Morgunblaðið - 25.08.1985, Side 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
Eg tryggi mér
fasta keilutíma
í vetur, en þú?
Vetrardagskrá hefst
10. september
KEILU-
fltofigtiiiWftfcife
Áskriftarsíminn er 83033
Otto Nadrasky að störfum.
Vínhneykslið hefur dregið dilk á eftir sér í vínhéraðinu Rust í Burgenlandi. Sala á vínum
smábændanna hefur dregist verulega saman.
: *■
RATZ
Wir fordern!
! Der Name Rust
i nur fiir Weine'
| aus der Freistadt
Rust!
Produktwahrheit
fur Ruster Weineí
516, Abs. 4
mu(Uallen'
Bt© Rust^r
Vínhneykslið kemur sér illa fyr-
ir austurríska smávínbændur
Austurrískir stjórnmálamenn
eru byrjaðir að karpa um nýju vín-
lögin sem Fred Sinowatz, kansl
ari, segir að eigi að verða hin
ströngustu í allri Evrópu. 1‘ingið
kemur saman til sérstaks fundar í
lok ágúst og meiningin er að hafa
lögin til í haust. Vínhneykslið hef-
ur sett vínverslun Austurríkis aft-
ur um mörg ár. Margir áhrifa-
miklir vínframleiðendur og vín-
heildsalar blandast inní málið en
stjórnmálamennirinir hafa komist
að samkomulagi um að gera þetta
ekki að pólítísku máli og kenna
ekki hvor öðrum um hvernig kom-
ið er.
Eitruðu austurrísku vínin
voru blönduð diethylenglykoli,
eða frostlegi til að gera þau sæt-
ari. Þau eru flest framleidd í
Burgenlandi sem er í austur-
hluta Austurríkis. Burgenland
hefur hingað til aðallega verið
þekkt fyrir sólrík sumur,
náttúrufegurð og ágæt vín. Það
er vinsælt ferðamannasvæði og
ekki hefur dregið úr ferða-
mannastramnum í ár. Ferða-
mennirnir drekka hins vegar nú
mun meiri bjór en hvítvín, en
það er nokkuð sem ekki hefur
þekkst í Burgenlandi fyrr.
Fjörutiu manns eru þegar á
bak við lás og slá út af þessu
máli. Helsti vínútflytjandi
Austurríkis, Josef Grill, og
bróðir hans eru meðal þeirra og
fyrirtæki þeirra er þegar orðið
gjaldþrota. Fæstir hafa samúð
með þessum köppum en öðru
máli gegnir um smávínbænd-
urna. Megnið af þeim eru heið-
arlegir menn sem hika við að
sprauta nokkrum hlut á vínber-
in sín af ótta við að hafa áhrif á
vínuppskeruna. Þó leynast einn-
ig skúrkar meðal þeirra. Ótrú-
legustu uppskriftir og blöndur
hafa komið í ljós við húsleitir og
rannsóknir á vínum hjá vín-
bændum í sumar. Einn 33 ára
vínframleiðandi í Kleinrieden-
thal í Nieder Osterreich, sem er
norðan við Burgenland, var svo
óheppinn að vera með uppskrift-
ir að bæði frostlagarvínum og
gervivínum í vasanum þegar
verðir laganna bönkuðu uppá
hjá honum.
Smábændurnir rækta vín á 5
til 10 hekturum. Rust er svæði í
Burgenlandi þar sem rúmlega
300 bændur rækta vín. Þeir voru
allflestir mótfallnir því fyrir 20
árum þegar ný austurrísk vínlög
heimiluðu mun stærra svæði en
Rust sjálfu að kalla sín vín
Rust-vín. Þessi heimild kemur
Rust-bændunum mjög illa núna
þar sem mikið af eitruðu vínun-
um eru merkt Rust. Sala bænd-
anna hefur dregist verulega
saman, gamlir viðskiptavinir
treysta þeim ekki fullkomlega
lengur og heildsalar kaupa í
mun minna magni af þeim nú en
áður þar sem að þeir vita að erf-
itt verður að losna við Rust-
vínin. Bændurnir eru áhyggju-
fullir og bitrir og sumir tala um
að hætta vínrækt og snúa sér að
annarskonar landbúnaði.
„Snillingurinn Otto Nadrasky,
sem fann upp frostlagarblönd-
una, situr inni ásamt syni sín-
um. Hann er efnafræðingur að
mennt og tókst fyrir nokkrum
árum að finna formúlu að bæði
gervivínum, sem hafa ekkert
með ávexti eða þrúgur að gera,
og sætum vínum, sem líkjast
„Pradikat“-vínum ef diethyl-
englykoli var blandað saman við
þau. Hann vann hjá Grill-
bræðrunum en stofnaði sitt eig-
ið fyrirtæki fyrir þremur árum
þegar sonurinn lauk prófi í mat-
vælaefnafræði og fékk leyfi til
að skoða, meta og merkja vín.
