Morgunblaðið - 25.08.1985, Qupperneq 38
38 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1985
LR I EIUI rVrMyNDANNA
V
>
The Right Stuff, væntanleg í
Austurbæjarbíó, greinir frá
árdögum geimvísindanna, þegar
vestriö og austriö kepptust um aö
komast út í geiminn. Myndin er
byggö á bók Tom Wolfes, The
Right Stuff.
Geimfararnir eru kúrekar geim-
aldar, en Philip Kaufman, sem var
fenginn til aö skrifa handritiö eftir
doöranti Wolfes og stjórna mynd-
inni, lætur sér ekki nægja aö segja
frá afrekum þessara manna, hann
fer baksviös og segir frá einkalífi
þeirra og þrotlausum æfingum.
Myndin spannar 16 ár þótt hún
sé byggö í kringum 9. april 1959,
þegar Chuck Yeager (sem fyrstur
manna rauf hljóðmúrinn), Alan
Shepard, Virgil Grisson, John
Glenn (síðar þingmaöur og for-
setaframbjóöandi), Scott Carpent-
er, Walter Schirra, Gordon Cooper
og Donald Slayton skrifuöu nöfn
sin í mannkynssögubækurnar og
uröu fyrstu geimfarar hins vest-
ræna heims.
Fjöldi frægra leikara er i þessari
mynd, þeirra á meöal eru Sam
Shepard, Ed Harris, Scott Glenn,
Dennis Quaid, Barbara Hershey og
Kim Stanley.
Sagan á bak viö þessa mynd er
Sam Shephard
ieikur Chuck
Yeager, sem
fyrstur varð til
aö rjúfa hljóö-
múrinn.
fanga, bjargaðist hann úr ömurleg-
ustu niðurlægingu innan múranna
og er í dag háttvirtur listamaöur og
forsvarsmaöur skoskra utan-
garösmanna. Hann var frumkvöö-
ull í gifturíku starfi, sem m.a. hefur
aliö af sér The Getaway Exhange
og starfrækir endurhæfingarmiö-
stöövar vítt um Skotland fyrir
afbrotamenn og eiturlyfjasjúklinga.
Á næstu dögum veröur frum-
sýnd í Tónabíó glæný kvikmynd, A
Sense of Freedome, um þennan
merkilega og athyglisveröa
baráttumann. Hér er ekki um
heimildarmynd aö ræöa, heldur er
hún byggö á staðreyndum. Fram-
an af er hún ekki falleg. Boyle var
nefnilega harösvíruö glæpaspíra,
óhugnanlegt hrottamenni, alinn
upp í fátækrahverfi Glasgow borg-
ar, einni illræmdustu gróörarstíu
mannlegrar niöurlægingar í Evr-
ópu.
Boyle varö fljótlega afkastamik-
ill glæpamaöur sem vakti sérstaka
athygli fyrir hrottaskap og ónæmi
fyrir ótta og sársauka. Leiö hans lá
fljótlega inn fyrir múrana, þar sem
hann hataöist viö verðina og
dvaldist langtímum í einangrun.
Árin liðu og Boyle átti æ
skemmri frelsistímabil og innan
veggjanna var hann oröinn mar-
tröö fangelsisyfirvalda. En þá var
hann sendur í Barlinne-fangelsiö
sem er fyrir fanga sem enginn get-
ur tjónkaö viö, þar er stjórnaö á
annan hátt en í öörum fangelsum
— fangar bera ábyrgö á stjórn
stofnunarinnar og eigin lífi í sam-
vinnu meö vöröunum. Þaö skipti
sköpum þvi nú kynntist Boyle list-
þjálfuninni og loks tilfinningunni
fyrir aö vera frjáls maður.
sv.
Austurbæjarbíó:
THE RIGHT STUFF
DIANE
Kúrekar geimaldar: Scott Glenn, Scott Paulin, Charles Frank, Fred
Ward, Lance Henriksen, Dennis Quaid og Ed Harris.
