Morgunblaðið - 06.10.1985, Síða 30

Morgunblaðið - 06.10.1985, Síða 30
30 MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER1985 Aðalsteinn Bergdal, Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Helgi Björnsson og Sigrún Edda Björnsdéttir í hlutverkum sínum í Land míns fóður. Fuglinn þarf fjaðrir og bein Frímerki Jóhann Hjálmarsson Leikfélag Reykjavíkur: Land míns foður eftir Kjartan Ragnarsson. Tónlist: Atli Heimir Sveinsson. Hljómsveitarstjóri: Jóhann G. Jó- hannsson. Lýsing: Daníel Williamsson. Dansar: Ólafía Bjarnleifsdóttir. Leikmynd: Steinþór Sigurðsson. Búningar: Guðrún Erla Geirsdóttir. Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson. Nú þegar söngleikir eru í tísku er það vitanlega heillaráð að búa til íslenskan söngleik. Það hefur Kjartan Ragnarsson gert með Land míns föður sem fjallar um blessað stríðið sem kom í bsinn. Margir hafa lagt Kjartani Ragnarssyni lið í þessu efni, en stærstur er hlutur Atla Heimis Sveinssonar tónskálds. Þrátt fyrir mikla tónlist og marga söngva verður þó leikrit- unin ofan á. Land míns föður er fyrst og fremst leikrit. Kjartan Ragnarsson leggur áherslu á að túlka stríðsárin með dramatísk- um hætti, segja algilda sögu þessara ára. Hann kemur með vísu ekki með margt nýtt upp á leiksviðið, heldur lætur yfirleitt nægja að rifja upp það sem gerð- ist í lifi þjóða og einstaklinga. Land míns föður er upprifjun atburða sem sumir kynntust af eigin raun, aðrir sjá nú i fjarska. Kjartan er að visu ekki hlutlaus túlkandi, en hann gætir þess vandlega að fjalla af hófsemi um efnið, þar sem honum er mest niðri fyrir fær áhorfandinn sjálf- ur að setjast í dómarasætið. Aftur á móti er það svo að í þeim atriðum sem viðkvæmust eru með tilliti til samfélags go gamalla og nýrra hitamála nær Kjartan bestu sambandi við áhorfandann. Ég á einkum við atriði á Þingvöllum 17. júní 1944, þar sem börn spyrja hvað það sé sem hinir fullorðnu nefna lýð- veldi. Og hjá þessum börnum er framtíðin í vagni, barn íslenskr- ar stúlku og bresks hermanns. í þeim texta sem fluttur er á Þingvöllum öðlast rödd höfund- arins kraft, umræðan leiðir til íhugunar, átaka og spennu af dramatískum toga. Það er hins vegar víða í verk- inu að finna efni sem skrifar sig sjálft, verður ósjálfrátt til hjá sagnamanni, sagnaritara er lík- lega betra orð. Við kynnumst venjulegri fjölskyldu sem flækist í ástandsmál og í námunda við þessa fjölskyldu og tengdar henni eru ýmsar skuggafígúrur, myndir á tjaldi sögunnar. Þessar fígúrur eru margar hverjar fjaðralausar. En fuglinn þarf fjaðrir og bein, ekki síst í leikritum. Þegar Land míns föður er borið saman við önnur leikrit Kjartans Ragnarssonar verður ekki annað sagt en verkið sé merki um þroska höfundar og aukna kunn- áttu. En aðferð söngleiksins, til- hneigingin til að höfða til sem flestra og sætta þá, dregur úr verkinu mátt svo að það verður um of slétt og fellt. Ýmsir leikrænir kostir styrkja þó Land míns föður. Þessir kostir eru ekki síst tæknilegir. Leikstjórnin er á köflum bæði góð og vönduð. Leik- ararnir sem líka eru söngvarar og dansarar eftir atvikum sönn- uðu eftirminnilega að þeir ráða við form söngleiksins. Það voru mörg einstaklega vel heppnuð og jafnvel falleg atriði í Land míns föður. önnur voru daufleg og eins og til uppfyllingar. Það er alltaf leiðilegt að verða vitni að slíku. Hvað gæti komið til hjálpar? Svarið er meiri harka gagnvart höfundi verksins, rífa blöð úr handritinu og fleygja þeim. En nú vill svo til að höfundur og leikstjóri eru sami maðurinn. Við hvern á þá að kvarta? í þetta skipti er sökin beggja. Tónlist Atla Heimis Sveins- sonar er að sönnu geðfelld og trúverðug, söngvarnir skemmti- legir. En textinn er í senn mark- laus og merglaus. Litum á þetta til dæmis: Allt er núna söngur seiðandi, „sörar“ ganga um dömur leiðandi, eðalvínin fljóta I straumum freyðandi — út úr. (Þegar kanarnir komu) Hér verður aðeins getið leikara sem sérstaka athygli vöktu í Land míns föður. Helgi Björnsson, Sæli, náði þeim tökum á hlutverki sínu að tiðindi geta talist. Leikarar sem gerðu vel í stórum hlutverkum og smáum voru einkum Sigrún Edda Björnsdóttir, Jón