Eitruðu vínanna varð vart í
vor þegar farið var að leita að
frostlegi í þeim eftir að skatta-
yfirvöld undruðust á magninu af
diethylenglykoli sem einn helsti
vínframleiðandi Austurríkis
notaði. Málið komst þó ekki á
alvarlegt stig fyrr en uppvíst
varð um eitruð austurrísk og
þýsk vín í Vestur-Þýskalandi.
Bandaríkin og Japan bönnuðu
þegar innflutning á austurrísk-
um vínum en eitruðu vínin voru
ekki fjarlægð úr búðarhillum í
Austurríki fyrr en um miðan ág-
úst. Eitraður ávaxtasafi var þá
einnig gerður upptækur.
Ávaxtasafinn hefur vakið sér-
stakan óhug meðal fólks þar
sem börn drekka hann aðallega
og áhrif eitursins fer nokkuð
eftir stærð og líkamsþunga
neytenda. Þó nokkuð magn af
diethylenglykoli var notað til að
gera hvern lítra af vínum og
ávaxtasafa sætari en einn bolli
af efninu er bráðdrepandi.
ab
ÚTSALAI
Gardínuefni
í öllum
Óperu- og ljóða-
námskeið fyrir söngv-
ara og píanóleikara
DAGANA 9.-22. september halda
prófessor Svanhvít Egilsdóttir frá
Vínarborg og breski píanóleikarinn
Charles Spencer námskeið fyrir
söngvara og píanóleikara í sal Tón-
listarskólans á Laugavegi 178. Nám-
skeiðið verður opið öllum til hlustun-
ar.
Svanhvít Egilsdóttir er Hafn-
firðingur. Hún byrjaði ung að
læra á píanó og hélt sjálfstæða
píanótónleika 1933. Árið 1961 varð
hún prófessor við tónlistarháskól-
ann í Vínarborg og hefur kennt
þar síðan.
Píanóleikarinn Charles Spencer
fæddist í Jórvíkurskíri á Englandi
árið 1955. Hann stundaði nám við
Royal Academy of Music í London
og hefur haldið tónleika víða um
heim. Frá árinu 1979 hefur hann
verið „solokorrepetitor" við tón-
listarháskólann í Vínarborg.
Fyrirlestrar
og námskeið
um byrjenda-
kennslu
Námsgagnastofnun gengst dag-
ana 26. til 30. ágúst nk. fyrir dagskrá
og sýningu undir yfirskriftinni
„Hvað ungur nemur, gamall ternur",
í samslarfi við Kennaraháskóla fs-
lands, skólaþróunardeild mennta-
málaráðuneytisins, Frsðslu-
skrifstofu Reykjaness- og Reykja-
víkurumdsmis og Bandalag kenn-
arafélaga. Dagskráin verður f
Kennslumiðstöðinni að Laugavegi
166.
Tilgangurinn með sýningunni er
að stuðla að skapandi skólastarfi
með því að efla umræðu um fyrstu
skólaárin og gefa kennurum og
öðru áhugafólki kost á að kynnast
stefnum og straumum í byrjenda-
kennslu, náms- og hjálpargögnum
og hentugum búnaði.
Dagskráin verður með fjöl-
breyttu sniði, haldnir verða fyrir-
lestrar, kynningar og stutt nám-
skeið. Þá verða starfrækt verk-
stæði þar sem kennurum gefst
kostur á að vinna að námsefnis-
gerð. Leiðbeint verður um gerð
móðurmálsverkefna og námsefnis
í stærðfræði og kennd verður
myndmennta- og leikbrúðuvinna.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
(Úr frélUtiIkynningu)
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
B 21
Vestmannaeyjar:
Sérstök Eyjakvöld
á Gestgjafanum
Vestmannaeyjum, 19. ágúst.
GESTGJAFINN í Vestmannaeyj-
um mun nú á haustmánuðum
bjóða gestum sínum, jafnt heima-
fólki sem ferðafólki er heimsækir
Eyjar, uppá sérstök Eyjakvöld á
veitingahúsinu. Þar verður í mat
og skemmtiatriðum reynt aö
skapa þá sérstæðu Eyjastemmn-
ingu sem sögur fara af.
