Morgunblaðið - 25.08.1985, Page 29
MUKUUXStíLAUlU, SUIMÍMUUAOUK Zö. AUUÖl 1^00
JL>
Árlegt
sumarmót
ísleifs-
reglunnar
ÍSLEIFSREGLAN, félag um Greg-
orsöng, heldur sitt árlega sumarmót
í Selfosskirkju dagana 27. til 28.
ágúst nk.
Á mótinu verður sunginn tíða-
söngur eins og tíðkaðist hér áður.
Sá tíðasöngur sem sunginn verður
er Prím, Sext, Vesper og Complet-
orium. Smári ólason mun halda
erindi um samanburðarrann-
sóknir á „gömlu“ passíusálma-
lögum Hallgríms Péturssonar.
Þriðjudaginn 27. heldur Björn Sól-
bergsson orgeltónleika og síðari
daginn verður aðalfundur ísleifs-
reglunnar haldinn kl. 15. Mótinu
lýkur með hámessu í Selfosskirkju
kl. 18.
(FrétUtilkynning)
Fyrirlestur
í Norræna húsinu:
Ólafur helgi
í víking
NORSKI rithöfundurinn Vera Hen-
riksen flytur erindi í kvöld kl. 20.30
um Ólaf Helga í víking. Fyrirlestur-
inn verður haldinn í Norræna hús-
inu. Norski Ijósmyndarinn Johan
Bruun sýnir litskyggnur meðan á
fyrirlestrinum stendur sem hann
hefur unnið um efnið.
Vera Henriksen er þekktur rit-
höfundur í heimalandi sínu og
hefur einkum skrifað sögulegar
skáldsögur. Þekktastar eru án efa
þrjár skáldsögur, „trílógía", um
Ólaf konung Haraldsson. Árið
1983 byrjaði hún að rita skáld-
sagnaröð um íslenskt efni með
„Bodvars saga“, en þar eru ætt-
menn Egils Skallagrímssonar
söguhetjurnar.
Johan Bruun starfar við blaðið
„Dagbladet" í Ósló, en vinnur auk
þess að því að gera litskyggnur úr
náttúru Noregs og sýnir hann þær
með a.m.k. fjórum sýningarvélum
í einu og leikur tónlist með.
Þau Vera Henriksen og Johan
Bruun hafa unnið saman í mörg ár
og eru stödd á Islandi núna til
þess að undirbúa nýja bók og í
sambandi við kvikmynd, sem fjall-
ar um fund Vínlands.
Kork-o-Plast
Gólf-Gljái
Fyrir PVC-filmur, linoleum,
gúmmí, parket og steinflísar.
CC-Floor Polish 2000 gefur
endingargóða gljáhúð.
Notkun: Þvoið gólfið.
Berið CC-Floor Polish 2000
óþynnt á gólfið með svampi
eða rakri tusku.
Notið efnið sparlega en jafnt.
Látið þorna í 30 mín.
Á illa farið gólf þarf að bera
2—3svar á gólfið.
Til að viðhalda gljáanum er
nóg að setja í tappafylli af
CC-Floor Polish 2000 í venju-
lega vatnsfötu af volgu vatni.
Til að fjarlægja gljáann er
best að nota R-1000 þvotta-
efni frá sama framleiðanda.
Notið aldrei salmíak eða önn-
ur sterk sápuefni á Kork-o-
Plast.
Einkaumboð á ísland:
l>. I>orgrímsson & Co.,
Ármúla 16, Reykjavík, s. 38640.
Mörgblöd med einni áskrift!
Er skiptíborðið að springa?
Sérðu fram á að þurfa að fjárfesta i nýju skiptíborði
fyrir nokkur hundruð þúsund krónur!
Við getum bent þér á ódýrari lausn!
Þú heldur gamla skiptiborðinu, en færð þér
STANDARD DESK 2500/2 tveggja línu sím-
ann fyrir þá starfsmenn sem þurfa að hringja
mikið. Aðra línuna á STANDARD DESK
2500/2 læturðu tengja við skiptiborðið en
fyrir hina línuna færðu nýtt númer. STAND-
ARD DESK 2500/2 getur geymt samtal og
minnir þig á það með grænu ljósi. STAND-
ARD DESK 2500/2 notar hvort sem er Tón-
val eða Púlsval við val á númerum, og sé
númerið á tali er nóg að ýta á einn takka til
STANDARD DESK 2500/2 síminn sem minnkar álagiö.
Verð: 6.250,-
Skiphoiti 19, sími 29800
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS er að veita þeim, er starfa við áætlanagerð og flókna útreikninga,
innsýn í hvernig nýta megi Multiplan-áætlanagerðarkerfið í starfi.
■ Efni: - Uppbygging Multiplan - (töflureikna)
- Helstu skipanir
-Uppbygging líkana
- Meðferð búnaðar
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað starfsmönnum fyrirtækja
sem nota eða ætla að nota Multiplan (töflureikna).
Leiðbeinandi: Páll Gestsson,
starfsmaður Skrifstofuvéla hf.
Tími: 2.-4. seotember kl.13-17
Tilkynnið þátttöku í síma 62 10 66
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 ■ Sími: 6210 66
MULTIPLAN
Multiplan er áætlanagerðarkerfi (töflureiknir), sem öll fyrirtæki geta notfært sér viö útreikninga.
Við áætlanagerð getur Multiplan sýnt ótal valkosti, eftirlíkingar og gert tölulega úrvinnslu.