Morgunblaðið - 06.10.1985, Page 9

Morgunblaðið - 06.10.1985, Page 9
HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1985 9 „Hvad virðist ydur um Krist?“ - eftir séra HEIMI STEINSSÖN IJíérgœti orðið „guðsvitund" borið hátt. Allir menn eiga sér „guðsvitund“ í einhverjum skilningi og í stœrri eða smœrri mœli, meðvitund um Guð, tilfinningu fyrir nœrveru hans eða fjarska. Jafnvel guðsafneitun er „guðsvitund“ með öfugu forteikni. “ í dag er 18. sunnudagur eftir Þrenningarhátíð. Fyrsta guð- spjall dagsins geymir meðal annars þá spurningu, sem höfð er að yfirskrift þessarar hugleið- ingar. Jesús ber spurninguna fram, og faríseunum er ætlað að svara henni. í munni hans og þeirra snýst spurningin um efni úr Gamla testamenti. En það verður ekki rætt hér. I okkar vitund er orðið „Kristur" fyrst og fremst sérnafn. Þegar við berum spurninguna fram, merk- ir hún nánast þetta: Hvaða skoð- un hafið þið á Kristi Jesú? — Þetta er mikil einföldun, en þannig lítur málið út í reynd. Um það skulum við hugsa í dag. „Engu nær“ Eitt sinn stóð ungur prestur í predikunarstóli og leitaðist við að leggja út af nefndri spurn- ingu. Að lokinni guðsþjónustu vék einn kirkjugesta honum af- síðis og sagði eitthvað á þessa leið: „í dag varð ég fyrir miklum vonbrigðum. Fyrir alllöngu komst ég að þeirri niðurstöðu, að ég get ekki lifað án trúar á Guð. Ég hef lagt rækt við þá trú. Ég geri mér mínar hugmyndir um Guð, og þær hugmyndir ganga upp að mestu. En mér hefur aldrei tekizt að botna í Jesú Kristi. Hann er hálfgert vandamál í þessu sambandi og kemur ekki sam’an og heim við trú mína að öðru leyti. Núna, þegar ég sat í kirkjunni í dag og heyrði þig lesa þennan texta og gerði mér ljóst, að þú ætlaðir að fjalla um hann, þá einsetti ég mér að hlusta gaum- gæfilega. Nú kæmi e.t.v. svarið viö einhverri af þeim spurning- um, sem ég bý yfír varðandi Krist. En ég verð að segja þér það hreinskilnislega, að ég er engu nær eftir þessa predikun. Ég er ekki að gagnrýna þig. En mér fannst ég mega til með að segja þér einsoger." Presturinn ungi gaf sér góðan tíma til þeirrar umræðu, er á eftir fór, — og það gerðu þeir félagar báðir. Kirkjugestinum var ekkert fjarskalega mikið niðri fyrir. Hann var í góu jafn- vægi, þróttmikill maður í styrkri stöðu á veraldarvísu. Spurningar hans brunnu ekki á honum eins og eldur. En þær ollu varanlegum sviða. Þeir skildu þennan dag, prest- urinn og spyrillinn, við svo búið. Og skildu þó ekki. Héldu þvert á móti áfram að hittast, meðan báðir lifðu, í kirkju og utan. En hvort þeim tókst að orðfæra svarið vð spurningunni um Krist, verður ekki fullyrt hér. Flókið mál í raun er það ekkert undarlegt, að mönnum vefjist tunga um tönn andspænis spurningunni: „Hvað virðist yður um Krist?" Líklegt er, að enginn persónu- leiki í sögu manna sé jafn margslunginn og Jesús. Hér við bætist annað: Frumheimildirnar um hann eru í ýmsu tilliti einkar torráðnar. Á grundvelli þeirra hefur kirkjan að sínu leyti reist undursamlega byggingu viðhafn- armikillar