Um helgar, föstudags- og
laugardagskvöld, verður boðið
uppá sérstaklega útbúið Eyja-
hlaðborð á Gestgjafanum þar
sem m.a. má finna bjargfugla-
kjöt matreitt á marga vegu, s.s.
súlu og lunda. Þá verða á hlað-
borðinu hinir margvíslegustu
sjávarréttir með öllu tilheyr-
andi meðlæti. Á þetta girnilega
hlaðborð geta gestir veitinga-
hússins sótt sér það magn
þeirra gómsætu og forvitnilegu
rétta er það hefur að geyma
meðan magamál leyfir.
Skemmtiatriði verða á
Gestgjafanum á þessum Eyja-
kvöldum og að sjálfsögðu verða
þau í Eyjastíl. Jónas Þórir,
bræðurnir Helgi og Hermann
Ingi Hermannssynir, Runólfur
Dagbjartsson og Einar „Klink“
Sigurfinnsson flytja gömul og
ný Eyjasönglög þar sem mest
eru áberandi hin sígildu lög
Oddgeirs Kristjánssonar við
Ijóð Árna úr Eyjum og Ása í
Bæ. Nú um helgina, þegar frétt-
aritari heimsótti Gestgjafann á
fyrsta Eyjakvöldið, lék Jónas Þ.
Dagbjartsson á fiðlu í lögum
Oddgeirs. Greinilegt var að
þessi nýbreytni í bæjarlífinu
féll í góðan járðveg því fullt var
út úr dyrum á Gestgjafanum
um helgina og rífandi góð Eyja-
stemmning á staðnum. Hjónin
Pálmi Lórensson og Mary Sig-
urjónsdóttir reka Gestgjafann
MorKunblaðiö/GuölauKur
Slarfsfólk Gestgjafans við hlaðið borð af kræsingum.
ásamt skemmtistaðnum Skans- starfsemi í samtengdum bygg-
inum og hóteli, og er öll þessi ingum. - hkj.
TÖL VUN ÁMSKEIÐ
Einkatölvur og MS-DOS
Markmiö námskeiösins er að veita þátttakend-
um þekkingu á uppbyggingu og möguleikum
einkatölva og stýrikerfisins MS-DOS. Fariö er
m.a. í eftirfarandi atriöi:
— Uppbygging og sérstaöa einkatölva.
— Notendahugbúnaöur fyrir einkatölvur.
— Skipulagning og uppsetning geymslumiðla.
— Kerfisskipanir í MS-DOS.
— Notkun skipanaskráa.
— Afritataka og meðhöndlun afrita.
Tími: 9.—11. september
kl. 9:00—12:00.
Multiplan I
Markmið námskeiðsins er aö veita þátttakend-
um haldgóða þekkingu og þjálfun í notkun töflu-
reiknisins Multiplan. Farið er m.a. í eftirfarandi
atriöi:
— Stutt kynning á vélbúnaði.
— Uppbygging töflureiknisins Muitiplan.
— Vinnsluskipanir.
— Afritataka og meðhöndlun gagna.
— Tengimöguleikar við teikniritan Chart.
Tími: 24.—26. september
og 10. október kl.
9:00—12:00.
Framework
Ritvinnsla II
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakend-
um haldgóða þekkingu og þjálfun í notkun sam-
hæfða hugbúnaðarkerfisins Framework. Fariö
er m.a. í eftirfarandi atriði:
— Stutt kynning á vélbúnaði.
— Uppbygging hugbúnaðarkerfisins Frame-
work.
— Kennd notkun einstakra kerfishluta.
— Útprentanir og teiknimöguleikar.
— Afritataka og meðhöndlun gagna.
Tími: 16.—18. og 23. september
9:00—12:00.
kl.
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakend-
um haldgóða þekkingu og þjálfun í notkun rit-
vinnslukerfisins Ritvinnsla II. Farið er m.a. í eftir-
farandi atriði:
— Stutt kynning á vélbúnaði.
— Uppbygging ritvinnslukerfisins Ritvinnsla II.
— Ritvinnsluskipanir og notkun kennsluskjals.
— Afritataka og meðhöndlun gagna.
Tími: 17.—19.
13:15—16:15.
september og 3. október kl.
TÖLVUNÁM ER FJÁRFESTING í FRAMTÍÐ ÞINNI
INNRITUN:
Innritun og nánari upplýsingar fást á skrifstofu
skólans að Síöumúla 27, Reykjavík, og í símum
39566 og 687434, frá kl. 10:00 til 12:00 og 13:00 til
18:00.
Stööugur straumur nýrra nemenda sýnir svo ekki
verður um villst að Framsýn er tölvuskóli meö
tilgang og nám viö skólann hentar allra þörfum,
enda valdi tölvunefnd ríkisins Tölvuskólann Fram-
sýn til aö annast námskeiðahald á IBM og Atlant-
is-einkatölvur fyrir ríkisstarfsmenn.