Sigur- björnsson, Aðalsteinn Bergdal, Gísli Halldórsson, Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Hallmar Sig- urðsson, Guðmundur ólafsson og Karl Guðmundsson. Nýliðinn Steinunn ólína Þorsteinsdóttir komst vel frá önnu, Ágúst Guð- mundsson lék af miklum tilþrif- um. Góða sviðsframkomu höfðu þær Elín Edda Árnadóttir og Pálína Jónsdóttir. Krakkarnir Unnur ösp Stefánsdóttir og Ragnar Kjartansson, voru ekki bangin og stóðu sig prýðilega. Fleiri mætti auðvitað nefna, m.a. kempur á borð við Guðmund Pálsson, Kristján Franklín, Magnús og Jakob Þór Einarsson. Steinþór Sigurðsson fór leið einföldunar í leikmynd sinni, en náði góðum árangri með stuðn- ingi Daníels Williamssonar ljósameistara. ólafía Bjarnleifs- dóttir var höfundur líflegra dansa og búningar Guðrúnu Erlu Geirsdóttur voru ákaflega sam- kvæmir þeim hugmyndum sem við gerum okkur um tíma verks- ins. Meðal atriða sem vöktu vonir um annað og meira en það sem Land míns föður hafði upp á að bjóða var sviðsmynd á Hótel Borg, tæknilega vel gerð að öllu leyti. Maður hélt að nú væri að koma eitthvað dæmigert fyrir stríðsárin, skemmtun og alvara sem höfðaði til áhorfenda. En það sem átti sér stað í atriðinu var óvenju flatt. Tvær konur frömdu þjóðlegan söng í viður- vist hermanna og afbrýðisamur landi mótmælti með því að leggja til vonlausrar atlögðu við spill- inguna. Þetta var efniviður sem ekki var nýttur. Svo var um fleira í sýningunni. í Land míns föður hefur Kjart- an Ragnarsson farið inn á þær brautir að endursegja, spegla liðinn tíma, atburði sem mótað hafa íslenskt samfélag og gera enn. Hann þarf að setja sig í stellingar skáldsins og skapa í staðinn fyrir að túlka. En að þessu leyti stendur hann ekki einn sér íslenskra leikritahöf- unda. Hann hefur aftur á móti sýnt að hann kann, er í stakk búinn til að höfða til okkar með sterkari hætti. Við bíðum. Námskeið í farseðla- útgáfu fyrir almenning FERÐASKRIFSTOFAN Samvinnu ferðir-Landsýn mun á næstunni gangast fyrir námskeiði í farseðlaút- gáfu fyrir almenning. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt námskeið er haldiö fyrir aðra en þá sem starfa hjá flug- félögum eða ferðaskrifstofum. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Auði Björnsdóttur hjá Samvinnuferðum-Landsýn fyrir helgina og var hún spurð hvers vegna þetta námskeið væri haldið. „Almenningur hefur hvergi get- að fengið menntun á þessu sviði áður og það kemur sér oft illa þegar fólk sækir um vinnu hjá ferðaskrifstofum eða flugfélögum, sagði Auður. „Á hverju ári rignir inn umsóknum frá fólki sem hefur áhuga á að starfa við þessi fyrir- tæki, en skortir þekkingu á ferða- málum. Með þessum námskeiðum gerum við þessu fólki kleift að kynna sér þessi mál og vera betur í stakk búið þegar það sækir um starf. Þetta hefur verið þröngur hópur fólks sem kann til þessara verka og það hefur flust mikið á milli fyrirtækja. Nú er brýn nauð- syn á að fá fleira fólk inn í stétt- ina.“ -Er útgáfa farseðla flókið mál? „Já, hún er það. Það tekur tíma að læra þetta, en með góðri undir- stöðu og þjálfun kemur þetta. Mikilvægast er að fá rétta undir- stöðumenntun og til þess að tryggja það höfum við fengið reyndan leiðbeinanda, Jónas Jón- asson, til liðs við okkur, en hann hefur verið leiðbeinandi hjá Flug- leiðum ífjölda ára.“ - Hvernig verður námskeiðinu háttað? Morgunbladið/Bjarni Auður Björnsdóttir „Námskeiðið stendur yfir í tvær vikur. Kennt verður frá klukkan 18.00 til 22.00, fimm kvöld í hvorri viku. Á þessum tíu kvöldum verður kennd farseðlaútgáfa. En það er ekki nóg að kunna að reikna. Fólk þarf líka að kunna að selja og þess vegna verður sölu- og þjónustu- námskeið ellefta kvöldið. Fyrsta námskeiðið hefst 28. október og verða 12 nemendur teknir inn. Ef fleiri sækja um að komast á nám- skeið og ef fyrsta námskeiðið tekst vel verða fleiri haldin. Auk þess höfum við í hyggju að halda fram- haldsnámskeið. Þessi námskeið eru öllum opin, en við setjum þó eitt skilyrði. Umsækjendur verða að kunna ensku, því allar kennslubækurnar eru á ensku, sagði Auður Björnsdóttir að lok- um.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.