið veitt í prússnesk- um herskólum. Leitazt var við að rækta „hermennskuanda og ein- kenni hans, skyldurækni, ábyrgð- artilfinningu og látleysi". Við þetta bættist sérstök þjálfun í grundvallarkenningum nazista. Skólarnir voru undir umsjón SS, sem lét í té skólastjóra og flesta kennara. Þrír slíkir skólar voru stofnaðir 1933 og þeir voru orðnir 31 þegar heimsstyrjöldin hófst, þar af þrír kvennaskólar. „KASTALA- KENNSLA“ Svokallaðir Reglukastalar (Ordenburgen) skipuðu æðsta sess. Þar var andi kastala Tevtónaridd- aranna og reglu þeirra á 14. og 15. öld endurvakinn og blómi nazista þjálfaður. Tevtónariddararnir höfðu bar- izt fyrir landvinningum í austri og reynt að hneppa Slava í ánauð. Regla þeirra byggðist á skilyrðis- lausri hlýðni við meistara hennar (Ordensmaster). Reglukastalar nazista voru reknir í svipuðum anda og í iíkum tilgangi. Aðeins ofstækisfullir ungir naz- istar fengu inngöngu og þeir voru venjulega úr röðum þeirra sem fengu hæstu einkunnir í AH-skól- unum og flokksskólunum. Reglukastalarnir voru fjórir og nemendur stunduðu nám í þeim öllum. Fyrsta árið af sex voru þeir sérhæfðir í „kynþáttavísindum" og öðrum þáttum hugmyndafræði nazista. Áherzla var lögð á and- lega þjálfun, en líkamsþjálfun sett skör lægra. Annað árið var þessu snúið við í öðrum kastala og meg- ináherzla lögð á líkamsrækt og íþróttir, m.a. fjallgöngur og fall- hlífastökk. Nemendur voru í þriðja kastal- anum í eitt og hálft ár og fengu þar pólitíska og hernaðarlega fræðslu. Loks voru þeir sendir til eins og hálfs árs dvalar í fjórða kastalanum, Oldenburg í Marien- burg í Austur-Prússlandi. Sá kastali hafði verið vígi Tev- tónariddaranna fimm öldum áður og pólitísk og hernaðarleg þjálfun nemenda þar beindist að land- svæðunum í austri og þörf Þjóð- verja á auknu „lífsrými" (Lebens- raum) í löndum Slava. LÍF OG DAUÐI Þannig, segir Shirer, var æskan „búin undir líf, störf og dauða í Þriðja ríkinu". Hann skrifar: „Þótt hugur þeirra væri eitrað- ur að yfirlögðu ráði, venjuleg skólaganga þeirra slitin í sundur, heimili þeirra að mestu leyst af hólmi sem uppeldisstofnanir, virt- ust ungu mennirnir og konurnar ákaflega hamingjusöm og full af lífsþrótti í Hitlersæskunni. Og á því lék enginn vafi að sá háttur var í sjálfu sér góður og heilbrigður að leiða saman börn úr öllum þjóðfélagshópum og starfsstéttum og láta jafnt þá sem höfðu fæözt í fátækt og siðan kynnzt betri kjörum og þá sem komu frá heimilum verkamanna, smábænda, kaupsýslumanna og aðalsmanna vinna sömu verkin. í flestum tilfellum varð borgar- dreng eða stúlku ekki meint af því að vera sex mánuði í skylduvinnu- sveitum, lifa undir beru lofti og kynnast gildi líkamlegrar vinnu og öðrum af ólíkum uppruna ... þetta var ótrúlega þróttmikil æskulýðshreyfing, hversu skugga- leg sem kennslan var.“ I ársbyrjun 1939 sömdu yfir- stjórnir heraflans og Hitlersæsk- unnar um alhliða þjálfun í öllum greinum landvarna í sérstökum þjálfunarbúðum. Sérstakar deildir voru myndaðar innan Hitlersæsk- unnar. Árið 1938 voru 50.000 ungmenni í flotadeild Hitlersæskunnar, 90.000 í vélvæddu Hitlersæskunni, 74.000 í flugdeildinni, 73.000 í flugvélalíkanadeild og 29.000 í fjarskiptadeild. „ÆSKURÍKIГ í stríðsglæparéttarhöldunum í Núrnberg eftir stríðið sagði Schir- ach að hann hefði reynt að koma á fót „æskuríki innan Ríkisins“. Sagnfræðingurinn Fest segir að honum hafi að vissu leyti tekizt að brúa kynslóðabilið. En ef betur er að gáð, segir hann, var öllu snúið við. Foreldrar voru neyddir til að verða háð börnum sínum og undir þau gefin. Yfirvöld stóðu í stríði við foreldra, kirkjur og kennara. Eitt sinn sakaði Shirach þessa aðila um að gleyma því „að í æðra skilningi hefði æskan alltaf rétt fyrir sér“. Æskan lagði áherzlu á sérstöðu sína og yfirburði með eig- in siðareglum, sálmum, leiðtogum og píslarvottum. „Æskan verður að leiða æskuna," sagði Hitler. Þó hefur uppvaxandi kynslóð sjaldan verið eins ósjálfstæð, að sögn Fests, þótt hún gerði upp- reisn gegn borgaralegu umhverfi. Hitlersæskan var óaðskiljanlegur hluti flokksins, varð að hlýða skip- unum æðstu leiðtoga hans og varð verkfæri í höndum leiðtoganna. Unga kynslóðin skildi ekki hvað vakti fyrir leiðtogunum, því að hún var ópólitísk. Hún sá allt út frá eigin þörfum og taldi þeim fullnægt með leikjum og ævintýr- um. Kaldrifjuð valdapólitík varð fögur hugsjón í augum ungu kynslóðarinnar. Hún hélt alltaf að reynt væri að höfða til skynsemi hennar og lét sér aldrei til hugar koma að hún væri notuð í annar- legum tilgangi. „Fáar kynslóðir hafa verið eins auðtrúa," segir Fest. Enn þann dag i dag er óvist hvaða áhrif Hitlersæskan hafði í raun og veru. Grafskrift hennar gæti verið „Við fæddumst til að deyja fyrir Þýzkaland", eins og komizt var að orði í einum bar- áttusöng hennar, þ.e. Þýzkaland Hitlers. GH tók saman. (Ileimildir: rit Fests og Shirers um Þriðja ríkið o.fl.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.