Tónabíó: Frelsisbarátta (A Sense of Freedom):
Að finna un-
að frelsisins
löng, framleiöandinn talaöi viö
fjöldann allan af leikstjórum, þeirra
á meöal Michael Ritchie og John
Avildsen, en þeir gátu ekki sætt
sig viö fyrirfram gerð plön fram-
leiöandans, og þaö gat handrits-
höfundurinn William Goldman ekki
heldur, en hann segir frá sárri
reynslu sinni varðandi undirbúning
myndarinnar í bók sinni Adventur-
es in the Screentrade.
Framleiöendurnir Chartoff og
Winkler, sem eru frægir fyrir aö
standa á bak viö myndir eins og
Rocky og Raging Bull, voru meö
ákveönar hugmyndir um myndina
sem gera átti eftir The Right Stuff.
Þegar þeir ræddu viö Goldman
höföu þeir þegar sett fram bygg-
ingu myndarinnar í stórum drátt-
um: geimfararnir valdir, þjálfun
þeirra, Shephard, Grisson, Glenn.
Goldman byrjaöi á handriti, hann
sagöist vilja hafa einhverja já-
kvæða punkta um Ameríku í þess-
ari mynd, en svo virtist sem Chart-
off og Winkler mættu ekki heyra á
þaö minnst, sögöu viö Goldman:
takk fyrir samvinnuna, og fengu
Philip Kaufman í staöinn. Og af-
raksturinn at vinnu hans veröur
hægt að sjá í Austurbæjarbíói inn-
an nokkurra daga.
KEATON
Um helgina lauk í Norræna
húsinu sýningu The Getaway
Exchange, sem hefur aö markmiöi
„að skapa mannsæmandi um-
hverfi, þar sem hiö skapandi afl
mannsins getur leyst úr læöingi og
breytt li'fi hans til batnaöar", líkt og
segir i bæklingi hópsins.
Forsvarsmaöur þessa hóps
Jimmy Boyle, er líkt og meölimir
hans, fyrrverandi afbrotamaöur.
Fyrir hjálp listþjálfunar, (art ther-
apy), og núverandi konu sinnar,
sem er geölæknir illmeöfærilegra
David Hayman í hlutverki Jimmy Boyle, illræmds glæpamanns sem
tók sönsum og er mikilsvirtur í dag sem listamaöur og frumkvöðull
fyrir endurhæfingu utangarðsmanna. Úr myndinni A Sense of Free-
dome, sem gerð er af hinu athyglisveröa fyrirtæki George Harrison og
félaga, Handmade Films.
Diane Keaton er ekki lengur sú
leikkona af þeirri stæröar-
gráöu sem hún var fyrir tæplega
tiu árum. Þá var hún drottning
bandarískra kvikmynda. lék í
myndunum um Guöfööurinn og í
myndum Woodys Allen, Ánnie Hall
og Manhattan, hlaut Oskarsverð-
laun fyrir þá fyrrnefndu, en eftir aö
hún lék í Reds áriö 1981 tók hún
sér þriggja ára frí, en núna er hún
byrjuö aftur og lék í tveimur mynd-
um á síðasta ári, en hvorug þeirra
hefur rataö hingaö tii lands.
John Le Carré haföi vonast til
aö hálfsystir sín fengi aöalhlut-
verkiö í mynd eftir bókinni The
Little Drummer Girl, en meira aö
segja stórir rithöfundar verða aö
beygja sig undir ákvaröanir kvik-
myndaveranna. Leikstjórinn
George Roy Hill vildi fá Diane
Keaton og Warners samþykktu aö
greiða henni 1,5 milljónir dollara.
Bókin er löng og flókin og myndin
varö löng og flókin, sumir segja of
löng og flókin, og ef til vill er þaö
ástæöan fyrir aö myndin gekk ekki
í áhorfendur, en eiga islendingar
aö líöa fyrir smekk Engil-Saxa?
Hin myndin sem Diane lék í heit-
ir Mrs. Soffel og varö gerö af ástr-
alska kvenleikstjóranum Gilliam
Armstrong. Myndin sú arna hlaut
jafnvel enn daprari viötökur en hin
fyrri. Myndin segir sanna sögu um
unga eiginkonu fangavaröar sem
veröur ástfangin af dæmdum
morðingja (Mel Gibson) og hjálpar
honum að flýja.
HJÓ.
Diane Keaton
Keaton í myndinni The Little
Drummer Girl.