trúfræði, sem að kjarnanum til er óbreytt frá öld til aldar, en skiptir í sífellu um áherzlur og yfirbragð hið ytra. Guðfræðingar eyða langri ævi í að glíma við ofanritaða spurn- ingu og aðrar áþekkar. Seint verða þær á einu máli um öll svör. Það er þakkarefni, ef þeir skilja hver annan. Tæpast er við því að búast, aö leikmenn ráði að fullu þær rúnir, sem ristar eru á spjöld guðfræðinnar. Og er vísast bættur skaðinn. Fitjað upp á svari Einhvern tíma gat ég þess til hér í sunnudagshugleiðingu, að kristin trú væri öðru fremur í því fólgin að reiða sig á það, sem Jesús frá Nazaret hafði fyrir satt varðandi sjálfan sig og Guð og menn. Rétt erað ítreka þessa tilgátu í dag. Þar með ber okkur að spurningum um trú hans, sem við nefnum frelsara heimsins. Hér gæti orðið „guðsvitund" borið hátt. Allir menn eiga sér „guðsvitund" í einhverjum skiln- ingi og í stærri eða smærri mæli, — meðvitund um Guð, tilfinn- ingu fyrir nærveru hans eða fjarska. Jafnvel guðsafneitun er „guðsvitund" með öfugu for- teikni. Guðsvitund Jesú frá Nazaret var með þeim hætti, að til einskis verður jafnað. Hann nefndi Guð „föður". Tilfinning hans fyrir nærveru Guðs var svo sterk, að hann sagði: „Ég er í föðurnum og faðirinn í mér.“ Þessi orð og fjölmörg hliðstæð ollu því, að samtímamenn Krists gáfu hon- um viðurnefni á borð við „sonur Guðs“, jafnvel „sonurinn eini“. En Jesús viðhafði sama ögrandi orðaleikinn um fleiri efni en sína eigin guðsvitund. Við lærisveina sína sagi hann: „Verið í mér, þá verð ég í yður.“ Með þeirri hvatningu skírskot- ar hann til guðsvitundar iæri- sveina sinna og tengir vitund þeirra sinni eigin persónu og trú- arþeli. Allir eiga þeir að verða „eitt í Guði“, Jesús Kristur og hinir, sem honum fylgja að mál- um. Þegar menn eftir á fléttuðu saman þessar yfirlýsingar Krists og fyrrgreind viðurnefni, var bæjarleiðin orðin stutt yfir til „guðfræðilegrar" samantektar, er t.a.m. gat hljóðað svo: „Hann gjörðist líkur oss, til þess að vér yrðum eins og hann“. Það var þannig engin tilviljun, að Jesús Kristur var nefndur meðalgangari milli Guðs og manna, sannur Guð og sannur maður allt í senn. í einum af pistlum þessa Drottinsdags er eftirfarandi orð að finna: „En ef einhver syndgar, þá höfum vér árnaðarmann hjá föðurnum, Jesúm Krist, hinn réttláta. Hann er friðþæging fyrir syndir vorar og ekki ein- ungis fyrir vorar syndir, heldur líka fyrir syndir alts heimsins." Hér er brugðið á loft nýrri mynd, sem að sínu leyti ristir dýpra en hinar, er fyrr var til vitnað. Sjálfur talaði Jesús um það, að honum bæri að láta líf sitt til lausnargjalds fyrir marga. Sérhver tilraun til að svara spurningum um Krist hlýt- ur að mistakast, ef menn ekki hafa í huga þá vídd endurlausn- ar, upprisu og eilífðar, sem þessi orð ljúka upp. Þar með er ekki sagt, að málið einfaldist til muna. En vera má, að það taki nýja stefnu: Ég er ekki réttlátur og þú sjálfsagt ekki heldur, sem þetta kannt að lesa. Guðsvitund okkar er trúlega ekki upp á marga fiska. Við fáum tæpast sagt, að við ævinlega lif- um „í Kristi", — a.m.k. ekki ef þau orð eiga að tjá tiltekið hugar- ástand, er birtist í sérlegu at- ferli. Fyrr skrifuð hvatning Krists til lærisveinanna kann því að valda okkur einu saman angri, en lítilli uppbyggingu. Eitt er okkur þó ljóst, báðum tveim: Við finnum seint og snemma, hve mjög okkur er áfátt í öllum efnum. Og þótt okkur geti veitzt ðrðugt að viðurkenna þann skort fyrir öðrum mönnum, má vera, að við fáum játað hann fyrir sjálfum okkur, — og þar með fyrir Guði. Með þeim hætti nálgumst við Krist, hann sem við seint getum „skilið". — Við þiggjum að eiga hann að sem árnaðarmann hjá föðurnum og friðþægingu fyrir syndir okkar. Hann bætir um það allt, sem okkur mistókst, og gef- ur okkur að lyktum ævarandi líf í ríki sínu. Þar munu þeir þ á einnig hitt- ast um síðir, presturinn, sem forðum var ungur, og kirkjugest- urinn góði. Þá verður væntanlega ekki framar rætt um Krist, held- ur munu báðir lúta honum og lofa hinn upprisna frá eilífð til eilífðar. * Arnaðarmadur hjá fóðurnum r V SÖLUGENGI VERÐBRÉFA 7. OKT. 1985 Spadsbiteíni, happdraettistan og reiðbret Sötajgengi Avöxtun- Oagafjökli Áí-floMiu. pr. kr. 100 arkrafa tll mm.d. 1971-1 23 7*2,80 Innlv f Sáðéab. 15.09.85 1972-1 21.335,32 7,50% 108 d. 1972-2 17 185,51 Innlv. t Saölab. 15.09.85 1973-1 12.514,96 Innht. i Sáðlab. 15.09.85 1973-2 11.882,45 7,50% 106 d. 1974-1 7.584,97 Innlv. I Seðlab 15.09.85 1975-1 6.259,66 7,50% 93 d. 1975-2 4.631,73 7,50% 108 d. 1976-1 4.156,24 7,50% 153 d. 1976-2 3.447,09 7,50% 108 d. 1977-1 2.971,03 7,50% 168 d. 1977-2 2.605,31 Inntv. 1 Saðlab 10.09.85 1976-1 2.014,52 7,50% 168 d. 1978-2 1.864,34 Innlv. t Seðiab 10.09 85 1979-1 1.368,13 7,50% 138 d. 1979-2 1066,03 Innlv. I Saðlab. 1539.85 1960-1 945,58 7,50% 188 d. 1980-2 768,42 Innlv 1 Seðlab 25.10.85 1981-1 63633 7,50% 108 d. 1991-2 465,67 7,50% 1 ár 8 d. 1962-1 439,13 730% 144 d. 1962-2 332,09 mmv 1 Soðiab 1.10.85 1963-1 255,13 7,50% 144 d. 1963-2 162,06 7,50% 1 ár 24 d. 1984-1 157,82 7,50% 1 ár 114 d. 1964-2 149.82 7,50% 1 W 333 d. 1964-3 144,80 7,50% 2 ár 35 d. 1985-1 130,07 7,50% 2 ár 93 d. 197WS 3.819,54 8,00% 54 d. 1976-H 3.456,69 8,00% 173 d. 19764 2.671,48 8,00% 1 ár 53 d. 1977-J 2.377,55 8.00% 1 ár 174 d. 1961-1FI 506,11 8,00% 204 d. 1965-1IB 85,71 1130% 10 ár, 1 afb á árl 1965-2IB 86,70 10,00% 5 ár, 1 afb. á árl 1965-3» 86,10 10,00% 5 ár, 1 afb á irl Veóskuldobréi- Lánst 2afb Aád 1 ár 2ár 3ár 4ár 5ár 6ár 7ár 8ár 9 ár 10ár )l m.v mlwn. ávöxlunar- 12% 14% 18% Veísiuldabréí - oreiðtiy 59J E)arabiel Verðbietas)oðslns H y. 400 -1 im Söluvsrö 6.240 Orðsending til eigenda Sparískírtema Ríkissjóðs: Nú er enn komið að innlausn Spariskírteina 10. og 15. sept.-l. og 25. okt. Við bendum á tvo góða ávöxtunarkosti sem geía 13 - 18% vexti umfram verðtryggingu. Kjarabréf Verðbréfasjóðsins og verðtryggð veðskuldabref. Verðbrcfamarkaður Fjárfestingarfélagsins Fjárhúsinu, Hafnarstræti 7. 101 Reykjavík, sími 28566. J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.